Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2002 25 Sport Búið er að blása af stanga- veiðisýninguna sem átti að vera í Perlunni 9. til 12. maí og þykir mörgum það miður. Ekki feng- ust nógu margir til að vera með í henni og verður jafnvel reynt aftur á næsta ári. Stangveiðisýning er eitthvað sem þarf að vera annað hvert ár fyrir veiðimenn á öllum aldri, sem geta ekki beðið eftir að veiðitiminn byiji. Fiskurinn hefur verið að gefa sig i síkjunum við Feiju- kot í Borgarfirði og veiðimenn sem voru þar fyrir skömmu veiddu vel af finum fiski. Stærstu fiskamir voruumþijú pimd. Veiðimenn biðu ekki boð- anna þegar vötnin opnuðu eins og Elliðavatnið. Hundruð veiði- manna renndu fyrir fisk og annar eins hópur mætti til að fylgjast með veiðimönnunum og athuga stöðuna. Hugi Þeyr Gunnarsson tekur viö verBlaunum sínum fyrir laxinn sem hann veiddi í ElliBaánum. Vrfill Oddsson afhenti honum ver&launin, en fyrír aftan stendur SigurBur G. GuBjónsson. Veiðimenn fjölmenntu til veiBa þegar ElliBavatniB var opnaB þann 1. maí. Margir urfiu varír og enn fleiri losnufiu viB fifiringinn enda bifiin löng og veturinn strangur veifiimönnum. Verðlaun Veiðimálastofnunar: Hugi Þeyr fékk 1. verðlaun fyrir hæng úr Elliðaánum - tólf veiðimenn verðlaunaðir fyrir skil á merkjum Til að örva skil á merkjum í rann- sóknarverkefiium og tilraunum Veiðimálastofiiunar hefúr stofiiunin undanfarin ár verið með happdrættí. Þeir sem hafe skilað merkjum úr fiski eiga möguleika á vinningi. Nýverið var dregið úr 851 inn- sendum örmerkjum, slöngumerkjum og mælimerkjum. Vinningamir voru afhentir fyrir skömmu á ársfundi Veiðimálastofiiunar. í ár voru veitt 12 verðlaun, svo sem veiðileyfi og ýmsar veiðigræjur. 1. verðlaun fékk Hugi Þeyr Gimn- arsson, Reykjavík. Vinningurinn er veiðileyfi í Miðfjarðará, Húnaþingi. 1 stöng í 2 daga sumarið 2002. Hugi Þeyr veiddi hæng, 2,2 kg og 61 cm, þann 23. júlí I Elliðaánum. Laxinum var sleppt sem gönguseiði í sleppi- tjöm þar. , 2. verðlaun fékk Eyþór Valdimars- son, Kirkjubæjarklaustri. Vinningur- inn er veiðileyfi í Langadalsá, ísa- fjarðardjúpi, 1 stöng í 3 daga sumarið 2002. Eyþór veiddi mælimerktan sjó- birting í Skaftá. Fiskurinn var merktur í ósi Skaftár, fluttur að ósi Jökulsár á Breiðamerkursandi og sleppt þar 9. ágúst. Fiskurinn hóf göngu sína í Skaftá 23. ágúst og veidd- ist síðan 5. október, eftir rúmlega mánuð í ánni. 3. verðlaun fékk Sturla Örlygs- son, Njarðvík. Vinningurinn var veiðistöng. Sturla veiddi hæng, 22 kg og 58 cm, í Ytri-Rangá. Fiskinum var sleppt sem gönguseiði þar. 4. verðlaun fekk Ásgeir Guðbjarts- son, Hafiiarfirði. Vinningurinn var spinnhjól með miðjubremsu. Ásgeir veiddi hæng, 2,8 kg og 67 cm, í Ytri- Rangá. Fiskinum var sleppt sem gönguseiði þar. 5. verðlaun fékk Frímann Ólafs- son, SeltjamamesL Vinningurinn var spinnhjól með miðjubremsu. Frimann veiddi hæng, 2,5 kg og 63 cm, í Ytri-Rangá. Laxinum var sleppt sem gönguseiði þar. 6. verðlaun fékk Ingvar Þorvalds- son, Reykjavík. Vinningurinn var kaststöng. Ingvar veiddi hæng, 2,4 kg og 64 cm, í Elliðaánum sem sleppt var sem gönguseiði í Elliðaámar vorið 1999. 7. verðlaun fékk Sigurður Gimn- arsson, Garðabæ. Hann fekk fjölnota stöng. Sigurður veiddi hæng, 2,1 kg og 57 cm, í Elliðaánum sem sleppt var sem gönguseiði þar vorið 2000. 8. -10. verðlaun fengu: Eyjólfúr Guðmundsson, Álftanesi, Öm Sigur- hansson, Reykjavík og Þorsteinn Karlsson, Reykjavík Þeir fengu í vinning veiðibelti. Eyjólfur veiddi urriða, 0,9 kg og 42,5 cm, í Veiðivötn- um sem sleppt var í Grænavatn 2000. Öm veiddi hrygnu, 1,7 kg og 56 cm, í Ytri-Rangá sem merkt var sem göngu- seiði í Ytri-Rangá og Þorsteinn veiddi hæng, 3,0 kg og 65 cm, í Miðfjarðará sem var veiddur og merktur í seiða- gildru í Austurá í Miðfírði 12. júlí 2000, þá 55,6 g og 192 cm. 11.-12. verðlaun fengu: Haukur Geir Garðarsson, Garðabæ og Ámi Jónsson Stykkishólmi. Þeir fengu veiðitösku. Haukur Geir veiddi hrygnu, 5,8 kg og 82 cm, í Vesturdalsá. Laxinn var merktur í seiðagildru þar 10. júlí 1999 og var þá 24,4 g og 13,4 cm. Ámi veiddi hæng, 2,6 kg og 65 cm, í Ytri-Rangá sem merktur var sem gönguseiði og sleppt í Ytri-Rangá við Hellu. -G.Bender Veiðin hefði kannski mátt vera betri en veðrið var ekki upp á það allra besta. í Hópinu í Húnavatnssýslu býður Stanga- veiðifélag Reykjavíkur sínum felagsmönnum að veiða frítt. Nokkuð merkileg tilraun hjá þeim hjá Stangaveiðifelaginu. Veiðileyfm er hægt að fá í sölu- skálanum Víðigerði í VíðidaL Ámi Gústafsson og Siguróur Sigurjóns- son leikari eru að hefja gerð tíu sjónvarps- þátta um veiðidellukarla og fjallar fyrsti þátturinn um Jó- hann Sigurðarson leikara. Farið verður í Þjóðleikhúsið og fylgst með hohum í vinnunni og svo er haldið í veiði (hann ásamt veiðifélögum) eitthvað út á land. Þættimir fjalla fyrst og fremst um manneskjumar sem fram i þeim koma. Tilgangurinn er ekki að veiða sem flesta fiska heldur að njóta þess að vera í frii með góðum félögum. Verður fróð- legt að sjá hvemig til tekst enda Sigurður veiðimaður af guðs náð og með ótrúlegan mikinn áhuga á veiði. Minnivallalækur í Landsveit: 24 urriðar á fyrsta degi „Veiöin byxjaði vel hjá okkur, við fengum 24 fiska á fyrsta degi og það er í góðu lagi. Stærstu fiskamir vora um 10 pund,“ sagði Þröstur Ell- iðason við Minni- vallalæk í Land- sveit en lækurinn var opnaður 1. maí eins og Litlaá í Kelduhverfi. „Stærsti fiskur- inn var á milli 9 og 10 pimd og við fengum tvo slíka, en það vora er- lendir veiðimenn héma við veiði- skapinn. Black Ghost gaf okkur best af flugunum en fengsælustu veiðistaðimir vora Húsbreiða og Við- arhólminn," sagði Þröstur enn frem- ur. -G.Bender Öm Sigurhansson sleppir í Húshylnum vænum fiski sem hefur Ifkiega verífi um 9 pund. 24 fiskar veiddust fyrsta daginn sern veifia mátti. Það þykja alltaf tíðindi þegar veiðimenn færa sig á milli veiðibúða eins og „Sogskóngur- inn“ Ólafur Kr. Ólafsson gerði fyrir nokkra síðan. Hann hefur hafið störf í Intersport, en hefúr verið til fjölda ára í Útilífi í Glæsibæ. Þeir hjá Intersport era víst að stækka veiðideildina hjá sér. í Útilífi er veiðimað- urinn og fluguhnýtarinn Öm Hjálmarsson. Nú styttist óðum í að opnað verði fyrir veiði og útivist við Reynisvatn, í nágrenni Reykja- víkur. Þar verða seld veiðÚeyfi og með í kaupunum fylgir svo- kallaður kvóti sem hefúr fimm fiska. Fyrirhugað er að sleppa miklum fjölda af regnbogasil- ungi í vatnið og mun þyngd fisksins verða fjögur pund. Það er töluvert meiri þyngd en und- anfarin ár og þvi munu þeir sem ráða ríkjum við Reynisvatn bjóða upp á mun stærri og sprækari fisk en verið hefur. -G.Bender

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.