Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2003, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2003, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 6. MARS 2003 V M agasm DV r Hvað ætlar þú ab gera um helgina: Horfi framan í fjölskyld- una „Helgin verður öll í mjög hefð- bundnum stíl. Það er ekkert alveg sérstakt sem ég geri alltaf um helg- ar,“ segir Óðinn Jónsson, útvarps- maður hjá Ríkisútvarpinu. Hann er umsjónarmaður fréttaþáttarins Morgunvaktarinnar sem hóf göngu sína í vikubyrjun - og hefur fengið mikla athygli og hlustun. Meðal liðsmanna Morgunvaktar- innar eru fréttamennirnir Sveinn Helgason, Pálmi Jónasson og Þórdís Amljótsdóttir - auk þess sem fleiri starfsmenn Útvarpsins leggja í púkkið. „Við starfsfólkið á Morgunvakt- inni ætlum að gleðjast saman á fostudagskvöld. Þá er fyrsta vikan búin og mér finnst hún hafa tekist mjög vel. Mikill undirbúningur og vinna hefur verið lögð í þessa þátta- gerð og ætlum við samstarfsfólkið að fagna því hvað allt hefur gengið vel. Við höfum fengið mjög góðar viðtök- ur og viðtalið sem við fengum við Davíð Oddsson, sem var í fyrsta þættinum á mánu- dagsmorgun, er ein allra besta auglýsing sem við hefðum getað feng- ið.“ Á laugardaginn segist Óðinn ætla að „horfa framan í fjölskylduna," eins og hann kemst að orði. „Við reynum að hreyfa okkur, för- um t.d. út að ganga. Svo reynir maður að nota helgina til að heimsækja vini og ættingja. Á sunnu- daginn bý ég mig undir komandi viku sem vonandi verður lifleg og skemmtileg á morgunvaktinni." -lrb Morgunvaktarfólkið ætlar að gleðjast saman á föstu- dagskvöldið. Óðinn Jónsson er einn af mönnum vik- unnar eftir viðtal sitt við forsætisráðherra á mánudag- Inn og var myndin tekin við það tilefni. > „Eg hlusta nú á allt mllli hlmins og jarðar. Þungarokk, óperur og rapp hefur þó að mestu fengið frlð fyrir mér,“ segir Helgl Már Barðason, verk- efnisstjóri við Akureyrarkirkju. Tónlistin í hlustunum: Nýtt í því gamla „Ég hlusta nú á allt miili himins og jarðar. Þungarokk, óperur og rapp hafa þó að mestu fengið frið fyrir mér. Börnin min litlu hafa mikið dálæti á Gylfa Ægissyni og ég hlusta því býsna oft óbeint á hann. Gylfí er ágætur og vanmetinn," segir Helgi Már Barðason, verkefnasfjóri við Akureyrarkirkju, kennari og þýðandi. Hann kveðst einnig hafa gaman af djassi, ekki síst sungnum, og hlusta oft á Ellu Fitzgerald, Rosemary Clooney og Söruh Vaug- han. Lengi segist hann hafa fylgst vel með poppheiminum og vinsældalist- unum en hætt því á tíunda áratugnum og hafa nú mest dálæti á tónlist frá 1960 til 1990. „Elton John er í sérstöku uppáhaldi - og Debbie Harry var drauma- prinsessan. Diskóið rifjar líka upp ágætar minningar. Annars útbý ég gjam- an mína eigin safndiska og snældur, enda gamall útvarpsrefur og plötusnúð- ur. Ég á mikið safh vínylplatná og platan sem ég spilaði síðast er Simplicity með Tim Curry, en mér áskotnaðist hún nýlega. Curry er alltaf skemmtileg- ur, hvort sem hann er að syngja eða leika,“ segir Helgi, sem hefur verið að vinna að útvarpsþáttum um tónlistarmenn sem ekki eru lengur í tísku. „Þá fór ég að hlusta á ýmislegt skemmtilegt frá 7. og 8. áratugnum sem ég hafði annaðhvort ekki heyrt lengi eða hreinlega aldrei hlustað á,“ bætir hann við. Helgi kveðst vera lítið fyrir sígilda tónlist, en njóti þess þó stundum að hlusta á Mozart eða Liszt. „íslensk tónlist hefur heldur ekki náð að heilla mig, en ég skelli þó stundum á fóninn meisturum á borð við Vilhjálm VO- hjálmsson, Bjöm Thoroddsen eða Ingimar Eydal. Kannski er ekki hægt að kaUa mig alætu á tónlist en fæðið er fjölbreytt og ég er alltaf að uppgötva eitthvað nýtt i því gamla.“ -sbs Bækurnar á náttborbinu: Sonja og Hvíta kanínan „Ég er alltaf með margar bækur í takinu en núna er á borðinu hjá mér bókin Umkomulausi drengurinn eftir Dave Pelzer. Ég las bók hans sem kom út í fyrra og heitir Hann var kallaður þetta. Fannst mér sú bók ágæt og ákvað að lesa meira um þennan umkomulausa dreng,“ segir Jóna Hilmarsdóttir læknaritari. Hún segist vera nýbyijuð á bókinni Nafhlausum vegum eftir Einar Má Guðmundsson. „Ég er eiginlega bara rétt byrjuð á þeirri bók en hún lofar góðu,“ segir Jóna. Hún segir bókina Lif og leyndardóma Sonju Zorilla, sem Reynir Traustason skráði, einnig vera nálægt. Það sé áhugaverð bók sem gefi innsýn f sérstæðan menningarkima og líf merkOegrar konu. „Svo er ég með þijár enskar bækur í takinu. Það er alltaf gott að æfa sig í enskunni og gengur vel,“ segir Jóna. „Fyrst skal nefha The Simm- ons eftir John Grisham sem er frábær bók - líka One for my baby eftir Tony Parson. Að síðustu er ég að lesa bók eftir Noru Roberts, The V01a.“ Jóna segir að Halldór Laxness sé alltaf í úppáhaldi hjá sér. „Nú er ég að lesa Sölku Völku í annað eða þriðja skiptið. Ein spennubók verður þó aö fylgja og ég reyni afttaf að ná mér í eina spennubók fyrir helgar. Fór á bókasafnið í dag og fékk mér Hvítu kanínuna eftir Árna Þórarins- son. Bókin lofar ljómandi góðu og ég hlakka tO að glugga í hana næstu kvöld.“ -sbs „Svo er ég meó þijár enskar bækur í takinu. Þaö er alltaf gott aö æfa sig í enskunnl," seglr Jóna Hllmarsdóttlr. Magasín-mynd Slguröur Jökull Nicole Kidman leikur í The Hours: Á hátindi ferilsins Þó svo að margir hafi kynnst henni sem frú Tom Cruise verður ekki hjá því komist að hún stendur flestum öðrum leikkonum heimsins framar um þessar mundir. Þó svo að skilnaðurinn við sykurpúðann Cru- ise árið 2001 hafl vakið mikið umtal virðist svo sem hann hafi ekkert gert henni nema gott, enda hefur hver stórmyndin fylgt annarri síðan þá. Fyrir þá nýjustu, The Hours, hefur hún verið tilnefnd tO óskarsverð- launanna og er ekki ólíklegt að í þetta sinn fái hún að taka styttuna heim með sér. í The Hours leikur Kidman breska rithöfundinn Virginiu Woolf sem var uppi fyrri hluta 20. aldarinnar. Sag- an er nokkuð sérstæð, en henni er skipt í þrjá hluta sem áftir tengjast sín á mOli þrátt fyrir að eiga sér stað á mismunandi tíma. Aftar sögurnar gerast yfir einn dag, en í einni sög- unni leikur Julianne Moore ófríska húsmóður á árinu 1951 sem er að undirbúa afmælisveislu fyrir eigin- mann sinn. Hún getur þó ekki slitið sig frá bók einni sem hún er að lesa, Mrs. Dalloway eftir fyrrnefnda Woolf. Árið 2001 er Clarissa Vaughn, leikin af Meryl Streep, að undirbúa veislu fyrir vin sinn, rithöfund sem er að deyja úr eyðni. Þá er fylgst með sjálfri Woolf árið 1929 þegar hún skrifar söguna, undir ströngu eftir- liti lækna og fjölskyldumeðlima. Þriggja ára í ballett Nicole Kidman fæddist 20. júní árið 1967 í Honolulu á Hawaii í Bandaríkjunum. Hún á ástralska for- eldra og bjó að mestu á uppvaxtarár- um sínum þar en hún er þó með tvö- falt ríkisfang, ástralskt og banda- rískt. Strax þegar Nicole var þriggja ára gömul hóf hún að æfa ballett og átta ára gömul lagöi hún stund á lát- bragðsleik. Hún skipti yfir í leiklist 10 ára gömul en hennar fyrsta hlut- verk á leiksviðinu hafði þó komið fjórum árum fyrr. Þar var aðeins um skólasýningu að ræða en greinilegt að þessari stúlku héldu engin bönd og þótti hún óvenju einbeitt svona ung að aldri. Foreldrar hennar voru báðir virkir í þjóðfélagsumræöunni, móðirin Janelle var femínisti og Anthony verkalýðsfulltrúi og voru þau dugleg að ræða mál líðandi stundar við bömin sín yfir kvöld- matnum. Hún skar sig einnig úr vegna hæð- ar sinnar, en snemma aldurs óx hún upp í 180 cm sem hæð hennar er í dag. Hún hafði ekki áhuga á að stunda það sem skólastöllur hennar gerðu í frítíma sínum, heldur varði hún helgunum í Philip Street leik- húsinu þar sem hún fylgdist með og lærði af. Hún vildi verða leikkona og voru fyrirmyndir hennar Jane Fonda, Vanessa Redgrave og um- fram allt Katharine Hepburn. 14 ára gömul var hún farin að vekja athygli á sér vegna leik síns á fjölunum og eftir eina sýninguna fékk hún orð- sendingu frá einum áhorfendanna þar sem henni var hrósað fyrir frammistöðuna og fylgdi með beiðni um að leika í stuttmynd sem var út- skriftarverkefni viðkomandi úr kvikmyndaskóla. Hún varð að hafna því, þar sem tökuáætlunin skaraðist við prófln hennar í skólanum. Það var mikil synd, því téður áhorfandi var Jane Campion, sem síðar meir átti eftir að leikstýra óskarsverð- launamyndinni The Piano. Þær fengu þó loks tækifæri til að starfa saman árið 1996 í Portrait of a Lady. 11 árum of ung Önnur verkefni fylgdu í kjölfarið, meðal annars í sjónvarpi, og var frægðin ekki langt undan. 16 ára gömul lék hún í sinni fyrstu kvik- mynd, Bush Christmas, sem strax vann sér stóran sess í hjörtum Ástr- ala. Fleiri hlutverk fylgdu, aðallega í sjónvarpsmyndum og -þáttum og var hún þá orðin þó nokkuð þekkt í sinu heimalandi. Hún tók að sér hlutverk í sjón- varpsþáttaröð um þátttöku Ástrala í Víetnam-stríðinu og þótti hún þar sýna framúrskarandi leik. Handrits- höfundur þáttaraðarinnar, Terry Hayes, var svo hrifinn að hann sá þarna tækifæri til að demba sér í annað verkefni, að skrifa handrit byggt á skáldsögu, Dead Calm, og með Nicole í huga fyrir aðalhlut- verkið. Leikstjórinn Orson Welles hafði reyndar 20 árum áður hafið að gera mynd byggða á umræddri sögu en þar sem aðalleikari myndarinnar, Laurence Harvey, dó skömmu eftir að tökur hófust var hætt við gerð myndarinnar. Nlcole Kidman sem Virginia Woolf I The Hours.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.