Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2003, Blaðsíða 21
Laugardagur 12. APRÍL2003
21
I Bílar
Véladeíld Ingvars Helgasonar hf. 10 ára:
Nú heita þær Terex!
Innflutningur hvers konar iönað-
arvéla og jarövinnslutækja hefur
farið vaxandi ár frá ári allt frá því
rekstur Véladeildar Ingvars Helga-
sonar hf. hófst fyrir um áratug. Það
var í ársbyrjun 1993 sem Ingvar
Helgason hf. keypti innflutningsfyr-
irtækið Jötun af Sambandi ís-
lenskra samvinnufélaga sem þá var
og hét og með því skapaðist grunn-
ur fyrir stofhun sérstakrar véla-
deildar hjá fyrirtækinu. Tók deildin
viö sölu þeirra tækja sem fyrir voru
innan fyrirtækisins en einnig þeirra
fjölbreyttu tækja fyrir landbúnað og
verktakastarfsemi sem véladeild
Jötuns hafði haft umboð fyrir. Þau
tæki sem véladeild Ingvars Helga-
sonar hefur upp á að bjóða eru sér-
hönnuð með þarfír markaðarins í
huga, enda hafa erlendir hönnuðir
pftar en ekki leitað í reynslubanka
íslendinga vegna sérstakra að-
stæðna hér á landi og telja þeir ís-
lenska markaðinn einn þann kröfu-
harðasta í heiminum. Afgreiðslu-
frestur á tækjum er almennt um 6
vikur.
Meðal tækja sem þjónað hafa eig-
endum sínum hér á landi má neftia
brotafleyga frá Euroram, jarðvinnu-
tæki frá Furukawa, sturtuvagna og
valtara frá Benford og traktorsgröf-
ur frá Fermec en þau skærgulu jarð-
vinnslutæki er víða að fínna hjá
verktökum og þeim sem þurfa að
rótast í fósturjörðinni. Nú eru þessi
tæki meira og minna seld undir
heitinu Terex og verða markaðssett
þannig eftirleiðis.
Að sögn Ingjalds H. Ragnarsson-
ar, sölumanns hjá véladeild Ingvars
Helgasonar, býður fyrirtækið mjög
breiða línu í Terex-tækjunum, ekki
aðeins traktorsgröfumar sem allir
þekkja undir heitinu Fermec heldur
m.a. sturtuvagna, valtara, lyftara,
minigröfur, hjólagröfur og ámokst-
ursvélar.
„Hvaö traktorsgröfumar varðar
er um að ræða sömu gæðatækin og
áður voru seld undir merkinu
Fermec en framleiðandinn ákvað
fyrir skömmu að eftirleiðis yrði boð-
ið upp á breiða línu undir Terex-
merkinu. Öll þessi tæki eru sérútbú-
in miðað við þarfir hvers og eins og
þessi nýja framleiðslulína býður
miklu meiri breidd en áður hefur
þekkst. Minigröfumar sem við bjóð-
um era allt frá 1,5 tonnum upp í 7,5
tonn. Þetta er afskaplega handhægt
tæki sem gott er að nota við
garðastandsetningu, skurðgröft og
önnur smáverk þar sem athafna-
rými er af skomum skammti. Vélin
er þó nothæf til flókinna verka líka
því hún getur grafið allt að 4,3
metra og unnið álíka hátt upp fyrir
sig. Hjólagrafan frá Terex er boðin í
þremur gerðum. Þær era frá 5,9
tonnum upp í 9,5 tonn að þyngd og
era afar öflugar, með mikla mokst-
ursgetu. Nýlega seldum við stóra vél
sem getur grafið á 5. metra niður og
er því mjög hentug fyrir stærri
mokstursverkefni. Þessi vél nær allt
að 20 km hraða í akstri og því er
auðvelt að flytja hana milli staða,“
segir Ingjaldur H. Ragnarsson.
Sjálfkeyrandi sturtuvagnar
Terex hefur einnig til sölu sjálf-
keyrandi sturtuvagna sem áður
hétu Benford en þeir era ýmist tví-
hjóladrifhir eða með drif á öllum
hjólum. Þeir vega óhlaðnir frá 835
kg upp í tæplega 5 tonn og era með
1 til 9 tonna burðargetu. Þeir henta
því minni verktökum sem t.d. þurfa
að flytja til efni á byggingarstað en
einnig koma þeir að góðum notum
við stærri mannvirkjagerð, t.d.
virkjunarframkvæmdir. Valtaram-
ir frá Benford heita nú einnig Ter-
Terex-traktorsgröfurnar eru ín.a. ineð tæplega 100 hestafla túrbóinótor
og lilaðnar ölluin þeim aukabúnaði og þæginduin sein hægt er að hugsa
sér. Þessi vél er með þrenns konar stýrisbúnað, þ.e. hefðbundna fram-
hjólastýringu, liðstýringu og krabbastýringu. Boðið er upp á nokkrar
gerðir en mest áhersla er lögð á 7,8 tonna vélina.
ex. Þeir eru frá 400 kg að þyngd upp stjómar tækinu staðið álengdar
í 13 tonn, era ýmist handstýrðir eða með fjarstýringuna. Stærstu valtar-
fjarstýrðir, en þá getur sá sem amir frá Terex era mjög fullkomn-
Dreifarinn frá Bögballe
og traktorinn frá Fendt
Ingvar Helgason hf. þjónustar
mörg sveitarfélög landsins hvað
varðar tæki og búnaö vegna garð-
yrkjustarfa að sumri til eða hreins-
unar og viðhalds að vetrarlagi.
Þessi tæki era sérstaklega hönnuð
með aöstæður í borgarsamfélaginu
að leiðarljósi, era fyrirferðarlítil og
handhæg til notkunar í þéttbýli.
Meðal þess sem véladeild Ingv-
ars Helgasonar býður upp á er hin
þekkta þýska Fendt dráttarvél sem
víða er í notkun hérlendis. Þessi
trausta vél er í sifelldri þróun og
hefur hún reynst vel við slátt og
hirðingu, kerradrátt, snjómokstur
á gangstéttum eða skurðgröft þar
sem ekki er hægt að koma að stór-
virkum tækjum.
Annað tæki, sem sveitarfélög og
bændur hafa keypt í vaxandi mæli,
er áburðardreifarinn frá danska
fyrirtækinu Bögballe en hönnun
hans og dreifigeta hefur vakið
verðskuldaða athygli. Hann er bú-
inn hinu svokaflaða Trend-kerfi
sem tryggir hámákvæma dreif-
ingu út á jaðra túna og akra, en
ónákvæm dreifing á jaðrana er
sóun á áburði og getur komið nið-
ur á uppskera. Bögballe dreifir
ekki bara áburði heldur er einnig
boðið upp á tæki sem dreifa sandi
og salti á gangstéttar og götur í
þéttbýli. Dreifarinn getur borið allt
að 650 lítra í einni ferð. -GG
ir, með innbyggðum þjöppumæli en
þá er þjöppunin mæld jafiióðum
þangað til fyrir fram ákveðnum
kröfum er náð.
Tæki fyrir niðurrifsöflin
Ingvar Helgason býður einnig
klippur og vökvafleyga frá Euroram
sem era settir framan á gröfur af öll-
um stærðum og gerðum. Þessi tæki
eru til margra hluta nytsamleg en
era sérstaklega hönnuð fyrir þá sem
stunda niðurrif mannvirkja, þurfa
að fleyga berg eða brjóta upp fleti,
t.d. gangstéttar, malbik eða stein-
steypu. -GG
Er þetta
þinn gullmoli?
Bestu notuðu bílarnir okkar
eru gullmolar sem þú færð
á frábærum kjörum fram á laugardag.
VW Polo 1.4
f. skr.d. 12.10.1999, ek. 35 þús. km, beinskiptur.
Verð 920.000
Raönúmer 13628
m
"TMM'r-N
BÍLAÞING HEKLU
Númer eitt í notuðum bílum!
Laugavegi 170-174 • Sími 590 5000 • www.bilathing.is • bilathing@hekla.is
Ertþú leið(ur) á
að skipta um perur?
DÍÓÐUUÓSIN FRÁ OKKUR ERU:
ORKUSPARANDI
ÓBRJÓTANDI
10.000 KLST. ÁBYRGÐ
PASSA FYRIR ALLAR
GERÐIR VÖRU- OG
FLUTNINGABÍLA
fffVfflSLUN
Klettagarðar 11,104 Reykjavík
Sími 568 1580 • Fax 568 0844
Ljósinfrá okkur geta lýst leið þína lengi lengi...
TRUCK - LITE
Ljósasamlokurnar frá okkur eru:
ÓBRJÓTANDI
HÖGGÞOLNAR
ENDASTOG ENDAST
K