Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2002, Qupperneq 2
18
MBÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 JjV
Bíll ársins 2002,Toyota Corolla, þótti hafa bestu aksturseiginleikana í sínum flokki.
Toyota Corolla valinn bíll árs-
ins 2002 eftir harða keppni
Nú er lokið vali á bO ársins fyrir
árið 2002 og að þessu sinni hlaut þann
titil ný kynslóð Toyota Corolla en
hann fékk flest stig yfir heildina. Fyr-
irkomulagið á valinu í ár var þannig
að keppt var í þremur flokkum og var
Corollan með flest stig í heildina og
hlaut þar af leiðandi titilinn. Flokkam-
ir skiptust þannig að Toyota Corolla
vann í flokki smábíla og minni milli-
stærðarbíla, Ford Mondeo flokk fjöl-
skyldubíla og lúxusbíla og Suzuki
Grand Vitara XL-7 flokk jeppa og jepp-
linga. Dómnefnd var skipuð þeim Stef-
áni Ásgrímssyni fyrir hönd FÍB-blaðs-
ins Ökuþór, ísleifi Karlssyni úr bfla-
þættinum Mótor á Skjá einum og und-
irrituðum, Njáli Gunnlaugssyni, um-
sjónarmanni bflablaðs DV.
Mikil yfirferð
Þeir bflar sem komust í forval frá sið-
ustu keppni voru þeir bílar sem komu
nýir á því tímabili sem leið fram að
keppni þessa árs. Ekki var nóg að bfll-
inn hefði fengið það sem kallað er and-
litslyfting eða nýja vél heldur urðu þeir
að vera af annarri kynslóð en forveri
þeirra eða einfaldlega nýtt merki á
markaði. Dómnefhd fékk senda ítarlega
lista frá umboðum bflanna sem meðal
annars innihéldu upplýsingar um inn-
anrými, vélarafköst, öryggisbúnað,
mengun, verð og svo má lengi telja. Efl-
ir að hafa farið yfir þessar upplýsingar
valdi dómnefnd þrjá bfla til úrslita í
hverjum flokki. Þeir bflar voru svo
skoðaðir ítarlega og prófaðir í einu til
að fá samanburð á bflunum við sömu
aðstæður.
Sýndi mestu framfarirnar
í flokki smábíla og minni milli-
stærðarbila og titilinn bill ársins 2002,
vann eins og áður segir Toyota Corolla
en hann þótti skara fram úr fyrir
breidd í innanrými, aksturseiginleika
og frágang. Hann var líka með
ódýrasta framtjónið enda er Corolla
með nýja hönnun á bílnum að framan
sem lágmarkar skemmdir við árekstur
á lítflli ferð. Einnig þótti hann hafa
sýnt mestu framfarimar frá fyrri kyn-
slóð. Baráttan var samt hörð í þessum
flokki sem öðrum og Peugeot 307 og
Honda Civic voru ekki langt undan.
Peugeot 307 var ódýrastur með mesta
staðalbúnað og öryggisbúnað. Honda
Civic var með minnstu eyðsluna og
mesta hjólhafið og þar af leiðandi
mesta fótaplássið í farþegasætum.
Hann þótti einnig vera sá bíll að mati
undirritaðs sem þægilegast var að
ganga um. í bremsuprófún voru bfl-
amir alli mjög áþekkir og varla hægt
að tala um mun á þeim þar.
Toyota Corolla 253 stig
Peugeot 307 238 stig
Honda Civic 234 stig
Sigraði með aðeins einu stigi
Sigurvegarinn í flokki ijölskyldubila
og lúxusbfla var Ford Mondeo sem
sigraði Renault Laguna n með aðeins
einu stigi. Stutt á eftir kom Subam
Impreza WRX og var minnstur munur-
inn á bflunum í þessum flokki, jafiivel
þótt þeir væra ólíkastir miðað við hina
flokkana. Ford Mondeo var stærstur á
flesta kanta og hafði þar af leiðandi
mesta hjólhafið, fótaplássið og farang-
ursrýmið. Hann hafði ásamt
Imprezunni bestu aksturseiginleikana
og var þar að auki með ríkulegan stað-
albúnað og ódýrasta framtjónið.
Renault Laguna kom á óvart í þessum
samanburði þar sem hann var ódýrast-
ur og aðeins með 1,6 lítra vél á móti
tveggja lítra í hinum bflunum. Hann
var því með minnstu eyðsluna og þótti
vera með þægilegustu aflursætin
ásamt Mondeo. Hann fékk þar að auki
sérstakan plús fyrir öryggi og bestu
bremsumar enda er þetta eini bfllinn
sem fengið hefúr fimm sfjömur í
árekstrarprófi EuroNCAP. Subam
Impreza WRX var nokkuð ólíkur hin-
um enda ekki hinn dæmigerði fjöl-
skyldubfll. Hann ætti í raun að vera í
minnsta flokknum en þar sem verðið á
honum var yfir þremur milljónum fór
harrn upp um flokk. Hann hafði að
sjálfsögðu mesta aflið og áberandi góða
aksturseiginleika.
Ford Mondeo 227 stig
Renault Laguna 226 stig
Subam Impreza 223 stig
Ólíkir bílar í flokki aldrifsbíla
Keppnin í flokki jeppa og jepplinga
v£ir einnig hörð og spennandi þótt bíl-
amir væra í sjálfu sér nokkuð ólikir.
Suzuki XL-7 er sjö manna jeppi með
bensínvél en Terracan er fimm manna
með dísilvél. Nissan X-Trail fellur svo
í flokk jepplinga. Suzuki XL-7 vann
þennan flokk fyrir atriði eins og hjól-
haf og fótapláss, staðalbúnað miðað við
verð og þar að auki var hann með afl-
mestu vélina. Nissan X-Trail kom
næstur og þrátt fyrir að vera eini jepp-
lingurinn í hópnum hafði hann mestu
breidd í innanrými. Einnig þótti hann
vera með bestu bremsumar og mesta
öryggisbúnaðinn. Hyundai Terracan
var svo eini dísilbíllinn í hópnum. Sem
stærsti billinn var hann með mesta
farangursrýmið til að mynda en einnig
var hann með ódýrasta ffamtjónið.
Suzuki XL-7 226 stig
Nissan X-Trafl 221 stig
Hyundai Terracan 211 stig
Höföu allir eitthvaö til síns máls
Valið mun nú aftur fara fram að ári
og eiga þá allir nýir bflar þátttökurétt,
frá og með þeim tima sem forvalið fór
af stað. Ástæðan fyrir því hversu seint
valið fer fram hér á landi miðað við
annars staðar í Evrópu er einfaldlega
sú að bflamir koma seinna hingað til
lands og má i því dæmi nefha að
Mercedes-Benz E-lína komst ekki tím-
anlega í valið eins og stóð til. Gfldi
keppni eins og þessarar er fyrst og
ffernst fyrir kaupendur þessara bíla
sem fá þá mikla og ítarlega skoðun á
þeim. Keppnin var sem fyrr segir hörð
og spennandi i ár og ekki mikill mun-
ur á stigagjöf þeirra bfla sem prófaðir
vom. Má segja að sumir þættir hafi
verið veigameiri i endanlegu vali en
allir höfðu þeir eitthvað til síns máls,
enda sigur í sjálfú sér að komast í úr-
slit
Hér eru stærri fjölskyldubílarnir í pásu uppi í Bláfjöllum þar sem þeir voru
meðal annars prófaðir, bæði á malbiki og möl.
Ford Mondeo vann í flokki stærri fjölskyldubíla og lúxusbíla.
••
Þarabakka3 109Reykjavík
Aukin ökuréttindi
Hægt er að hefja nám alla miðvikudaga (áfangakerfi).
Kennt á leigu-, vöru- og hópbiffeið, einnig eftirvagn.
Endurbætt kennsluaðstaða og sérhæfðir kennarar.
Námsgögn verða eign nemenda.
Góðir kennslubflar. Greiðsluskflmálar við allra hæfi.
Flest verkalýðsfélög styrkja félaga sína til náms til aukinna ökuréttinda!
Hringið eða komið og fáið nánari upplýsingar.
E-mail mjodd@bilprof.is
í flokki smábíla og smærri fjölskyldubíla var keppnin mest spennandi enda bflarnir mjög líkir. Hér eru frá vinstri, Honda
Civic.Toyota Corolla og Peugeot 307.
-NG
Suzuki XL-7 vann titilinn í flokki aldrifsbfla og þá ekki síst fyrir aflmikla V6 vél-
ina.
Hér standa þeir hlið við hlið uppi í hlíðum Úlfarsfellsins þar sem þeir voru
prófaðir til hlítar.