Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Qupperneq 10
Enn öcra Prodigy
Ögrun hefur alltaf verið eitt
af aðalsmerkjum hljómsveitar-
innar Prodigy og nýja smáskff-
an hennar sýnir að það verður
seint breyting þar á. Lagið
Baby’s Got A Temper, sem kem-
ur út i. júlf, var frumflutt á BBC
fyrir nokkrum dögum. Lagið
fjallar um notkun lyfsins
rohypnol sem veldur vöðvaslök-
un og minnisleysi og hefur
stundum verið kallað „date
rape“ lyfið vegna þcss að það
fara sögur af því að nauðgarar
hafi btandað því út í drykk
væntanlegra fórnarlamba til þess að slæva vitund þeirra og
minnka mótstöðuafl. í viðlagi lagsins segir „We love
Rohypnol / She got Rohypnol / We take Rohypnol / Just
forget it all“. Keith Ftint sem samdi textann segir að hann
hafi ekkert með nauðgara að gera, en fjalli um það að fara
út á lífið og taka rohypnol til þess að ná sér niður og slaka á
þegar heim er komið.
Beck tilbúinn með n/estu plötu
Beck lauk nýlega vinnu við
næstu plötu sem kemur út hjá
Interscope 24. september. Plat-
an er unnin undir stjórn Nigel
Godrich, en hann vann með
Beck á plötunni Mutations frá
árinu 1998. Godrich er þekktast-
ur fyrir að hafa stjórnað upp-
tökum á plötum með sveitum
eins og Radiohead, Travis og
Divine Comedy. Nýja platan
sem enn hefur ekki hiotið nafn
er fyrsta plata Beck sfðan hann
sendi frá sér Midnight Vultures fyrir þremur árum. Platan
var tekin upp í San Francisco, en meðal þeirra sem komu að
vinnslu hennar auk Beck og Godrich má nefna Gorillaz
pródúserinn Dan The Automator og Justin Meldal Johnson
bassaleikara og Smokey Hormel gftarleikara, en þeir hafa
báðir lengi verið í hljómsveit Becks.
Ryan Adams kemur frá sér óútgefnu efni
Væntanlegur er fjögurra
diska kassi með áður óútgefnu
efni með Ryan Adams. Það er
Lost Highway sem gefur upptök-
urnar út í samvinnu við Bloods-
hot Records. Meðal efnis í pakk-
anum verða lög sem tekin voru
upp á sama tfma og Gold platan,
trúbadoraefni og pönkað efni
sem hann gerði með hljómsveit-
inni Pinkhcarts. Kassinn inni
heldur fjóra diska, en þrír þeirra verða svo gefnir út síðar
hver f sínu lagi. Auk þessa efnis mun Ryan eiga efni á tvær
plötur frá þeim tíma þegar hann var f hljómsveitinni
Whiskeytown og svo hefur verið talað um að hann haf i gert
sínar útgáfur af öllum lögunum á Strokes plötunni Is This
It? en talsmaður Lost Highway segir í dag að Ryan hafi bara
sagt þetta til þess að stríða breskum popp blaðamanni.
REM-IX
Þeir REM félagar hafa fengið nokkra listamenn til þess
að remixa scx lög af plötunni sinni frá því í fyrra, Reveal.
Engin áform eru um að gefa þcssar endurgerðir út á plötu,
en hægt er að sækja þær í mp3 formi á opinbera vefsíðu
hljómsveitarinnar www.rem.com. Það eru alls 10 mix sem
hægt er að nálgast á vefsíðunni, en verkefnið hefur hlotið
nafnið REM.IX. Þcir sem remixa eru Andy LeMaster, Jamie
Candiloro, Chef,
Knobody/Dahoud
Darien, Her Space Hoti-
day/Marc Bianchi og
enski snillingurinn
Matthew Herbert, en
lögin sem fá yfirhaln
ingu eru The Lifting, ITI
Take The Rain, She Just
Wants To Be Me, l've
Been High, Beachball
og Summer Turns To
Higb.
Breska hljómsveitin The Specials var stofnuð í Coventry árið 1977. Á
árunum 1979-1984 sendi hún frá sér þrjár stórar plötur sem hafa
síðan haft mikil áhrif á tónlistarlíf í Bretlandi. Trausti Júlfusson rifj-
aði upp sögu sveitarinnar í tilefni af endurútgáfu þeirra nýlega.
Tonlistarleg blanda
sem gekk upp
Eitt af því sem þróaðist upp úr breska pönkinu á áttunda
áratugnum var SKA-bylgjan sem blómstraði á árunum
1979-1982 með hljómsveitum eins og The Selecter, The
Beat og Madness. Merkilegasta SKA-sveitin er samt eflaust
The Specials, en stofnandi hennar Jerry Dammers var jafn-
framt stofnandi 2-Tone útgáfunnar sem gaf út efni flestra
tónlistarmanna hreyfingarinnar sem var skammlíf en skildi
samt eftir sig nokkrar plötur sem eru meðal meistaraverka
popptónlistar síðustu aldar.
Prestssonur, fæddur á Indlandi
Jerry Dammers fæddist á Indlandi árið 1954 en flutti
tveggja ára til Englands þar sem hann bjó fyrst í Sheffield og
síðan í Coventry. Faðir hans var prestur og hann hlaut strangt
uppeldi, en undi því illa og sneri baki við flestum þeim gild-
um sem fjölskyldan hafði í heiðri strax á unglingsárunum.
Hann fór 16 ára í listaskóla þar sem hann eyddi mestum tíma
í að búa til teiknimyndir, en eftir að hann útskrifaðist var
hann í nokkrum hljómsveitum sem hétu flottum nöfnum,
en voru ekki að sama skapi áhugaverðar tónlistarlega. Á með-
al þeirra voru Peggy Penguin & The Southside Geeks og
The Sissy Stone Soul Band.
Þegar pönkbylgjan skall á varð Jerry fljótlega virkur á
pönksenunni í Coventry. Hljómsveitin Specials hét í byrjun
The Coventry Automatics og spilaði blöndu af pönki og
reggítónlist. Þegar Johnny Rotten hætti í Sex Pistols fékk
Jerry þá hugmynd að fá hann til liðs við sveitina og dreif sig
til London til þess að reyna að hafa uppi á honum. 1 staðinn
hitti hann Bernie Rhodes, umboðsmann Clash, sem bauð
þeim félögum að hita upp fyrir Clash á næsta tónleikaferða-
lagi, sem þeir gerðu, en í þeirri ferð spilaði líka New York-
sveitin Suicide. Þeir breyttu nafninu í
The Special A.K.A. fyrir tónleikaferðina.
ÓLÍKUR BAKGRUNNUR
Jerry var hljómborðsleikari og aðallaga-
smiður sveitarinnar, en aðrir meðlimir
voru gítarleikaramir Lynval Golding og
Roddy Radiation, bassaleikarinn Sir
Horace Gentleman, trommarinn John
„Brad“ Bradbury og söngvaramir Terry
Hall og Neville Staples. Þeir komu úr
ólíkum bakgrunni og sveitin var ein af
fáum á þessum tíma sem skipuð var bæði
hvítum og svörtum. Terry hafði verið
söngvari í pönkhljómsveitinni The Squ-
ad en Neville, Lynval, Brad og Horace
voru miklir reggí-, fönk- og soul-áhuga-
menn. Neville var reyndar fæddur á
Jamaica þar sem hann ólst upp til 12 ára
aldurs. Specials náðu aldrei mjög langt
með pönk- og reggí-blönduna, en þegar þeir fóru að blanda
saman pönki og SKA-tónlist duttu þeir niður á kokkteil sem
virkaði. SKA-tónlistin var fyrirrennari reggítónlistarinnar og
varð til á Jamaica seint á sjötta áratugnum. Hún var hraðari
og léttari en reggíið. Meðal spámanna uppmnalegu SKA-
tónlistarinnar má nefna Prince Buster og sveitir eins og
Skatalites og Maytals.
Partístemning og kynþáttaóeirðir
Fyrsta smáskífan Gangsters kom út í mars 1979 hjá 2-Tone
útgáfúnni sem Jerry stofnaði. Þegar fyrsta stóra platan henn-
ar kom út hafði hún breytt nafninu í The Specials. Platan var
tekin upp af Elvis Costello og innhélt bæði ný lög og gamla
SKA-smelli, t.d. Too Hot, Monkey Man og A Message To
You Rudy sem íslenska pönksveitin Fræbbblamir geiði
seinna útgáfú af. Tónlistin var bæði hröð og lffleg (tónleikar
sveitarinnar voru gjaman allsherjar partí par sem hálfur sal-
urinn endaði uppi á sviði), en textamir fjölluðu um samfé-
lagsleg vandamál þessa tímabils, Too Much Too Young fjall-
ar t.d. um unglingsstelpu sem verður ólétt og Concrete
Jungle fjallar um kynþáttaóeirðir sem voru mjög algengar í
Bretlandi á þessum ámm.
Fyrsta platan, Specials, fékk mjög góðar viðtökur og það
sama má segja um aðra plötuna, More Specials, sem kom út
1980. Á henni hafði tónlistin þróast mikið og áhugi Jerrys á
kvikmyndatónlist litaði hana og gaf henni nýjan hljóm. í júlí
1981 kom smáskífan Ghost Town, en tveimur mánuðum eft-
ir útkomu hennar hættu Terry, Lynval og Neville og stofh-
uðu The Fun Boy 3, en hinir héldu áfram sem Special AKA
og byrjuðu að vinna að næstu plötu. Hún tók þrjú ár í vinnslu
og hlaut fyrir vikið nafhið In The Studio. Á henni er tónlist-
in mikið breytt og hefúr þróast frá SKA-
pönkinu yfir í djass-skotið popp. Platan
inniheldur m.a. smellinn Nelson Mand-
ela. In The Studio þótti alltaf töluvert
lakari en fyrri plötumar tvær en hefur
batnað með árunum.
Nýjar ENDURÚTGÁFUR
Tónlist Specials hefur haft mikil áhrif á
breska tónlistarmenn. Tricky hefur
margoft lýst þvf yfir að sveitin hafi gjör-
bylt sýn hans á tónlist og lífið almennt og
áhrifin heyrast jafht í verkum Bristol
sveita eins og Portishead og Massive
Attack og f breskri danstónlist hvort sem
það eru 4 Hero, Doolally eða nú síðast
The Streets. Plötumar þrjár með Specials
vom nýlega endurútgefhar, endurhljóð-
blandaðar og hver um sig inniheldur að
auki tvö myndbönd.
Specials var ein af fyrstu bresku
hljómsveitunum sem voru skipaðar
bæði svörtum og hvítum.
hva8 fvrir skemmtileaar niðurstaða
plö^udómar hvern? staðreyndir
X-PRESS2Í ,V k k ,V .MuziKiizufi SKia-,2 1 Útgefandi: Skint/Skífan 1 Lengd: '51:31 min. ii fl m i Á M \ X-Press 2 ertríó skipað Ashley Beedle, Rocky og Diesel, en þeir eru allir plötu- snúöar og hafa verió áberandi á bresku house senunni frá upphafi. X- Press 2 varö til áriö 1993 þegar þaö gerði lagið Muzik X-Press. Þetta er fýrsta stóra plata X-Press 2, en þeir eiga aö Paki plötu frá ‘97 sem Ballist- ic Brothers. Þetta er plata fyrir þá sem hafa gaman af kraftmikilli danstónlist. Platan inni- heldur þæöi instrúmental klúbbasmelli eins og AC/DC, Smokemachine, Muzikizum og Supa- song, en líka sungin lög. David Byrne, Dieter Meier úr Yello og Steve Ed- wards sjá um sönginn. Lagið sem David Byrne syngur, Lazy, er búið aö vera mjög vinsælt undanfar- ið og fór m.a. f 2. sæti breska smá- skífulistans. Eins og oftast hjá David Byrne er ákveðið konsept á bak við textann í Lazy. Honum fannst danslag um það að vera latur skemmtileg hug- mynd. Muzikizum er ein af betri danstönlist- arplötum ársins hingað til. Þessi 10 lög eru öll i lagi, sándið er kraftmikið og uppbyggingin flott. Það er hins veg- ar ekki hægt að segja að hér sé eitt- hvað nýtt á feröinni. Ekki endilega tón- list framtíðarinnar, en skemmtileg tón- list samt. traustl júliusson
\ Flytjandi: Edwyn Collins Platan: Doctor Syntax Útgefandi: Setanta/Skífan Lengd: 53:59 mín. ' ' VÁ\ * \ ; t. i J Þetta er fimmta sólóplata skoska tón- listarmannsins Edwyn Collins, en hin- ar tvær síðustu Gorgeous George frá 1994 og l'm Not Following You frá 1997 þóttu mjög góöar. Edwyn er sennilega þekktastur fyrir smellinn (Never Met) A Giri Like You. Edwyn Collins er einn af þessum popp- urum sem fara sínar eigin leiðir og skeyta ekkert um strauma og stefnur. Hann gerir tilraunir með sánd og stíla og allt á eigin forsendum, en losnar seint undan Bowie-áhrifunum. Plata fyrir þá sem hafa áhuga á sérlunduöu og metnaðarfullu poppi. Edwyn vakti fyrst athygli með hljóm- sveitinni Orange Juice sem gaf út þrjár plötur á árunum 1982-1984 og átti eitt metsölulag, Rip It Up, árið 1983. Sólóferill hans fór hægt og brösulega af stað, en þegar A Giri Like You sló í gegn 1994 komst hann á flug. Þetta er skemmtilegt safn af popplög- um sem koma nokkuð víða við bæði varðandi tðnlist og texta. Lögin eru misgóð en sándið er skemmtilegt, næstum eins og .framtíðarhljómur fyrri ára". Never Felt Like This, Mine Is At, The Beatles og 20 Years Too Late eru bestu lögin á ágætri plötu. trausti júliusson
f ó k u s
10
24. maí2002