Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2002, Síða 7
20
+
21
MÁNUDAGUR 22. APRÍL 2002 MÁNUDAGUR 22. APRÍL 2002
Sport
Sport
Teitur Örlygsson sést her
handleika
islandsmeistarabikarmn i
tíunda sinn á ferlinum eftir
sígur a Keflavik í Keflavik 16.
april síöastliöinn.
Teitur tok viö bikarnum i
jakkafotunum þar sem hann
var i leíkbanni en enginn
hefur oröiö jafnoft
islandsmeistari i urvalsdeild
eöa eftir urslitakeppni. Teitur
skoraöi 10.9 stíg aö meðaltali
i urslitakeppninni, einn fimm
leikmanna liðsins sem
skoruðu yfir 10 stig i leik.
DV-mynd Hilmar Pór
Hér má sjá Teit Örlygsson, 17 ára gamlan, eftir sigur Njarðvíkur á Val í öðrum leik
lokaúrslitanna í Seljaskóla 22. mars 1984. Teitur er annar frá vinstri í neðri röö, í peysu
númer 15. Teitur kom inn í liðið í úrslitakeppninni í staðinn fyrir Val Ingimundarson sem
meiddist. Valur sést meö hækjurnar lengst til hægri í efri röö.
Teitur lyftir hér ísiandsbikarnum ásamt þeim Jónasi Jóhannessyni og Hreiöari
Hreiðarssyni eftir sigur Njarðvíkur á Haukum í Njarðvtk 23. mars 1985. Aörir á myndinni
eru þeir Árni Lárusson (lengst til vinstri), Hafþór Óskarsson (10) og Sigurður Ellert
Magnússon. Teitur gerði 4,8 stig að meðaltali í úrslitum þetta árið.
Hér eru samankomnir íslandsmeistarar Njarövfkur eftir sigur á Haukum í Strandgötu 8.
mars 1986. Njarðvík vann þá aila fjóra leiki sína úrslitakeppninni og skoraöi Teitur 8,3 stig
að meöaltali í úrslitakeppninni. Teitur sést hér annar frá vinstri f neöri röö en þetta áriö lék
hann í peysu númer níu.
Hér eru samankomnir íslands-, bikar- og deildarmeistarar Njarðvíkur eftir sigur á Val í
Seljaskóla 4. aprfl 1987. Njarövík náöi þarna sínum besta árangri frá upphafi. Liöið vann alla
titla í boði, 17 af 20 deildarleikjum og alla fjóra leiki sína í úrslitakeppninni. Teitur Örlygsson
er hér þriðji frá vinstri í efri röö en hann gerði 11,8 stig að meðaltali í úrslitakeppninni.
‘
'
Teitur Öriygsson kyssir hér að ofan ísiandsbikarinn eftir glæsilegan sigur Njarövík-
urliðsins á Tindastól f Sfkinu á Sauöárkróki 17. apríl 2001. Teitur gerði 14,0 stig að
meðaltali í úrslitunum en þetta var í eina skiptiö sem hann gegndi þjálfarastöðu
þegar titilinn vannst en hann þjálfaöi liðið þarna ásamt Friöríki Ragnarssyni.
Teitur er hér fyrstur frá vinstri í neöri röö eftir sigur Njarðvfkinga á
Grindavík f Grindavfk 8. apríl 1995, eftir besta tímabil liösins f
sögunni ef sigurhlutfall er mælikvaröinn. Njarðvfk vann 43 af 48
leikjum vetrarins (89,6%), þar af 31 af 32 af f deildarkeppninni.
■ ■
Teitur sést hér meö Ronday Robinson eftir sigur Njarövíkinga á Grindavík f
oddaleik liöanna sem fram fór í Grindavfk 16. aprfl 1994. Þessir tveir voru
frábærir í lokaúrslitunum, Teitur geröi 17,4 stig að meöaltali og Ronday var
meö 22,5 stig í leik. Njarövík lenti 1-2 undir en komu sterk til baka.
Fjölskyldan var aberandi þegar fimmti titillinn vannst. Teitur sést hér M
með bróður sínum, Gunnari (að ofan), eftir aö íslandsmeistarabikarinn ’
var í höfn eftir sigur á Keflavfk í oddaleik sem fram fór í Njarðvík 11. apríl
1991. Saman gerðu þeir bræður 42 stig í oddaleiknum (Gunnar 27). Að
neðan sést Teitur með konu sinni, Helgu Lísu Einarsdóttur eftir úrslitaleik-
inn og þar er greinileg mikil aödáun á nýkrýndum Islandsmeistara.
DV-Sport skoðar í
opnunni í dag
glæsilegan feril
# Teits Örlygssonar
í máli og mynd-
um. Teitur varð
íslandsmeistari í
tíunda sinn í síð-
ustu viku og lét hafa
eftir sér að nú væri
hann hættur.
-ÓÓJ
Teitur og Fríðrík Ragnarsson lyfta hér íslandsmeistarafán-
anum 1998 eftir þriðja sigurleikinn gegn KR á Seltjarnar-
nesi 19. aprfl 1998. Teitur kom aftur til Njarðvfkur um haust-
ið, eftir atvinumennsku, og fagnaði titli á fyrsta ári.
i
+