Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2002, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2002, Page 2
16 ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002 ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002 17 Sport Sport Besti þjálfari og leikmaður 1. deildar kvenna í handbolta: Allt of langt á milli leikja - segir Hrafnhildur Skúladóttir, besti leikmaður febrúar Gústaf Adolf Björasson, þjálfari Hauka, og Hrafnhildur Skúladóttir, skytta Vals, eru að mati blaða- manna DV-Sports besti þjálfari og besti leikmaður febrúarmánaðar í 1. deild kvenna í handbolta. Árangur þeirra er frekar tíundaður hér til hliðar en Hrafnhildur fór mikinn með Val í þessum tveimur leikjum í febrúar og lið Hauka, undir stjóm Gústafs Adolfs Björnssonar, hélt sigurgöngu sinni í deildinni áfram og vann alla leiki sína. Gústaf Adolf Bjömsson tók skyndilega við liðinu þegar fimm umferðir voru búnar af deildinni en það hefur verið á góðu skriði undir hans stjórn og aðeins tapaö einum leik, gegn ÍBV í undanúrslitum bik- arkeppninnar. Gústaf segir ekki hafa verið erfitt að taka við liðinu undir þessum kringumstæðum. „Maöur hefur þjálfað áður þannig að maður veit út á hvað þetta geng- ur. Ég tók auk þess við góðu búi og það var mitt að halda áfram með það. Það hefur gengið bærilega og ég get ekki annað en verið sáttur við gengi liðsins." Gústaf viðurkennir þó að eina tap hans hjá Haukum, gegn ÍBV í und- anúrslitum bikarkeppninnar, hafi verið sárt. „Það er þannig með bik- arkeppnina að maður fær aðeins eitt tækifæri og við spiluðum ekki nógu vel í Vestmannaeyjum. Þetta er hins vegar löngu gleymt og graf- ið og nú eru ný markmið og tæki- færi fram undan.“ Framhaldið leggst vel í Gústaf. „Staða okkar er góð núna. Við erum með 55 mörk á ÍBV og fjögur stig þannig að þetta á að halda. En strax eftir páska byrjar nýtt mót þegar úr- slitakeppnin hefst. Þá verður leikið mjög þétt, öfugt viö það sem búið er að vera undanfarið. Þar eru hörku- leikir fram undan og þó að það sé líklegast að liðin í efri hlutanum taki þetta er aldrei að vita þegar komið verður niður i liðin í 4. og 5. sæti.“ Gústaf segir að það verði þægilegt að fara í úrslitakeppnina ef deildin vinnst en eins og staðan er núna verða líkumar á því að Haukar vinni deildina að teljast miklar. „Þegar út í þá keppni er komið er þetta spuming um hvernig við ná- um að spila úr því sem við höfum,“ segir hann. Ætlum aö ná fjórða sæti Hrafnhildur Skúladóttir sagðist hafa verið ánægð með gott gengi Valsmanna fyrst eftir áramótin, fram að síðustu tveimur leikjum en þeir hafa tapast. „Við settum það markmið fyrir tímabilið að enda í fjórða sæti í deildinni og ætlum okkur að ná þvi. Við erum í því sæti núna en við erum aðeins stigi á undan Víkingi sem er á miklu skriði núna og getur náð okkur. Það yrði mjög slæmt að missa heima- leikjaréttinn til þeirra í úrslita- keppninni." Valsstúlkur byrjuðu vel eftir ára- mótin en ekki hefur gengið eins vel í síðustu tveimur leikjum. „Það var margt orðið mjög gott í spili okkar eftir áramót sem hefur farið að dala aftur núna. Við áttum hörkuleiki eftir áramót, m.a. á móti Stjömunni en við töpuðum þeim leik mjög ósanngjamt. Siðan unnum við þrjá leiki í röð og spiluðum þá mjög vel. Það er hins vegar slæmt að hiksta núna þegar svo lítið er eftir af deild- inni en það er samt nægur tími enn- þá. Baráttan fram undan um fjórða sætið verður hins vegar hörð.“ Algjört grín Bæði Gústaf og Hrafnhildur eru ósátt við hversu langt hefur verið á milli leikja í deildinni í vetur. Gúst- af segir þetta hafa skapað erfiðleika fyrir sig sem þjálfara. „Oftar en ekki er tveggja vikna hlé milli leikja sem þýðir að fyrri vikan fer í tómt rugl. Þá veit mannskapurinn að þaö er langt í næsta leik og þá er ekki sami áhugi fyrir því að æfa vel. Það er mjög erfitt að halda dampi við þessar aðstæður og nauðsynlegt að það sé spilaður að minnsta kosti einn leikur í viku. Það er heldur ekkert verra að hafa þá tvo.“ Hrafnhildur tekur undir þetta. „Miðvikudagsleikirnir sem voru áð- ur fyrr eru alveg dottnir út núna og oft voru tveir leikir í viku. Þetta er alveg hræðilegt og deildin að þessu leyti er algjört grin. Þetta gerir fólki líka erfitt fyrir að fylgjast með þessu." Gústaf segist þó vonast til þess að þetta lagist i apríl þegar úrslita- keppnin hefst en þá er leikið mjög þétt. „Þau lið sem eru með mestu breiddina koma til með að standa best að vígi því það er viðbúið að margar viðureignir fari í oddaleiki. Þá fer líkamlegt ástand að telja." Bæði sjá þau fram á betri tíma á næsta tímabili þar sem ársþing HSÍ samþykkti nú um helgina að leikin yrði þreföld umferð í 1. deild kvenna. „Það verður mjög til hins betra að fjölga leikjunum. Mér finnst líka umhugsunarefni hvort ekki væri hægt að koma á fót þriðju keppninni, eins konar deildabikar- keppni. Þó að það sé aðeins ein deild hérna heima þætti mér viðeig- andi að búa til annaö mót til að stækka flóruna. Menn öðlast reynslu í formi leikja og komast í betri leikæfingu," segir Gústaf. Bæði eru þau þó nokkuð sátt við þann handbolta sem liðin hafa sýnt í vetur. „Deildin hefur styrkst tölu- vert og gott dæmi um það eru er- lendu leikmennimir hjá ÍBV. Það eru mörg góð lið í deildinni sem eru að spila skemmtilegan bolta,“ segir Hrafnhildur að lokum. DV-Sport óskar þeim báðum til hamingju með viðurkenninguna og vonandi eigum við eftir aö sjá góð- an handbolta frá þeim áfram í vet- ur. -HI Hrafnhildur Skúladóttir og Gústaf Adolf Björnsson meö verölaunagripi slna fyrir febrúarmánuö. DV-mynd Pjetur Mánaðarverðlaun Hrafnhildur Skúladóttir, Val, er besti leikmaður febrúar í Essodeild kvenna i handbolta að mati blaða- manna DV-Sports. Hrafnhildur skor- aði 8,0 mörk að meðaltali í tveimur sigrum Valsliðsins þar sem hún nýtti 64% skota sinna. Hrafnhildur skoraði þrjú af mörkum símun af vítalínunni. Hrafnhildur hefur leikið vel í vetur og er sem stendur önnur markahæst í deildinni. Aðrar tilnefndar Inga Frióa Tryggvadóttir, Haukum, skoraði 6,5 mörk að meðaltali í tveim- ur sigrum Haukaliðsins sem færðu þeim góða forustu á toppnum. Inga Fríða nýtti 68,4% skota sinna og fiskaði fjögur vítaskot en sex af 13 mörkum hennar komu af vítalínunni. Ana Perez, ÍBV, lék vel fyrir sitt lið í febrúar og átti mikinn þátt i að ÍBV varð bikarmeistari en Perez skoraði 6 mörk úr 10 skotum í úrslitaleiknum. Alls skoraði Perez 5,3 mörk að meðal- tali i febrúar og nýtti 50% skota sinna. Jelena Jovanovic, Stjörnunni, hélt uppteknum hætti og varði vel í febrú- ar. Jovanovic varði 20 skot að meðal- tali og alls 5 víti í tveimur leikjum. Helga Torfadóttir, Vikingi, varði vel í marki Víkingsliðsins í febrúar og alls 16,0 skot að meðaltali. Helga var mað- ur leiksins er hún varði 19 skot í sig- urleik gegn Fram. Ágústa Edda Björnsdóttir, Gróttu/KR, lék vel fyrir sitt lið þótt illa gengi hjá Seltjamamesstelpunum að landa sigmm. Agústa Edda skoraði 6 mörk að meðaltali í þremur leikjum, nýtti 66,7% skota sinna, fiskaði sjö víti og skoraði fimm marka sinna úr hraðaupphlaupum. Besti þjálfarinn Gústaf Adolf Björnsson er besti þjálf- ari febrúarmánaðar í Essodeild kvenna í handbolta en aðrir sem vora tilnefndir vora Elfar Erlingsson, Val, Erlingur Richardsson, ÍBV og Hlyn- ur Jóhannsson, KA/Þór. -ÓÓJ 1. DEILD KVENNA ís 20 16 4 1376-1077 32 KR 20 14 6 1456-1123 28 Keflavík 20 13 7 1409-1279 26 Grindavík 19 11 8 1325-1327 22 Njarðvík 19 4 15 1103-1418 8 KFl 20 1 19 1041-1486 2 Stigahæstar: Alda Leif Jónsdóttir, ÍS..........19,0 Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík . . 18,9 Birna Valgarðsdóttir, Keflavík . 17,5 Hildur Sigurðardóttir, KR.......15,4 Helga Þorvaldsdóttir, KR .......13,2 Lovísa Guðmundsdóttir, Is .... 13,0 Flest fráköst: Helga Jónasdóttir, Njarðvík . . . 12,4 Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík . . 10,8 Lovísa Guðmundsdóttir, ÍS........9,1 Flestar stoðsendingar: Alda Leif Jónsdóttir, ÍS ........5,2 Kristín Blöndal, Keflavík .......4,4 Hildur Sigurðardóttir, KR........4,1 Flestir stolnir boltar: Jessica Gaspar, Grindavík......7,2 Alda Leif Jónsdóttir, ÍS ..........3,9 Hildur Sigurðardóttir, KR......3,6 Helga Þorvaldsdóttir, KR ..........3,3 Flest varin skot: Alda Leif Jónsdóttir, ÍS ..........3,6 Lovísa Guðmundsdóttir, ÍS......3,3 Helga Jónasdóttir, Njarðvík .... 2,3 Besta 3ja stiga skotnýting: Cecilia Larsson, ÍS...........41,5% Guðbjörg Norðfjörð, KR..........40,6% Alda Leif Jónsdóttir, ÍS........36,7% Besta vítanýting: Guðbjörg Norðfjörð, KR.........93,8% Alda Leif Jónsdóttir, ÍS........83,5% Erla Þorsteinsdóttir, Keflavik 80,6% Helga Þorvaldsdóttir, KR . . . . 80,6% Lágmörk era til að komast inn á topplistana. Leikmenn 1. deildar kvenna þurfa að hafa leikið 15 leiki eða skoraö 250 stig, tekið 160 fráköst, sent 60 stoðsendingar, stolið 50 boltum eða varið 20 skot, hitt úr 27 vítum eða hitt úr 12 þriggja stiga skotum. -ÓOJ Stúdínur fagna hér deildarmeistaratitlinum í gær eftir 65-63 sigur á KR. Taliö frá vinstri: Jófríöur Halldórsdóttir, Alda Leif Jónsdóttir, Hafdís Helgadóttir, Pórunn Bjarnadóttir og síöan fleiri sem eru ekki greinaniegar enda gekk mikiö á þegar Stúdínur höföu náö aö leggja íslands- og bikarmeistarana aö veili og tryggja sér deildarmeistaratitilinn í fyrsta sinn. DV-mynd PÖK Úrslitin réðust í 1. deild kvenna í körfubolta í Kennaraháskólanum í gærkvöld: - Stúdínur tefldu fram erlendum leikmanni í fyrsta skipti í sögu félagsins Stúdínur urðu I gærkvöld deildar- meistarar í 1. deild kvenna í körfuknattleik eftir 65-63 sigur á KR í síðastu umferð vetrarins. ÍS leiddi all- an leikinn en KR jafnaði og komst yfir þegar skammt var eftir. Var mikil dramatík í lokin þar sem Stúdínur tryggðu sér sigur þegar Alda Leif Jóns- dóttir stal boltanum er KR var að leggja af stað í sókn og 14 sekúndur voru eftir og munurinn aðeins tvö stig. ÍS náði síðan að halda boltanum út leiktímann og var fognuðuður liðsins mikill þegar Ijóst var að þær hefðu tryggt sér deildarmeistaratitilinn. Heimavöllurinn ÍS mikilvægur Það hefur mikið að segja fyrir ÍS að hafa heimavallarréttinn í úslitakeppn- inni þar sem liðið hefur alltaf verið öfl- ugt í Kennaraháskólanum hingað til og spilað mun betur þar en á útivelli. „Alda Leif var sátt við lífið og tilver- una að leik loknum. „Þetta er virki- lega Ijúft. Mikilvægt fyrir okkur að vinna KR og fullvissa sjálfar okkur um að við getum þetta. Það eykur breidd- ina hjá okkur að vera komnar með út- lending og mér líst bara vel á hana og ég er nokkuð viss um að hún á eftir að hjálpa okkur mikið. Hún á eftir að komast betur inn í þetta hjá okkur en spilar fyrir liðið og það er gott. Við eig- um síðan eftir að læra betur á hana. Við eigum alveg jafna möguleika og hin liðin að fara alla leið. Það hefur verið þannig í vetur að öll liðin hafa verið að vinna hvert annað hingað tiL“ KR skoraði fyrstu körfu leiksins en siðan kom nýi bandaríski leikmað- urinn hjá ÍS með þrjár 3ja stiga körfur á skömmum tíma og Stúdínur voru komnar með níu stiga forskot, 15-6. Það var mikil barátta i leikmönnum ÍS í byrjun og var pessað allan völl í fyrsta leikhluta. Þrátt fyrir að nýr er- lendur leikmaður væri í liðinu féllu hinir leikmennimir ekki í þá gryfju að fylgjast með henni heldur var eins og hún væri búin að spila með liðinu í nokkmrn tíma. Hún var þó ekki með sóknarleik liðsins á hreinu enda kom hún á laug- ardaginn. Helga Þorvaldsdóttir var sú eina i liði KR sem tók af skarið i sókn- inni og var virkilega ákveðin í sínum aðgerðum en það kostaði þónokkra tapaða bolta. Coffman Stúdínum erfið Leikmenn KR komu ákveðnari til leiks í öðrum leikhluta og unnu upp forskot Stúdina og munaði aðeins einu stigi í hálfleik, 35-34. IS náði aftur undirtökunum í þriðja leikhluta en KR var aldrei langt undan og var Carrie Coffman heimamönnum erfið undir körfunni. Hún átti stóran þátt i því að KR komst síðan tveimur stigum yfir, 59-61, þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir af leiknum en þaö var í fyrsta skipti síðan í stöðunni 0-2. Overstreet kom sterk inn fS gerði næstu fimm stigin en Hild- ur Sigurðardóttir minnkaði muninn í eitt stig, 64-63, þegar 23 sekúndur voru til leiksloka. KR-ingar brutu á Over- street og freistuðu þess að hún myndi klikka af vítalínunni en hún hitti úr fyrra skotinu en brendi því seinna af. Coffman tók frákastið og ætlaði að kasta fram á samherja en Alda Leif hljóp inn í sendinguna og ÍS hélt bolt- anum út leiktímann eins og áður seg- ir. Overstreet komst ágætlega frá sín- um fyrsta leik með ÍS og á eftir að verða vaxandi með tímanum. Hún spOar fyrir liðið og styrkir Stúdínur verulega í þeirri baráttu sem fram undan er. fS á góðan möguleika á að hampa íslandsmeistaratitlinum með Kana innanborðs, en það er í fyrsta skipti í sögu félagsins, og með heima- vallarréttinn. Alda Leif var góð að vanda og verður fróðlegt að fylgjast með samvinnu hennar og Overstreet á næstunni. Lovísa Guðmundsdóttir var drjúg bæði í vöm og sókn og átti finan leik. Þær Þórunn Bjamadóttir og Haf- dís Helgadóttir lögðu sitt í púkkið til að vinna þennan mikilvæga leik og gáfu allt í verkefnið. Lykiimenn langt frá sínu besta Hjá KR voru Carrie Coffman og Helga Þorvaldsdóttir bestar og Guð- björg Norðfjörð var ágæt. Leikmenn eins og Kristín Jónsdóttir, Hildur Sig- urðardóttir og Gréta Grétarsdóttir voru langt frá sínu besta en þessar þrjár gegna lykilhlutverki í liðinu. KR hefur verið að valta yfir andstæðinga sína að undanförnu en núna er komið lið sem getur ógnað því að KR vinni tvöfalt í ár. Stig ÍS: Meadow Overstreet 21 (8 tapaðir, 5 stoðs.), Alda Leif Jónsdóttir 17 (9 fráköst, 4 varin, 6 stolnir), Lovísa Guðmundsdóttir 13 (9 fráköst, 5 stolnir, 4 stoðs.), Þórann Bjama- dóttir 6, Hafdís Helgadóttir 6 (5 fráköst, 5 tapaðir, 5 stoðs.), Jófriður Halldórsdóttir 2. Stig KR: Carrie Cofftnan 19 (10 fráköst), Helga Þorvaldsdóttir 19 (6 fráköst, 8 tapað- ir), Guðbjörg Norðfjörð 8 (5 fráköst, 5 stoðs.), Hildur Sigurðardóttir 6 (5 fráköst, 5 tapaðir), Linda Stefánsdóttir 4 (4 stolnir, 4 stoðs.), Kristín Jónsdóttir 4 (5 tapaðir), Gréta María Grétarsdóttir 3 (5 fráköst, 4 stoðs.). -Ben Ivar Ásgrímsson: Sálfræðilega miklvægt ívar Ás- grímsson, þjálfari ÍS, var að von- um ánægður með sigur- inn gegn KR og að hafa unnið deild- armeistara- titilinn og sagði leik- inn vera góða auglýs- ingu fyrir kvennakörfuna þar sem tvö góð lið áttust við. „Það var gríðarlega mikilvægt fyrir okkur sálfræðilega að vinna þennan leik og vinna titil í kjölfarið. Þær þurftu aö fá þessa sigurtilfinningu og von- andi fá þær trúna á að geta farið alla leið,“ sagði ívar þegar DV- Sport náði af honum tali eftir leik. Hvernig fannst þér sú banda- ríska komast frá sínum fyrsta leik ? „Meadow Overstreet og Alda Leif eiga eftir að stilla saman strengi og þegar það er komið mega önnur lið fara að varast okkur.“ Nú er hún svipaður leikmaður og Alda Leif, er þaó með ráðum gert eða var þetta bara besti leik- maóurinn sem völ var á? „Við viljum spila hraðan bolta og hún hentar vel inn í það sem við erum að gera. Þá vantaði okkur leikmann sem hjálpar Öldu að brjóta pressur. Ég hef trú á að hún eigi eftir að nýtast okkur vel og ég er nokkuð viss um að þetta er hörkuleikmaður. “ Hverja telur þú möguleika liðs- ins í úrslitakeppninni ? „Við vildum helst ekki mæta KR eða Keflavík í undanúrslit- um en Grindavík hefur spilað vel í vetur og viö mætum því. Það verða hörkuleikir og við veröum að mæta tilbúin. -Ben ívar Ásgrímsson, þjálfari IS. Handbolti gegn fíkni- efnum Akureyrarliðin KA og Þór mæt- ast í kvöld í Essodeild karla í hand- knattleik en beðið hefur verið eftir þessum leik með óþreyju enda var fyrri viðureign liðanna mjög spenn- andi. Liðin standa í tilefni af leikn- um fyrir frábæru framtaki sem full- trúar þeirra kjósa að nefna „Hand- bolti gegn fikniefnum". Fer nú fram áheitasöfnun þar sem fyrirtæki og einstaklingar geta heitiö ákveðinni upphæð á hvert skorað mark og rennur ágóðinn til lögreglunnar á Akureyri og verður notaður í bar- áttunni gegn fíkniefnum í bænum. „Félögin vilja þannig sameinast í baráttunni gegn þessum vágesti og segja honum strið á hendur. íþrótt- ir og fíkniefni fara ekki saman og því vilja félögin sameinast um aö styrkja lögregluna í bæjarfélagi okkar með fjárframlagi sem hún getur nýtt tO tækjakaupa eða þjálf- unar starfsmanna í þessum mála- flokki," segir i tilkynningu frá fé- lögunum. Hægt er að heita á hvort liðið um sig eða bæði og er líklegt að vænar fjárhæðir safnist til þessa verðuga verkefnis enda hafa leikir Þórsliðs- ins í vetur oft verið markamiklir. Tekið er við framlögum í sima 899 1089 (Geir Kristinn) og 847 6329 (Björn) auk þess sem hægt er að leggja málefninu lið i KA-heimilinu á leiktíma en leikurinn hefst kl. 20. -ÓK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.