Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2003, Qupperneq 32
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMIIMN
SEM
ALDREI
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um
frétt, hringdu þá í sima 550 5555. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö
í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum
við fréttaskotum allan sólarhringinn.
sefur 550 55 55
KútKhvnísicJcJ 03
Gefum betri heilsu því nudd gerir fólk hraustara
og veitir betri líðan. t>ess vegna býður Kínverska
nuddstofan í Hamraborg falleg gjafalcort.
Það er tilvalið að gefa vinum og ættingjum
sínum betri líðan í gjöf.
Sanngjarnt verð og vönduð þjónusta f-yrsta
flolclcs fagmanna.
, >*
„Eg þurfti að rífa af mér neglurnar á
laugardagsmorgun áður en ég fór suður
að keppa í glímunni," segir Inga Gerða
Pétursdóttir, 18 ára Mývetningur, sem
vann það einstæða afrek um helgina að
hampa titlinum Ungfrú Norðurland á
föstudagskvöld og síðan sigri í
Sveitaglímu íslands sem fram fór á Laug-
arvatni á laugardag.
„Þetta var ansi viðburðarík helgi og
það var afskaplega gaman að taka þátt í
fegurðarsamkeppninni - skemmtilegra
en ég bjóst við. Fegurðarkeppnin var ný
fyrir mér en ég hef margoft keppt í
glímu."
Inga Gerða stundar nám á þriðja ári á
málabraut Menntaskólans á Akureyri.
Hún segir síðustu vikur hafa verið mjög
annasamar en auk þess að æfa glímuna
stíft þurfti hún að undirbúa sig fyrir feg-
urðarsamkeppnina.
„Ég er búin að æfa glímu í ellefu ár og
hef haft mjög gaman af. Eg æfi hjá Hér-
aðsambandi Þingeyinga sem er fámennt
lið en mjög góðmennt," segir Inga
Gerða.
Fram undan er undirbúningur fyrir
keppnina Ungfrú ísland. „Ég tek þessu
með ró og einbeiti mér þessa dagana að
skólanum," segir Inga Gerða
Pétursdóttir, fegurðar- og
glímudrottning.
-aþ/æd
Ingibjörg Sólrún:
Fjölþrepakerfi
raunhæft
Ingibjörg Söl-
rún Gísladóttir
vísar því á bug að
fjölþrepaskatt-
kerfi feli í sér
kerfi eftirá-
greiddra skatta.
„Ég vísa því al-
gerlega á bug og
finnst fáránlegt hvað mönnum
hefur haldist uppi að tala um kerf-
ið með þeim hætti. Við erum eitt
af fáum rikjum OECD sem er ekki
með fjölþrepaskattkerfi og alls
staðar annars staðar tekst mönn-
um að framkvæma þetta í stað-
greiðslu. Því skyldi það ekki
takast hér? Það þýöir einfaldlega
að menn setja þessar forsendur
inn í launabókhald í fyrirtækjum
og þá eru skattar staðgreiddir."
Hugmyndin um fjölþrepaskatt-
kerfi, sem Ingibjörg Sólrún viðr-
aði dagana fyrir vorþing Samfylk-
ingarinnar, rataði ekki inn í kosn-
ingaáherslur flokksins á vorþing-
inu en hún segir þessa leið koma
til greina við heildarendurskoðun
á skattkerfinu sem flokkurinn
boðar. -ÓTG
UMFJÖLLUN BLS. 8-9
Söguleg Formúla
Aðeins sjö bílar voru eftir í
ökuhæfu ástandi þegar Formúlu
1 keppnin í Brasilíu var stöðvuð
eftir aðeins 54 hringi. Kimi
Raikkonen var dæmdur sigurinn
en þegar keppni var stöövuð var
Fischicella fremstur á Jordan-bíl.
Þetta er annar sigur Raikkonens
í röð en hann sigraði síðast í
Malasíu.
DV-SPORT BLS. 24-25
Broddi Þorsteinsson vann
sinn 41. titil á Meistaramóti
íslands i badminton um helgina.
Broddi vann í tvíliðaleik ásamt
félaga sínum Helga Jóhannes-
syni. Helgi var að vinna sinn
fyrsta titil.
DV-SPORT BLS. 20-21
•:<&t
<
Eru rimlagardínurnar óhreinar?
Fyrirtæki - stofnanir - heimili
Hreinsum rimla,-, viðar-, strimla-
og pliseruð gluggatjöld.
Uf
pj^ja Einnig sólarfiimur.
‘teékmljremsimm
Sólheimar 35 • Simi: 533 3434 . G5M: (97 3434
Sími 897-3634
dgunnarsson@simnet.is
Sjálfvírk slökkvitæki
fyrir sjónvörp
Sími 517-2121
H. Blöndol ehf.
Audbrekku 2 • Kúpavogi
Innflutnlngur og sala - www.hblondal.com
EINN EINN TVEIR
NEYÐARLlNAN
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRAUÐ j