Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2002, Blaðsíða 1
Simi: 550 5000 • Rafpóstur: innkaup@dv.is
- blaðið sem borgar sig
DV-MYND HARI
Allt á fullu
Þegar DV-innkaup litu inn í Knatthúsið í Smáranum í gær var undirbúningur á fullu. Sæunn Björnsdóttir, starfskona Debenhams, sést hér rúlla inn vörum sem
kynntar veröa á sýningunni Brúðkaup 2002 sem haldin er á sama stað.
Stórsýningin Matur 2002 um helgina:
Metnaður í
Mat 2002
Með 15
þúsund krónur
í Krónuna
Heilsuréttir
Nings
Lokaundirbuningur hafinn
Á morgun hefst í nýja Knatthúsinu i Smáran-
um stórsýningin Matur 2002 en hún er einkar
vegleg í ár enda pláss gott í risastóru húsinu.
Matur 2002 er bæði kaupstefha og sýning og á
fimmtudag og fyrri hluta fóstudags er opið fyrir
boðsgesti en eftir það verður opnað fyrir almenn-
ing og stendur sýningin fram á sunnudagskvöld.
„Það er gríðarlegur undirbúningur fyrir svona
sýningu enda mikið í lagt og allir reyna að gera
sýninguna sem glæsilegasta. Það er ótrúlega gaman
að fylgjast með undirbúningnum á lokasprettinum
því starfsgleðin og metnaðurinn skin úr hverju
andliti. Við höfum séð ótrúlega hluti gerast hér á
hverjum degi,“ segja þau Dagmar Haraldsdóttir,
sölu- og markaðsstjóri sýningarinnar Matur 2002,
og Jónas Páll Bjömsson, framkvæmdastjóri sýning-
arinnar, í samtali við DV-Innkaup.
Auk þess að skoða gífurlegt framboð af mat og
matartengdum vörum geta gestir fylgst með
keppnum og sýningum, farið á fyrirlestra eða
skoðað sýninguna Brúðkaup 2002 sem er ein-
hvers konar sýning innan sýningar. Þar mun
vera hægt að kynna sér alla þætti brúðkaupa, allt
frá mat, yfir i hárgreiðslu og förðun. Mikið er
lagt i þá sýningu, m.a. hefur verið komið upp
stóru veislutjaldi og verður þar veisla alla helg-
ina, með mat, klakaskurði, tónlist og fleira.
Þeim sem leggja leið sína á Mat 2002 býðst
einnig að fylgjast með alls kyns spennandi
keppni, t.d. verða matreiðslumaður ársins og
kaffibarþjónn ársins valdir, keppt verður í gerð
grænmetisrétta, nokkrir þingmenn reyna með
sér í eggjakökugerð, auk þess sem keppt verður í
framreiðslu, kjötiðn, klakaskurði, blóma- og
kökuskreytingum, svo aðeins sé tæpt á hluta þess
sem í boði er. -ÓSB/hlh
Húsgögn fyrir
vinnu og heimili
-—-
BLITZ fataskápur, B91 x D57 x H197.
Fæst í kirsuberja og beyki.
HÚ5GAGIUAHÖLLIN
BLITZ fataskápur, B181 x D57 x H197. Fæst í kirsuberja og beyki,
Bíldshöfóa 20 • 110 Reykjavík
sími 510 8000 • www.husgagnahollin.is
KENT fataskápur, beyki. B225 x D61 x H222,