Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2002, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2002, Qupperneq 14
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 DV r 30 '.i •4-' Fiat á íslandi boðar sparleið á nýjum Stilo og Multipla Fiat hefur frestað því að hanna og markaðssetja fjölnotabíl á grunni Fiat Stilo í stíl viö Opel Zafira, Renault Scénic og Citroén Xsara Picasso. Því hefur líka verið frestað um sex mánuði að koma með fjöl- notabíl á grunni Punto sem til stóð að markaðssetja síðla næsta árs. Þess í stað leggur Fiat drög að nýrri kynslóð Multipla, sem fram undir þetta hafði ekki verið ákveðið að endumýja, og er ný Multipla væntanleg 2005. Stilo Station kemur á markaðinn í haust, og siðan verð- ur einnig lögð áhersla á að koma með lítinn jeppling þegar árið 2004. Slíkan bil hefur vantað í framboð ítalska bílarisans hingað til. Fiat hefur staðið illa fjárhagslega um skeið og er þess skemmst að minnast að forstjórinn Roberto Testore mátti taka pokann sinn í desember síðastliðnum. - í framhjá- hlaupi má geta þess að hann hefur nú verið gerður að aðalförstjóra Finmeccanica Group, iðnfyrirtæki á vegum ítalska ríkisins. - General Motors Europe (Opel) keypti stóran hlut í Fiat fyrir fáum misserum í þvi augnamiði að styrkja stöðu beggja og ef til vill má líta á ofan- greinda ákvörðun í ljósi þess. Fiat hefur mjög sterka stöðu á meginlandsmarkaði. Það er ekki sist Fiat Punto sem á mörgum markaðssvæðum er söluhæsti bíll- inn í sínum stærðarflokki. Þá fer salan á nýja bílnum Stilo mjög vel af stað og Multipla er stöðugt að styrkjast. Stilo verður væntanlega kynntur hér á landi laugardaginn Fiat Multipla hefur reynst vinsælli en gert var ráð fyrir og nú er ný Multipla á prjónunum. Árgerð 2002 hefur fengið ofurlitla andlitslyftingu. 27. apríl. Fyrirtækið gerði sér ljóst þegar bíllinn var upprunalega markaðssettur að hann myndi ekki verða fjöldasölubíll, t.a.m líkt og raunin hefur orðið með Opel Zafira, og markið var sett á 40 þúsund bOa sölu á ári. í reynd hefur hann farið fram úr þeirri áætlun og er raunar stöðugt að sækja sig, þykir einstak- lega hagkvæmur og vel gerður biU. Fiat í sparleiö á íslandi Lítið hefur selst af Fiat á íslandi undanfarin misseri. Að sögn Páls Gíslasonar hjá ístraktor í Garðabæ er meðal annars því um að kenna að ekki hefur farið vel saman hjá ekki stærra fyrirtæki að vera með véla- deild, stóra vinnubíla og almenna heimilisbíla. Istraktor hefur nú selt véladeildina og hyggst helga sig sölu Fiat og Alfa. Liður í því er sparleið, ný bílakaupaleið sem á að Fiat Stilo er afar vel búinn bíli í milli- stærðarflokki, m.a. með sex líknarbelgi sem staðalbúnað og annan öryggisbúnað eftir því. Páll Gíslason, framkvæmdastjóri ístraktors: „Með sparleið geta kaup- endur sparað hundruð þúsunda." spara bílakaupendum hunduð þús- unda á hverjum bíl. Sparleið felst í því að menn panta sína bUa fyrir- fram og geta eftir ástæðum þurft að bíða þeirra í 2-12 vikur. „Ég tel að við þurfum sjaldan að biða nema kannski 4-5 vikur frá því að pöntun er staðfest,“ sagði Páll í samtali við DV-bUa. Þegar sparleið er annars vegar eru notaðir bUar ekki teknir upp í nýja. Með því að selja notaða bílinn sjálfir fá bUeigendur gjaman hærra verð en með að leggja þá upp í nýja hjá umboðunum. Þegar það leggst við lægra verð geta menn í mörgum tUvikum verið með mun meira fe tU þess að leggja í nýjan bU. -SHH ’í 323! Mazda 323 Meðal nýjunga má nefna nýtt útlit að framan, nýjar vélar (1,6 100 hö. og 2,0 131 hö.), nýjar glæsilegar útgáfur; Exclusive og Sportive, með endurbættu hemlakerfi, ABS, EBD og diskahemlum að aftan. Staðalbúnaður er ríkulegur, t.d. útvarp meö geislaspilara, þokuljós að framan og aftan, útihitamælir, spólvörn, upphituð framsæti o.fl. Enginn viðhaldskostnaður í tvö ár! Allir nýir Mazda bílar eru i þriggja ára ábyrgð eða 100.000 km og þeim fylgir að auki 8 ára ryðvarnarábyrgð. Fyrsta skoðun eftir 15.000 km eða eitt ár er frí, þ.m.t. olía og olíusía þannig að miðað við meðalakstur er engjnn viðhalds- kostnaöur fyrstu tvö árin. Komdu, skoðaðu og reynsluaktu þessum frábæra bíl. Opið á laugardögum frá kl. 12.00 til 16.00. www.raesir.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.