Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2002, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2002
19
Sími: 550 5000 • Rafpóstur: dvsport@dv.is
Samið við
Færeyinga
KSÍ, Knattspymusamband
Færeyja og FITUR (samstarfs-
hópur íslendinga og Færeyinga á
sviöi ferðamála) hafa gert með
sér samning um að á hverju ári
fari fram leikur milli ís-
landsmeistara og Færeyjameist-
ara í knattspymu. Þessi
viðburður mun bera nafnið
Atlantic Cup. Þessi leikur mun
fara fram síðustu helgina í april
og verður leikið til skiptis í Fær-
eyjum og á íslandi. Fyrsti leik-
urinn fer fram 27. april næst-
komandi í Færeyjum, þar sem
mætast munu Skagamenn og
færeysku meistaramir, Bólt-
felagið B36 frá Þórshöfn. -HI
Örn syndir
til úrslita
Öm Arnarson komst í gær i
úrslit í 100 m baksundi á heims-
meistaramótinu í sundi í 25 m
laug sem fram fer í Moskvu
þessa dagana. Örn varð fjórtándi
í undanrásunum í gærmorgun
og synti síðan í undanúrslitun-
um í gær á 52,95 sekúndum sem
dugði honum í sjöunda sætið.
Matt Welsh sigraði í undanúr-
slitunum á 51,73 sek. Úrslita-
sundið fer fram á morgyp. -HI
Fimm mork
Sigurðar
Lemgo skaust á toppinn í
þýsku bundesligunni í hand-
knattleik þegar liðið vann í gær-
kvöld Solingen á útivelli, 27-22.
Kiel hélt einnig sinu striki og
vann í gær Wetzlar, 36-23. Sig-
urður Bjamason skoraði firnm
mörk fyrir Wetzlar í leiknum.
Magdeburg vann nauman sig-
ur á Hameln, 22-20, og skoraði
Ólafur Stefánsson íjögur mörk,
þar af þrjú af vítalínunni. Þá
vann Flensburg stórsigur á Bad
Schwartau, 39-18, og Wallau
vann Grosswallstad, 28-22.
Lemgo er stigi á undan
Nordhom en Kiel er í þriðja
sæti, stigi þar á eftir. -HI
Úrslit í NBA
Charlotte-Miami .......97-90
Mashbum 22, Davis 22, Magloire 18 -
Jones 27, Mouming 14, Grant 12.
Toronto-Chicago......117-104
Peterson 26, Davis 25, Clark 18 - Rose
30, Chandler 16, Fizer 14.
Philadelphia-Phoenix.89-83
McKie 22, Mutombo 16, Coleman 13 -
Marbury 27, Marion 21, Tsakalidis 17.
Detroit-Sacramento ...86-107
Williamson 13, Stackhouse 12, Wall-
ace 12 - Webber 28, Divac 15, Bibby 15
New Jersey-LA Lakers .... 94-92
Kittles 19, Martin 18, Macculloch 17 -
Bryant 33, Fisher 14, Walker 13.
Milwaukee-Washington .. 105-90
Robinson 38, Cassell 19, Anthony 16 -
Alexander 22, Hamilton 20, Lue 12.
Minnesota-Memphis....92-81
Billups 26, Gamett 18, Szczerbiak 14 -
Gasol 18, Williams 17, Swift 16.
San Antonio-Seattle..90-88
Duncan 30, Robinson 20, Smith 19 -
Payton 24, Baker 14, James 12.
Utah-LA Clippers.......99-87
Malone 24, Kirilenko 17, Russell 13 -
Brand 24, Maggette 18, Boykins 10.
Helga Birna ekki með
í úrslitakeppninni
Helga Bima Brynjólfsdóttir, fyr
irliði kvennaliðs Vík-
ings í handknattleik,
mun að öllum líkind-
um ekki leika með
liði sínu í úrslita-
keppninni vegna
veikinda sem hún
hefur glímt við und-
anfamar vikur.
Þetta er enn eitt
áfallið sem dynur yfir
Vikingsliðið í vetur.
Helga Birna Brynjólfsdóttir.
Fyrir nokkrum vikum meiddist
Steinunn Bjarnarson
á rist og er óvíst
hvort hún getur
heldur leikið með
liði sinu í úrslita-
keppninni. Þá er
Gerður Beta Jó-
hannsdóttir við það
að komast í form eft-
ir meiðsl sem héldu
henni frá æfingum
fram að áramótum.
Eins marks heimasigrar unnust í seinni leikjum 8-liöa úrslita meistaradeildarinnar sem fram fóru í gærkvöld. Hér fagnar Sami Hyypia sigurmarki sínu fyrir
Liverpool gegn Bayer Leverkusen en þaö reyndist eina markiö í leiknum. Panathinaikos þurfti einnig einungis eitt mark til aö sigra Barcelona. Reuters
Petur hættur með Kongsberg
Pétur Guðmundsson, sem þjálfaði
norska úrvalsdeildarliðið Kongs-
berg Penguins í vetur, er hættur hjá
félaginu.
Pétur náði mjög góðum árangri
með mörgæsirnar á tímabilinu sem
höfhuðu í ööru sæti eftir úrslitaleik-
ina viö Asker Aliens. Hann sagði í
samtali við DV í gærkvöld að menn
hefðu ekki verið á eitt sáttir um að
hverju bæri að stefha fyrir næstu
leiktíð. „Ég vildi gera ákveðnar
breytingar á leikmannahópnum til
að ná fram þeim leikstíl sem liðið
lék þegar við náðum okkar besta
árangri. Það þýddi að við þurftum
að fóma einum heimamanni og öðr-
um Bandaríkjamanninum, Rodney
Hawthom, sem ekki stóð undir
væntingum í vetur, þó svo hann
ætti stundum mjög góða leiki. Auk
þess vildi ég fá nýjan framkvæmda-
stjóra fyrir næsta tímabil sem, auk
þess að sjá um styrktaraðilana og
daglegan rekstur, hefði einhverja
innsýn í íþróttina og skildi leik-
mennina og hvemig þeir hugsuðu.“
Var þetta of stór biti fyrir
stjómina að kyngja?
„Já. Þaö má segja það. Þeir svör-
uðu þessu með því að skipa nefnd
sem átti að meta það hvort ég yrði
áfram hjá félaginu. í þessari fimm
manna nefnd vom báðir leikmenn-
imir sem ég vOdi losna við, sem og
framkvæmdastjórinn. Ég nenni
ekki að taka þátt í svona vinnu-
brögðum svo ég taldi best að leið-
ir skildi. Ég var búinn að bjóða
stjóminni fyrr í vetur, þegar ég
setti norska leikmanninn í þriggja
leikja bann sem hún var ósátt við,
að þeir gætu þá bara rekið mig.
Það vildu menn ekki þá þvi í kjöl-
farið áttum við okkar bestu leikja-
hrinu."
Pétur sagðist ekkert vita hvað
væri fram undan hjá sér nákvæm-
lega núna. Hann sagðist þó vita af
áhuga meðal einhverra norskra úr-
valsdeildarliða, en eins og staðan
væri núna væri framtíðin óráðin.
DV hefur heimildir fyrir því að
hjá Harstad Vikings er Pétur efstur
á óskalistanum í leit liðsins að nýj-
um þjálfara. Þá hefur Centrum
Tigers einnig sett sig í samband við
Pétur, en það lið leitar nú logandi
ljósi að þjálfara fyrir komandi leik-
tíð. -GÞÖ