Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2003, Page 27
51
MÁNUDAGUR 10. MARS 2003
DV Tilvera
&
Sunshine State ★★★* xSÍf)
Mannlíf í Ffórída
Flórída er oft kallað Sól-
skinsríkið og vísar John
Sayles í nýjustu kvik-
mynd sinni í þetta gælu-
nafn. Fer hann þar i
saumana á mannlífmu í
smábæ þar sem máttur
peninganna er að rústa bæjarlífið. í
bænum eru blikur á lofti og bygg-
ingaverktakar eru að taka eignar-
námi ströndina og að sjálfsögðu á að
byggja ferðamannaparadís með golf-
velli og öllu tilheyrandi. í gegnum
tvær konur sem koma á heimaslóðir
eftn- nokkurra ára fjarveru kynn-
umst við íbúum sem flestir eiga ein-
hver leyndarmál í fórum sínum. Aflt
eru þetta persónur sem við höfum
áður séð hjá Sayles.
Uppbyggmg myndarinnar er sér-
lega vel heppnuð. Við hefjum leikinn
á golfvelli (hvað annað) þar sem fjór-
ir eldri kylfmgar ræða málin meðan
þeir spila. Við erum síðan á milli at-
riða að fá skondin samtöl fjórmenn-
inganna meðan þeir eru að leik. Gef-
ur þetta myndinni skemmtilega sér-
stöðu og má segja að fjórmenning-
amir gegni sama hlutverki og grísk-
ur kór.
John Sayles hefúr í tuttugu ár verið
að gera kvikmyndir í Hollywood,
aldrei samt verið á mála hjá stóru fyr-
irtækjunum. Hann hefur varið sjálf-
stæði sitt í kvikmyndum á borð við
Eight Men Out, City of Hope, The
Secret of Ronan Irish, Lone Star, Men
with Guns og Limbo. Allt úrvalsmynd-
ir sem bera sterk höfúndareinkenni
Sayles, sem er margbreytileiki mann-
lífsinsins og réttur smáborgarans.
Sunshine State fer tvímælalaust í
hóp betri mynda hans þar sem
þröngt er fyrir og synd að hún skyldi
ekki vera sýnd í kvikmyndahúsi hér
á landi. -HK
Utgefandi: Skífan. Gefin Ot á myndbandi og
DVD. Leikstjóri: John Sayles. Bandaríkin,
2002. Lengd: 140 mín. Leyfð öllum aldurs-
hópum. Leikarar: Angela Bassett, Timothy
Hutton, Edie Falco, Jane Alexander og Mary
Steenburgen.
Race to Space ★★
Apaspil
Fyrsti geimfari
I Bandaríkjanna var ap-
inn Ham. Þetta er stað-
reynd sem fjölskyldu-
myndin Race to Space
byggir á. Það að api fór
I fýrstur út í geiminn og
ein persónan heitir Alan Shepard er
það eina sem er sannsögulegt í
myndinni. Aðalpersónan er hinn tólf
ára gamli Wilhelm. Hann er sonur
fremsta eldflaugasmiðs Bandaríkj-
anna, hins þýska Wilhelms von
Hubers. Wilhelm yngri, sem telur sig
bandarískan og vill láta kalla sig
Bill, hefur ekki náö sér síðan hann
missti móður sína. Honum gengur
illa í skóla og faðir hans bætir ekki
úr með því að láta son sinn gangast
undir heraga. Dag einn laumast Bill
litli inn í skýli þar sem verið er að
þjálfa apa. Þar hittir hann fyrir
vandræðaapann Mac sem enginn
ræður við. Þegar þeir líta hvor ann-
an augum, Bill og Mac, þá er eins og
tvær sálir veröi að einni. Þegar ljóst
er að aðeins Bill getur ráðið við Mac,
sem er gáfaðastur apanna, er hann
fenginn til að vera með í þjálfuninni,
þvert ofan í vilja fóður síns.
Race to Space er létt skemmtun
fyrir fjölskylduna. Hin ungi Alex D.
Linz leikur Bill ágætlega. Hann hef-
ur þó ekkert í Mac að gera sem auö-
veldlega stelur senunni hvað eftir
annað. James Woods leikur föðurinn
og hefur útlitið með sér í hlutverk
þýsks vísindamanns en gerir heldur
mikið úr framburðinum. -HK
Útgefandi: Myndform. Gefin út á myndbandi
og DVD. Leikstjóri: Sean McNamara. Banda-
rikin, 2001. Lengd: 104 mín. Leyfð öllum ald-
urshópum. Leikarar: James Woods, Alex D.
Linz, Annabeth Gish, William Atherton og Willi-
am Devine.
Banff-fjallamyndahátíðin í dag og á morgun:
Ofurhugar og spennufíhlap
Allir sem hafa áhuga á fjalla-
mennsku og sporti tengdu úti-
vist ættu að hittast á Banff -
fjallamyndahátíðinni sem verð-
ur í Smárabíói í kvöld og á
morgun. Þar verður sýnt ísklif-
ur, klettaklifur, mixað klifur,
fjallamennska, kajakar, snjóflóð,
BASE jump o.fl. o.fl.
ÍSALP hefur tekið við undir-
búningi og framkvæmd hátíðar-
innar og er þetta liður í því að
fylgja eftir meginmarkmiði
klúbbsins sem er efling fjalla-
mennsku á íslandi. Valið hefur
verið úrval mynda sem þykja
hafa skarað fram úr hver á sínu
sviði og víst er að allir eiga eft-
Crovue hittin
afa konuefnisins
Villileikarinn Russell Crowe frá
Nýja-Sjálandi leigði sér þyrlu á
dögunum til að fljúga til fundar við
ömmu og afa tilvonandi eiginkonu
sinnar, Danielle Spencer.
Crowe flaug með áætlunarvél til
Parísar þar sem hann hoppaði um
borð í þyrluna sem flutti hann til
Rufforth-flugvallar. Síðasta spölinn
fór hann í bíl frænda kærustunnar.
Ástæða heimsóknarinnar er sú
að gömlu hjónin komast ekki til
Fídjieyja þar sem skötuhjúin ætla
að ganga í það heilaga.
Frændi ber leikaranum vel sög-
una og segir hann vera alveg ein-
staklega ljúfan mann. Crowe er
hins vegar vel þekktur fyrir að
vera slagsmálahundur.
C3
7. bekkurRG í Háteigsskóla í heimsókn á DV
Anh The Duong, Arnar Már Gunnarsson, Bjarni Jóhannsson, Brynja Sveins-
son, Brynjólfur Gauti Jónsson, Duy Hoang Duong, Einar Jimma, Hanna Karen
Woub, Henríetta Otradóttir, Margrét Liv Árnadóttir, Mirra Sjöfn Jónsdóttir,
Stefán Tumi Þrastarson, Svavar Órn Höskuldsson, Ylfa Garpsdóttir. Kennari
er Ragnheiður Guömundsdóttir
Jehovah’s Wetness
Slegist í för meö fremstu ræöurum
heimsins viö erfiöar aðstæöur.
Blen heitir
eilífðri tryggð
Lesbíska sjónvarpsstjarnan Ellen
DeGeneres gifti sig með leynd um
daginn og við það tækifæri hét hún
kærustunni, Alexöndru Hedison, ei-
líföri tryggð. Alexandra er einnig
leilckona. Þær stöllur hafa verið sam-
an í tvö ár, eða svo.
Bandaríska æsitímaritið Star segir
frá því að þær Ellen og Alexandra
geri enga tilraun til að fela hringana
sem þær skiptust á við athöfnina.
Heimildamenn herma að Ellen sé
mjög lukkuleg með ráðahaginn og að
það hafi verið hún sem bað kærust-
unnar.
Ellen tók saman viö Alexöndru
fljótlega eftir að upp úr frægu sam-
bandi hennar og Ann Heche slitnaði.
ir að skemmta sér konunglega.
Sumar myndirnar eru hæglætis-
myndir og geta menn hallað sér
aftur I þægilegum sætum
Smárabíós og maulað á poppinu
sínu. Aðrar eru spennupakkar
svo að vissara er að hafa með-
ferðis helstu tryggingatól og
festa sig vel í stólana.
Til viðbótar við þetta verður
sýnd 15 mínútna mynd frá
ísklifurfestivali ÍSALP 2000 í Ör-
æfasveitinni. Einnig verður
mynd frá skíðaferð nokkurra er-
lendra ofurhuga á Tröllaskag-
ann fyrir ári. -HK
White Trax
Hjólaö á einhjóli niöur haröfenni.
, MYND BJÖRN G. ARNARSON
Ur Skaftfellingi
Feröafólk skoöar nýendurbyggöa rafstöö í Skaftafelli.
Sírnts
4656
Dalvegur 16a • 201 Kópavogur • Pósthólf 564 • Slmi: 544 4656
Fax: 544 4657 • Netfang: mhg@mhg.is
5MJÚKEÐJUR
Fyrir flestar gerðir vinnuvéla og vörubifreiða
Skaftfellingur kominn út:
Samtími
og sagnfræði
„Við erum að dreifa 15. árgangi af
héraösritinu Skaftfellingi til áskrif-
enda og það sem heyrir til nýjunga
hjá okkur er að stærri hluti efhis er
úr samtímanum en áður og hluti
ritsins er litprentaður," segir Sig-
urður Hannesson, starfsmaður
Menningarstofnunar Austur-Skafta-
feflssýslu. Hann segir SkaftfeUing
fjölbreyttan og nefhir greinar um
Þórbergssetur, Vatnajökulsþjóðgarð
og háskólasetur á Homafirði sem
dæmi um áhugavert samtímaefni.
Til sagnfræði teljist greinar um
hrakninga í Homafjarðarfljótum og
Skarðsfirði, mannvirki á Skeiðarár-
sandi og gömlu rafstöðina í Skafta-
felh. Zophonías Torfason er ritstjóri
Skaftfellings og Prentsmiðja Homa-
fjarðar sá um umbrot og prentun.
-Gun.
Aðalfundur 2003
AðalfundurTryggingamiðstöðvarinnar verður haldinn miðvikudaginn
19. mars 2003 í Sunnusal, Radisson SAS Saga Hótel, Reykjavík og hefst kl. 16:00.
DAGSKRÁ
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Reikningar félagsins og tillögur liggja frammi á aðalskrifstofu hluthöfum til sýnis
en verða síðan afhent ásamt fundargögnum til hluthafa á fundarstað.
(g) TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN