Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2002, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2002, Síða 16
Ekkert virðist mönnum vera heilagt lengur. Það nýjasta hjá sölumönnum hjálpartækja ást- arlífsins eru kristilegir titrar formaðir sem María mey, Móse eða sjálfur Jesús Kristur. Guðdómlegir limir Á vefsíðunni Divine-interventions.com er hægt að komast í samband við kristnidóminn á heldur nýstárlegan hátt. Um er að ræða titrara sem kenndir eru við persónur í Biblíunni, fólk eins og Móse, Júdas og Maríu mey. Jesú Krist er einnig hægt að fá í tveimur mismunandi útgáfum, annaðhvort sem bam í jötu eða á krossinum og er greinilegt að ekkert er lengur heilagt í veröldinni. Eigendur Divine Interventions bjóða einnig upp á titrara fyrir aðra trúar- hópa. Þar er t.d að finna Búddatitrara sem lofar að hjálpa eigendum sínum að komast til Nirvana. Enn sem komið er er þó engan Allah að finna í versluninni enda spurning hvort það borgi sig fyrir hina bandarísku eigendur að reita múslíma til reiði. Kiddi Bigfoot skemmtanastjóri. Shrek kvikmyndastjarna. Þeir eiga margt sameiginlegt tvtfarar þessarar viku. Báðir eru þeir í skemmtanabransanum; báðir eru þeir stórir og stæðilegir á velli og báð- ir skarta þeir sterklegum og miklum tanngarði. Þetta eru auðvitað félag- arnir Kiddi Bigfoot og teiknimyndastjarnan Shrek eða Skrekkur eins og hann hefur verið nefndur á hinu áskæra ylhýra. Kiddi var nokkuð í umræðunni á síðasta ári þegar hann lýsti óvæntum hjartagalla sínum í Séð og heyrt. Shrek fékk engu minni umfjöllun, kvikmyndin um hann dró margan Islendinginn í kvikmyndahús. Sem sagt þekktir menn þama á ferð. Fréttimar sem fæstir heyra Uppþvottavél fyrir gæludýr Tveir Spánverjar, Eduardo Segura og Andrés Diaz, hafa búið til uppþvottavél til að þvo gælu- dýr í. Segja þeir að vélin sé alveg örugg og að það sé mun auðveldara að þrífa bæði hunda og ketti í þessari vél heldur en í höndunum. Vélin sér ekki bara um þvott á gæludýrum heldur þurrkar hún einnig dýrin og það á innan við hálftíma. Hægt er að fylgjast með hvernig þvotturinn gengur í gegnum lttinn glugga á vélinni. Indverskur gáttaþefur Sextugur Indverji að nafhi Venkat Raj Bhat virðist vera þeim ótrúlega eiginleika gæddur að geta þefað sig fram til vatns. Indverjinn mun hafa fundið um 5000 vatnsupp- sprettur og það með hjálp lyktar- skynsins. Bhat grefur einungis nokkra sentf- metra upp úr jörðinni, lyktar af moldinni og get- ur á þann hátt sagt til um hvort það sé vatn að finna þar undir eða ekki - og hef- ur hann vtst aldrei haft rangt fyrir sér. Hótel í krana Nýstárlegt hót- el mun brátt rísa í Harlingen t' Hollandi. Á hót- elinu er aðeins eitt herbergi og þar getur aðeins eitt par gist í einu. Hótel þetta er staðsett niðri við höfnina, nánar tiltekið í byggingarkrana. Gestir verða að príla upp 15 metra langar tröpp- ur til að komast í svefnherbérgið sem er víst með geðveiku útsýni yfir höfnina. VlLJA EKKI KYNLÍF MEÐ KONUNNI Nýleg könnun sem gerð var á Italíu sýnir að 40% af ítölskum karlmönnum stunda kynlíf með eiginkonu sinni án þess eiginlega að vilja það. Könnunin sýndi að ítalskir menn hafa meira gaman af því að táldraga konur heldur en akkkúrat að sofa hjá þeim. Sögðu flestir að eðal- steinar, lúxusbátar og dýrar máltíðir væri það sem best virkaði til að ná athygli kvenna. Skemmtilegri matarboð Svissneskur uppfinningamaður hefur fundið upp allsérstakt matarborð. Stólarnir við borðið færast úr stað þannig að ef maður er með matar- boð þá sitja gestirnir aldrei of lengi við hliðina á sama aðilanum. Við borðið er pláss fyrir 18 gesti og um leið og stólamir færast úr stað fylgir mat- urinn með. Þetta ætti að vera kærkomin nýjung sem kemur algjörlega í veg fyrir að matarboðin verði of þurr og leiðinleg. Crafinn í sígarettupakka Rúmanskur stórreykingamaður, Mihai Cep- leuca frá Búkarest, hefur búið til sína eigin lík- kistu úr um 7.000 sígarettupökkum sem hann hefur reykt sjálfur. Með þessu uppátæki sínu vill hann sýna fram á skaðsemi reykinga. Sjálfur reykir hann tvo pakka á dag og segist ekki geta hætt að reykja og því munu sígarettumar fylgja honum til grafar í orðsins fyllstu merkingu því það er ekki bara kistan sem er búin til úr sígar- ettupökkum heldur er kodd- inn fylltur með sígarettufilter- um. Nakinn í 80 ÁR Fyrir 80 árum fékk Indverjinn Kanduri Bhoi hita og veiktist. Þá var hann 10 ára gamall en síðan þá hefur þessi 90 ára gamli Indverji gengið nakinn. Ástæðan er sú að hann er sannfærður um það að hann verði lasinn aftur fari hann í föt en hann reyndi það nokkrum sinnum á sínum yngri árum en fékk þá alltaf hita. Hollensk jólalygi Hollenskur eiginmaður sem vildi frekar eyða jólunum í faðmi hjákonu sinnar en eiginkonu, ákvað að ljúga því að honum hefði verið rænt. Maðurinn hringdi í konu sína á jóladag og sagði að sér hefði verið rænt en í rauninni lá hann þá í rúmi hjákonunnar. Eiginkona hans hringdi í lögregluna í Rotterdam sem setti í gang mikla leit sem endaði með því að eiginmaðurinn fannst hjá hjákonunni. Nú á maðurinn yfir höfði sér málaferli af hendi lögreglunnar sem er frekar óhress með að hafa eytt tíma sfnum og orku í þessa tilgangslausu leit. Milli jO61a IL i/vnma. ÁRAMÓTAHEÍTíÞ MÍTT ER tö » Bor^a NWKIKIJÍ (\f RfcÍNUM RUOBrauþ'iogsvkkíum þANNiG /erri é& m &ETA EIGiMASr NÝJA VÍHi % HALM> í FA GðMLU. Flugvélar eru ekki svo hættulegar. Það er aðdráttarafl jarðar sem er stórhættulegt 16 f ó k u s 4. janúar 2002

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.