Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2003, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2003 DVSPORT 29
1,3 milljarða
Smith í vondum málum
Áfram hjá Víkingi
Alpay kostaði
KNATTSPYRNA: Doug Ellis,
stjórnarformaður Aston Villa,
vandar ekki tyrkneska varnar-
manninum Alpay kveðjurnar
eftir að hann létTyrkjann fara
frá félaginu í kjölfar uppákomu
á-milli hans og David Beck-
hams í landsleikTyrkja og Eng-
lendinga í síðasta mánuði.
Ellis sagði að Alpay, sem fór án
greiðslu frá félaginu, hefði
kostað félagið 1,3 milljarða
þann tíma sem hann var í her-
búðum félagsins, bæði í kaup-
verði og launakostnaði, og
hefði verið hreinasta hörmung.
„Við sögðum upp samningn-
um við hann átta mánuðum
áður en hann rann út og
spöruðum okkur 400 þúsund
pund en hann var samt alltof
dýr," sagði Ellis.
KNATTSPYRNA: Alan Smith,
framherji Leeds, er í vondum
málum eftir að hann varð upp-
vís að því að kasta flösku, sem
kom inn á völlinn undir lok
leiks Leeds og Manchester
United í enska deildarbikarn-
umí gærkvöld, aftur upp í
stúku. Svo virðist sem Smith
hafi hitt unga stúlku sem
meiddist á höfði þegar hún
fékkflöskuna í sig.
Enska knattspyrnusambandið
ætlar að skoða málið og það er
Ijóst að þetta atvik er ekki vatn
á myllu Leeds sem birti í vik-
unni ársreikning sinn sem
hljómaði upp á sex milljarða
tap og var versta afkoma hjá
ensku knattspyrnuliði í sög-
unni og sennilega þótt víðar
væri leitað.
KNATTSPYRNA: Varnar-
mennirnir Höskuldur Eiríksson
og Steinþór Gíslason hafa skrif-
að undir nýjan þriggja ára
samning við Víking eftir því
sem fram kemur á vefsíðunni
vikingur.net.
Höskuldur og Steinþór léku
báðir stórt hlutverk ÍVík-
ingsliðinu á síðasta tímabili en
liðið tryggði sér sæti í Lands-
bankadeildinni á næsta tíma-
bili.
Sigurður Jónsson, þjálfari liðs-
ins, sagði í samtali við DV
Sport í gær að hann væri mjög
sáttur við að þessir tveir menn
yrðu áfram.
„Síðan skrifaði Daníel Hjalta-
son undir þriggja ára samning
um daginn og það eru gleði-
fréttir."
Ætlar að kæra HSÍ
Viggó Sigurðsson ætlar í hart - Einar Þorvarðarson neitar að hafa látið undan þrýstingi
FARINN í HART: Viggó Sigurðsson hyggst ekki una ákvörðun Einars Þorvarðarsonar, framkvæmdastjóra HSl, sem hefur vísað ummælum
hans til aganefndar heldur mun hann kæra HSÍ á næstu dögum.
Viggó Sigurðsson, þjálfari ís-
landsmeistara Hauka í hand-
knattleik, hyggst kæra Hand-
knattleikssamband íslands á
þeim forsendum að það hafi
ekki leyfi til þess að hefta tján-
ingarfrelsi hans en stjórn HSÍ
vísaði í fyrradag ummælum
Viggós í garð dómara leiks
Hauka og ÍR í RE/MAX-deild til
aganefndar á grundvelli aga-
reglna HSÍ. Viggó segir jafn
framt að framkvæmdastjóri
HSf, Einar Þorvarðarson, hafi
látið undan þrýstingi frá Há-
koni Sigurjónssyni, formanni
dómaranefndar HSÍ, og stjórn
Handknattleiksdómarasam-
bands íslands, HDSÍ, en báðir
aðilar sendu Einari tölvupóst
varðandi málið en tölvupóstur
þessi hefur boristtil Viggós sem
og til DV Sports.
Eins og áður segir þá hefur DV
Sport undir höndum tölvupóst
HDSÍ til formanns og
framkvæmdastjóra HSÍ og hann
birtist hér orðrétt í heild sinni fyrir
utan reglugerðina sjálfa.
„Ágæti framkvœmdastjóri HSÍ. í
kjörfar þeirrar umræðu sem skap-
ast hefur um störf dómara í leik ÍR
og Hauka sem leikinn var í gær-
kvöldi er gerð sú krafa til stjórnar
eða framkvæmdastjóra HSÍað aga-
nejhd HSI fjalli um þau ummæli
sem Viggó Sigurðsson, þjálfari
Hauka, hefur haft í garð dómara og
þeirra er að dómaramálum standa.
Þessi ummæli Viggós Sigurðsson-
ar sem birtust í MBL ogDVí dag eru
íþróttinni til skammar og einstak-
lega ógeðfelld umjjöllun um störf
dómara og persónur þeirra, nú er
mál að linni. Það er mjög athyglis-
vert að skoða þessi mál hjá öðrum
„Verði ekki komið til
móts við ósk okkar um
þetta mál kann svo að
fara að dómarar innan
raða HDSÍ hafi hrein-
lega ekki áhuga á að
starfa við dómgæslu
það sem eftir er afyfir-
standandi keppnis-
tímabili."
greinum íþróttanna, þar er ekki slík
umræða um dómara eða í það
minnsta ekki leyfð sbr. mál eru
komu upp hjá KSÍ á síðasta tíma-
bili.
Þetta er algerlega ólíðandi og við
handknattleiksdómarar ætlum
ekki að vinna áfram undir sllku
ástandi, svo mikið er víst. Þvígerum
við þá kröfu til HSÍ að dónaskapur
sem þessi endurtaki sig ekki framar.
Verði ekki komið til móts við ósk
okkar um þetta mál kann svo að
fara að dómarar innan raða HDSÍ
hafi hreinlega ekki áhuga á að
starfa við dómgœslu það sem eftirer
af yfirstandandi keppnistímabili.
Jafn framt er sú krafa gerð að úr-
skurður aganefndar í þessu máli
verði send stjórn HDSI.
F.h. stjórnar HDSÍ, Guðmundur
K. Erlendsson. “
Ekki að ástæðulausu
DV Sport hafði samband við
Guðmund K. Erlendsson í gær-
kvöld og spurði hann út í bréfið.
„Stjórnin ákvað að senda þetta bréf
til formanns og framkvæmdastjóra
HSÍ og það ekki að ástæðulausu. Ég
stend við allt sem fram kemur í
þessum tölvupósti," sagði Guð-
mundur. Aðspurður hvort honum
þætti eðlilegt að stjórn HDSI gerði
kröfu um að málið væri tekið fyrir
og að stjórnin hótaði því beinlínis
að dómarar myndu hætta að
dæma í vetur ef ekki yrði farið að
kröfum þeirra sagði Guðmundur
eftirfarandi. „Við munum taka
„Þrýstingur HDSÍer
skiljanlegur. Við í stjórn
HSÍ viljum útrýma mál-
um þar sem menn eru
úthrópaðir í fjölmiðlum
og jafn vel ráðist að
persónum manna eins
og gert er í þessu til-
felli."
ákvörðun um það á seinni stigum
hvort alvara verði gerð úr málinu.
Við munum fyrst bíða úrskurðar
aganefndar. Málefnið er alvarlegt
því þarna eru persónur dregnar
niður í svaðið - það er mín skoð-
un.“
Höfum ekki kært neinn
Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSf, sagði í samtali
við DV Sport í gær að hann hefði
vísað málinu til aganefndar þótt
honum hefði ekki borist krafan frá
HDSf. „Já, alveg örugglega," sagði
Einar. „Þrýstingur HDSÍ er skiljan-
legur. Við í stjórn HSf viljum út-
rýma málum þar sem menn eru út-
hrópaðir í fjölmiðlum og jafnvel
ráðist að persónum manna eins og
gert er í þessu tilfelli. Við viljum
losna við slíkt úr fjölmiðlum og öll
gagnrýni sem hefur komið frá
Viggó er í fjölmiðlum. Hann hefur
aldrei komið beint á skrifstofu HSf
með sfn kvörtunarmál," sagði Einar
sem er ósammála Viggó í því að bú-
ið sé að kæra hann. „Við höfum
ekki kært neinn. Við höfum óskað
eftir því að aganefnd HSf fari yfir
viðtölin við Viggó. Við erum ekki að
kæra. Við viljum með þessu athuga
hvort þetta sé refsivert viðtal. Við
viljum athuga hvort við getum tek-
ið á þessum málum. Það er það
sem málið snýst um. Þessi reglu-
gerð var sett inn með hagsmuni
hreyfingarinnar f huga og nú er það
í höndum aganefndar HSÍ að
ákveða hvort slík ummæli séu refsi-
verð eður ei,“ sagði Einar en þess
má geta að þetta er í fyrsta skipti
sem slíkt mál kemur inn á borð
aganefndar HSÍ.
Hákon þvingaði Einar
Viggó Sigurðsson hyggst ekki
bíða eftir úrskurði aganefndar
heldur mun hann kæra HSÍ á
næstu dögum.
„Já, það er klárt að ég mun kæra.
Það gengur ekki upp að HSÍ banni
mér að tjá mig eftir leiki,“ sagði
Viggó og bætti við að Jóhannes
Bjarnason, þjálfari KA, og Erlingur
Richardsson, þjálfari ÍBV, hefðu
einnig gagnrýnt dómara á svipaðan
hátt. Viggó vill meina að ástæða
þess að máli hans hafi verið skotið
til aganefndar sé sú að Einar Þor-
varðarson hafi látið undan þrýst-
ingi frá Hákoni Sigurjónssyni, for-
manni dómaranefndar HSÍ. „Þessi
kæra er runnin undan riQum Há-
konar en hann krafðist þess að mér
verði refsað. Hákon stýrir honum í
þessu tilviki og þvingar hann með
hótunum. Ég hef undir höndum
tölvupóst sem sannar það,“ sagði
Viggó sem er sfður en svo sáttur við
framgöngu Einars í málinu. „Einar
er sjálfúr þjálfari og hann ætti að
„Hákon stýrir Einari í
þessu tilviki og þvingar
hann með hótunum. Ég
hef undir höndum
tölvupóst sem sannar
það."
skammast sín fyrir að taka þátt í
þessu. Hann lætur þvinga sig með
hótunum og maður með sæmilegt
vit hefði ekki látið hafa sig út f
svona. Það er heldur greinilega ekki
sama Jón og séra Jón í þessu máli
því ekki fyrir mörgum árum sagði
Þorbjörn Jensson, þáverandi lands-
liðsþjálfari, eftir landsleik að dóm-
aramir hefðu verið helvítis fífl í
samtali við fjölmiðla. Svo á að fara
að refsa mér fyrir það sem ég segi.“
Viggó er þegar kominn með lög-
fræðing í málið og hann mun kæra
HSÍ fljótlega.
„Það verður ekki beðið eftir úr-
skurði aganefndar. Ég er kominn
með lögfræðing sem mun annast
málið fyrir mig og við ætlum að
stefna sambandinu því það gengur
ekld að HSÍ ætli að banna mönnum
að segja sínar skoðanir. Þessi reglu-
gerð á sér enga stoð og ég vil fá
hana út úr lögunum."
henry@dv.is