Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2002, Qupperneq 4
18
ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002
Rafpostur: dvsport@dv.is
Gerrard með gegn Barca
Steven Gerr-
ard, hinn snjalli
miðvallarleik-
maður Liverpool,
hefur hafíð æfing-
ar að nýju eftir að
hafa verið frá
vegna nára-
meiðsla síðan í
leik Liverpool og
Galatasaray í
meistaradeildinni
fyrir þremur vik-
um. Gerrard verð-
ur að öllum lík-
indum með Liver-
pool í leiknum
gegn Barcelona á
morgun en þann
leik verður Liver-
pool nauðsynlega
að vinna til að
eiga möguleika á
að komast upp úr
riðlinum. Þetta
verða að teljast
gleðitíðindi fyrir
rauða herinn. -HI
BKand í poka
Austurríski múrarinn Her-
mann Maier er staðráðinn í að
ná fyrri styrk og getu í skíða-
brekkunum. Maier varð fyrir
alvarlegu slysi í ágúst á síðasta
ári og missti ef vetrarleikunum
í Salt Lake City á dögunum.
Maier er 29 ára gamail og
var nánast ósigrandi í keppn-
um fyrir slysið. í gær fór hann
i lokaaðgerðina vegna meiðsl-
anna og voru þá skrúfur fjar-
lægðar úr fæti hans. Maier seg-
ist reikna með að geta byrjað
að æfa upp úr næstu mánaða-
mótum og sögur þess efnis að
hann hyggist leggja skíðin á
hilluna séu stórlega ýktar.
Bandaríski tennisleikarinn
Andre Agassi vann Spánverj-
ann Juan Balcells i úrslita-
leik, 6-2 og 7-6, á stóru móti at-
vinnumanna í Bandaríkjunum
um liðna helgi. Þetta var í
fjórða skipti sem Agassi vann
þetta mót. Um leið vann Agassi
sinn 50. sigur á móti atvinnu-
manna og komst þar með í
fríðan hóp eftirtalinna
snillinga: Jimmy Connors,
Ivan Lendl, John McEnroe,
Pete Sampras, Björn Borg,
Guillermo Vilas, Ilie Nastase
og Boris Becker.
Matthew Le Tissier, leik-
maður Southampton í enska
boltanum, sér fram á endalok
ferils síns sem knattspyrnu-
manns. Le Tissier kom til Sout-
hampton árið 1986 og samning-
ur hans rennur út í júní. Hann
er 33 ára gamall og hefur átt í
langvarandi meiðslum undan-
farin misseri. Sjáifur segir
hann að ef forráðamenn Sout-
hampton bjóði honum ekki
nýjan samning muni hann
hætta.
Ottmar Hitzfeld, þjálfari
Bayern Munchen, tilkynnti í
gær að Carsten Jancker
myndi ekki leika með Bayern
gegn Manchester United í
MeistaradeOd Evrópu á morg-
im. Jancker meiddist á fæti um
síðustu helgi. Þeir Mehmet
Schol og Hasan Salihamidzic
eru einnig meiddir og leika
ekki gegn United. Það er því
ljóst að Evrópumeistaramir
geta ekki stiilt upp sínu
sterkasta liði annað kvöld en
reiknað er með að Alex Fergu-
son mæti til leiks með alla sína
bestu leikmenn í þennan mikil-
væga leik. -SK
íslendingar mæta
Ungverjum
íslendingar mæta Ungverjum í
vináttulandsleik i knattspyrnu á
Laugardalsvelli 7. september næst-
komandi. Degi áður munu u-21 árs
lið þjóðanna mætast en ekki hefur
verið ákveðið hvar sá leikur fer
fram.
Geir Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri KSÍ, sagði í samtali við DV-
Sport að þessi leikur væri liður í
undirbúningi landsliðsins fyrir und-
ankeppni EM sem hefst með leik
gegn Skotum á Laugardalsvelli 12.
október.
Geir sagði jafnframt að KSÍ ætl-
aði sér að fá einn vináttuleik til við-
bótar á Laugardalsvelli í lok ágúst,
á alþjóðlegum landsleikjadegi, en
enn væri ekki ljóst hvaða lið myndi
koma þá.
-ósk
Sigbjörn Óskarsson, þjálfari febrúarmánaðar í Essodeild karla:
Mánadarverölaun
Sigbjöm Óskarsson, þjálfari ÍBV,
hefur verið valinn þjálfari febrúar-
mánaðar í Essodeild karla í hand-
knattleik af DV-Sporti.
Sigbjöm stýrði ÍBV í fjórum leikj-
um í febrúarmánuði. Tveir þeirra
unnust, þar á meðal gegn íslands- og
bikarmeisturum Hauka, sem töp-
uðu sínum fyrsta og eina leik í
deildinni til þessa, einn endaði með
jafntefli og einn leikur endaði með
tapi. ÍBV náði heldur að rétta hlut
sinn í deildinni í febrúar eftir slak-
an leik í fyrri hlutanum og á ágætis
möguleika á því að komast í úrslita-
keppnina.
Ekki sáttur viö gengiö
„Ég er ekki sáttur við gengi okk-
ar í vetur. Þegar ég tók við í haust
taldi ég að mikið byggi í liðinu en
því miður höfum við ekki spilað
nógu vel. Við höfum verið að spila
ágætlega inn á milli en lélegu leik-
imir hafa verið of margir. Óstöðug-
leikinn hefur verið ailt of mikill en
ég verð að viðurkenna að það hefur
verið ákveðin stígandi í þessu hjá
okkur að undanfórnu," sagði Sig-
bjöm Óskarsson i samtali við DV-
Sport í gær.
Á sjálfur hlut aö máli
„Ég hlýt að skoða sjálfur hvað
hefur verið að gerast. Það er klárt
að ég á sjálfur hlut að máli. Ég hef
ekki náð því besta út úr mann-
skapnum en við munu halda áfram
og ætlum okkur að komast í úrslita-
keppnina. Við eigum heilmikið inni
sem er kannski eins gott því barátt-
an um sæti i úrslitakeppninni er
það hörð að menn mega ekki mis-
stíga sig einu sinni án þess að eiga
á hættu að missa af lestinni. Það er
því gríðarlega mikilvægt fyrir okk-
Sigbjörn Óskarsson, þjálfari ÍBV, var valinn þjálfari febrúarmánaöar í Esso-
deild karla í handknattleik. DV-mynd Ómar G.
ur að ná stöðugleika í spil okkar.
Það sem er jákvætt hjá okkur er
að það era margir ungir leikmenn
að koma sterkir upp og eiga eftir að
halda merki ÍBV á lofti næstu árin,“
sagði Sigbjörn Óskarsson, þjálfari
ÍBV, í samtali við DV-Sport. -ósk
Ostöðugleiki
- hefur einkennt lið ÍBV, segir Sigbjörn Óskarsson
Aleksandrs Petersons, Gróttu/KR,
er besti leikmaður febrúarmánaðar
að mati blaðamanna DV-Sports en
hann skoraði 9 mörk að meðaltali í
fjórum leikjum Gróttu/KR-liðsins
sem náði í þeim fimm stigum af átta
mögulegum. Petersons skoraði öll 36
mörkin sín utan af velli og nýtti
57,1% skota sinna og gerði alls 16
mörk úr hraðaupphlaupum eða 4 að
meðaltali. Petersons var einu sinni
valinn maður leiksins er hann gerði
10 mörk í jafnteflisleik gegn HK.
Aörir tilnefndir
Halldór Ingólfsson, Haukum, lék vel
fyrir sitt lið í febrúar og þá sérstaklega
í bikarúrslitaleiknum þar sem fjórtán
mörk úr 17 skotum er nýtt markamet í
Höllinni. Halldór skoraði 9,8 mörk að
meðaltali, þar af 5 að meðaltali af víta-
linunni og nýtti 70% skota sinna.
Róbert Gunnarsson, Fram, skoraði
7,8 mörk að meðaltali í fimm leikjum
Fram og nýtti 72,2% skota sinna. Ró-
bert fiskaði að auki 12 vítaköst og 9
marka hans komu úr hraðaupphlaup-
inn.
Hlynur Morthens, Gróttu/KR, varði
22,3 skot að meðaltali í marki
Gróttu/KR og alls 51,7% skotanna sem
á hann komu. Hlynur varði fimm víti
í leikjunum flórum og var tvisvar mað-
ur leiksins í þessum leikjum.
Einar Hólmgeirsson, ÍR, skoraði 7,3
mörk að meðaltali í fjórum Ieikjum ÍR-
liðsins þar sem að hann nýtti 58%
skota sinna. Einar var valinn maður
leiksins 1 Eyjum þar sem að hann nýtti
10 af 13 skotum sínum.
Höróur Flóki Ólafsson, ÍBV, varði
18,6 skot að meðaltali i fimm leikjum
ÍBV og var tvisvar valinn maður leiks-
ins. Hörður Flóki varði 42,3% skot-
anna sem á hann komu og hélt 61%
þeirra skota sem að hann varði.
Besti þjálfarinn
Sigbjörn Óskarsson, ÍBV, er besti
þjálfari febrúarmánaðar í Essodeild
karla i handbolta en aðrir sem voru
tilnefndir voru Viggó Sigurósson,
Haukum, Ólafur Lórusson,
Gróttu/KR, og Atli Hilmarsson, KA.
Lettinn Aleksandrs Petersons spilaöi frábærlega með Gróttu/KR í febrúar
og sýndi aö hann er ein besta skytta deildarinnar. DV-mynd Pjetur
Aleksandrs Petersons, Gróttu/KR:
í betra formi
- núna heldur en fyrr í vetur
Lettneska skyttan Aleksandrs
Petersons, sem leikur meö
Gróttu/KR, hefur verið valinn
leikmaður febrúarmánaðar i Esso-
deild karla í handknattleik af
blaðamönnum DV-Sports.
Petersons kom gifurlega sterkur
inn eftir hléið vegna EM í Svíþjóð
og skoraði níu mörk að meöaltali í
fjórum leikjum Gróttu/KR í mán-
uðinum.
Þetta er stór framfór frá því í
fyrri hluta mótsins þegar hann
skoraði 42 mörk í níu leikjum eða
4,7 mörk að meðaltali.
Hef æft betur
„Ég hef æft betur heldur en fyr-
ir jól og er í betra formi núna. Ég
æfði ekki nógu vel fyrir jól en síð-
an þegar hléið kom þá fór ég í æf-
ingabúðir með lettneska landslið-
inu og lék leiki með því í und-
ankeppni HM. Sá tími kom mér
aftur í form og það er held ég
ástæðan fyrir því að ég er farinn
að spila eins og maður á ný,“ sagði
Aleksandrs Petersons í samtali við
DV-Sport í gær.
Bjartsýnn á framhaldið
„Ég er bjartsýnn á framhaldið í
deildinni. Það hefur verið viss
stígandi í leik okkar að
undanfórnu og ég hef trú á því að
við getum gert góða hluti. Deildin
er rosalega jöfn en ef okkur tekst
að ná fjórða sætinu i henni þá tel
ég að við eigum góða möguleika á
því að komast í undanúrslit. Það
væri góður árangur því við erum
með ungt lið sem ætti að geta gert
góða hluti á næstu árurn."
Líöur vel á íslandi
Petersons skrifaði undir nýjan
samning við Gróttu/KR síðastliðið
haust og hyggst dveljast í
herbúðum Seltjarnarnessliðsins
næstu þrjú árin.
„Mér líður vel á íslandi og
hlakka til næstu þriggja ára. Mig
langar hins vegar til að fara til
Evrópu í atvinnumennsku á
næstu árum en er þolinmóður,"
sagði Petersons að lokum.
-ósk