Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2002, Síða 1
Sími: 550 5000 • Rafpóstur: civsport@dv.is Magdeburg mætir Kolding Alfreð Gíslasyni, þjálfara þýsku meistaranna Magdeburg í handknattleik, varð að ósk sinni þegar dregið var í undanúrslit meistaradeildar Evrópu í hand- knattleik í gær. Magdeburg mætir danska liðinu Kolding og fer fyrri leikurinn fram í Þýska- landi helgina 23.-24. mars og seinni leikurinn fer fram í Dan- mörku viku seinna. í hinni viðureign undanúrslitanna mætast Fotex Veszprem og Portland San Antonio. „Þetta er allt eftir áætlun“ sagði Alfreð í samtali við DV- Sport í gær. „Það hefði að vísu verið betra að fá fyrri leikinn í Danmörku en það skiptir svo sem ekki meginmáli. Danska lið- ið er mjög gott með fimm Svía innanborðs þannig að við verð- um að leika vel til að fara í úr- slitin.“ Magdeburg er einnig komið í undanúrslit í þýsku bikarkeppn- inni og mætir þar Nordhorn. -vbv Fjögurra landa mótið í handknattleik í Danmörku: Nýjum mönnum gefið tækifæri Leiftur á núlli í apríl Benedikt Sverrisson, formað- ur knattspyrnudeildar Leifturs, segir likur á þvi að fiármál deildarinnar verði á núllinu í apríl. „Það vita allir hvað er að gerast í okkar málum í dag,“ sagði Benedikt í samtali við DV-Sport í gær. „Ég lít þannig á að ef allt okkar gengur varð- andi nauðarsamning þá verði knattspymudeild Leifturs á núlli 10. apríl." Leiftur og Dalvík hafa ákveð- ið að senda sameiginlegt lið til keppni í 1. deild og 2. flokki karla. Þar með mun Aftureld- ing leika í 1. deild en liðið hafn- aði í 3. sæti 2. deildar 2001. Njarðvík mun þá færast upp í 2. deild þar sem liðið sigraði KFS í leik um 3. sæti 3. deildar. -ÓK Sjá nánar um sameininguna á bls. 20 Nú styttist óðum í að Guðmund- ur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, tilkynni lands- liðshópinn sem heldur utan til Danmerkur á 4-landa mót sem hefst á fostudag í næstu viku. Auk íslendinga og Dana taka Norð- menn og Pólverjar þátt í mótinu. Danir mæta íslendingum í loka- leik mótsins og verður hann sýnd- ur beint í danska sjónvarpinu. Guðmundur sagðist í samtali við DV í gær búast við að tilkynna liðið strax eftir helgina en þetta verða fyrstu leikir liðsins frá því á Evrópumótinu í Svíþjóð í síðasta mánuði. „Hópurinn er smám saman að taka á sig mynd en það er ljóst að hann verður eitthvað breyttur frá Evrópumótinu. Nýir leikmenn, sem leika með liðum hér heima, fá tækifæri til að spreyta sig með lið- inu á mótinu í Danmörku. Það er líka alveg sjálfsagt að gefa ungum leikmönnum tækifæri til að sýna sig, enda er það eitt af markmið- um mínum með liðið. Það er of snemmt á þessu stigi að segja hvað ég fæ marga leikmenn frá Þýska- landi en það verður ekkert leikið í þýsku deildinni þessa helgi enda landslið þeirra að leika við Sviss- lendinga," sagði Guðmundur. Landsliðinu hefur siðan verið hoðið á mót í Hollandi með þátt- töku Portúgala, Grikkja, auk heimamanna og Islendinga dagana 24. maí til 25. maí. Verið er að skoða þá möguleika að leika í Grikklandi við heimamenn áður en farið verður til Makedóníu þar sem fyrri leikur þjóðanna í for- keppni HM fer fram 1. júní. -JKS Olafur Stefánsson er kominri á fullt skriö melöalí 1 frá Evrópumótinu og leikur eflaust meö islenska landsliöinu mótinu 1 Danmörku sem hefst á föstudag 1 næstu viku. Hér sést Olafur skora gegn Spánverjum 1 viöureign þjoöarina á EI\A 1 Skövde. DV-mynd Pjetur Átakalítið HSÍ-þing Ársþing handknattleikssam- bands Islands verður haldið um næstu helgi, nánar tiltekið á föstudag og laugardag, í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Engin mótframboð á nýja stjórn hafa borist og þvi er bú- ist við frekar átakalitlu þingi. Guðmundur Ingvarsson verður áfram formaður.- Tillaga um sérstakan jöfnun- arsjóð fyrir lið utan af landi verður lögð fyrir þingið og verður það sennilega stærsta málið á ársþingi HSÍ um næstu helgi. Einnig má búast við um- ræðum um núverandi mótafyr- irkomulag og þá hvort lið megi vera allt að 16 en ekki 14 eins og þau eru i Essó-deild karla i dag. Handknattleikurinn er i mik- illi uppsveiflu hér á landi eftir frækna frammistöðu landsliðs- ins á EM í Svíþjóð og ljóst að landslagið fyrir HSl hvað varð- ar rekstur sambandsins hefur batnað til muna og því bjartir tímar fram undan. -vbv Baxter féll á lyfjaprófi Breski skíðakappinn Alain Baxter, sem varð á dögunum fyrsti Bretinn til að fá verðlaun á vetrarólympíuleikum, er fall- inn á lyfjaprófí. Þessum skoska skíðakappa, sem hlaut brons- verðlaun í svigkeppni leikanna í Salt Lake City, var fagnað sem hetju við heimkomuna en nú verður hann að skila verðlauna- peningi sínum eftir að hið ólög- lega efni methamphetamine greindist í sýnatöku úr Baxter. „Eðlilega er þetta mikið áfall fyr- ir mig en ég fullyrði það að ég hef aldrei notað ólögleg lyf,“ sagði Baxter í yfirlýsingu sinni í gær. Baxter hefur ákveðið að leita til lögmanna og lyfjasér- fræðinga varðandi mál sitt og segist ekki ætla að una niður- stöðu aganefndar ólympíunefnd- arinnar. -vbv Gylfi vekur athygii - Dússeldorf borist tilboð í hann frá liði í úrvalsdeildinni Gylfi Gylfason, sem leikur með þýska 2. deildar liðinu Dússeldorf í handknattleik, hefur vakið verð- skulduga athygli með liði sínu í vet- ur. Gylfi, sem leikur í hægra horn- inu, skoraði átta mörk um helgina með liðinu þegar það sigraði Erlangen á heimavelli. Hann varð fyrir því óláni að meiðast á fæti fyr- ir áramótin og varð af þeim sökum frá keppni í nokkrar vikur. Gylfi kom aftur til baka á dögunum og lék hann sinn annan leik með liðinu um helgina eftir meiðslin. Gylfi, sem er 24 ára gamall, hefur leikið síðustu tvö ár með Dússeldorf en samningur hans við liðið rennur út í vor. Félagið vill framlengja samningi hans við liðið en nú þegar hafa lið í úrvalsdeildinni lýst yfir áhuga á að fá hann í sínar raðir og hefur eitt þeirra gert tilboð í hann. Gylfi vildi í samtali við DV i gær- kvöld ekki gefa upp hvert liðið er og sagði málið á viðkvæmu stigi. Takmark mitt aö komast aö hjá liöi í úrvalsdeildinni „Það hefur alltaf verið takmark mitt að komast að hjá liði i úrvals- deildinni. Það dæmi sem nú er til skoðunar ætti að skýrast á næstu tveimur vikum. Hins vegar vill fé- lagið halda mér og eru forsvars- menn liðsins stórhuga fyrir næsta timabil og stefnan hefur verið tekin á sæti i úrvalsdeildinni. Við náum því ekki á yfirstandandi tímabili, erum núna í fjórða sæti okkar rið- Us,“ sagði Gylfi Gylfason. Áður en hann hélt tU Þýskalands lék hann með Haukum og þar áður með Gróttu/KR. Þess má geta að Róbert Sighvats- son landsliðsmaður leikur einnig með Dússeldorf en hann gekk tU liðsins í vetur. Ekki er loku fyrir það skotið að Gylfi verði valinn í ís- lenska landsliðshópinn sem tekur þátt í Danmerkurmótinu um aðra helgi. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari hafði Gylfa inni í myndinni í undirbúningi landsliðs- ins fyrir Evrópumótið í Svíþjóð. Ekkert varð af því að Guðmundur gæti skoðað hann því Gylfi meiddist á þeim tíma. -JKS Arsenal á toppinn Arsenal komst í efsta sætið i ensku úrvals- deildinni í knattspyrnu í gærkvöld. liðið tók á móti Derby County og hafði sigur með marki Frakkans Roberts Pires. Það er landi hans Thi- erry Henry sem sést hér fagna marki hans. Arsenal hefur 60 stig eft- ir 29 leiki og Manchest- er United er í öðru sæti með 58 stig eftir 29 leiki. Ljóst er að slagurinn um enska meistaratitilinn í ár verður mjög harður. Nánar er fjallað um leiki kvöldsins á bls. 20-21. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.