Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2002, Blaðsíða 4
22
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002
Tryggvi í uppskurð
Vamarmaðurinn efnilegi, Tryggvi
Bjarnason, sem leikur með KR, er
meiddur á hné og þarf að gangast undir
aðgerð. Hann meiddist í leik KR og
Grindavíkur á Candela Cup á Spáni í
síðustu viku og verður líklega frá í þrjár
vikur.
Þetta er enn eitt áfallið fyrir KR-inga
en fyrir eru þeir Sigursteinn Gíslason,
Einar Þór Daníelsson, Guðmundur Bene-
diktsson, Egill Atlason, Þórhallur Hin-
riksson, Magnús Már Lúðvíksson, Jón
Skaftason og Grétar Sigurðsson allir á
sjúkralista.
200 handteknir
í Danmörku
Það gekk á ýmsu í Kaupmanna-
höfn í gærkvöld fyrir leik Dana og
ísraela á Parken. Ekki voru allir
sáttir við að Danir skyldu leika
gegn ísraelum vegna hernaðarað-
gerða þeirra gegn Palestínuaröbum
og var meðal annars hótað að
sprengja upp leikvanginn ef leikur-
inn færi fram.
Hópur fólks mætti á staðinn fyrir
leikinn tO að mótmæla framkomu
ísraelsmanna. Gífurleg öryggis-
gæsla var á leiknum og þurftu lög-
reglumenn að handtaka um 150 mót-
mælendur fyrir leikinn vegna ólgu.
Fimmtiu mótmælendur í viðbót
voru síðan handteknir þegar þeir
reyndu að komast inn á völlinn.
Það voru ekki margir áhorfendur
á veUinum enda bauðst danska
knattspymusambandið tU að endur-
greiða þeim miðanna sem höfðu
keypt en höfðu ekki geð í sér að
horfa á ísraelska landsliðið etja
kappi við það danska. Fjölmargir
þáðu það og var stemningin á
pöUunum heldur dösuð. -ósk
Juan Pablo Sorin fagnar hér marki sínu gegn Þjóðverjum að hætti hússins.
Michael Owen, nýskipaður fyrirliði enska landsliðsins, fagnar hér skallamarki sinu gegn Paragvæ í gærkvöld.
Reuters
Englendingar voru i essinu sínu
gegn Paragvæ á Anfleld Road í gær-
kvöld og unnu 4-0. Þeir léku stór-
kostlega og var erfítt að sjá að Dav-
id Beckham væri fjarri góðu gamni.
„Ég var ánægður með hugarfar
okkar aUan leikinn. Við spUuðum
kannski ekkert sérstaklega vel í
fyrri hálfleik en eftir að annað
markið kom i seinni háifleik þá
héldu okkur engin bönd,“ sagði
Sven Göran Eriksson, þjálfari Eng-
lendinga, eftir leikinn og bætti við
að Steven Gerrard og Joe Cole hefðu
staðið sig best aUra leikmanna
enska liðsins í leiknum.
Cesare Maldini, þjálfari Paragvæ,
viðurkenndi eftir leikinn að lið sitt
hefði mætt ofjörlum sínum í þessum
leik. „Við vorum yfirspUaðir enda
enska liðið mjög gott. Það er ungt,
með frábæran þjálfara og á eftir að
verða enn betra,“ sagði Maldini.
Vel skipulagðir Rússar
Rússar sóttu heimsmeistaca
Frakka heim og náðu markalausu
jafntefli. Þeir geta þakkað mark-
verði sínum, Ruslan NigmatuUin,
fyrir jafnteflið en hann varði frá-
bærlega.
„Við fengum nokkur tækifæri en
Rússamir voru vel skipulagðir og
markvörður þeirra varði vel. Ég
vona að við lendum ekki á móti
þeim i HM því þeir eru erfiðir and-
stæðingar," sagði Roger Lemerre,
þjálfari Frakka.
Fimm hjá Spánverjum
Spánverjar tóku N-fra í kennslu-
stund í Belfast, 5-0.
Jose Camacho, þjálfari Spánverja,
var glaður í bragði eftir leikinn.
„Við spUuðum frábærlega aUan
leikinn og þessi frammistaða gefur
góð fyrirheit fyrir keppnina í sum-
ar,“ sagði Camacho.
Sammy Mcllroy, þjáifari N-íra,
var ekki jafnupplitsdjarfur eftir
stærsta tap N-íra á heimaveUi í 37
ár.
„Það finnst engum gaman að tapa
5-0. Við spUuðum skelfilega en við
munum halda áfram. Ég hætti ekki.
Það er ekki minn stUl,“ sagði McU-
roy.
Brassar bjartsýnir
BrasUíumenn hafa góða ástæðu
tU að vera bjartsýnir eftir leikinn
gegn Portúgölum í gærkvöld. Scol-
ari, þjálfari liðsins, stUlti upp Ron-
aldo, Ronaldinho og Rivaldo saman
í framlínunni og lofar sú samsetn-
ing góðu. Leikur þessara tveggja
liða var harður og oft á tíðum vék
fagurfræðin fyrir hörkunni. -ósk
Vináttuleikir
Japan-Kosta Ríka ...........1-1
1-0 Myojin (69.), 1-1 Parks (76.).
Austurríki-Kamerún...........0-0
Belgia-Slóvakía ............1-1
1-0 Goor (56.), 1-1 Janocko (83.).
Króatía-Bosnía ..............2-0
1-0 Olic (44.), 2-0 Suker, víti (52.)
Danmörk-ísrael..............3-1
1-0 Heintze (4.), 2-0 Tomasson (14.),
3-0 Rommedahl (37.), 3-1 Nimni, viti
(90,).
England-Paragvæ .............4-0
1-0 Owen (4.), 2-0 Murphy (47.), 3-0
Vassell (55.), 4-0 Ayala, sjálfsm. (77.).
Frakkland-Rússland ..........0-0
Þýskaland-Argenttna.........0-1
0-1 Sorin (47.).
Grikkland-Tékkland ..........0-0
Ungverjaland-Hvita-Rússland 2-5
1-0 Kenesei (13.), 1-1 Gleb (23.), 1-2
Kutuzov (29.), 1-3 Kutuzov (33.). 1^4
Khatskevich (45.), 1-5 Kachuro (76.),
2-5 Feher, víti (86.).
Írland-Bandaríkin............2-1
1-0 Kinsella (6.), 1-1 Pope (34.), 2-1
Doherty (83.).
Ítalia-Úrúgvæ ...............1-1
1- 0 Panucci (74.), 1-1 Abreu (77.).
Lúxemborg-Liechtenstein . . . 3-3
0-1 Stocklasa (7.), 0-2 Stocklasa (25.),
0-3 Stocklasa (37.), 1-3 Strasser (39.),
2- 3 Christophe (69.), 3-3 Cardoni (83.).
Makedónia-Finnland...........1-0
1-0 Stavrevski (36.).
Lettiand-Kasakstan...........2-1
0-1 Shevchneko (45.), 1-1 Zemlinski,
víti (75.), 2-1 Stoltsjers (89.).
Malta-Aserbaidsjan...........1-0
1-0 Mifsud (67.).
N-írland-Spánn ..............0-5
0-1 Raul (23.), 0-2 Baraja (48.), 0-3
Raul (54.), 0-4 Puyol (68.), 0-5
Morientes (78.).
Noregur-Svíþjóð .............0-0
Pólland-Rúmenia..............1-2
0-1 Ganea (30.), 0-2 Mutu (36.), 1-2
Hajto (86.).
Portúgal-Brasilía............1-1
1-0 Conceicao (64.), 1-1 Ronaldinho,
víti (73.).
Skotland-Nigeria.............1-2
1-0 Dailly (7.), 1-1 Aghahowa (40.), 1-2
Aghahowa (69.).
Slóvenía-Túnis...............1-0
1-0 Pavlin (23.).
Suður Afríka-Ekvador........0-0
Tyrkland-Chile ..............2-0
1-0 Sukur (30.), 2-0 Ilhan (81.).
Úkraina-Georgía .............2-1
1-0 Rebrov (17.), 1-1 Burduli (70.), 2-1
Tymoshchuk (90.).
Júgóslavía-Litháen ..........4-1
1-0 Ilic (16.), 1-1 Zutautas (20.), 2-1
Kezman (35.), 3-1 Kezman (76.), 4-1
Bmovic (87.). -ósk
Argentínumenn sterkir
- unnu Þjóðverja án margra lykilmanna
Argentínumenn sýndu styrk-
leika sinn í gærkvöld þegar þeir
lögðu Þjóðverja, 1-0, í Stuttgart.
Þeir léku án lykilmanna eins og Ju-
an Sebastian Veron, Hernan
Crespo og Gabriel Batistuta en
reyndar gátu Þjóðverjar heldur
ekki stillt upp sínu sterkasta liði.
Þjálfari Argentínumanna, Marc-
elo Bielsa, var ánægður með sigur-
inn í leikslok. „Ég held að sigur
okkar hér í kvöld hafi verið verð-
skuldaður. Sigurinn var þó ekki
auðveldur því þýska liðið er sterkt
og ég ber mikla virðingu fyrir því.
Rudi Völler, þjálfari Þjóöverja,
sagði að sínir menn hefðu borið of
mikla virðingu fyrir stórstjömun-
um í argentínska liðinu og það
hefði gert þeim erfitt fyrir.
„Argentínumenn áttu samt sem
áður sigurinn skilinn. Þeir voru
betri aðilinn í leiknum og hefðu
hæglega getað bætt við öðru marki
áður en yfir lauk. Mér fannst við
vera of varkárir í leiknum og það
kann aldrei góðri lukku að stýra,“
sagði VöUer. Miðjumaðurinn
snjaili, Michael Ballack, tók i sama
streng og sagði að trúna hefði
vantað í þýska liðiö. -ósk
Fjöldi vináttuleikja fór fram í heiminum í gærkvöld:
Veisla á Anfield
- Englendingar kafsigldu Paragvæ í frábærum leik