Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2002, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2002, Blaðsíða 20
• Krár ■ POPS Á KRINGLUKRÁNNI Ung lingahljómsveitin POPS, sem undan- farinn áratug hefur heillaö blóma- börn á öllum aldri á áramótadans- leikjum '68 kynslóöarinnar, mun skemmta um helgina á Kringlu- kránni i Reykjavík. POPS, þessir sjaldséöu merkisberar sjöunda ára- tugarins, leika sínar einstöku „cover versjónir" af lögum BTtlanna, Stones, Dylan, Kinks, Spencer Dav- is, Small Faces, Troggs o.fl. fram eftir nóttu. Allir sem vilja berja þessa sögufrægu sveit augum ættu aö nota tækifærið og draga fram dansskóna, því þaö verður sannköll- uö „sixties" sveifla uppi á teningn- um í Kringlukránni föstudaginn 4. og laugardaginn 5. janúar og drengirnir 1 POPS munu ekkert draga af sér frekar en fyrri daginn. sem samanstendur af rokkreynslu- boltunum Bjögga Halldórs, Siggu Beinteins, Grétari Örvars og kom- paníi, sér um gleöi, hamningju og gæöamúsík á stuöstaðnum Kaffi Reykjavík fram eftir nóttu. ■ CERES 4 Á GRAND ROKK Þaö er mál og mannasiður aö gera upp áriö og lífiö á áramótum og þess vegna ætlar pönkljóöskáidiö Ceres 4 að lesa yfir lýðnum ásamt á Grandrokk ásamt hljómsveit sinni Sannaöu það. Ærlegheitin hefjast á örlaga- tlma; Miönætti....... Mætið og hreinsið sálina! ■ FRÍTT INN Á CAFÉ VICTOR Dj. Joey Love spilar á Café Victor, staönum þar sem alltaf er frítt inn. ■ KARMA Á PLAYERS Labbi I Glóru og félagar I hljómsveitinni Karma rokka feitt á sport- og gleöistaðnum Players I Kópavogi. ■ LIFANDI TÓNLIST Á CELTIC CROSS Hljómsveitin Tvö dónaleg haust veröur á Celtic Cross. Rifjaö- ir veröa upp gamlir danstaktar frá liðnu ári og lofar sveitin miklu fjöri. ■ MOONBOOTS Á VÍPALÍN Þaö er aldrei nóg spilaö af nýrómantlskri tónlist og annarri tónlist tengdri sítt-aö-aftan áratugnum nlunda. Hljómsveitin Moonboots ætlar aö sjá til þess aö hún falli ekki I gleym- sku með því aö halda heiöri hennar á lofti á Vídalín. ■ PÉTUR Á VEGAMÓTUM DJ Pétur verður galvaskur viö plötuspilarann á Vegamótum viö Vegamótastíg. ■ UPPLYFTING Í KÓPAVOGINUM Hljómsveitin Upplyfting leikur aö- eins I þetta eina sinn á Catalínu Hamraborg. ■ ÍRAFÁR Á GAUKNUM Annað kvöldiö I röö er þaö fagurt andlit sem fylgir söng á Gauki á Stöng. Nú er það hún Birgitta og fylgisveinar hennar I írafári sem sjá um gott stuð og undirleik viö sveittan dans fram á morgun. • Böl 1 ■ SPÚTNIK í HLÉGARÐI Hljóm sveitin Spútnik meö evrófarann Kristján I broddi fylkingar spilar á alvöru sveitaballi I Hlégaröi, Mos- fellsbæ. • K1a s s í k ■ NÝÁRSTÓNLEIKAR ÍSLENSKU ÓPERUNNAR íslenska óperan teflir fram ungum söngvurum á glæsileg- um nýárstónleikum kl. 16. Þar munu þeir Davíö Ólafsson bassi og Tomislav Muzek tenór syngja aríur og dúetta eftir Strauss, Mozart, Puccini, Verdi, Rossini og fleiri, auk þess sem þeir sækja I sjóö vinsælla söngleikja og Italskra ástarljóöa. Þeir félagarnir slógu eftirminnilega I gegn með tónleikum slnum I Smára, sal Söngskólans I Reykjavlk, fyrir þremur árum og nú mæta þeir enn öflugri til leiks. ■ VÍNARTÓNLEIKAR í LAUGAR- PALSHÓLL Vínartónleikar Sinfóníu- hljómsveitarinnar eiga 30 ára af- mæli 2002 og enn býöur hljómsveit- in til tónleika I Laugardalshöli sem helgaöir veröa þessari skemmtilegu tónlistarhefð með því aö bjóöa hing- aö heimsþekktum Vínartónlistar- mönnum. Til aö stjórna hinum ár- legu og sívinsælu Vínartónleikum kemur á ný til íslands Peter Guth, listrænn stjórnandi Strauss-hátíöar- hljómsveitarinnar IVInarborg. Meö Peter Guth I för eru Gabriele Font- ana óperusöngkona og tveir dans- arar fráVínaróperunni sem saman munu færa gestum ógleymaniega upplifun. Tónleikarnir hefjast kl. 17.Miðaverö 3.500 kr. I sal og 2.500 kr. I stúku og sæti eru núm- eruö. •Sveitin ■ FEIKNA FJÓR í SJÁVAR- PERLUNNI Félagarnír Björn Jörund- ur og Jón Ólafs úr Nýdönsk spila á miðnæturtónleikum I Sjávarperlunni góðu I Grindavík. ■ SÁLIN í EYJUM Eyjamenn fagna þrettándanum aö venju meö glensi og glaumi og þeim til skemmtunar mun Sálin hans Jóns míns spila af sinni alkunnu poppsnilld I Höllinni. •Leikhús ■ FJANDMAÐUR FÓLKSINS í kvöld sýnir Borgarleikhúsiö leikritið Fjandmaöur fólksins eftir Henrik Ib- sen. Leikritiö hefur fengið góðar við- tökur áhorfenda en sýnt er á stóra •sviöinu og hefst sýningin kl. 20. Læknirinn Tómas Stockmann stend- ur einn gegn samfélaginu þegar hann gerir uppgötvun sem setur væntanlegar stórframkvæmdir bæj- f ó k u s 20 4. janúar 2002

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.