Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2003, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2003, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 12. JÚU2003 DVBlLAR 5 Samvinna Renault og Samsung Renault-bílaframleiðandinn og Samsung Motors Corporation frá Suður-Kóreu skrifuðu á mánudaginn undir samstarfs- samning um þróun og fram- leiðslu bíla í framtíðinni. Með þessum samningi fær Sam- sung tækifæri til að nýta þekk- ingu Renault í bílaframleiðslu og eykur möguleika sína til út- flutnings. Renault fær líka betri nálgun við markaðinn í Suð- austur-Asíu sem er í miklum blóma um þessar mundir og möguleika á að selja bíla sína þar undir merkjum Samsung. Samsung framleiðir nú tvær gerðir bíla í samstarfi við Niss- an en næsti bíll, sem líklega verður vel búinn fjölskyldubíll, er væntanlegur á næsta ári. Renault vill Volvo Samkvæmt frétt frá Renault er áhugi þar á bæ á að kaupa Vol- vo bílaframleiðandann, það er að segja ef Ford vill selja. Louis Schweitzer, formaður stjórnar Renault, sagði að verðið yrði að vera rétt en engar viðræður hafa átt sér stað enn þá. Þrátt fyrir peningavandræði Ford hafa forsvarsmenn Ford sagt að Volvo sé ekki til sölu. Renault hafði á árum áður mjög gott og náið samstarf við Volvo. Sex stjörnur EuroNCAP Standa mun til að bæta sjöttu stjörnunni við árekstra- og ör- yggispróf EuroNCAP á næst- unni. Á þá að leggja mat á fleiri þætti eins og bremsur, stöðugleika, Ijósabúnað og fleira. Þegar er búið að velja þá fimm bíla sem munu fyrstir gangast undir þessi strangari próf EuroNCAP sem notast verður við í framtíðinni. CADILLAC Hefur lengi verið merki um gæði amerískra bíla. Evrópsk merki standa illa Samkvæmt nýútkominni árlegri rannsókn JD Power í Bandarikjun- um á áreiðanleika þriggja ára gam- alla bíla, kemur í ljós að evrópskir bflar hafa tapað forskoti sínu á am- eríska og japanskir bflar tryggja enn frekar stöðu sína sem áreiðanleg- ustu bflarnir. Rannsóknin byggir á svörum 55.000 eigenda bfla af 2000-módelinu og reynslu þeirra af bflnum sfðustu þrjú ár. Japanskir leiða Þetta er mikill viðsnúningur frá því árið 1990 þegar Mercedes-Benz þóttu gæðalegustu bflarnir. Það merki er nú neðarlega á lista ásamt merkjum eins og Volvo og Audi. Toyota er með níu bfla í efsta sæti í einhverjum flokki og hefur foryst- una þar. Ford og GM koma næstir með þrjá bfla hver í efsta sæti. Honda og Porsche ná líka efsta sæt- inu einu sinni hvor. Lexus þykir mesta gæðamerkið níunda árið í röð en Porsche þykir besti ffam- leiðandinn. önnur merki sem stóðu sig vel í rannsókninni voru Subaru og GMC. Ending skiptir máli Þau vandamál sem koma oftar upp eftir því sem bfllinn eldist eru örara slit á bremsum, dempurum og fjöðrunarhlutum. Einnig ber nokkuð á leka frá hinum ýmsu vökvum bflsins auk lakks sem vill flagna. Ending bfla virðist hafa mikil áhrif á kaupendur bfla í Bandarfkjunum en 52% segja það mikilvægasta þáttinn þegar nýr bfll er keyptur. Við kaup á notuðum bflum segja 42% kaupenda frekar kaupa notaðan ef þeir geta treyst því að bíllinn sé eins og nýr. njall@dv.is FH16: Nýjasta viðbót Volvo er 610 hestöfl, hvorki meira né minna. Öflugasti Volvo vörubíllinn Volvo hefur sett á markað öflugri vörubfl en nokkru sinni fyrr í nýrri útgáfu FH16. Vélin í þeim bfl er 16 lítrar og skilar hvorki meira né minna en 610 hestöflum. FH-línan var fyrst kynnt árið 2001 en nýi bfll- inn inniheldur tækni sem var ekki fyrir hendi í bflunum þá. Má þar nefna sjálfvirkan skriðstilli sem heldur alltaf sama bili í næsta bfl fyrir framan. Komin er fullkomin ESP-skrikvöm í hann sem minnkar til muna hættu á skriki afturhjól- anna. Loks er nýtt kerfi, HSA, sem auðveldar ökumanni að taka af stað í brekku. Nýja 610 hestafla vél- in er sex strokka og hefur mikið tog, 2800 Newtonmetra, við 950-1500 sn. mín. lW’i Joppurjnn Hjólafestingar á dráttarkúlu Stilling www.stilllng.is UBV DALSHRAUN113 - SlMI 555 1019 EYRARVEGI 29 • SlMI 483 1800 SKEIFUNNI 11 • SÍMI 520 8000 SMIÐJUVEGI 68 • SlMI 544 8800 BlLDSHÖFÐA 16 ■ SlMI 577 1300 tómstundir ingar 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.