Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Síða 3
MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2002
17
Sport
UNGMENNAféUGJÐ
l\\ GARÐABÆ m
UNGMENN'
STJAI
Frábær vetur
Stelpurnar i 4. flokki kvenna hjá
Stjömunni hafa heldur betur gert
það gott í vetur en þær urðu á dög-
unum íslandsmeistarar. Þær urðu
einnig fyrr í vetur bikarmeistarar
og hafa unnið allt sem hægt er aö
vinna. Stjaman hefur haft nokkra
yfirburði í vetur og ekki tapað leik
á þessu tímabili.
Þjálfari liðsins er Aðalsteinn Eyj-
ólfsson og honum til aðstoðar er
Karl Erlingsson. -Ben
íslandsmeistarar Stjörnunnar í 4.
flokki kvenna. Efri röö, frá vinstri:
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjáifari,
Kristín Lóa Viðarsdóttir, Helga Dan-
íelsdóttir, Erna Haraldsdóttir, Harpa
Sif Eyjólfsdóttir, Thelma Kristín
Snorradóttir, Guðrún Kjartansdóttir,
Karl Erlingsson, aðstoðarþjálfari.
Neðri röð frá vinstri: Vigdís Garð-
arsdóttir, Helga Sigurðardóttir, Arna
Gunnarsdóttir, Elsa Rut Óðinsdótt-
ir, Rakel Dögg Bragadóttir, Lilja
Lind Pálsdóttir, Björk Gunnarsdótt-
ir, Árný Nanna Snorradóttir, Anna
Hjörleifsdóttir.
Fjölnir og Njarðvík mættust í
skemmtilegum úrslitaleik í 11.
flokki karla þar sem sóknarleikur
var í fyrirrúmi. Hittni beggja liða
var mjög góð og ekki spiilti spenn-
andi lokasprettur þar sem úrslitin
réðust í blálokin.
Það var Magnús Pálsson sem var
hetja Fjölnis eins og svo oft áður en
hann skoraði sigurkörfuna rétt fyr-
ir leikslok og kom Fjölni einu stigi
yfir, 95-94, en boltinn skoppaði
nokkram sinnum á hringnum áður
en hann fór ofan í körfuna.
Magnús nálagt þrefaldri tvennu
Bæði lið léku vel í leiknum og
hefði sigurinn getað lent hvorum
megin sem var. Magnús fór fyrir
sínu liði og vár með 29 stig og 17 frá-
köst. Hann klikkaði aðeins úr einu
skoti í leiknum sem er frábær nýt-
ing. Þá vantaði hann bara eina
stoðsendingu til að ná þrefaldri
tvennu en hann var með níu
stoðsendingar. Þá átti Guðmundur
Sæmundsson góðan leik og nýtti sín
skot. Viðar Jónsson og Tryggvi
Pálsson skiluðu sínu og era mikil-
vægir hlekkir í liðinu.
Þar með hafa strákamir í Fjölni
unnið tvöfalt í vetur en þeir unnu
Snæfell í bikarúrslitum fýrr í vetur
þar sem Magnús fór á kostiun.
Þriðja árið í röð
Njarðvíkingar máttu sitja eftir
með sárt ennið en þeir voru ansi ná-
lægt því að vinna þetta árið en þeir
hafa núna lent í öðru sæti síðustu
þrjú ár.
Hjá Njarðvík voru það strákamir
sem eru einu ári yngri sem fóru fyr-
ir liðinu. Jóhann Ólafsson átti mjög
góðan leik og virðist eins og hann
geti ekki átt slæman leik. Hann
skoraði 32 stig þrátt fyrir að vera
spila við eldri stráka. Einnig átti
Kristján Sigurösson góðan leik og
gerði sex 3ja stiga körfur, þar af
flmm í fyrri háifleik. Nýtingin var
góð en hann tók bara níu skot fyrir
utan 3ja stiga línuna.
-Ben
íslandsmeistarar Fjölnis í 11. flokki karla en þeir unnu Njarðvík í úrslitaleik þar sem
úrslitin réðust ekki fyrir en í blálokin. Efri röð frá vinstri: Skúli Auðunn,
aðstoðarþjálfari, Viðar Jónsson, Gunnar Marís Straumland Ólafsson, Árni Þór
Jónsson, Þorsteinn Sverrisson, Thomas Johansen, þjálfari. Neöri röð frá vinstri:
Bjarki Þorsteinsson, Guðmundur Sæmundsson, Tryggvi Pálsson, Magnús Pálsson,
Brynjar Þór Kristófersson og Daníel Magnússon. Á efri myndinni eru bræðurnir
Magnús Pálsson (vinstri) og Tryggvi Pálsson (hægri) eru báöir á fullu í körfunni
með Fjölni. DV-myndir Ben
Í>- y,
- •
'JL' w® 7j£ l W W W "<sb
STJARNAN STJARNAN
Fiölmr Islandsmeistari í 11. flokki karla:
Magnus
dyrmætur
skoraði sigurkörfuna í úrslitaleiknum
Maöur leiksins:
Magnús Pálsson, Fjölni
11. flokkur karla
Njarövík—Fjölnir 94-95
Stig Njarövikur: Jóhann Ólafsson
32, Helgi Guðbjartsson 19, Kristján
Sigurðsson 18, Ólafur Geir Jónsson
15, Jónas Ingason 7, Sigurður Ing-
ólfsson 3.
Stig Fjölnis: Magnús Pálsson 29,
Guðmundur Sæmundsson 25, Viðar
Jónsson 12, Tryggvi Pálsson 10,
Brynjar Kristófersson 8, Bjarki Þor-
steinsson 7, Daníel Magnússon 4.
Fráköst: Njarðvík 32 (Jóhann 10,
Jónas 9, Helgi 6, Kristján 4, Ólafur
3), Fjölnir 33 (Magnús 17, Tryggvi 6,
Guðmundur 6, Bjarki 2, Brynjar 2).
Stoösendingar: Njarðvik 21
(Jóhann 7, Kristján 6, Jónas 4,
Ölafur 2, Helgi 2), Fjölnir 26
(Magnús 9, Bjarki 9, Tryggvi 4,
Brynjar 2, Viðar 1, Guðmundur 1).
Stolnir boltar: Njarðvík 12
(Jóhann 3, Helgi 3, Ólafur 3,
Kristján 2, Jónas 1), Fjölnir 13
(Bjarki 4, Magnús 3, Tryggvi 2,
Guðmundur 2, Brynjar 1, Daníel 1).
Tapaöir boltar: Njarðvík 18,
Fjölnir 20.
3ja stiga: Njarðvík 23/8, Bjölnir 6/0.
Víti: Njarðvik 21/16, Fjölnir. 16/13.
Þegar mig langar í eitthvað
Magnað öðruv
<mS,
McOoruMd í*
aa
|McDonaw
m
austursiiueti ae • krihclan • sudurlandsbraut ss