Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2002, Síða 1
DAGBLAÐIÐ VÍSIR
275. TBL. - 92. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002
VERÐ í LAUSASÖLU KR. 200 M/VSK
Þaö var glatt á hjalla í heita
pottinum í Laugardalnum í morgun,
enda heitt báðum megin; ylurinn vænn
í lauginni og lofthitinn sömuleiöis, rétt
um tíu stig. Fastagestir í pottunum í
Dalnum leggja það í vana sinn aö
syngja á föstudögum, einkum íslensk
dægurlög og er hraustlega tekiö undir.
Sjá ejnnig fréttir af veöri bls. 2
r m 1 [ V
Þingmenn í jólaskapi leggja til aukin ríkisútgjöld:
Mörg hundr-
uð milljónir í
gæluverkefni
Við lestur nýrra
tillagna meirihluta
fjárlaganefndar Al-
þingis um aukin
ríkisútgjöld kemur
í ljós, að af 4.341
miújón króna eru
um 729 milljónir
framlög til verk-
efna sem kaila má
„gæluverkefni“.
Vinsælasta gæluverkefnið eru
hvers konar söfn; framlög tii þeirra
hækka um á þriðja hundrað millj-
óna króna. Skógrækt og endurbæt-
ur á gömlum húsum eru einnig of-
arlega á óskalista þingmanna.
Ljóst er að lengi má deila um
hvað skuli teljast gæluverkefni en
listi DV er birtur í heild í blaðinu í
dag. I nær öllum tilvikum er um að
ræða viðbótarframlag upp á eina til
sjö milljónir króna til tiltekins verk-
efnis. Kannski má telja það visbend-
ingu um að um gæluverkefni sé aö
ræða, að í mörgum tilvikum fara
þau í undirflokkinn „ýmis framlög"
í yfirflokknum „Ýmislegt". Hjá
landbúnaðarráðuneytinu fellur t.d. í
þennan flokk
hækkun á
rekstrarframlagi
til Skógræktar-
félags íslands,
þriggja milljóna
króna framlag
til „rannsókna á
landslagi“ sem
og 700 þúsund
króna styrkur til
manns nokkurs í Skagafirði vegna
„viðgerða og viðhalds á gömlum bú-
vélum" eins og segir í tillögunum.
Hækkunin sem þingmenn hafa
beitt sér fyrir nemur samtals 1,7%
af útgjöldum sem fyrir voru í fjár-
lagafrumvarpinu. Fyrir þetta fé
mætti reka tvo Fjölbrautarskóla við
Ármúla eða stofna nýtt embætti
Ríkislögreglustjóra, svo að dæmi
séu tekin af handahófi. Fjárlaga-
nefnd mun leggja til enn meiri
hækkun ríkisútgjalda við þriðju
umræðu um fjárlagafrumvarpið.
■ NÁNARI UMFJÖLLUN
Á BLS. 6 í DAG
- smaauglysingar.is -
DV er smáaug-
lýsingablaðið
- þjónustan stóraukin
DV er smáauglýsingablaðið og
hefur haft þann sess á íslenskum
blaðamarkaði allt frá því blaðið hóf
göngu sína. Þó að þjónustan í smá-
auglýsingum hafi verið mikil þá á
nú að auka hana enn frekar og
munu lesendur sjá þess merki strax
á morgun.
Hluti af stóraukinni þjónustu og
breyttum áherslum er að auglýsing-
ar veröa mun meira áberandi en
áður og flokkum auglýsinga verður
fjölgað verulega. Mikið kapp verður
lagt á að bæta þjónustuna við aug-
lýsendur og er það m.a. gert með
nýjum vef, smaauglysingar.is. Hægt
er einnig að komast inn á vefinn í
gegnum dv.is. Á þessum vef verður
að finna allar smáauglýsingar DV
og upplýsingar um þjónustuna.
Hægt verður að panta og greiða
smáauglýsingar í gegnum vefmn og
er öryggi þessa greiðslumáta tryggt
með krítarkortaöryggi VeriSign frá
Skýrr.
-HKr.
í FORVARNARSTARFI
GEGN FÍKNIEFNUM:
Börnin mega
ekki láta
Ijúga að sér
FÓKUS í MIÐJU
BLAÐSINS:
Hafíð bláa
hafið-
Stíll 2002
Greiðslubiónusta m Landsbankinn