Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2002, Blaðsíða 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2002
Sport
DV
Páll og Karl íslandsmeistarar
Páll Pálsson og Karl V. Jónsson tryggbu sér Islandsmeistaratitilinn í sinum flokkum í lokaumferð
íslandsmeistaramótsins í rallycross sem fram fór á rallycrossbrautinni við Krísuvíkurveg sl. sunnudag. Keppnin var
hörð og greinilegt að þar börðust menn um hvert stig. Ekki var keppt í ofurbílaflokki að þessu sinni en Birgir
Guðbjörnsson var búinn að tryggja sér íslandsmeistaratitilinn þar. Á myndinni hér að ofan sjást þeir Páll, Karl og
Birgir með verðlaunagripina fyrir Islandsmeistaratitlana. DV-mynd JAK
Páll Pálsson á Toyota
Varis haföi töluverða
yfirburöi í 2000-flokkn-
um i sumar og tryggöi
sér þar íslandsmeist-
aratitilinn.
DV-mynd JAK
Úrslit í rallycross
1600 flokkur 1. Kjartan Hallgeirsson . . 80 8. Sveinbjörn Reynisson .... 2000 flokkur . . .36
2. Karl V. Jónsson . . 54 1. Páll Pálsson . . . 80
3. Gunnar E. Bjarnason .... . . 51 2. Hilmar Þráinsson . . . 68
4. Ingvar Ari Arason . . 49 3. Sigurður Unnsteinsson . .. . . . 56
5. Birgir Guðbjömsson . .47 4. Ægir Amarson . . . 54
6. Matthías Hjálmtýsson .... . . 45 5. Magnús Óskarsson .. . 48
7. Sigurgeir H. Sigurjónsson . . .42 6. Eyjólfur D. Jóhannsson . .. . . . 30
Stelpurnar í Sindra voru sterkar í Keflavík og enduöu i 2. sæti.
Lið KBS, mestu skipað stelpum úr Leikni F. stóð sig vel og endaöi í þriöja
sætinu en þjálfari þeirra er Vilberg Jónasson.
Bleikjuveiðin hefur verið lítil það sem af er árinu:
Miklu færri á
land en í fýrra
- feikna vænn sjóbirtingur sást í Laxá í Kjós
Bleikjuveiðin hefur verið ótrú-
lega slök í ár, en fiskurinn sem hef-
ur mætt er vel haldinn úr sjónum.
En miklu færri bleikjur hafa mætt
í ámar víða um land.
Líklega er búið að veiða 4~-5 þús-
und færri bleikjur en á sama tíma
fyrir ári. Bleikjan kemur ekki í
eins stórum torfum og oft áður en
þær eru vænar sem hafa komið.
Veiðimaður sem var í Hrúta-
fjarðará fyrir skömmu veiddi
nokkrar 4 og 5 punda á smáar flug-
ur. Þær stærri tóku alls ekki.
Sjóbirtingurinn hefur aftur á
móti verið sterkrn- víða eins og í
Laxá í Kjós þar sem vel vænir fisk-
ar hafa komið á land.
Á silungasvæðinu í Vatnsdalsá
hefur verið miklu minni veiði en í
fyrra en holl sem var með yfir 200
fiska í fyrra veiddi 80 núna fyrir
nokkrum dögum síðan.
„Þessi veiddist héma fyrir ofan
Laxfossinn og hann er vænn, það
er mikið af svona fiskum í Laxá
núna,“ sögðu þeir félagar, Harald-
ur Eiríksson og Gísli Ásgeirsson,
en þeir hafa verið iðnir við laxinn
og vænan sjóbirting í Kjósinni í
sumar.
„Þetta var meiri háttar, við lent-
um í mokfiski og þetta var allt
vænn fiskur sem tók hinar ýmsu
flugur,“ sagði veiðimaður sem lenti
í veislu í Káranesfljótinu í Kjósinni
og veiddi 24 silunga af ýmsum
stærðum.
Þessa sögu er hægt að segja af
fleiri stööum í veiðinni eins og fyr-
ir austan í Baugastaðaós og Vola,
þar hafa veiðimenn verið í finum
fiski.
Lagði net en heyrði ekkert
Fyrir nokkrum dögum var veiði-
maður tekinn á Hrauni við Ölfusár-
ósa fyrir að leggja net. Þessi veiði-
maður er kominn nokkuð til ára
sinna en stundaði netaveiði áður
fyrr á jörð sinni fyrir austan fjall
og heyrir í þokkabót ekki orðið
mikið nema hann sé með heymar-
tækið. En finnst gaman að renna
fyrir fisk dag og dag.
Hann var sem sagt að renna fyr-
ir fisk á Hrauni fyrir nokkmm dög-
um en veiðin var eittvað lítil svo
hann labbaði því upp í bíl sinn og
náði í net eitt sem hann átti í skott-
inu. Lagði hann netið og fór síðan
að veiða með sinni stöng en allt í
einu kemur veiðivöröurinn og gef-
ur sig á tal við veiðimanninn sem
veiðivörðurinn þekkti vel. En það
var sama hvað veiðivörðurinn
reyndi að hefja samræður við
manninn, það gekk bara ekki neitt,
hann heyrði ekki neitt. Ailt í einu
labbar veiðimaðurinn upp í bílinn
sinn og keyrir á stað en kemur aft-
ur fljótlega. Veiðivörðurinn kallar
á manninn og segir honum að
koma. Kemur maðurinn strax en
var þá búinn að fara heim og ná í
heymartækið sitt. Viðurkenndi
hann að eiga netið góða sem enginn
fiskur var víst í. -G.Bender