Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2002, Blaðsíða 10
fmxm *icit»mc*síOf as íu.ií tm m«
10
Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2002
13 V
Góður útivistar-
og camöfatnaður
eykur vellíðan og áraogor í veiöiferöinni
40.000
TILBOD1
Gazelie hálfsjálfvirk 3"
með ól, poka og skotbeiti
4 pakkar RIO gæsaskot
Hreinsisett og gæsafiauta
TILBOD 2
CBS Pumpa 3" Magnum
Ól, poki og skotbelti
4 pakkar RIO gæsaskot
Hreinsisett og gæsaflauta
I
1 Eervigæsir 11.900
kr. 12 stk.
Góður ótivistar- og
camofatnaóur eykur veliíðan
og árangur í veiðiferðinni.
Þekkt merki
í skotveiðivörum:
Wetland
Brown Camo
Express
Eley
Federal
Vel heppnuð veiðlferð hefst f Útilff!
UTILIF
■ /• \TV I
Smáralínd • Glæsibæ
Simi 545 1500 80 www.Utilif.ls
Biskup heimsæk-
ir Þingeyinga
Heimsókn Karls Sigur-
björnssonar biskups hófst í
Þingeyjarprófastsdæmi í
gær og mun standa óslitið
til 2. september. Þingeyjar-
prófastsdæmi er eitt víð-
feðmasta prófastsdæmi
landsins - nær alveg frá
Svalbarðsströnd að vestan
og austur að Langanesi. Á
Kari
og öllum sóknamefndum.
Þá mun Karl Sigurbjöms-
son einnig heimsækja dval-
arheimili, fyrirtæki, sjúkra-
hús og skóla og eru foreldr-
ar einnig hvattir til að taka
böm sín með sér til kirkju.
Sérstaklega verður talað við
bömin og þau blessuð. Öll
böm fá afhentan lítinn
svæðinu búa rúmlega 6.100 Sigurbjörnsson kross tii minja um skim
manns og skiptist það i 8 biskup. þeirra.
prestaköll. Alls eru 20 kirkjur í
sókninni.
Biskup mun heimsækja alla söfn-
uði og verða samtals i visitasíunni
30 guðsþjónustur og helgistundir.
Þá fundar biskup sérstaklega með
hverjum sóknarpresti fyrir sig, sem
í för með biskupi eru kona hans,
Kristín Þ. Guðjónsdóttir, prófastur
Þingeyinga, sr. Pétur Þórarinsson,
og kona hans, Ingibjörg S. Siglaugs-
dóttir. Ritari vísitasíunnar er sr.
Guðmundur Guðmundsson héraðs-
prestur. -BÞ
DV-MYND EVA HREINSDÓTTIR
Fjölbreytt mannlíf á Blómstrandi dögum í Hveragerðl
Þaö var líflegt í Hverageröi á Blómstrandi dögum um helgina, þótt í smærri
stíl væri en á menningarnótt höfuöborgarinnar. Veöriö iék við Hvergeröinga
og gesti sem ákváöu aö verja deginum og kvöldinu í blómstrandi bæ á
Blómstrandi dögum í staö þess aö sækja Menningarnóttina í Reykjavík heim.
Mikiö var um aö vera fyrir unga fólkiö um daginn og um kvöldiö brást brekku-
söngurinn ekki, þrátt fyrir fjarveru Áma Johnsens, sem yfirleitt hefur ieikiö og
sungiö í brekkunni í Lystigaröinum.
Frá höfuðstöövum
Sæplasts hf. á Dalvík.
Afkoma Sæplasts hf. á Dalvík:
Verulegur bati þrátt
fyrir sterkari krónu
Hagnaður Sæplasts hf. á Dalvík,
móðurfélags og dótturfélaga, batn-
aði til muna á fyrri helmingi þessa
árs og er mun betri en á sama tíma
á síðasta ári. Hagnaður var tæpar 46
milljónir eftir skatta en var um 5
milljónir króna á fyrstu sex mánuð-
um síðasta árs.
Fyrir afskriftir, fjármagnsgjöld og
skatta nam hagnaðurinh fyrstu sex
mánuði ársins 216 milljónum króna,
eða 14,6% af tekjum, og hefur þetta
hlutfall aldrei verið hærra. Veltufé
frá rekstri fyrstu sex mánuði ársins
var tæpar 145 milljónir króna sem
er um 42 milljónum króna hærra en
á sama tímabili árið 2001. Rekstur
Sæplasts á öðrum ársfjórðungi gekk
mjög vel og var sala samkvæmt
áætlunum félagsins, þrátt fyrir aö
styrking íslensku krónunar hafi
haft neikvæð áhrif á reksturinn og
dregið úr samkeppnishæfni félags-
ins á erlendum mörkuðum. Einnig
hefur sterk staða norsku krónunnar
valdið Sæplasti hf. nokkrum erfið-
leikum á alþjóðamörkuðum.
Sæplast hf. hefur nýverið lokið
endurfjármögnun félagsins sem
meðai annars fólst í lengingu lána
og uppgreiöslu skammtímaskulda
sem mun hafa þau áhrif aö greiðslu-
byrði félagsins mun minnka um allt
að 80 milljónir króna á ári. Áhrifa
þessa mun gæta í níu mánaöa upp-
gjöri félagsins.
Gert er ráð fyrir að jafnvægi verði
í rekstrinum á þriðja ársfjórðungi
sem jafnan er sá slákasti á árinu.
Áfram veröur unnið að því að efla og
styrkja sölu- og markaðsstarf félags-
ins, jafnframt því sem markvisst er
unnið að því að auka skilvirkni og
hagræðingu í rekstri þess. Sérstök
áhersla er lögð á að verksmiðja fé-
lagsins í Kanada fari aö skila viðun-
andi afkomu en markaðir í Ameríku
hafa verið erflðir og útlit fyrir að svo
veröi áfram um nokkum tíma. Geng-
isþróun íslensku krónunnar skapar
einnig nokkra óvissu í rekstri félags-
ins. -hiá