Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2002
23
DV
Sport
Boston Celtics og San Antonio
Spurs voru síðustu liðin til að
tryggja sig áfram í úrslitakeppninni í
NBA. Boston sigraði Philadelphia,
120-87, og San Antonio Spurs sigraöi
Seattle, 101-78. Boston mætir Detroit
í undanúrslitum austurstrandar og
San Antonio mætir núverandi meist-
urum, LA Lakers, í undanúrslitum
vesturstrandar.
Sacramento Kings og Dallas Ma-
vericks riðu á vaðið í fyrsta leik lið-
anna í undanúrslitum vesturstrand-
arinnar í NBA. Sacramento sigraði
örugglega, 108-91. Peja Stojakovic
gerði 26 stig fyrir Sacramento en hjá
Dallas var Dirk Nowitzki stigahæst-
ur með stig.
Lyon varó um helgina franskur
meistari i knattspymu í fyrsta sinn í
52 ára sögu félagsins. í lokaumferð-
inni sigraði Lyon helstu keppinauta
sína í Lens, 3-1, en Lyon hlaut alls 66
stig og Lens 64 stig. Metz og Lorient
féllu í 2. deild. Sæti þeirra taka AC
Ajaccio, Le Havre, Strassborg og
Nice en liðum i 1. deild verður fjölg-
að í 20.
Tyrkir luku einnig sínu keppnis-
tímabili um helgina og fagnaöi
Galatasaray meistaratitlinum. Liðið
vann stórsigur, 5-0, á Yozgatspor
sem var fyrir löngu fallið í 2. deild.
Fenerbache lenti í öðru sæti og var
þremur stigum á eftir meisturunum.
Ragnar Óskarsson skoraði sjö mörk
fyrir Dunkerque sem gerði jafntefli,
25-25, viö Livry-Gargan í 1. deild
franska handknattleiksins um helg-
ina. Gunnar Berg Viktorsson komst
ekki á blað hjá Paris St Germain
þegar liðið tapaði fyrir Selestat,
29-24. Montpellier hefur 69 stig í
efsta sætinu, Chambery 64 stig,
Dunkerque 62 stig, Cretei 56 stig og
PSG 55 stig.
Guöjón Valur Sigurósson skoraði
fjögur mörk fyrir Essen og Patrekur
Jóhannesson eitt þegar liðið sigraði
Magdeburg, 32-28, í þýska handbolt-
anum í gær. Ólafur Stefánsson skor-
aði átta mörk fyrir Magdeburg, þar af
fimm úr vítum.
Þá skoraði Sigurður Bjarnason
fimm mörk fyrir Wetzlar sem sigraði
Minden, 20-25. Gústaf Bjarnason
gerði eitt mark fyrir Minden. Þegar
fjórar umferðir eru eftir er Nordhom
efst með 47 stig en Kiel og Lemgo
koma í sætum með 46 stig. Essen er
síðan í fjórða sætinu með 42 stig.
Ólafur Gottskálksson, markvörður
enska liðsins Brentford, brá sér í frí
til íslands um helgina. Hann æfði
einu sinni með gömlu félögum sinum
í Keflavik. Hann hélt af landi brott í
morgun og hóf undirbúninginn með
Brentford fyrir úrslitaleikinn gegn
Stoke um sæti í 1. deild á laugardag-
inn kemur.
Á ársþingi Körfuknattleikssam-
bandsins á Sauðárkróki um helgina
var m.a. ákveðið að leikir í úrvals-
deildinni á næsta tímabili verði á
fimmtudögum og fostudögum og
hæfust kl. 19.15 í stað 20 áður. Á þing-
inu var skipuð nefnd til að móta
framtíðarsýn fýrir deUdarkeppnina.
Þá var tiUögu, sem miöar að því að
setja launaþak á erlendu leikmenn-
ina, sett í hendur nefndar sem kemur
saman í haust. Ólafur Rafnsson var
endurkjörinn formaður KKÍ tU næstu
tveggja ára.. -JKS
^ Norðurlandamótið í júdó:
Islendingar
unnu
íslenskir júdómenn létu heldur
betur til sín taka á Norðurlanda-
mótinu sem fram fór í Helsingor í
Danmörku um helgina. Uppskera
mótsins var sérlega glæsileg, fjögur
gullverðlaun, tvö silfur og þrjú
bronsverðlaun. Mikil ánægja er
með þennan árangur og undirstrik-
ar hann um leið þá uppsveiflu í
íþróttinni sem hefur verið að vaxa
fiskur um hrygg á síðustu þremur
árum. Daníel Reynisson, fjölmiðla-
fulltrúi júdósambandsins, sagði í
samtali við DV að allir sterkustu
júdómenn hefðu tekið þátt í mótinu
í Danmörku.
„Þetta var mannmargt mót. Þess-
um árangri er að þakka sterkum
hóp sem hefur liklega aldrei verið
breiöari. Það er úppgangur í júd-
óinu og einnig er áhersla í kvenna-
flokkum að skila sér svo um mun-
4 gull
ar,“ sagði Daníel.
Á mótinu í Danmörku unnu gull-
verðlaun í opna flokki karla þar
sem Vemharður Þorleifsson bar sig-
ur úr býtum eftir úrslitaglímu við
Gísla Jón Magnússon. Bjami Skúla-
son var þriðji í þessum flokki. Gísli
Jón Magnússon sigraöi í +100 kg
flokki og Heimir Haraldsson hreptti
brons. í -100 kg flokki krækti Vem-
harð sér í bronsverðlaun. Bjarni
Skúlason vann sigur I -90 kg flokki.
Bjarni og Vemharð hafa æft
nokkuð í Svíþjóð í vetur og Gísli
Jón í Danmörku og er veran þar
greinilega að bera góðan ávöxt.
Kvennaliðið stóð sig með prýði en
þar vann Anna Soffía Víkingsdóttir
gullverðlaun í opnum flokki og Mar-
grét Bjamadóttir hreppti silfur.
-JKS
Vernharð Þorleifsson gerði góða hluti f Danmörku um helgina sem og allt
íslenska júdófólkið. Vernharð vann ein gullverölaun og eitt brons.
Norska úrvalsdeildin í knattspyrnu:
Marel og Tryggvi
á skotskónum
Guðfinnur
þjálfar
Wasaiterna
Guðfinnur Kristmannsson,
fyrrum landsliðsmaður í hand-
knattleik, hefur verið ráðinn
þjálfari sænska handknatt-
leiksliðsins Wasaitema frá
Gautaborg eftir því sem fram
kemur á vefsíðu félagsins. Guð-
fmnur lék með félaginu i vetur
við góðan orðstír en hann mun
samhliða þjáifuninni leika áfram
með liðinu. Aðstoðarmaöur hans
verður Magnus Lindqvist.
-JKS
Grindavík á eftir
Gesti Gylfasyni
Úrvalsdeildarlið Grindvik-
inga í knattspyrnu er á höttun-
um eftir Gesti Gylfasyni sem
leikur nú með danska liðinu
Hjörring. Að sögn Bjarna Jó-
hannssonar, þjálfara Grindvík-
inga, gæti það komið í ljós í
kvöld hvort Gestur gangi til liðs
við félagið. Bjami útilokar ekki
að félagið styrki sig enn frekar
fyrir baráttuna í sumar. Ey-
steinn Hauksson gerði þriggja
ára samning við Grindavík fyr-
ir helgina.
-JKS
Lyn er komið á toppinn í norsku
úrvalsdeildinni eftir fimmtu umferð-
ina sem lauk í gær. Lyn sigraði Moss
2-0 og lék Jóhann Guðmundsson all-
an leikinn fyrir Lyn. Þá skaust Váler-
enga í annað sæti deildarinnar með
2-0 sigri á Odd Grenland, sem var í
öðm sæti fyrir þessa umferð.
Þungu fargi er sennilega létt af
Teiti Þórðarsyni eftir að Brann
landaði sínum fyrsta sigri í gær,
0-1, á Bodö/Glimt sem var á toppn-
um fyrir þessa umferð.
Tryggvi Guðmundsson og Marel
Jóhann Baldvinsson skoruöu sitt
markið hvort fyrir Stabæk þegar
liðið burstaði Sogndal 4-0. Marel
skoraði sitt mark tveimur mínútum
eftir að hann kom inn á sem vara-
maður.
Vandræði Rosenborgar halda
hins vegar áfram og nú tapaði liðið
2-1 fyrir Bryne. Ámi Gautur Ara-
son var í marki Rosenborg en verð-
ur ekki sakaður um mörkin. Bryne
komst í 2-0 og eftir það fékk Rosen-
borg vítaspymu sem markvörður
Bryne varði. Rosenborg náði síðan
að skora í lokin.
Molde og Lilleström gerðu marka-
laust jafntefli. Bjami Þorsteinsson
lék allan leikinn í vöminni hjá
Molde og Andri Sigþórsson var
einnig í byrjunarliðinu en var skipt
út af fyrir Ólaf Stígsson 15 mínútum
fyrir leikslok. Hjá Lilleström lék
Indriði Sigurðsson allan leikinn og
Gylfi Einarsson lék síðustu 20 mín-
útumar. Þá gerðu Start og Viking
1-1 jafntefli. Hannes Þ. Sigurðsson
var í byrjunarliðinu hjá Viking en
náði ekki að fylgja eftir góðu gengi í
síðustu umferð og var á endanum
skipt út af í leikhléi.
Lyn er eins og áður sagði efst með
12 stig, Válerenga hefur 11 stig og
Bodö/Glimt og Odd Grenland hafa
10 stig. Þá koma Stabæk og Molde
með 8 stig og síðan Viking með 7
stig. Á eftir þeim kemur Rosenborg
með sex stig og síðan Lilleström
með fimm stig. Brann er í
næstneðsta sæti með fjögur stig
ásamt Start, Moss og Bryne og Sogn-
dal rekur síðan lestina með tvö stig.
-HI
Wallau vill
fá Einar
Þýska úrvaldsdeildarliðið
Wallau Massenheim í hand-
knattleik hefur boðið Einari
Erni Jónssyni, landsliðsmanni
úr Haukum, þriggja ára samn-
ing. Einar Örn kom til lands-
ins í gær með samningsdrögin
undir hendinni en hann skoð-
aði aðstæður hjá Wallau og
æfði með liðinu.
„Nú er bara að setjast yfir
samninginn
og skoða hann
til hlítar með
konunni. Ég
mun láta þýða
hann fyrir
mig yfir á ís-
lensku en á
þessu stigi
málsins er ég bjartsýnn á að
skrifa undir samninginn í
þessari viku. Tel það reyndar
aðeins formsatriði. Mér leist
mjög vel á allar aðstæður.
Þetta er traustur klúbbur og
það ríkir góður andi í kringum
félagið. Ég hef stefnt að því að
fara út í atvinnumennsku og
það verður gaman að fá tæki-
færi til þess að prófa þetta,“
sagði Einar Örn sem er 25 ára
gamall og vakti framganga
hans á Evrópumótinu í vetur
mikla athygli.
-JKS
V.
kerrupoki
m burðarpoki
Stálkerra
Létt og meöfæríleg
Verð áöur: ^ .
3.500 kr.
Léttur 9 poki með
góöum hólfum og fæst
f fjórum litum I
Verð áður: 12,500 kr. I
Léttur og góður poki
fæst f nokkrum litum
Verð áður: 11.500 kr.
THole in
n n i c \/ c i