Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2003, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2003, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 5. JÚNl 2003 21 M agasm Hestaþáttur í DV-Magasíni: góö hross í húsunum og hún neitar því ekki. Hún segist vera með nokkra mjög góða gripi en ekki gengur þetta nú allt áfallalaust því að hún varð fyrir því óláni í vetur að tapa 1. verðlauna hryssu og það er mikið áfall. Það und- irstrikar hvað það eru margar hliðar á hestamennskunni. Hraðinn orðinn of mikiil Freyja saknar svo- lítið gamalla tíma. Þegar menn gáfu sér tíma til að kíkja í hesthúsin hver hjá öðrum og skoða hesta. Nú eru allir að flýta sér og jafnvel þó fólk komi í hesthúsið gef- ur það sér ekki tíma til að skoða hestana. Ég hvet áhugasama hestakaupendur til að gefa sér tíma til að skoða hvað Freyja býður upp á. Ég hef heyrt að þau séu góð hrossin sem hún tem- Freyja Hilmarsdóttir er fædd og upp- alin í Reykjavík. Hún fékk sem ung- lingur ódrepandi áhuga á hestum og segist hafa bókstaflega dregist að þeim. Hún fór í sveit og keypti sér hest fyr- ir fermingarpeningana eins og svo margir hafa gert. Fljótlega fór hún að temja fyrir aðra. Þegar hún lauk grunnskóla ákvað hún að starfa við hestamennskuna á meðan hún væri að velta fyrir sér hvað hún vildi verða og hún er ennþá að hugsa sig um! Freyja hefur komið víða við. Hún var m.a. á Kirkjubæ í Rangárvallasýslu og síðan bjó hún í Svarfaðardal í nokk- ur ár. Einnig vann hún við tamningar á Stóra-Hofi. Fyrir 16 árum keypti hún hins vegar Votmúla sem er býli nálægt Selfossi. Þar er hún með góða aðstöðu og er að byggja reiðskemmu sem hún mun nota við kennslu og tamningar. Tamningar og kennsla Freyja er með tugi hesta sem hún ræktar sjálf og síðan er hún með hesta fyrir aðra. Hún hefur mestan áhuga á kynbótum og sjáifum tamningunum og kennslu. Hún vill tengja kennslu meira við tamningar. Best sé að fólk geti fylgst með í tamningaferlinu. Fólk kynnist betur hestinum og viti hvað hann kann og getur. Freyja segir mikilvægt fyrir fólk sem er að byrja að það kaupi sér vel tamda hesta, skoði þá vel og prufi mikið. Kynnist hestinum aðeins. Einnig telur hún mikilvægt að fólk fari á námskeið. Markaðurinn hefur verið erfiðari eft- ir að veikin kom upp um árið og sala til Þýskalands hefur hrunið en á móti hef- ur aukist salan innanlands og Freyja segir að það sé aukning í hestamennsk- unni héma. Hún segist alfarið stefha að því að vera frekar með færri en betri hross. Það sé alveg vonlaust að hagnast á því að selja venjulega reiðhesta á með- an verðið er ekki hærra en það er. Kostnaðurinn við að ala hestinn upp og temja nóg sé einfaldlega svo mikill að þeir verði að kosta meira en þeir gera í dag svo hægt sé að rækta þá líka. Sérverslun golfarans - er flutt að Strandgötu 33 Albatros, sérverslun golfarans, hefur nú flutt sig um set yfir Strandgötuna í glæsilegt húsnæði sem áður hýsti Landsbankann. Á nýja staðnum er okkur unnt að stórauka vöruúrvalið og veita mun betri þjónustu en áður. Nú er t.a.m. hægt að prófa kylfumar í sérstökum æfingabás og að sjálfsögðu er púttbraut á staðnum til að auðvelda valið á rétta púttemum. Þessa dagana emm við að taka upp mikið magn af nýjum <f CUvtlMd Srdcov N I K E ▼ G O L F EEOUJiEðon UPHOENIX gDEXTERGOLF «. * é *■ Hugsjónastarf Ræktunin er henni hugleikin. Áhug- inn er mikill og hreinlega hugsjón. Þaö að rækta hest segir Freyja i raun ákveðna sköpun. Ferliö er langt og það tekur kannski 7-8 ár að rækta fulltam- inn, fullorðinn gæðing. Halda þarf í alhliöa gæöinginn Freyja segir að það sem gerir þetta svo skemmtilegt sé hvað flóran er fjöl- breytt. Það eru ekki allir að leita að því sama. Við eigum nóg af reiðhestum, keppnishestum, tölturum og skeiðhest- um. Hún segir þó að við verðum að passa að halda betur í alhliða hestinn. Það er nóg til af góðum tölturum en ekki eins mikið af góðum skeiðhestum. Það er þó ekki stórhætta á ferðum en við verðum að passa betur upp á þá. Henni finnst góður alhliða hestur það besta fyrir sig. Góður alhliða hestur með gott klárhestabrokk hugnast henni. Passa verður líka vei upp á geðslagið og viljann í ræktuninni. Ég spyr Freyju hvort hún eigi ekki 000 • Albatros er nýr söluaöili fyrir Callaway Golf ■ Vorum að taka upp nýjar vörur frá □eveland, Phoenix og Dexter BYRJENDASETT Á GÓBU VERBI golfvömm s.s. golfskó frá Phoenix og Dexter, golfkylfur og poka frá Callaway, Cleveland og Tour Edge og fjölmargt annað. Að auki bjóðum við vandaða byijendapakka á góðu verði. Kíktu inn íAlbatros - það er vel þess virði!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.