Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2002, Side 1
MIÐVKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2002
15
Sími: sso $ooo • Rafpóstur: dvsport@dv.is
Haukur Ingi
ekki á förum
Haukur Ingi Guðnason, fram-
herji úr Keflavík, er ekki á fór-
um frá félaginu en eins og fram
kom í DV-Sport á mánudaginn
hermdu heimildir að Framarar
vildu fá hann til liðs við sig.
„Haukur Ingi fer ekki neitt.
Hann vill spila áfram hjá okkur
og að sjálfsögðu er það okkar
vilji að hann spili hér sem
lengst," sagði Rúnar Amarsson,
formaður knattspyrnudefldar
Keflavíkur, í samtali við DV-
Sport í gær.
„Ég vil líka benda fólki á það
að Haukur er samningsbundinn
Keflavík og það hefur ekkert fé-
lag haft samband við okkur eða
leikmanninn. Ég ráðlegg líka
öðrum forráðamönnum að vera
ekkert að þvi þar sem það væri
tímaeyðsla," sagði Rúnar.
Rúnar sagði jafnframt að eftir
erfiðan vetur væri fariö að birta
til og að hann væri bjartsýnn á
komandi sumar. -ósk
Valencia
vill fá Aron
Aron Kristjánsson, leikstjóm-
andi Hauka, hefur fengið tilboð
frá spænska liðinu Valencia,
sem leikur í efstu deild á Spáni.
Liðið er sem stendur um miðja
deild á Spáni.
Aron segir þetta tilboð mjög
freistandi bæði fjárhagslega og
fyrir fjölskylduaðstæöur. „Land-
fræðileg staða bæjarins er góð og
þetta er ein af bestu defldum í
heimi þannig að þetta tilboð er í
alla staði freistandi."
Það er þó ekki gefið að Aron
muni ganga tfl liðs við félagið.
Tfl að mynda er Aron samnings-
bundinn Haukum og því mun
Valencia þurfa að semja við fé-
lagiö um greiðslu á honum. „Ég
á enn eftir að ræða þessi mál al-
mennflega við forráðamenn
Hauka en maður sættir sig alltaf
við niðurstöðuna hvort sem ég
fer út eða ekki.“
Aron segist vonast til að
ákvörðun liggi fyrir innan viku.
Ef af veröur mun hann fara út í
sumar og klára tímabilið með
Haukum hér heima. -HI
Sigur hjá
Stoke
Stoke komst í gærkvöldi í
fjórða sæti ensku 2. deildarinnar
með því að leggja Bury að velli,
4-0, á heimavelli. Chris Iwelumo
skoraði tvívegis fyrir Stoke og
þeir Júrgen Vandúrzen og Stefán
Þóröarson skoruöu sitt markið
hvor. Bjami Guðjónsson og Am-
ar Gunnlaugsson voru í byrjun-
arliði Stoke en Stefán Þórðarson
kom inn á sem varamaður.
Everton er komið í 6. umferð
ensku bikarkeppninnar eftir sig-
ur á Crewe, 2-1, í aukaleik í gær-
kvöldi. Tomasz Radzinski og
Kevin Campbell skoruðu mörk
Everton en Dean Ashton kom
Crewe yfir á 24. mínútu. Everton
mætir Middlesbrough í 6. um-
ferð á Riverside-leikvanginum.
-ósk
- keppni í hverju orði
Sigurður Ragnar ekki
með IBV í sumar
Sóknarmaðurinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson mun ekki leika með
Eyjamönnum í Símadeildinni í knattspyrnu í sumar. Hann gaf forráða-
mönnum félagsins afsvar í gærmorgun eftir að hafa ráðfært sig við nýja
vinnuveitendur sína, Knattspymusamband íslands. Sigurður Ragnar tók
við starfi fræðslustjóra hjá sambandinu ekki alls fyrir löngu og var það
á þeim forsendum að hann myndi ekki spila með ÍBV í sumar.
„Starfið gengur fyrir og því varð ég að gefa Eyjamönnum afsvar. Ég
hef hins vegar mikinn áhuga á því að leika í Símadefldinni í sumar og
það hafa nú þegar tvö félög, KR og FH, sýnt áhuga á að fá mig í þeirra
raðir,“ sagði Sigurður Ragnar í samtali við DV-Sport í gærkvöldi. -ósk
Jon Arnar Magnusson var hress í bragði á
blaöamannafundi FRI í gær þar sem keppendur
fyrir íslands hönd a EM innanhúss i frjalsum
iþróttum voru kynntir. Jón Arnar keppir í sjöþraut
á mótinu. DV-mynd Hilmar Þór
EM í frjálsum íþróttum innanhúss í Vín um næstu helgi:
Á meðal sex efstu
- Jón Arnar Magnússon heldur utan auðmjúkur og afslappaður
Jón Amar Magnússon keppir í
sjöþraut á Evrópumeistaramótinu í
Vín um helgina. Jón Arnar er í 5.
sæti á Evrópulistanum en ljóst er að
efsti maður á þeim lista, Þjóðverj-
inn Frank Busemann, verður ekki
með.
Ætla aö skemmta mér
„Ég fer út til Vínar með jákvæðu
hugarfari og ætla aö skemmta mér.
Ég er orðinn vanur því að keppa á
svona mótum og hef séð að það er
það eina sem dugir,“ sagöi Jón
Amar Magnússon i samtali við DV-
Sport i gær.
Hógvær markmið
„Ég hef sett stefnuna á að vera
meðal sex efstu á mótinu. Ég held
að það sé alveg raunhæft ef ég næ
að komast í gegnum þrautina án
þess aö klúðra nokkru. Allt fyrir
ofan sjötta sætiö er síðan bara
bónus.“
Er í fínu formi
„Ég er finu formi, heilsan er mjög
góð og það þakka ég breyttum
áherslum í æfingum. Ég er léttari
en ég hef verið áður en ég mun
síðan að loknu þessu móti keyra
upp æfingamar fyrir sumarið,"
sagði Jón Amar Magnússon.
Mótlætiö styrkir mann
Stangarstökksstúlkan Þórey Edda
Elísdóttir verður ekki með á Evr-
ópumeistaramótinu í Vín. Hún
sagði í samtali við DV-Sport í gær
að hún hefði átt við meiösli að
stríða auk þess sem hún hefði feng-
ið slæma flensu og væri fyrst nú far-
in að æfa af fullum krafti.
„Það er of stutt í mótið nú til að
ég geti keppt en vissulega eru það
mikfl vonbrigði fyrir mig að geta
ekki verið með. Það þýðir þó ekkert
að gráta það. Mótlætið styrkir mann
og ég kem sterk inn í sumarið."
Hef trú á Völu
Aðspurð um möguleika Völu
Flosadóttur í stangarstökkinu sagð-
ist Þórey Edda hafa mikla trú á
Völu.
„Hún hefur verið að stökkva mjög
vel á æfingum þó að henni hafi
kannski ekki tekist að sýna það í
keppni. Ég held og vona að hún geti
spmngið út um helgina og mun
fylgjast spennt með henni,“ sagði
Þórey Edda Elísdóttir. -ósk
NBA í nótt
Cleveland-Seattle.......89-109
Person 22, flgauskas 16 (7 frák.),
Murray 12 - Payton 25 (8 stoðs.),
Barry 16 (8 frák., 11 stoðs.), Mason 16
Milwaukee-LA Lakers .... 89-99
Cassell 21 (10 stoðs.), Robinson 19,
Thomas 17 - O’Neal 28 (13 frák.),
Bryant 27, Fisher 16
Chicago-Orlando..........97-112
Rose 24 (8 stoðs.), Fizer 18, Hassell 12
- McGrady 25 (9 frák.), Garrity 18 (8
frák.), Grant 16
Dallas-Memphis..........104-91
Finley 30 (8 frák.), Lafrentz 17,
Nowitzki 16 (9 frák.) , Battier 18 (8
frák.), Wright 17, Gasol 15 (9 frák.)
Houston-LA Clippers......84-94
Mobley 27, Francis 25 (7 stoðs.),
Torres 8 - Brand 26 (15 frák.),
Mclnnis 15, Ekezie 11
San Antonio-Phoenix......99-91
Duncan 29 (15 frák.), Smith 17, Rose
12 - Marbury 35 (10 stoðs.), Marion 23
(12 frák.), Gugliotta 14 (8 frák.)
Sacramento-Utah ........107-81
Stojakovic 19, Jackson 17, Webber 16
(7 frák.) - Malone 11 (7 frák.), Collins
11 (8 frák.), Larue 11