Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2003, Blaðsíða 7
6 DVBlLAR LAUGARDAGUR12.JÚLÍ2003
+
LAUGARDAGUR 12.JÚLÍ2003 DVBÍLAR 7
*
REYNSLUAKSTUR
Njáll Gunnlaugsson
njall&dv.is
Sem fjölnotabíll kemur
þessi bíll sérlega vel út
Reynsluakstur nr. 778
RENAULT MÉGANE SCENIC II 1,9 DYNAMIQUE
Vél: 1,9 lítra dlsllvél
Rúmtak: 1870 rúmsentímetrar
Ventlan 8
Þjöppun: 18,3:1
Girkassi: Sex gíra, beinskiptur
UNDIRVAGN:
Fjöðrun ffaman: MacPherson
FJöörun aftan: H-laga vindufjöörun
Bremsur Loftkældir diskar/diskar, ABS, EBD, ESP
Dekkjastærö: 205/60 R16
YTRITÖLUR:
Lengd/breidd/hæð: 4259/1805/1620 mm
Hjólahaf/veghæö: 2685/130 mm
Beygjuradíus: 10,7 metrar
INNRI TÖLUR:
Farþegar m. ökumanni: 5
Fjöldl höfuöpúða/öryggispúöa: 5/6
Farangursrými: 430-1840 lítrar
HAGKVÆMNI:
Eyðslaá 100 km: 5,8 lítrar
Eldsneytisgeymlr. 60 litrar
Ábyrgð/ryövörn: 3/8 ár
Grunnverö: Ekki fyrirliggjandi
Umboð: B&L
Staöalbúnaður: 6 öryggispúðar, Isofix-festingar fyrir
barnabílstól, loftþrýstinemar í hjólbörðum, velti- og að-
dráttarstýri, fjarstýrðar samlæsingar með ræsivörn, hand-
frjálst lykilkort, aksturstölva, rafdrifnir útispeglar, hæðar-
stilling á framsætum, færanlegur miðjustokkur með
armpúðum, gasfyllt HID-lágljós, þokuljós, 16 tomma
álfelgur, hitastýrð miðstöð með loftkælingu, fjarstýrður
geislaspilari og útvarp, skriðstillir með hraðatakmarkara,
sjálfvirk handbremsa________________________________
SAMANBURÐARTÖLUR:
Hestöfl/sn.:
Snúningsvægi/sn.:
Hröðun 0-100 km:
Hámarkshraði:
Eigin þyngd:
Heildarþyngd:
120/4000
300 Nm/2000
12,1 sek.
188 km/klst.
1430 kg
2010 kg
Frísklegur fímm manna fjölnotabíll
Renault kynnti aðra kynslóð
hins vel heppnaða Scenic á
bílasýningunni í Genf í vor. Um
síðustu helgi gafst svo blaða-
mönnum fyrst tækifæri að
reyna bílinn í Stokkhólmi í Sví-
þjóð.
Staðarvalið var vel til fundið á
þessum tíma enda allir Svíar farnir
í sumarfrí og umferðin því lítil.
Eknir voru um 500 kílómetrar við
ýmiss konar aðstæður, jafnvel á
möl stuttan spotta. Einnig voru
fjölnotamöguleikar bílsins nýttir
vel með fjóra á stundum í bflnum
með allt sitt hafurtask.
Hefur alla kosti fjölnotabíls
Scenic II er hluti af Mégane-fjöl-
skyldunni sem nú inniheldur sex
bfla. Útliti hans svipar mikið til
hins sérstaka Mégane II og er hann
eins og teygð og toguð útgáfa af
honum. Heildarsvipurinn kemur
vel út að mati undirritaðs þar sem
þessi köntuðu form henta bflum
með þessu lagi betur. Sem fjöl-
notabfll kemur þessi bfll sérlega
vel út og hefúr alla þá kosti sem
prýða mega slíkan bfl. Hann er
þægilegur í umgengni og innstig
gott í báðar sætaraðir. Utsýni er
gott úr honum og plássið einnig.
Athygli vekur að allir mælar eru
fyrir miðju í ljósaborði, svipað og í
stærri fjölnotabflnum Espace. Ekki
truflaði það við aksturinn en þó
var frekar langt að teygja sig í leið-
sögukerfið fyrir vikið. Allt annað
var vel innan seilingar og vel fyrir
komið.
Þægilegur innandyra
Bfllinn var búinn skriðstilli sem
einnig var með innbyggðum
hraðatakmarkara þannig að hægt
var að velja sinn hámarkshraða á
einfaldan hátt. Gírstöng er fyrir
miðju mælaborði og ekki á gólftnu
og einnig er búið að gera hand-
bremsu sjálfvirka þannig að hún
fer á þegar bfllinn stoppar. Þetta
sparar einnig pláss fyrir miðju og
því var hægt að koma þar fyrir
stórum og þægilegum miðjustokki
með stóru hólfi og armpúðum,
auk glasastatífs. Handbremsan var
þó stundum treg til að sleppa helj-
artaki sínu nema tekið væri ákveð-
ið af stað og þegar staðið var utan
við bflinn virkaði hún hávær. Ann-
ars er bfllinn mjög hljóðlátur inn-
andyra og veghljóð aðeins 71 dB.
Bfllinn er vel búinn hólfum og
hirslum, 91 lítri í það heila, og
Kostir Gallar
Aðgengi, sæti, pláss, dísilvél Tilfinning fyrir stýri, handbremsa
hægt er að fá aukahluti eins og
kælibox sém hægt er að setja í stað
miðjusætisins og skúffu undir
gluggasyllu aftur í.
Fjölhæfur sætisbúnaður
Einn af aðalkostum bflsins er
sætauppsetning sem er skemmti-
leg en um leið einföld í Scenic II.
Framsæti eru hæðarstillanleg og
einnig með mjóbaksstuðningi.
Hægt er að færa til aftursæti um
300 mm á sleða, öll í einu eða
hvert um sig og þá einnig miðju-
sætið. Gott er að hafa þann mögu-
leika fyrir fólk með ungt barn f
barnabflstól sem er þá í seilingar-
fjarlægð. f öllum farþegasætum
eru líka Isofix-festingar fyrir
barnabflstóla sem hafa þannig
festingar. Hægt er að leggja niður
bak miðju- og farþegasætis
frammi í og nota þau sem borð og
einnig er hægt að leggja aftursæti
fram eða taka þau úr með einföld-
um hætti. Við það verður flutn-
ingsrými bflsins sérlega gott eða
allt að 1840 lítrar.
Góð dísilvél
I akstri kemur bfllinn að mörgu
leyti vel út og þá sérstaklega dísil-
bfllinn sem við reyndum mest að
þessu sinni. Vélin er 1,9 lítra og
120 hestöfl og gefur mikið og gott
tog upp á 300 Newtonmetra. Við
hana er svo sex gíra beinskipting
sem kemur frá Nissan. Þessi sam-
setning hentaði bflnum mjög vel
en vegna óhagstæðra laga um
vörugjald dísilbfla er ekki von á
bflnum með þessari vél nema í
litlu magni. Bfllinn liggur vel á vegi
og hefur gott veggrip miðað við bfl
með þessu lagi. Stýrið er með
rafaðstoð og þyngist með meiri
hraða og er ekki laust við að mað-
ur missi aðeins tilfinninguna fyrir
því, eins og tftt er um þess háttar
búnað. Það er hins vegar til þæg-
inda innanbæjar þar sem að létt-
leikinn nýtur sín og lítill beygju-
radíusinn.
Kemur í september
Von er á bflnum hingað til lands
í september en ekki er vitað þegar
þetta er skrifað hvað bfllinn mun
kosta. Mest mun koma af bflnum
með 1,6 og tveggja lítra bensínvél-
unum en miklu minna af dísilvél-
inni sem er besta vélin að mati
undirritaðs. Scenic II kemur svo
sjálfskiptur með 1,6 og tveggja lítra
vélunum á næsta ári og þá einnig
sjö sæta. Sá bfll er 270 mm lengri
með 22 meira hliðarrými og 26
mm meira höfuðrými. Að sögn
talsmanna Renault mun þó ekki
koma RX4 útgáfa af Scenic heldur
er Renault að þróa jeppling sem
kemur líklega á markað eftir 3 ár.
Öll farþegasæti eru búin Isofix-festingum fyrir barnabílstóla.
2| Öllu er vel fyrir komið [ mælaborði og hægt er að stýra flestu nema útvarpi
og miðstöð án þess að taka hendur af stýri.
1,9 lítra dísilvélin er togmikil og ræður því vel við bílinn fullhlaðinn.
2 Afturrúðan er með sama lagi og á systurbilnum Mégane II og því er aftur-
rúðuþurrka lítil.
Q Innstig er gott enda opnast hurðir vel og sætin í mátulegri hæð.
U Gírstöng er í mælaborði og er þægilega staðsett.
Q Miðjustokkur er rúmgóður og ofan á honum eru tveir armpúðar. Hann er
færanlegur og framan á honum er glasastatíf og færanlegur öskubakki.
J1 Eldsneytislok er sérstakt og engin þörf á skrúftappa lengur sem allt of oft
gleymist.
[I Hægt er að koma fyrir DVD-spilara aftur í til að halda börnunum upptekn-
um.
Q Farangursrými er rúmgott og aðgengilegt.
□ Hægt er að setja kælibox í stað miðjusætis aftur í.
Qj I dýrari útfærslum er bíllinn búinn gasfylltum HlD-ljósum.
E| 16 tomma álfelgur gefa bílnum sterkan svip.
Fullkomnaðu bflinn,
þú ferð lengri leiðina heim!
NýP#o/»eer bíltæki með
D4Q móttökutækni*
ST0P
PIONEER DEH 1500R
4 x 45 W magnari • D4Q Digital RDS Móttakari • FM / AM / LW
18 stöðva minni • Laus framhlið • 3 Banda tónjafnari
EEQ forstilltur tónjafnari • RCA útgangur
I I
PIONEER DEH-P3500
4 X 50 W magnari- Spiiar MP3 • Útvarp með RDS FM/AM/LW
• 24 stöðva minni • Laus framhlið • 3 Banda tónjafnari
• EEQ forstilltur tónjafnari • 2 x RCA útgangar • Tengi fyrir magasln
...minna suð, meira stuð!
ORMSSON
LÁGMÚLA 8 • SÍMI 530 2800
PðDIONAUST
FURUVÖLLUM 5 • AKUREYRI • SÍMI 461 5000
■ Ný gerð útvarpsmóttakara í Pioneer bíltækjum!
i D4Q (Diqital for Quality) er besta móttökutækni sem völ er
, á í biítækjum. Nýi Pioneer útvarpsmóttakarinn er miklu
, næmari en áður nefur þekkst. Tónninn er nú hreinni og tærari
, (minna suð) þegar ekið er um þéttbýli eða úti á þjóovegum
þar sem skilyrði eru síbreytileg. Með D4Q tækninni er hátt i
viðnám við truflunum þar sem útvarpsrásir liggja þétt saman. ■
Nýju Pioneer bíltækin eru ekki aðeins afbragðs útvarps- i
viðtæki, suðminni en áður, heldur eru þau einnig ryrsta flofcks ■
hljómflutningstæki með úrvals (M0SFET) hljómgæðum. ,
♦