Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2002, Blaðsíða 4
22
FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002
Rafpostur: dvsport@dv.is
- keppni í hverju orði
Birkir
Það er nánast frá-
gengið að Birkir ívar
Guðmundsson, mark-
vörður Stjörnunnar í
ESSO-deild karla í hand-
knattleik, verði lánaður
til spænska 2. deildarfé-
lagsins Balonmano Tor-
Birkir ívar revieja úr þetta keppnis-
Guömundsson. tímabil. Birkir ívar hef-
á leið til Spanar
ur dvalið ytra undan-
farna daga og sagði í
samtali við DV-Sport í
gær að aðeins ætti eftir
að skrifa undir félags-
skiptasamninginn á
milli Stjörnunnar og
spænska liðsins.
„Stjörnumenn hafa sýnt
mér mikinn skilning í
þessu máli. Auðvítað er
leiðinlegt að yfirgefa fé-
lagið á þessum tíma-
punkti en ég get varla
sleppt þessu tækifæri.
Nú fæ ég aö prófa at-
vinnumennsku og sé þá
hvort ég hef eitthvað í
hana að gera“ sagði
Birkir Ivar.
„Þetta er ágætisfélag
og verður spennandi
dæmi ef upp gengur en
það eru enn þá nokkrir
lausir endar óhnýttir en
ég vonast til að frá þeim
verði gengið á næstu
dögum,“ sagði Birkir ív-
ar Guðmundsson. -ósk
Fjölmennur hópur frá Júdófélagi Reykjavikur tók þátt í afmælismóti Júdósambandsins sem fram fór á
dögunum. Þessi mynd var tekin af hópnum en margir félaga í Júdófélagi Reykjavíkur unnu til verölauna á
mótinu og stóöu sig mjög vel. Á unglingasíðu í DV-Sport fljótlega veröur greint frá úrslitum í flokki þeirra
yngstu sem kepptu á mótinu.
Þátttakendur og verölaunahafar í Júdódeild Ármanns, í aftari röö: Heimir Haraldsson, Guömundur Sævarsson,
Bjarni Skúlason, Jónas Blöndal, Víkingur Víkingsson, Margrét Bjarnadóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Sævar
Sigursteinsson þjálfari. í fremri röö: Axel Björnsson, Eyþór Björnsson, Hörður Hannesson, Darri Kristmunds-
son, Bjarni Þór Margrétarson, Birgir Ráll Ómarsson, Daníel Albertsson, Björn Halldórsson þjálfari.
Afmælismót JSÍ:
Ármann
og JR voru
sigursæl
Flest júdófélög landsins sendu
keppendur á árlegt afmælismót
Júdósambands íslands sem fram
fór nýverið.
Keppendur frá Júdódeild Ár-
manns og Júdófélagi Reykjavíkur
voru áberandi á mótinu og unnu
sigra í mörgum flokkum.
í flokki karla 15 ára og eldri
sigraði Guðmundur Þórðarson,
JR, í -60 kg flokki. Davíð Krist-
jánsson, JR, sigraði i -66 kg flokki
og Snævar Már Jónsson, JR, i -73
kg flokki. Jónas Blöndal, Ár-
manni, sigraði í -81 kg flokki og
Bjarni Skúlason, Ármanni, í -90
kg flokki. Ármenningar áttu
einnig sigurvegara í tveimur
þyngstu flokkunum. Guðmundur
Sævarsson sigraði í -100 kg flokki
og Heimir S. Haraldsson í +100 kg
flokki.
f Opnum flokki karla sigraði
Bjarni Skúlason, Ármanni. Heim-
ir S. Haraldsson, Ármanni, varð
annar og þeir Baldur Pálsson, JR,
og Gunnar B. Sigurðsson, JR, i
þriðja sæti.
í flokki kvenna 15 ára og
eldri sigraði Ingibjörg Guðmunds-
dóttir, Ármanni, í -57 kg flokki.
Margrét Bjamadóttir, Ármanni, í
-63 kg flokki og Gígja Guðbrands-
dóttir, JR, i +63 kg flokki.
1 Opnum flokki kvenna sigr-
aöi Gígja Guðbrandsdóttir, JR. í
öðru sæti varö Margrét Bjarna-
dóttir, Ármanni, og í þriðja sæti
urðu þær Arna Gunnarsdóttir,
KA, og Anna Soffía Vikingsdóttir,
JR.
Úrslit í öðrum flokkum verða
birt fljótlega á unglingasiðu DV-
Sport.
Valencia á topp-
inn á Spáni
Valencia komst i gærkvöldi á topp
spænsku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu þegar liðið bar sigurorð af
Alaves, 1-2, á útivelli. Real Madrid
missti af tækifæri til að komast aftur
á toppinn þegar liðið tapaði fyrir
Valladolid, 2-1.
Barcelona náöi aðeins að rétta
sinn hlut með 2-0 sigri á Real
Sociedad og er iiðið nú komið í 4. sæt-
ið, í bili að minnsta kosti. Rivaldo og
Saviola skoruðu mörkin. -ÓK
^ Ársþing KSÍ haldið um helgina á Loftleiðum í 56. sinn:
Osnertanlegur
- Eggert Magnússon hefur komið ár sinni vel fyrir borð
Ársþing Knattspyrnusambands fs-
lands verður haldið í 56. sinn á Hótel
Loftleiðum um helgina.
Samkvæmt forystumönnum innan
knattspyrnuhreyflngarinnar er búist
við átakalausu þingi. Tillögurnar
sem fyrir þinginu liggja munu, ef
samþykktar verða, ekki setja hreyf-
inguna á annan endann og ljóst þyk-
ir að Eggert Magnússon, sem verið
hefur formaður KSÍ undanfarin tólf
ár, muni verða kosinn formaður á ný
með hefðbundnu lófaklappi þingfull-
trúa.
Stjórn Knattpsyrnusambandsins
birti í síðustu viku ársskýrslu ársins
2001 þar sem í ljós kemur að mikill
hagnaður hefur verið á rekstri sam-
bandsins á síðasta ári.
Rekstur sambandsins skilaði 38
milljóna króna hagnaði að teknu til-
liti til óreglulegra liða og fjár-
magnsliða en 18 milljón króna tap
var á rekstri Laugardalsvallar, sem
er í höndum KSf.
Góður rekstur sambandsins hefur
skilað sér í því að öll mótagjöld fyrir
mót á vegum KSÍ hafa verið felld nið-
ur undanfarin tvö ár auk þess sem
sambandið greiddi aðildarfélögum
sínum 10 milljónir króna í síðasta
mánuði.
Vandi fylgir vegsemd hverri
Vandi fylgir þó vegsemd hverri og
með aukinni velmegun sambandsins
hefur það gerst að forystumenn þess
hafa verið sakaðir um flottræfilshátt,
bruðl og óráðsíu, sérstaklega í tengsl-
um við Danmerkurferðina í byrjun
október.
Knattspyrnuforystan hefur snúist
til varnar í því máli eins og öðrúm,
vísað til venjulegs fórnarkostnaðar
vegna styrktaraðila og með glæsileg-
an ársreikning í farteskinu er
kannski erfitt fyrir menn að gagn-
rýna þá fyrir bruðl.
Stjórn KSÍ og starfsmenn sam-
bandsins hafa verið duglegir að verja
sitt og sína og með þeirra hjálp hefur
Eggert Magnússon orðið að nokkurs
konar stofnun innan knattspyrnu-
hreyfmgarinnar. Eggert er kominn á
þann stall að við honum verður ekki
hróflað. Eggert hefur aldrei fengið
mótframboð gegn sér í þau sex skipti
sem hann hefur verið í kjöri og ekk-
Iþróttaljós
ert bendir til þess að breyting verði á
því í ár. Hann hefur komið ár sinni
þannig fyrir borð að hann er nánast
ósnertanlegur.
Dæmi um styrk Eggerts innan
hreyfíngarinnar eru málalok fréttar
þeirrar sem birtist á Vísi.is þar sem
haft var eftir heimildarmanni að for-
ystumenn liða í efstu deild karla
hygðust reyna að koma honum frá
völdum. Þeim varð ekki kápan úr því
klæðinu þvi Eggert og fylgismenn
hans sneru vörn í sókn, fengu fram
stuðningsyfirlýsingu
forystumann-
anna og stóðu
helmingi
sterkari
eftir fyrir
vikið. Eft-
ir sátu
forystu- Óskar Hrafn Þorvaldsson
sauðir ---------------------------------
með sárt
ennið og
brostnar vonir
um hallarbyltingu
innan knattspyrnu-
hreyfingarinnar.
Innleiddi markaöshyggju
„Eggert hefur verið geysilega far-
sæll sem formaður KSl. Hann hefur
innleitt markaðshyggju inn í hreyf-
inguna og undir hans stjórn hafa orð-
ið gífurlegar breytingar á rekstri
sambandsins. I dag er sambandið
rekið eins og fyrirtæki og það hefur
hjálpað hreyfingunni í heUd mikið.
Það held ég að sé ein helsta ástæðan
fyrir því hversu sterk staða Eggerts
er innan hreyfingarinnar," sagði
Geir Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri KSÍ, þegar hann var spurður
um ástæður sterkrar stöðu Eggerts
innan hreyfingarinnar.
Harður í samningum
Eggert sjálfur hefur þó ekki ein-
ungis komið sér í þessa sterku stöðu
fyrir hjálp annarra manna. Hann hef-
ur, rétt eins og fram kemur í máli
Geirs hér að framan, breytt rekstri
sambandsins gífurlega á þeim tíma
sem hann hefur verið við völd. Hann
hefur það orð á sér að vera sérlega
harður í samningamálum og hefur
tiHtjgjím*
Eggert Magnússon tekur hér í hönd Atla Eðvaldssonar þegar sá síöarnefndi
tók við íslenska landsliöinu 1999.
það skilað sér í einstaklega hagstæð-
um sjónvarps- og auglýsingasamn-
ingum fyrir sambandið.
Þó eru ekki allir á eitt sáttir með
störf Eggerts. Ýmsir þeir sem DV-
Sport hefur rætt við eru óánægðir
með stjórnunarhætti Eggerts og fínn-
ast þeir vera orðnir ansi einræðisleg-
ir aukinheldur sem vitað er til þess
að einn stór styrktaraðili sambands-
ins íhugar að slíta samstarfi við það
í kjölfar Danmerkurferðarinnar
margumræddu.
Óánægjuraddir heyrast alltaf
Rúnar Arnarson, formaður
knattpsyrnudeildar Keflavíkur og
formaður félags Símadeildarfélaga,
ber Eggerti vel söguna.
„Staða hans innan knattspyrnu-
hreyfmgarinnar er gífurlega sterk og
það er eingöngu vegna hans eigin
dugnaðar. Hann hefur unnið gífur-
lega vel fyrir sambandið og hreyfing-
una í heild og ég get fullyrt að það sé
langt síðan einn maður hefur unnið
jafn ötult og öflugt starf fyrir hreyf-
inguna og hann hefur gert. Hann hef-
ur tíma tfl að standa í þessu og þigg-
ur varla laun fyrir og við eigum að
þakka slíka fórnfýsi," sagði Rúnar
Arnarson og bætti við að auðvitað
væri hann meðvitaður um að óá-
nægjuraddir væru á kreiki en það
væru aðallega menn sem þekktu ekki
til innan KSÍéða þá að þeir sem
væru alltaf óánægðir.
Það er því nokkuð ljóst að staða
Eggerts innan hreyfingarinnar er
óhemju sterk hvort sem mönnum lík-
ar hetur eða verr og fátt sem virðist
hindra hann í því að sitja sem for-
maður KSÍ eins lengi og hann lystir.
Það verður ekki i fljótu bragði
fundinn sá maður sem ætlar að taka
slaginn við Eggert Magnússon. -ósk