Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2002, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2002, Blaðsíða 8
„Næste station Roskilde,“ segir bleikur maður — uppáhaldsmatur purusteik. Loks- ins, loksins er ég mættur á mína fyrstu ut- anborgattónlistarhátíð sem ekki er til styrktar IBV, KA eða Einari Bárðar. Eg er búinn að æfa mig t að gera „rokkaramerk- ið“ í lestinni frá Hovedbanegárden. Vísi- fingur og lilliputti mynda djöflahorn sem skaga yfir hinni heilögu þrenningu löngutangar, baugfingurs og þumals. Djöfulsins rokk! Fram undan er löng helgi með músík, eina milljón bjórflaskna á viðstöðulausri ferð oní belg 71.000 manna sem allir leggjast á eitt um að breyta Skandinavíu í Skandalnaívu. Það var óþarfi að kanna númerið á lestinni og firá hvaða palli hún færi. Að elta fólkið með bjórkassana og rúmfatalagerstjöldin fleytir manni langt í lífinu og alla leið á Hró- arskeldu. Hróarskelda er ölkelda. En þótt ódýrindi ölsins séu til að hlægja tekjulægri viðskiptavini Höskuldar Jónssonar er það ekki svo ódýrt að það borgi sig að drekka það á börunum alla liðlanga helgina. í stórmörkuðum bæj- arins er því hleypt inn í hollum og inn- kaupastjórar hafa ekki látið nappa sig með buxumar á hælunum þegar þeir pöntuðu Tjaldbrennur eru fastur liður á Hróarskeldu síðasta kvöldið. fyrir vikuna. „Bayerinn“ er á besta stað í búðinni og áfyllingarmennimir eiga við ramman reip að draga. Mannhæðarháar bjórstæður breytast í dverga á nóinu. Krebs eða Möller? Frá bænum er um korters keyrsla að hátíðarsvæðinu og það er stöðugur rútugangur á milli. Svæðið skiptist f tvennt. Annaðhvort ertu austan- tjalds eða -vestan, „Krebs" eða „Möller“. Flestir eru löngu mættir á svæðið og hafa jafnvel sent sherpa og undanfara á mánudeginum til að reisa búðir sem standast eiga gjörn- ingaveður, ghettoblöst, þrásætna gesti og gubb. Frá þriðjudeginum hef- ur verið spilað á sérstöku sviði við tjald- stæðin þar til hávaðinn er leystur úr læð- ingi nú, á fimmtudagseftirmiðdegi, á sex sviðum. Hálftíma áður en fyrsta bandið + Á Hróarskelduhátíðinnni getur heyrnleysingi skemmt sér jafn vel og Megas. Hróarskelda verður ekki eyrnamerkt. Hún lætur sér ekki nægja að vera hátíð tónlistar. Hún er hátíð allra skynfæra. Eyrun þakka pent fyrir tappana og láta mergsjúga sig á þungarokki Mínuss og bergmálandi reggí Eek-A-Mouse. Lista- maður í svínsbúningi með ásaumað gervityppi verður hversdagslegur í augum augnanna og þau hætta að kippa sér upp við að útlokkaðir pönkarar sitji tii borðs með kjarnafjölskyldunni. Bragðlaukarnir venjast geymsluþolinni kókómjólk síaðri um óburstaðan tanngarð og ódýrasti bjórinn fer batnandi með hverri kippunni. Nefið gefst fljótlega upp á að snýta úr sér hlandfnyk, svita og súrnandi svita og nasavængirnir hefja sig ekki til flugs í forundran yfir hæg- brennandi uppskeru hörklæddra Kristjaníuhippa. Taugarnar nenna ekki að taka mark á kvörtunum gæsahúðarinnar yfir hælsæri og augabrúnirnar njóta til- gangs síns sem þakrennur andlitsins fyrir rigningu á tónleikum Red Hot Chili Peppers. Sjötta skilningarvitið segir mér að hingað muni ég koma aftur. stígur á svið á appelsínugula aðalsviðinu er alvond tímasetning til að klöngrast yfir tjaldstæðið klyfjaður eins og flóttamaður. Að finna spildu til að hola niður tjaldi er eins og að leita að fjögurra laufa smára í Surtsey. Hversu feginn er ég að þurfa ekki að leita? íslendingar í Danmörku hafa ætíð staðið saman og kunningjar hafa tek- ið frá tjaldstæði fyrir föruneyti mitt. Með allar svitaholur útglenntar og skrælnaðar tungur komum við á áfangastað. Bjórirm er kranavatn f, fjalllausu landi Skandalnaivu Það var alltaf góð stemning inni á tónleikasvæðinu þó li'tið væri í gangi á daginn. Þýska súrkáuð Sakir landamerkjarifrildis við ódrengilega Norðmenn missti ég af Manu Chau, fyrsta stóra númerinu á appelsínugula sviðinu sem baunamir í Superheroes opnuðu. Nokkrir bjórar læknuðu mesta ergelsið og rölt var af stað til að sjá Rammstein. Þetta reyndist kvöld rangra ákvarðana. Að taka Rammstein fram yfir Chemical Brothers eru mistök til að læra af. Þetta voru mínir aðrir tónleikar með þýskurunum sem þýddi að mér fannst ekkert spennandi við eldinn og hommaskapinn. Og hvað er þá eftir af Rammstein? Ekki anus. Jú, röddin á Till Lindemann er auðvitað svöl en allt sem Rammstein stendur fyrir hafa aðrir gert betur; David Copperfield, Joseph Göbbels og Foreigner. Eg mun eftirleiðis - ■ y. T.:’ - - y ÍT Fólk tekur upp á ýmsu til að stytta sér stundir. Hér hefur listaverk orðið til úr bjórtöppum. Ur rassi heimsins gæti þessi mynd heitið. Það þykir ekki alltaf fýsilegt að ganga örna sinna á hátíðinni. aðeins brúka einsleita músík Rammstein til þess að hlæja að í stelpulausum partí- um. Leifamar af Black Rebel Motorcycle Club voru bragðbetri en allt þýska súrkál- ið. Föstudagur til Flóar Vakna t öllum fötunum eins og Vera ber á föstudagsmorgni og hoppa upp í rútu til að borða. Snæðingurinn er aðeins yfirskin. Raunverulegur tilgangur ferðar- innar er að hafa saurlát við mannlegar að- stæður. múm á leik í bláa tjaldinu um fimm- leytið sem hluti af blandi f poka af nor- rænum sveitum. Hljóðtruflanir setja mark sitt á tónleikana f fyrstu en lagast þegar á líður. múm leikur á mörg óhefð- bundin hljóðfæri og erfitt að laga hljóðið að öllum. Viðbrögð áhorfenda eru góð og fjölgar mjög í tjaldinu meðan á tónleik- unum stendur af fólki sem finnst of snemmt að rymja með dauðamálmi Slayer. Lófatak fyllir út í biðina milli laganna og hin fjögur fingralipru standa sig vel í rökkrinu. Le Peuple De LíHerbe eru franskir harðhausar langt komnir í allra átta danstónlistarkeyrslu á gula sviðinu þegar múm hefur lokið sér af. Forsprakk- hrukkur og grá hár ellegar aldur gesta hafði tekið stökk uppávið. Taxi kemur keyrandi að hliði hátíðarsvæðisins. Fólk hægir á göngunni til að sjá hvaða stjarna er komin svo langt af sporbaugi. Enginn venjulegur keldubúi kæmi keyrandi í drossíu. Afturhurðin opnast og bílstjór- inn hjálpar út beinþynntri ömmu á átt- ræðisaldri. Hún þakkar fyrir og staulast inn með göngugrindina. Á sunnudögum er ókeypis aðgangur fyrir alla sem náð inn nær upp góðri stemningu með dansi, söng og trompetspili. En eftir að hafá rétt glápt á andstyggilega uppsperrtan, rauðklæddan, danskan spandexgorm, Thomas Helmig að nafni, er kominn tími á eitthvað almennilegt. Kaizers Orkestra frá Stavangri í Noregi er einmitt það. 13.000 Norðmenn sem allir vilja vera fremst láta öryggis- skerma við sviðið blikka í fyrsta skipti f enskum boðhætti „move 3 steps back.“ Sveitin er tilheyrir sömu ættkvísl tónlistar og serbneskt No smoking Band Emir Kusturica og notar afbrigði- leg ásláttarhljóðfæri sem bílfelgur, olíutunnur og stállok til að skapa stemingu skilar tónleikum sem gerir þá umtalaða sem stæsta „óvartið" að þessu sinni. Beðið eftir Red Hot Stærsta númer föstudagsins og stærsta númer hátíðarinnar í áhorfendum og evrum á launaseðli talið var boybandið Red Hot Chilli Peppers. Þó að piparsveinamir hafi síðast gefið út þolanlega plötu þegar Vfðir í Garði spilaði í efstu deild mega þeir eiga það að þeir eru meira en bara málkunnugir hljóðfærunum sfnum. Þeir hófu leikinn á nýju efni og spiluðu sig svo í gegnum ferilinn allan með lögum, sem vestrænir menn þekkja nauðugir viljugir. Sannkallað rokkfár- viðri tekst þeim að píska upp, þar sem bassaséníð Flea átti flesta metra á sek- úndu. Veðurguðimir lýsa hrifningu sinni eða vanþóknun á djöfulgang- inum með slfkri mígandi rigningu að regnföt hætta að hrinda frá sér. Að margra mati voru þetta bestu tónleikar hátíðarinnar og Red Hot sleppti sér í alls kyns fífla- gangi og vakti sérstaka hrifn- ingu hörðustu aðdáenda með því að leika hið úrgamla lag Me and my friends. Pet Shop Boys eru eymd á eymd ofan f upphafi tónleik- anna. Hvílík eymd þegar Neil Tennant og meðreiðarsveinar kynna nýtt efhi og fylgja því eft- ir með eymdarlegri útgáfu af Elvís- unni „Always on my mind.“ Þá er ekki þess virði að vökna frekar. Mörg- um þeirra sem horfðu á tónleikana til enda vöknaði hins vegar um augn- hvarmana þegar piltamir tileinkuðu lagið „Being boring" „þeim níu sem aldrei komu heim.“ Pet Shop Boys áttu nefni- lega að stíga á svið eftir Pearl Jam á há- tíðinni fyrir tveimur árum þegar níu tónleikagestir voru kæfðir undir skó- sólum skarans. Tvennum sögum fór af gæðum tónlistarinnar og báðar sögðu þær að hún væri drasl. LAUGARDAGUR TIL LAXERINGA Fökk. Að vakna við hvínandi sænsku, kappklæddur í ofhituðu kúlutjaldi með timburmenn í akkorðsvinnu fær líkamann til að kalla á sturtu - heita sturtu. Tveir röltum við saman að íþróttahúsi sem býður upp á munaðinn og borgum fúslega 250 íslenskar krónur fyrir að standa í röð með 50 öðrum allsberum og illþefjandi karlmönnum í öllum árgerðum og útgáfum. Hér eru allir eins. Gadd- freðni Manson-strákurinn, alflúraði Heljarengillinn og Tyrkinn finna allir hjartað taka aukaslög þegar glittir í sturtuhausinn og ætla minnst að taka sér jafngóðan tíma og maðurinn á undan. Þetta kemur allt með heita vatninu. Skárra er það en hjá konunum í röðinni sem hlykkjast langt út úr húsinu. Mexíkóskur morgunverður er eitt af því sem ég get ffáráðið öllum útihátíðargest- um og eftir svartan kaffibolla er ég stadd- ur á þvf eina sviði sem ég hafði lofað sjálf- um mér að heimsækja ekki; „brúna svið- inu“. Þetta er eins og að kliffa, hugsa ég, ekki horfa niður. Karlmannlega sest ég til að ljúka því af sem til er ætlast, loka aug- unum til að horfa ekki í hyldýpið og sé óklippta útgáfu af lífi mfnu rúlla fyrir net- Islendingur á Hróarskeldu? Jú, verðum við ekki að giska á það ... Islendingar eru ekki þeir einu sem skilja eftir sig sviðna jörð að útihátíð lokinni. Þessir Finnar voru sem óðir á tónleikum Mfnuss og veifuðu skírteinum frá aðdáendaklúbbi Slayer. texti og myndir: Eirik Sprdal himnunni. Ég rembist líkt og rjúpan við saurinn og hef betur. Musculus sphincter ani extemus launar velunn- ara sínum með ríkulegri pöntun á dópamínskammti. Súrefnið fyrir utan er vímugefandi. VlÐNÁMSLAUS EYRNANAUÐGUN Mínus skilur harðkjamann ffá hisminu á þessari hátíð. Ásamt slatta af íslendingum hafa allir hörðustu rokkhundar hátíðarinnar þefað ‘ uppi orðsporið og elt slóðina að gula tjaldinu. Þeir verða ekki fyrir vonbrigðum með naglasúpu pilt- anna. Fanatískir Finnar með með- limaskírteini að aðdáendaklúbbi Slayer fá sér kúffullan disk og danskir fylgjendur hip-hop veita ekki viðnám þessarri eymanauðg- un. Framúrskarandi trommuleik- urinn með sviðsffamkomu Kmmma minnandi á flogaveika Duracellkanínu gerði útslagið fyrir ffábæra tónleika. Fæstir hérlendis hafa heyrt getið hinnar skánsku þunglyndispoppuðu Bob Hund en f öðmm Norðurlöndum er hún plássffek í geisladiskastöndum ungdómsins og heldur orkumikla tón- leika og innihaldsríka af sænskum blótsyrðum. En að fara úr Mínus í Bob Hund gemr ábyggilega endað með köfún- arveiki. Betra er að jafna þrýstinginn á tjaldsvæðinu. Berfætt DÍVA Kvöldið á að verða gott. Eftir korters bið mætir Erykha Badu og slær eign sinni á græna tjaldið og allar sálir innandúka. Með tveggja metra barðastóran stráhatt og strávesti og -pils í stíl svífur hún inn með umlykjandi blauta rödd. Eftir sem róleg- heitin renna af fföken Badu og áhorfendur verða eins og framlenging á hljóðnemanum gefur hún síðu hári sínu frelsi og stráir fötunum um sviðið svo eftir stendur berfætt díva í undirkjól. Tónleikamir breyt- ast í partý og gestgjafinn gengur meðal gestanna og syngur úr þvögunni. Breikgrúppan Nobody Beats the Beats brúar bilið þar til rapparinn Common tekur við. Comm- on tilheyrir hinni virðulegu hip-hopfa- milíu Okayplayer og meðal systkina og hálfsystkina hans eru D’Angelo, The Roots, Dilated Peoples og tvíburamir Talib Kweli og Dj Hi-Tek. Geta svo- leiðis menn klikkað? Svo virðist ekki vera. Með plötusnúð í bakinu ærði skáldið áhorfendur, tunguliprari en Sigga Beinteins. Og þegar Badu mætti til að taka lagið The Light með félaganum iða ég sem brennu- vargur á áramótum. Primal Scream með Bobby Gil- lespie efstan á leikmannaskýrsl- unni gerði einnig stórgóða tónleika með upphafi í nýju efhi og enda í gömlum perlum eins og „Rocks" og „Medication." En þeir sem biðu effir „Loaded," urðu líklega að steini með morgunsólinni. SUNNUDAGUR TIL SAURLÍFIS Um leið og komið er inn á tón- leikasvæðið verður breytinga vart. Hróarskelda breiðir mjög úr sér í regnboga fæðingardaganna og þjapp- ar fólki saman án þess að skilja effir kynslóðabil. En hér er eitthvað meira á seyði. Annaðhvort voru ungmenni Skandinavíu búinn að djamma til sín .1 'L Ábúðarfullur öryggisvörður stendur sína pligt meðan Krummi f Mínus syngur af miklum móð. hafa fimmtugsaldri og það setur mark sitt á lokadaginn. Himnasafinn Þar sem Frónbúar hafa ekki enn fundið til samkenndar með tónlist eyjaskeggjanna í Karíbahafi eru þau ekki mörg tækifærin sem gefast til að sjá alvörureggí á Islandi. Á meðan Ronaldo afklæðir Oliver Kahn og lætur hann dilla brjóstunum við sambataktinn á risaskermum appel- sínugula sviðisins er söngsnúðadúett- inn Sky Juice mættur til að drepa tíma antísportistanna í Ballroom- tjaldinu. Þeir bera dredda niður á læri, syngja yfir gamlar reggíplötur á illskilj- anlegri jamaíkaensku og lýsa leiknum í leiðinni. „Vadúbadúbadabadeio come down selecta. Brazil one, Germany zero, Feelin Eirie.“ Þegar Eek A Mouse og nokkuð til verka og litli bróðir Jack breyt- ir gítamum sínum f hljóðfæraverslun ásamt því að slá nokkrar nótur á hljóm- borðið. Hann syngur eins og hann sé að fá raðfúllnægingu við að pissa gallsteinum, leggst á gólfið í samfarastellingum við gft- arinn og iðar um líkt og ormur í rigningu. Afar sérstakt. En ekki fer milli mála að Jack White er bæði góður laga- og texta- höfundur þótt honum leiðist ekki að stúta hljóðfærum og láta eins og andsetinn á sviði. Þetta fær mann til að hugsa um hvemig jólaboðin skyldu vera hjá White-fjölskyldunni? Dagur öldunganna í fjarska heyri ég blindfulla (von- andi) söngkonu Garbage reyna þrisvar sinnum að byrja á meistara- stykki Kylie Minogue Can’t get you out of my head. Islandskunningjarn- ir og verðandi -vinir í Travis setja tappann fyrir tónaflóð appelsínugula sviðsins í ár. En aðeins eftir að norski karlakórinn Berlevág Mannsangfor- ening hefur lokið sér af við ákafan fögnuð, með elsta meðliminn á nítugasta og sjöunda aldursári. Þetta er dagur öld- unganna allir geta orðið rokkarar á ldró- arskeldu. Tónleikar Travis vom góðir og No crowdsurfing. Öryggisgæslan hefur verið hert í seinni tíð á Hróarskeldu af skiljanlegum ástæðum. hljómsveit hans kemur sér fyrir er tjaldið gjörsamlega stappað og reykmettað af vindlingum sem Bill Clinton myndi í það minnsta ekki anda að sér, þótt hann gæti vafalítið fúndið önnur not fyrir þá. Hinn blakki krúnurakaði risi mætir á sviðið með komungan son sinn sem hann leyfir að taka fullan þátt í sýningunni með stuttum endurtekningum á viðlögunum. Fögnuð- urinn er gríðarlegur hjá öllum hinum hár- flæktu reggíaðdáendum. Sænsku Kent eiga orðið effii f safnplötu og leika hana fyrir Svía sem ertast við hvert lag, sérstak- lega vegna þess að flutningurinn er á þeirra tungu. Svíar og Norðmenn eru f miklum meirihluta hátíðargesta og það sést vart danska á nokkrum manni. Hin tartaralega Nelly Furtado er frjáls eins og fúglinn heimilislausi á græna sviðinu og skilar ágætum popptónleikum. Stelpan er fjölhæfileikarík og fær ólík- legustu harðhausa til að þenja raddböndin ofan í hálsmálið með MTV-slögurunum sínum. Bolir með nafhi gyðjunnar á brjósti allra hljómsveitarmanna setja samt smá Spice Girls-stimpil á það heila. Systkinin í White Stripes eiga næsta leik. Stóra systir Meg White pundar trommusettið án þess að virðast kunna Appelsfnugula sviðið í allri sinni dýrð. Þarna eru stærstu böndin og mestu lætin. söngvaranum Fran Healy óx næstum því brjóst af væmni yfir góðri stemningu, enda gott skáld. Það er engin ástæða fyrir mig að fjalla nánar um tónleikana, enda hafa Travis varla samið nýja plötu á þeim fimm dögum sem liðu á milli Hróarskeldu og Reykjavíkur í túrnum þeirra og bendi ég á www.gummi- joh.net ef gagnrýni óskast. Böndin sem ég hef fjallað um hér eru aðeins brot af þeim sem léku á hátíð- inni. Lífið snýst vfst um að velja og á Hróarskeldu verður þessi vandi áþreifanlegri en nokkru sinni. Göm- ul Hróarskeldubrýni hlæja að viðvan- ingum sem renna milli sviða og gefa sér minni tíma til að njóta. Staðreynd lífsins er sú að enginn getur heyrt f öll- um sveitunum. En Hróarskelda kennir fólki að velja betur. Uppblásin geimvera f samförum við plastkýr. Allt getur gerst á Hróarskeldunni. fókus 12. júlf 2002 12. júll 2002 fókus +

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.