Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2002, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2002, Blaðsíða 18
BÍómUlar Frú Potter ciftist Höfundur Harry Potter bókanna, J.K. Rowilng, gekk f það heilaga um jólin. Athöfnin fór fram á heimili hinnar 35 ára gömlu Rowling ÍSkotlandi en sfðan hún varð fræg fyrir skrif sfn hefur hún verið dugleg við að halda sig fjarri fjölmiðlum. Þetta er annað hjónaband hennar en upp úr þvf fyrra slitnaði áður en frægðin sagði til sfn og að þvf loknu eyddi Rowling mestum hluta af tfma sfnum á Kaffihúsum Lund- únaborgar þar sem hún hóf að rita sögurnar um Harry Potter. Flestum ætti að vera kunnugt um hvernig það fór en Rowling er fdag ein ríkasta kona Bretlandseyja enda hafa bækur hennar selst f milljónum eintaka og enn fleiri hafa séð kvikmyndina um Harry og félaga. „Ég er mjög ánægð með lífið þessa stundina," sagði Rowling eftir brúðkaupið. „Ég er nýbúin að skrifa sfðustu bókin um Potter og önnur myndin verður frumsýnd f lok árs. Þetta gæti ekki verið betra." VlNNIE KYNNIST CRÚPPÍUNUM Harðnaglinn, leikarinn og fótboltatuddinn Vinnie Jones hefur sfðustu misseri átt f erfiðleikum með að venjast Hollywood-lífstílnum en hann keypti sér nýverið hús þar f bæ eftir mikta velgengni á hvfta tjaldinu. Vandamálið sem Vinnie þarf af glfma við eru æstir kvennkyns aðdáendur en hann hefur þurft að láta lögreglu fjarlægja tjöld og annað sem þær hafa sett upp fyrir utan húsið hans. „Ég fer nú bara eiginlega hjá mér,“ sagði Vinnie f samtali við blaða- mann. „Ég hef aldrei litið á mig sem einhvers konar kyntákn og ég reyni yfirleitt að komast hjá slíkri athygli. Ég hreinlega skil ekki þegar fólk er að kalla mig kyntákn og sfst af öllu skil ég þessar konur sem hafa tekið sér ból- festu fyrir utan heimilið hjá mér.“ Nýjasta mynd Jones, The Mean Machine, er væntanleg innan skamms en þar fer Vinnie með kunnuglegt hlut- verk einhvers harðgerðs töffara. Meira Star Wars Nýjasta myndin f Star Wars röðinni er vel á veg kominn en formlegum tökum hefur verið lokið. Myndin er þó hvergi nærri tilbúin enda er mikil tæknivinna eftir. f þessari mynd, sem er önnur f tfmaröð'mni, koma fram margar persónur sem unn- endum Star Wars myndanna eru að góðu kunnar úr fyrri myndum. Til að mynda mun hausaveiðar- inn Boba Fett gegna veigamiktu hlutverki f þessari mynd en hann sást sfðast f myndum núm- er f imm og sex. Auk þess hafa tæknigúru Lucasar, höfundar og leikstjóra myndanna, verið iðin við að skapa og endurvekja hin- ar ýmsu verur sem munu koma fram f myndinnL Ekki er enn vitað hvaða verur hér um ræðir en George Lucas hefur áður sagt að ekki gefist tfmi til að birta allt sem hann vildi hafa með f myndinni. „Ég á enn eft- ir að ákveða hvað verður f myndinni og hverju við sleppum. En ég lofa þvfað þetta verður stórglæsi- leg mynd og aðdáendur Star Wars munu ekki verða fyrir vonbrigðum," sagði Lucas. Star Wars II: The Attack of the Clones verður frumsýnd hér á landi þann 17. mafnæstkomandl Nýtt frá Scorsese Leikstjórinn Martin Scorsese sem hefur áður gert ogtekið þátt fmyndum á borð við Raging Bull, Goodfellas, Kundun og Taxi Driver er núna að vinna hörðum hödum að nýrri mynd sem ber heitið Gangs of New York. Leikarar myndarinnar eru ekki af verri endanum en með j alhlutverk fara Leonardo DiCaprio, Cameron Diaz, Daniel Day-Lewis, Jim Broadbent, Brendan Gleeson, Devon Murray og Liam Neeson. Upp- haftega átti að frumsýna myndina fdesember á sfðasta ári en framleiðendum leist betur á; bfða með það fram til sumars og eiga þannig möguleika á að hirða þannig sem flesta Óskara á verðlaunahátfðinni 2002. Tom cerist morðingi Ný mynd er einnig fvændum frá Sam Mendes, leik- stjóra stórmyndarinnar American Beauty, en nýjas- ta mynd hans heitir The Road to Perdition og er gerð eftir samnefndri sögu eftir Max Allan Collins. Með aðalhlutverk fer óskarsverðlaunahafinn Tom Hanks en sögusvið myndarinnar er Chicago f kring um 1930 þar sem Tom leikur teigumorðingjann Michael O’Sulli- van sem gengur f daglegu tali undir nafninu Engill dauðans. Þetta verður þvf alvöru gangstermynd með öllu tll- heyrandi en aðrir sem eiga hlutverk fmyndinni eru Tyler Hoechlin, Jude Law, Jennifer Jason Leigh, Al Molina (sem leikur nafna sinn Capone), Paul Newman og Stanley TuccL Kvik- myndin er væntanleg til frumsýningar um mitt næsta sumar. f ó k u s 4.janúar2002 Að vera eða vera ekki geimvera? Það er stóra spurningin sem veit er upp í myndinni K-Pax sem frumsýnd verður í bíósölum Sambíóanna og Háskóiabíós í kvöld. Aukaspurningin er svo hvort það sé of bjart á jörðinni. Geimvera á geðsjúkrahúsi Það hefur aldrei verið auðvelt að vera mikið öðruvísi á jörðinni, sérstaklega ef maður tilheyrir hópi hins vitiboma manns eða lítur í það minnsta út fyrir það. Þessu fær náunginn Prot að kenna á í myndinni K-Pax. Hann er handtek- inn í kjölfar þjófnaðar á lestarstöð. Löggan veit hins vegar ekki í hvorn fótinn hún á að stíga þegar Prot fer að kvarta yfir því að það sé allt of bjart á jörðinni. Þaðan sem hann sé, plánet- unni K-Pax, sé ekki nærri því eins bjart. Eins og þeir sem meðaljóninn skilur alls ekki er Prot sendur beinustu leið á næsta geðsjúkrahús. Þar tekur á móti honum geðlæknir- inn dr. Mark Powell. Powell hefur í gegnum tíðina hitt haugana alla af mönnum með mismikla veruleikafirr- ingu og telur sig ekki vera lengi að aflæsa huga Prot og finna hvað það er sem virkilega angrar hans viðkvæma sálarlíf. Prot útskýrir fyrir Powell að hann sé í raun aðeins að afla upplýsinga um jörðina fyrir samfélag sitt heima á K-Pax en brátt þurfi hann að halda heim á leið. Sjúklingar geðsjúkrahússins trúa Prot og fara að panta far með hon- um til K-Pax. Powell er hins vegar full- ur efasemda en smátt og smátt fara þó að renna á hann tvær grímur. Prot (Kevin Spacey) segist vera geimvera, finnst of bjart á jörðinni og endar á geðsjúkrahúsi. Tveir stórleikarar Powelt (Jeff Bridges) skilur ekki alveg nýjasta sjúkling sinn og það veldur honum hugarangri. Aðalleikaranir í K-Pax eru ekki af verri endanum nema síður sé. Það eru þeir félagar Kevin Spacey og Jeff Bridges sem sjá um að túlka þessa tvo einstaklinga. Báðir eru þeir fyrir löngu búnir að rita nöfh sín stór- um stöfum á stjörnuhimin bíómyndanna. Spacey, sem fullu nafni heit- ir víst Kevin Spacey Fowler, hóf leik f kvikmyndum árið 1986 f hlut- verki nafnslauss vasaþjófs í myndinni Heartburn. Þetta var lítið hlut- verk í mynd sem skartaði nöfhum á borð við Jack Nicholson, Meryl Streep og Jeff Daniels. Á þeim fimmtán árum sem kvikmyndaferill Spacey spannar hefur maðurinn birst í stærri og minni hlutverkum í 56 myndum, bæði fyrir sjónvarp og hvíta tjaldið. Árið 1992 fór að bera á Spacey er hann lék í myndinni Consenting Adults með Kevin Kline. Árið 1995 stimplaði Spacey sig hins vegar endanlega og eftirminnilega inn í huga bíó- myndagesta. Þá lék hann f stórmyndunum The Usual Suspects og Seven. Síðan hefur ekki verið aftur snúið og hver stórmyndin rekið aðra. Hann hefur hlotið tvenn óskarsverðlaun fyrir leik sinn í The Usual Suspects og American Beauty. Blautur á bak við eyrun Jeff Bridges hefur verið lengur í bransanum en Spacey og það tók hann stuttan tíma að komast í sína fyrstu mynd. Hann var ekki orðinn eins árs þegar hann kom fram sem kornabarn í myndinni The Company She Keeps árið 1950, enda inn undir f bransanum í gegnum leikarann föður sinn Lloyd Bridges. Bridges fékk sína fyrstu óskarsverð- launatilnefningu fyrir leik í aukahlutverki í myndinni The Last Pict- ure Show árið 1971 og síðan hafa fylgt þrjár tilnefningar f viðbót en aldrei hefur hann náð að krækja í þessi eftirsóttu verðlaun. Bridges hef- ur leikið í flestum gerðum kvikmynda, frá óháðum myndum upp í dramatískustu ástarsögur. Yngri kynslóðin þekkir hann hins vegar kannski best sem slóðann og slúbbertinn Lebowski í Choen-bræðra myndinni The Big Lebowski. Leikstjóri K-Pax, Englendingurinn Iain Softley, er hins vegar enn blautur á bak við eyrun þegar hann er borinn saman við leikarana tvo sem hann þarf að leikstýra. Hann á að baki fjórar myndir er þeirra þekktust sjálfsagt tölvutryllirinn Hackers frá árinu 1995. Lord of the Rincs Það þarf varla að fjölyrða um þessa mynd en leikstjórinn Peter Jackson hefur með öruggum hætti náð að færa sögur Tolkiens yfir á hvíta tjaldið. Urvalslið leikara er í myndinni og ber að nefna Liv Tyler, lan McKellen, Cate Blanchett, Viggo Mortensen og John Rhys-Davies. Myndin fjallar um Hobbitann Fróða sem leggur upp í mikla reisu til að forðast að hringur, gæddur miklum mætti, komist í hendur illra afla. Með honum f för eru tveir menn, einn álfur, einn dvegur, þrír hobbitar og galdrakarlinn Gandalf. Ocean’s Eleven Þetta er mögnuð grín- og gaman- mynd undir leikstjóm óskarsverð- launahafans Steven Solderberg. Myndin fjallar um Daniel Ocean sem er gamalreyndur ræningi sem fær þá hugdettu að ræna þrjú stærstu spilavíti Las Vegas-borgar. Sérlega stjörnum prýddur hópur leikara er í myndinni en með aðal- hlutverk fara Brad Pitt, Matt Damon, George Clooney, Julia Roberts og Andy Garcia. The Class House Kvikmyndin fjallar um tvö ung- menni sem missa foreldra sfna í hræðilegu slysi og er komið fyrir hjá fósturforeldrum. I fyrstu virðast krakkarnir ætla að hafa það gott en þegar upp kemst að nýir foreldrar þeirra skulda meira en þau ráða við fara hjólin að snúast. Þetta er mögnuð hrollvekja sem hefur feng- ið góða dóma víðast hvar en með að- alhlutverk í myndinni fer Leelee Sabieski. ZOOLANDER Þetta er grínmynd af bestu gerð með stórleikaranum Ben Stiller í aðalhlutverki en hann fer hér á kostum sem hálfvitinn Derek Zoolander. Stiller hefur áður gert garðinn frægan með kvikmyndum á borð við There’s Something About Mary og Meet the Parents en fróðir menn segja að þessi sé litlu síðri en þær. Með önnur hlut- verk fara Jon Voight og Christine Taylor auk þess sem Donald Trump kemur fram sem hann sjálf- ur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.