Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2003, Qupperneq 10
Benz170S semá
engan sinn líka
Jón Karl Snorrason, flugstjóri hjá
Flugleiðum, keypti ásamt bróður
sínum, Hauki Snorrasyni, og mág-
konu Hauks, Önnu Fjólu, glæsileg-
an Benz 170S árgerð 1950 fyrir
nokkrum árum í Svíþjóð af gamalli
konu. Bíllinn hefur verið á götun-
um á sumrin, geymdur inni á vet-
urna, en vinsælt er að nota hann
við akstur á brúðhjónum og við
önnur hátíðleg tækifæri. Jón Karl
segist lengi hafa verið fornbíla-
áhugamaður og eiga tvo gamla bfla,
gamlaVolvo „kryppu“, árgerð 1963,
sem talsvert sé á ferðinni í bænum
og þann bfl segist Jón Karl keyra
töluvert á sumrin. Einnig á hann
Willys, árgerð 1948, sem hann not-
ar í sumarbústaðnum, og þar er
hann í fínu lagi, en er aðeins notað-
ur innan girðingar, sem og tveir
gamlir traktorar sem eru þar á
svæðinu. Auk þess er Jón Karl að
gera upp gamlan Willys-jeppa, 53-
módel, en það verk er ekki langt
komið.
„Ég sá þennan Benz einu sinni í
bráðskemmtilegu bflablaði í Stokk-
hólmi þegar ég flaug til Stokk-
hólms. Þetta blað birtir m.a. mikið
af auglýsingum um gamla bfla. Við
gengum bara í málið, en slíkan bfl
er ekki að finna hérlendis, og hefur
ekki verið hægt í áraraðir. Þessir
bflar eru fyrirstríðshönnun. Ég veit
hins vegar ekki nógu vel af hverju
þessi gamla, sænska kona vildi selja
þennan kostagrip. Hún talaði bara
sænsku og var mjög á varðbergi
gagnvart okkur, vildi alls ekki gefa
okkur bankareikningsnúmerið sitt,
hefur eflaust haldið að við mynd-
um tæma reikninginn hennar í stað
þess að leggja inn á hann. Það varð
því að fara með greiðsluna til henn-
ar í seðlum.
Við vorum býsna ánægð með
verðið, fengum hann fyrir 65 þús-
und krónur sænskar, eða um 780
þúsund krónur íslenskar, en það
voru settar á hann 85 þúsund krón-
ur sænskar. Það er mun skemmti-
legri og skynsamlegri fjárfesting en
að kaupa nýjan jeppa, enda eru af-
föllin af honum meiri á fyrstu
tveimur árunum en verðið á
Benzinum. Þessi Benz er eðalvagn,
fallegur að innan sem utan og með
„original" vél. Það er gaman að aka
um götunar á honum og monta sig
á góðviðrisdögum. Hann hefúr
gengið mjög vel, það eru bara
minni háttar atriði sem við höíúm
þurft að fara í gegnum á honum.
Það fæst eitthvað af varahlutum í
Benz-umboðinu Ræsi, en það er
einnig hægt að panta þá á Netinu.
Það eru miklir Benz-áhugamenn
hér í landi sem þekkja þessa bfla út
og inn, og hafa verið okkur hjálp-
legir," segir Jón Karl Snorrason.
gg@dv.is
Á TJARNARBRÚNNI: R-650 brunar eftir Tjarnarbrúnni. Hvítir dekkjahringir voru algengir á þessum tima.
Á VESTURGÖTUNNI: Takið eftir hvernig afturhurðin opnast. Stíll yfir því.
GRILL Grillin voru tilkomumeiri fyrir hálfri öld heldur en þau eru á nýjum bílum.
GLÆSILEGT: Mælaborð og stýri hafa yfir sér stíl sem erfitt er að lýsa. Innri stýrishringurinn
gegnir fjölþættu hlutverki sem algengt var með bíla á þessum tima.
A