Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2002, Blaðsíða 4
18
MÁNUDAGUR 22. APRÍL 2002
Sport
Villa náöi aöeins jafntefli
Leicester City, sem þegar er fallið í
fyrstu deild, tók á móti Aston Villa á
Filbert Street. Villa er í baráttu um
að komast í Inter-toto-keppnina en
jafntefli varð niðurstaðan í leik lið-
anna á laugardag. Muzzy Izzet og Jon
Stevenson skoruðu fyrir Leicester en
Darius Vassell og Tomas Hitzlsperger
svöruðu fyrir Aston Villa. Þetta jafii-
tefli heldur Aston Villa um miðja
deild og var þetta fjórtánda jafntefli
liðsins á leiktíðinni en ekkert annað
félag í úrvalsdeildinni hefur gert jafn-
mörg jaflitefLi og Aston Villa.
Rauði herinn frá Anfield gefur ekki
þumlung eftir í baráttunni um enska
meistaratitilinn. Liverpool tók á móti
Derby County sem mátti ekki tapa
stigum þvi að þá var félagið fallið í
fyrstu deild. Leikurinn var ekki í há-
um gæðaflokki en fyrra mark leiksins
kom á 15. mínútu þegar eldingin
Michael Owen skoraði af mikiu harð-
fylgi, bráust í gegnum vörn Derby og
skoraði. Þannig stóðu leikar allt þar
til á lokamínútunni er Owen skoraði
aftur og gulltryggði Liverpool sigur-
inn og efsta sætið í sólarhring.
Arsenal átti ekki að leika fyrr en á
sunnudeginum. Þetta var sannfær-
andi hjá púllurum og liðið hefur 74
stig í öðru sæti.
United tók Chelsea létt
Manchester United komst á topp
ensku úrvalsdeildarinnar á laugar-
daginn í fjórar klukkustundir þegar
rauðu djöflamir heimsóttu Chelsea á
Stamford Bridge í Lundúnum og unnu
3-0 sigur. Eiður Smári Guðjohnsen
var að venju í byrjunarliði Chelsea en
meiddist á ökkla og varð að fara af
velli í hálfleik. Chelsea var meira
með boltann fyrstu 10 mínútumar en
Paul Scholes sneri leiknum á 15. mín-
útu þegar hann kom United yfir.
Ruud van Nistelrooij skoraði annað
mark Manchester United íjórum min-
útum fyrir leikhlé og það var svo
Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær
sem innsiglaði öruggan sigur United á
Chelsea þegar hann skoraði íjórum
mínútum fyrir leikslok þegar vöm
Chelsea hafði verið sundurspiluð.
Manchester United hefur 73 stig í
þriðja sæti og á þrjá leiki eftir. Við
tapið eru möguleikar Chelsea í meist-
aradeildarsæti nánast úr sögunni en
Chelsea á tvo leiki eftir og er með 61
stig. Það verður sennilega Newcastle
sem tryggir sér fjórða og síðasta
meistaradeildarsætið.
Shearer meö 200. markiö
Newcastle er á góðri leið með að
tryggja sér meistaradeildarsæti eftir
öruggan 3-0 sigur á Charlton. Gary
Speed skoraði á 22. mínútu og Lom-
ana Lua Lua skoraði annað mark
Newcastle á 46. mínútu. Yfirburðir
heimamanna vom miklir og það var
vel við hæfi að gulldrengurinn á St.
James Park, Alan Shearer, skoraði
þriðja og síðasta markið í leiknum og
var þetta 200. mark Alans Shearers í
ensku úrvalsdeildinni og er það met.
Guöni meö Bolton á ný
Bolton og Tottenham léku á Ree-
bok-vellinum í Bolton og lentu heima-
menn undir á 8. mínútu þegar Steffen
Iversen skoraði en gamli refurinn
Dean Holdsworth jafnaði fyrir Bolton
19. mínútum fyrir leikslok. Guðni
Bergsson lék að nýju í liði Bolton en
hann hefur verið meiddur undanfam-
ar vikur. Guðni styrkti vöm liðsins
verulega með endurkomu sinni og
fékk 7 í einkunn hjá netmiðlinum
Sports.com.
Óvænt á Elland Road
Leeds United hefur undanfamar
vikur verið í harðri baráttu við
Newcastle og Chelsea um meistara-
deildarsæti en á laugardag urðu þær
vonir að engu. Leeds tapaði óvænt á
heimavelli fyrir fallbaráttuliði Ful-
ham, 0-1. Eina markið var skorað á
sjöundu mínútu seinni hálfleiks þegar
Steed Malbranque skoraði. Sigur Ful-
ham fleytir liðinu í 13. sæti og er
sloppið úr fallhættu. SennOega er
það mikill léttir fyrir Frakkann Jean
Tigana, stjóra Fulham
Góöur sigur Hamranna
West Ham vann Sunderland létt,
3-0, á laugardag þar sem Trevor
Sinclair, Steve Lomas og hinn ungi
Jermain Defoe skoruðu mörkin á
Upton Park. Wes Ham hefur verið að
gera góða hluti að undanfomu og er í
sjöunda sæti með 50 stig en West Ham
á þrjá leiki eftir. Sunderland er
komið í alvarlega fallhættu, er með 38
stig i fjórða neðsta sæti og á tvo leiki
eftir í deildarkeppninni.
Blackburn meö óvæntan
stórsigur á úvelli
Blakcburn Rovers, lið Greame
Souness, sem varð fyrr í vetur deild-
arbikarmeistari, hefur verið í harðri
Michael Owen fékk á laugardag fyrir leik Liverpool og Derby afhentan verölaunagrip til staöfestingar um aö hann heföi veriö valinn knattspyrnumaöur
Evrópu á síöasta ári en Owen lék afburöavel á árinu 2001. Owen hélt uppteknum hætti gegn Derby og skoraöi bæöi mörk Liverpool. Reuter
Everton í 11. sæti
Southampton og Everton mætt-
ust á heimavelli dýrlinganna og
það vora piltar Davids Moyes sem
hirtu öll þrjú stigin. Það var Steve
Watson sem skoraði eina mark
leiksins á 41. mínútu eftir undir-
búning Kevins Campbells. Everton
er þar með komið með 43 stig í ell-
efta sæti en Southampton féll um
eitt og situr í sætinu fyrir neðan.
David Moyes er að gera góða hluti
með Everton á þeim stutta tíma
sem hann hafði og aðdáendur
þeirrra bláu bíða í ofvæni eftir að
næsta leiktíð hefiist. -vbv
Paul Scholes og Ryan Giggs fagna hér marki Scholes í 3-0 sigri liösins gegn
Chelsea í ensku deildinni í gær þar sem United fór á kostum. Reuter
fallbaráttu alla leiktiðina en á laugar-
dag birti loks yfir félaginu. Black-
bum fór þá í heimsókn til Middles-
brough sem var fyrir leikinn með 45
stig í 9. sæti. Blackburnmenn komu,
sáu og unnu stórsigur, 3-0, á útivelli.
Jorge Yordi kom Blackbum yfir eftir
um hálftímaleik. Þannig var staðan
allt þar til 16 mínútum fyrir leikslok
að Andy Cole skoraði. Það var síðan
David Dunn sem skoraði þriðja og síð-
asta mark Blackbum Rovers gegn
Middlesbrough úr vítaspyrnu á 83.
mínútu. Þar með er Blackbum kom-
ið með 39 stig í fimmta neðsta sæti en
liðið á fióra leiki eftir á meðan flest
önnur eiga tvo til þrjá leiki eftir.
Enska knattspyrnan á laugardag:
Uverpool gefur
ekkert eftir
- í baráttunni um meistaratitilinn - Derby fallið