Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Blaðsíða 2
16
MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2002
Sport
r
Bland í
i
Eióur Smári Guðjohnsen lék allan
leikinn með Chelsea og komst í nokk-
ur góð færi án þess þó að ná að skora.
Hann krækti sér siöan í gult spjald
undir lok leiksins.
Félagi hans í framlínu Chelsea,
Jimmy Floyd Hasselbaink, náði sér
hins vegar engan veginn á strik en
hann hefur átt við meiðsli að striða
upp á siðkastið. Hasselbaink var
skipt út af fyrir Gianfranco
Zola rétt áöur en Arsenal skoraði
fyrra mark sitt.
Sem dœmi um slaka frammistöðu
Hasselbaink má nefna að hann átti
ekki skot á mark Arsenal fyrr en
þtjár mínútur voru búnar af seinni
hálfleik.
Ein hjátrú hefur fylgt úrslitaleik
ensku bikarkeppninnar í fjölda ára.
Það er að liðið sem lendir í syöra
búningsherberginu tapi úrslitaleikn-
um. Þetta gekk eftir í þessum leik ní-
unda áriö í röð þvi Chelsea lenti í
syðra herberginu í leiknum á laugar-
dag.
Ray Parlour viröist ætla að geyma
mörkin sín þangað til í bikarkeppn-
inni. Mark hans var einungis annað
markið sem hann gerir á þessu tima-
bili. Hitt gerði hann i 5-2 sigurleik
Arsenal á Gillingham i þessari sömu
keppni.
Freddie Ijungberg hefur hins vegar
verið heldur iðnari við kolann. Mark
hans var það sjöunda í síðustu sex
leikjum fyrir Arsenal.
Stuóningsmenn Arsenal anda senni-
lega léttar eftir þennan leik þvi marg-
ir þeirra muna eftir úrslitaleiknum í
fynra. Þá komust þeir yfir gegn Liver-
pool sem svaraði hins vegar meö
tveimur mörkum og vann bikarinn.
Fyrsta gula spjaldió í leiknum kom
eftir aöeins 90 sekúndur. Það var
Graeme LeSaux sem fékk það fyrir
að fara með sólann í höfuð Lauren.
Arsenal vann síðasta enska bikarinn
fyrir fjórum árum, 1998. Þá unnu þeir
einnig enska meistaratitilinn og þeim
nægir jafntefli gegn Manchester
United á þriðjudag til að endurtaka
það afrek.
Þetta var ifyrsta sinn sem þessi tvö
lið mættust í bikarúrslitaleik. Reynd-
ar eru liðin 20 ár síðan tvö lið fi*á
London mættust síðast í úrslitaleik
þessarar keppni. Þá vann Tottenham
QPR 1-0 í síðari leik liðanna en sá
fyrri hafði endað með jafhtefli.
Chelsea var að spila sinn þriðja bik-
arúrslitaleik á sex árum og hafði
unnið bikarinn í tvö fyrri skiptin. I
fyrra skiptið var Ruud Gullit við
stjómvölinn hjá Chelsea og í það
seinna Gianluca ViallL Báðir þessir
stjórar vom síðan reknir frá Chelsea.
Ólíkiegt þykir að sömu örlög bíði
Claudio Ranieri, enda er hann nýbú-
inn að skrifa undir fimm ára samn-
ing við félagið.
Menn eru þegar famir að hugsa um
leik Man. Utd og Arsenal i deildinni á
fimmtudag. Juan Sebastian Veron
hefur t.d. varað við því að United viiji
bæta fyrir tapið gegn Leverkusen í
meistaradeildinni og mæti hungrað í
sigur. Hann telur einnig að Arsenal
muni kikna undan pressunni sem sé á
því núna þó að þeir hafi fimm stiga
forskot þegar tvær umferðir em eftir.
Real Madrid skýrði frá þvi um helg-
ina að Patrik Vieira myndi leika
með liðinu á næstu leiktíð. Spænskt
dagblað greindi frá því að Real myndi
borga Arsenal 56 mUljónir punda, eða
um 7,5 miHjaröa islenskra króna, sem
yrði þá metupphæð fyrir leikmann.
Framtió Fabien Barthez hjá
Manchester United er nú í lausu lofti
samkvæmt enskum fjölmiðlum. Alex
Ferguson er sagöur vera að leita að
markverði í hans stað og hefúr Mart
Poom, sem leikur með Derby County,
verið nefndur í því sambandi. Þá hef-
ur einnig nafn tyrkneska landsliðs-
markvarðarins Rustu Recber verið
nefnt en hann leikur með Fener-
bache.
David Beckham, fyrirliði enska
landsliðsins, sem er þessa dagana að
jafha sig eftir ristarbrot, er nú farinn
að taka léttar æfingar. Beckham er á
góðum batavegi og þó aö hann leiki
ekki með Man. Utd það sem eftir er
timabilsins er nú orðið nánast öruggt
að hann verður orðinn leikfær þegar
heimsmeistarakeppnin hefst.
Tottenham er á höttunum eflir sókn-
armanninum Shota Arveladze sem
leikur með Glasgow Rangers. Þetta er
enn einn sóknarmaðurinn sem bendl-
aður er við liðið og á að leysa af
Sergei Rebrov sem er á leið frá félag-
inu. -HI
- Arsenal sigraöi Chelsea, 2-0, og stefnir að tvöföldum sigri í annað sinn á Qórum árum
Arsenal bar sigurorð af Chelsea,
2-0, í frábærum bikarúrslitaleik á
Þúsaldarvellinum í Cardiff á
laugardag. Þetta var í áttunda sinn
sem Arsenal vann bikarinn og á
liðið nú möguleika á að vinna
tvöfalt i England í annað sinn á
fjórum árum.
Chelsea byrjaði betur og Graeme
LeSaux og Frank Lampard fengu
David Seaman til að taka á honum
stóra sínum á fyrstu 20 mínútum
leiksins. Eftir það hresstust
leikmenn Arsenal og fengu tvö ágæt
færi til að skora en skallar frá
Dennis Bergkamp og Lauren hittu
ekki rammann.
Fyrri hálfleikurinn var annars
hin besta skemmtun og sá síðari var
ekki síðri. Thierry Henry fékk
dauðafæri tveimur mínútum eftir
hlé en Carlo Cudiccini varði frá
honum af stuttu færi. Eftir þetta
sótti Chelsea meira og Eiður Smári
Guðjohnsen var nálægt því að skora
með skoti utan teigs en David
Seaman varöi glæsilega. Þetta
gerðist á 60. minútu og tiu mínútum
síðar náði Arsenal forystunni. Ray
Parlour lék þá upp völlinn og skaut
svo glæsilegu skoti efst í
markhomið, óverjandi fyrir Carlo
Cudiccini.
Eftir þetta var aldrei spuming
hvemig leikurinn færi. Cudiccini
varði vel frá Henry en kom síðan
ekki vömum við á 80. mínútu þegar
Freddie Ljungberg fékk sendingu
frá Edu, prjónaði sig í gegnum
vömina og skoraði með öðra
þrumuskoti fram hjá Cudiccini. Tvö
frábær mörk tryggðu því Arsenal
sigurinn í frábærum leik.
„Var aldrei öruggur"
Freddie Ljungberg var í sjöunda
himni eftir leikinn. „Við lékum vel,
en ég var samt aldrei öraggur um
sigur. Þeir era með mjög sterkt lið.
Við berjumst hver fyrir annan og
okkur finnst frábært að spila
fótbolta. Við töpuðum síðasta
bikarúrslitaleik en við áttum skilið
að vinna í dag.“
Hinn markaskorarinn, Ray
Pralour, var ekki síður ánægður.
„Það vora virkileg vonbrigði að
tapa úrslitaleiknum í fyrra og það
sýnir mikinn baráttuvilja bjá okkur
að koma aftur og vinna nú í ár.
Þetta var frábær frammistaða hjá
okkur undir lokin. Þetta átti aUtaf
eftir að vera jafii leikur enda um
grannaslag að ræða. Ég skora ekki
alltaf svona mikilvæg mörk en þetta
var frábært og strákamir tóku
síðan við.“
Graeme LeSaux, fyrirliði Chelsea,
var ósáttur við úrslit leikins. „Það
er erfitt að taka þessu þvi við
virtumst hafa stjóm á leiknum inni
á vellinum. Þeir fengu eina góða
sókn og úr henni skoraði Ray
Parlour frábært mark. Annað mark
þeirra var svo rothöggið fyrir
okkur. Við reyndum okkar besta en
þvi miður var þaö ekki nóg. Við
héldum að við gætum unnið.
Boltinn gekk vel á milli okkar, þetta
var bara einn af þessum dögum þar
sem hlutimir gengu ekki upp.“ HI
Rangers bikarmeist-
ari í hörkuleik
Glasgow Rangers varð nokkuð
óvænt bikarmeistari í Skotlandi
eftir 3-2 sigur á Celtic í dramatísk-
um leik á Hampden Park í Glasgow
á laugardag. Þar með vann Rangers
báðar bikarkeppnimar í Skotlandi.
Leikurinn var hin besta skemmtun
og þótti bæta upp þá ládeyðu sem
einkennt hefur skosku deildina í
vetur en þar hefur Celtic haft
mikla yfirburði.
Rangers byijaði betur og átti tvö
hættuleg færi en síðan kom Celtic
betur inn í leikinn og á 19. minútu
skoraði svo John Harston fyrsta
mark leiksins fyrir Celtic með
skalla eftir að Bobo Balde nikkaði
homspymu til hans. En tveimur
minútum síðar jafnaði Peter
Lövenkrands með stórglæsilegu
skoti. Þrátt fyrir nokkur ágæt færi
vora ekki skorað fleiri mörk í fyrri
hálfleik.
En strax eftir fjögurra minútna
leik í þeim síðari komst Celtic yfir
aftur og þar var Bobo Balde að
verki með skalla eftir aukaspymu
frá Neil Lennon. Barry Ferguson
jafnaði svo um miöjan hálfleikinn
með marki beint úr aukaspymu.
Rangers var heldur nær því að
skora það sem eftir liföi leiks og
fengu nokkur prýðileg færi. Það
stefndi þó allt í framlengingu þegar
Lövenkrands skoraði sigurmark
Rangers með skalla eftir fyrirgjöf
frá Neil McCann.
Alex McLeish hefur náð tveimur
titlum til Rangers á sínu fyrsta ári
með liðið og hann var kátur eftir
leikinn. „Ég er jafnþreyttur og leik-
mennimir, ég sparkaði í hvem ein-
asta bolta með þeim. Mér fannst
allir leikmennimir spila frábæra
knattspymu í þessum leik. Okkur
hefur farið gríðarlega fram síðustu
sex mánuðina. Ég hugleiddi að tala
Lövenkrands út af þar sem mér
fannst hann detta dálítið út úr
■leiknum í seinni hálfleik. En hann
er alltaf ógnandi og sannaði það í
dag.“ -HI
Barry Ferguson, fyrirliöi Glasgow Rangers, ræður sér varia fyrir kæti.