Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Page 2
36 UttFl LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER2003 Allir velkomnir til starfa - þátttaka skiptir máli ALDREIAÐ GEFAST UPP: Nemendur í Leiðtogaskóla UMFl og NSU ásamt kynningarfulltrúa UMFl á toppi Snæfellsjökuls. Allt frá stofnun UMFÍ1907 hef- ur ungmennafélagshreyfingin unnið að markmiðum sem koma fram í yfirskriftinni rækt- un lýðs og lands. Með ræktun lýðs og lands er átt við það mikilvæga verkefni að rækta sj'álfan sig, gefa af sér og taka þátt í samfélagslegum verkefnum, rækta fjölskyldu sína, vini og nán- asta umhverfi. Þetta eru mikilvægir og stórir þættir í lffi hvers einstak- lings. Þá hefur hreyfingin jafnframt unnið að ræktun landsins með landgræðslu, skógrækt og fjöl- mörgum umhverfisverkefnum. f stefnu UMFÍ segir að allir séu velkomnir til starfa út frá eigin getu og hæfileikum. Öll viljum við í eðli okkar vinna eða sigrast á krefjandi verkefnum. Þá skiptir miklu máli að setja sér markmið út frá eigin getu og hæfileikum og sigrast á raunhæfum markmiðum. Við getum ekki öll orðið heims- meistarar eða gengið á hæstu tinda heims. Fyrir sum okkar er það jafn mikið afrek að fara í sund á hverj- um degi eða ganga á þrjú fjöll á ís- landi á einu sumri. Innan UMFÍ er þátttaka stærsti sigurinn. Hraðinn í þjóðfélaginu er mikill. Við fslendingar erum skyndilega orðnir rfkir og búum í stórum hús- um og eigum nýja bíla, förum í ferðalög til útlanda, grillum stór- steikur reglulega og pöntum pitsur þess á milli. Allt kostar þetta peninga sem við vinnum fyrir með löngum vinnu- dögum. Við puðum í vinnunni dag- inn langan til að standa undir lífs- gæðakapphlaupinu. Um helgar brunum við síðan úr borginni og þéttbýlinu, eitthvað upp i sveit til að leita að sjálfum okkur. Þegar öllu er á botninn hvolft eru það ekki fer- metrarnir á steinsteypunni og tommustærðin á dekkjunum sem veitir okkur lífshamingju. Fjöl- skyldan, vinirnir og áhugamálin veita okkur hamingjuna og því þurfum við að hlúa vel að þessum þáttum í lífi okkar. Ungmennafélag íslands hefur í gegnum tíðina lagt áherslu á sam- verustundir fjölskyldunnar, meðal annars með margvíslegum verk- efnum á sviði íþrótta, menningar og umhverfismála. Landsmót UMFÍ er stærsti íþrótta- og menningarviðburður á landinu og haldinn á þriggja ára fresti. Unglingalandsmót UMFÍ um verslunarmannahelgina hefúr einnig vaxið og þróast með hverju mótinu og nýtur mikilla vinsælda meðal fjölskyldufólks. UMFÍ er í dag hreyfing sjötfu þúsund fslendinga sem koma úr meira en fjögur hundruð deildum, tæplega þrjú hundruð ungmenna- og íþróttafélögum og nítján hér- aðssamböndum. Mörg íþrótta- bandalög hafa sótt um aðild að UMFÍ og því möguleiki að hreyf- ingin muni stækka enn frekar á næstunni og ungmennafélagsand- inn og hugsjónir hreyfingarinnar ná til enn fleiri landsmanna. í sérblaði DV um starfsemi ung- mennafélagshreyfingarinnar er fjallað um helstu verkefni hreyfing- arinnar og sagt frá því helsta í starf- semi hennar um þessar mundir. Páll Guömundsson kynningarfulltrúi Unglinqalandsmótið á ísafirði Unglingalandsmótið sem haldið var á ísafirði um verslunarmanna- helgina heppnaðist vel í alla staði. Um sjö þúsund gestir lögðu leið sína á mótið og var framkvæmd þess mótshöldurum til mikils sóma. Unglingalandsmótin um verslunarmannahelgina hafa hlotið mikil og jákvæð viðbrögð bæði á meðal ráðamanna í landinu og eins á meðal almennings, ekki síst fjöl- skyldufólks. HART BARST: Á Unglingalandsmóti UMFl á Isafirði kepptu rúmlega 1000 keppendur í átta íþróttagreinum. Að keppni lokinni eru þó allir vinir og þá tekur við margvísleg skemmtun og afþreying. GÁSKl OG LEIKUR: Setning Unglingalandsmóts á (safirði var tilkomumikil þegar þúsund ungmenni gengu inn á leikvöllinn undir merkjum sinna félaga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.