Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Qupperneq 4
Sumarið er loksins kornið, jafnvel þó að dagatöl
landsmanna hafi sagt það byrja fyrir heilum mán-
uði. Sumarblíðunni fylgir alltaf ákveðin stemning.
Próftörn námsmanna Ifður undir lok og fólk hópast
saman á Austurvelli til að sýna sig og sjá aðra. Ný-
fcrmdir unglingspiltar gægjast yfir grindverk í von
um að sjá fáklæddar stúlkur baða sig f sólinni og vel
launaðir forstjórar bregða sér f golf með kollegum
sfnum. Húsbændur sýna eldunarhæfileika sína með
þvi' að draga fram gamla grillið og steikja nokkra
hamborgara, börnunum til mikillar ánægju. Á með-
an bregður mamma sér ígöngutúr með vinkonunum
þar sem þær horfa á fáklædda malbikunarkalla
hnykla vöðvana mitti þess sem þeir gramsa í heitu
asfaltinu. Gamla fólkið gengur um bæinn og
hneykslast á fáklæddum ungdómnum áður en það
fer niður að Tjörn til að fleygja nokkrum mygluðum
brauðmolum í fiðurfénaðinn. Já, sumarið er komið
og allir eru sáttir.
Konutfmaritið Vera hlýtur að vera úr fókus að
þessu sinni fyrir hlægileg ummæli um nekt á siðum
Fókuss. í síðasta tölublaði Veru fær Fókusinn mín-
us fyrir að segja lesendum hvað Playboy-stúlkurn-
ar okkar eru að fást við þessa dagana og mynd
skreyta greinina með tilheyrandi hætti. Vera hefur
á síðustu árum verið ötull stuðningsmaður þess að
gera umæðuna um pfkur opinberari. Þetta sést
best af veglegri umfjöllun um leikritið Pfkusögur
og bókina Pikutorfuna. Vera hefur þannig, með
dyggum stuðningi Bríetar, félagi ungra femfnista,
náð að opna umræðuna um pfkur f fslensku samfé-
lagi. Orðið pfka er nú notað eins og hvert annað
nafnorð á sfðum Veru en svo þegar mynd af fyrir-
bærinu birtist á síðum einhvers annars blaðs er
það orðið að klámi. Samkvæmt Veru er þess vegna
í lagi að vita af píkum, tala um þær og skrifa - en
enginn má vita hvernig þær líta út. - Vera þarf
greinilega aðeins að hugsa sinn gang, reyna að
vera ögn betur samkvæm sjálfri sér og hefja alvöru-
jafnréttisbaráttu f stað þess að nöldra yfir hlutum
sem skipta litlu sem engu máli. Það eru ögn stærri
vandamál en myndir af ptkum sem hrjá heiminn í
dag. - Vera er þess vegna hvött til að vakna.
Inntökuprófin í Leiklistarskólann eru einn af vorboðunum. Á hverju ári
reyna yfir hundrað manns að komast inn í skólann en fáir komast að.
Þetta árið voru níu teknir inn sem eru fleiri en venjulega og aldrei
þessu vant var ekkert leikarabarn þar á meðal.
Sjáumst eftir fjögur ár
Alls sóttu 109 manns um að komast inn í
Leiklistarskólann þetta árið. Inntökuprófin
voru með hefðbundnu sniði og var fækkað jafht
og þétt þar til níu stóðu eftir. Það er einum fleiri
en venjulega og segja fróðir menn að það hafi
ekki gerst síðan fimm voru teknir inn fyrir
nokkrum árum. Það merkilega við hópinn sem
komst inn er þó að ekkert leikarabam er innan
hans en jafnan hefur verið nokkuð um þau.
En lítum þá aðeins á þau sem komust inn.
Alls em þetta fimm karlmenn og fjórar stúlkur.
Magnea Björk Valdimarsdóttir er enginn ný-
græðingur í leiklistinni. Hún er 23 ára gamall
Garðbæingur sem fékk leiklistarbakteríuna
þegar hún sótti leiklistamámskeið í Kramhús-
inu ung að ámm. Magnea var öflug í leikfélagi
MH þegar hún stundaði þar nám og sat f stjóm
félagsins einn vetur. Hún er þó þekktust fyrir
hlutverk sitt hjá Hafnarfjarðarleikhúsinu árið
1999 þar sem hún þótti fara á kostum í hlut-
verki Sölku Völku. Það ár upplýsti Magnea les-
endur Fókuss um að hún væri með ólæknandi
ferðabakteríu, talaði spænsku reiprennandi og
sé með eindæmum bamgóð.
Sveinn Ólafur Gunnarsson fór með eitt að-
alhlutverkanna í uppfærslu Stúdentaleikhúss-
ins á verkinu Ungir menn á uppleið vorið 2001.
Sú uppfærsla var valin áhugaleiksýning ársins
og var verkið sett upp í Þjóðleikhúsinu um sum-
arið af því tilefni. Stefán Hallur Stefánsson lék
einnig í Ungir menn á uppleið og í Upprisu
holdsins nú í vor.
Dóra Jóhannsdóttir er 22 ára Reykjavíkur-
mær sem útskrifaðist úr Menntaskólanum f
Reykjavík árið 2000. Dóra tók þátt í uppfærsl-
um Herranætur á MR-ámnum og var meðal
annars aðstoðarmaður leikstjóra í einni upp-
færslunni. Kærasti hennar er Ragnar Kjartans-
son tónlistar- og myndlistarmaður.
Birgitta Birgisdóttir lék í uppfærslu Leikfé-
lags Kópavogs á Grimmsævintýrunum nú í
vetur. Sú sýning var valin áhugaverðasta
áhugamannasýningin.
Jörundur Ragnarsson var einn þeirra sem
tóku þátt í uppfærslu Stúdentaleikhússins nú í
vetur á verkinu Upprisa holdsins.
Halldóra Malín Pétursdóttir er yngst þeirra
sem komust inn að þessu sinni. Hún er 21 árs
og er ættuð frá Egilsstöðum.
Það er aðeins einn sem komst inn sem getur
mögulega verið sagður af leikaraættum. Sá heit-
ir Víðir og er frændi Bergs Þórs Ingólfssonar,
leikara og leikstjóra. Lengra nær það ekki og
Fókus veit ekki frekari deili á honum.
Að lokum er það Vignir Rafn Valþórsson
sem kemur úr Kópavogi. Vignir er bróðir
Gunnars Valþórssonar, gítarleikara úr Striga-
skóm 42.
Magnea Björk Valdimarsdóttir
Tfr.r
i
1
f ó k u s
4
24. maf 2002