Nýtt dagblað - 30.08.1941, Blaðsíða 4

Nýtt dagblað - 30.08.1941, Blaðsíða 4
0 Bæjarfréttir Gullna hliðið, nýtt leikrit í fjórum þáttum eftir Davíð Stefánsson, er nýkomið út á Akureyri hjá forlagi Þorsteins M. Jónssonar. Þjóðsaga og gamlir sálmar hafa verið not- aðir við samningu leikritsins. Síðan 1925 að Munkamir á Möðruvöllum komu út, hefur ekkert leikrit komið frá Davíð Stefánssyni, en á síðasta ári sendi hann frá sér stóra skáld sögu. Við hin gullnu þil, heitir skáldsaga eftir Sigurð Helga- son kennara, sem væntanleg er á bókamarkaðinn innan skamms. í kvöld les höfundur- inn upp í útvarpið kafla úr sögu þessari. Frjáls verzlun, ágústheftið er nýlega komið út. Af grein- um í heítinu má nefna 2. á- gúst eftir Erlend Pétursson. Finnbogi Kjartansson ritar grein um Ukrainu, landið sem nú er á allra vörum. Auk þess er í heftinu grein um Sigfús Eymundsson bóksala og nokkr ar fleiri greinar um ýms efni. Fjallamenn efna til farar á Fimmvörðuháls um helgina og leggja af stað í dag kl. 10 f. h. frá B. S. R. Ferðafélag íslands fes skemmti- og berjaferð inn í Hvalfjörð, (aö Stóra- i Botni) sunnudagsmorgun ! ki. 8. Sumir munu ganga á nærliggjandi fjöll, aðrir fara í berjamó. Allir verða aö sjá fossinn Glym, sem er einn af tilkomumestu fossum lands- ins. Skógurinn er fallegur og hávaxinn upp með Botnsá. Farmiðar seldir á afgreiðslu Sameinaöafélagsins á laugar- daginn kl. 7 og lagt af stað þaðan á sunnudagsmorgun. Síldveiðiskipin frá Hafnar- firði eru nú öll hætt veiðum og komin heim. Hausmót 2. flokks hefst á morgun. — Auk Reykjavíkur- ( félaganna taka Hafnfirðingar og Vestmannaeyingar þátt í mótinu. Mótið hefst kl. 10,30 og keppa þá Haukur og Vík- ! ingur, kl. 2 e. h. keppa Fram og K.R. og kl. 3 keppa Valur og Vestmannaeyingarnir. Sýslumenn hafa hafið und- irbúning að stofnun félagsi skapar til þess að vinna að á- hugamálum stéttarinnar. Mun það vera ætlan þeirra, að stofna félagið á fundi, sem þeir hafa boðað til hér í Reykjavík 10. okt .n.k. I gær stóð í „Vísi“ eftirfaraadi klausa: „t FrakkLandi á nú að beita hin- um grimmilegustu aðferðum til þess að ganga á milli bais og höfuðs á „kommúnistum“, með öðrum orð- um þeim, sem eru andvígir Þjóð- verjum og Vichystjóminni“. Það er greinilegt, að Vísi ofbýður þessi aðferð. ALlir frelsisunnandi Frakkar eiga dóm yfir höfði sér, allt að dauðadómi, og til þess að réttlæta þann dauðadóm, þá gripu kúgaramir og föðurlandssvikaram- ir til þess að kalla ættjarðarvinina kommúnista. En i þessari litlu klausu hefur Vísir Líka sagt merkilegan þátt úr sögu þjóðstjórnarinnar á tslandi. — Hún hefur Iíka gert sérstakar ofsókn arráðstafanir gegn „kommúnistum á tslandi, með öðrum orðum þeim, sem eru á móti þjóðstjórninni og erlendum kúgunaröflum. Hún hefur ofsótt merkustu rithöfunda þjóðar- innar af því að þeir eru „komm- únistar“, með öðrum orðum þá, sem em á móti menningarspjöllum Jón asar frá HrifLu. Hún hefur ofsótt blöð Sósialistaflokksinns og tslend- íngana, sem kaupa þau, á þann hátt að banna að biijtia í þeim til- kynningar, sem almenning varða. — Þetta er gert á þeim grundvelli, að hér sé uin að ræða „kommúnista“, með öðrum orðum menn, sem eru á móti þjóðstjórninni. Þegar ritstjór- ar ÞjóðviLjans voru fluttir af landi burt, þá fannst bæði utanríkismála ráðherra og formanni utanríkismála nefndar það mjög vel til fallið, af því það væru „kommúnistar“, með öðrum orðum menn, sein voru á möti þjóðstjórninni og yfirgangi Þýzk-rússneska stYrjöldín Framh. af 1. síðu. legum bardögum milli Narva og Luga. Þá tilkynna Þjóðverjar enn- fremur, að í fyrradag hafi Rauði herinn gert tilraun til þess aö brjótast vestur yfir Dnépr nokkuð fyrir sunnan Kiev, en að pýzka hemum hafi tekist að stöðva sókn þeirra að mestu leyti. brezka hersins hér á landi. — Þegar verkamenn voru dæmdir til fangels- isvistar fyrir það að reyna að hindra afskipti brezka setuliðsins af ís- lenzkum kaupdeilum verkamönnum í óhag, þá þótti sjálfsagt að sýna þeim hina mestu harðýðgi í altri meðferð análsins, af því það voru „kommúnistar", með öðrum orðum menn, sem voru á móti kaupkúg- un vinnuveitendanna. 1 dómunum í Frakklandi getur þjóðstjórnin séð sina eigin mynd, að vísu nokkuð stækkaða. Þeir, sem verið hafa þjóðstjórnarmenn og tek ið hafa þátt í ofsóknum gegn þjóð stjórnarandstæðinguin á grundvelli kommúnistagrýlunnar, mega vel af þessu læra það, ef þeir sjálfir fjmdu einhverntima til þess manndóms i hjarta sínu, að þeir snerust gegn þessu þjóðfélagi, þá er búið að setja á þá sjálfa kommúnistastimp Llinn, þeim til dómsáfellis. Allt það ægilegasta, sem öll kúgunar- og landráðaöfl heimsins sjá við sér blasa, er fólgið í þessu eina orði: kommúnismi. Og það mega Vísis- menn vita, að inargur sá Frakki, sem nú er gengið á milli bols og höfuðs á, hefur einhverntíma lagt sinn skerf til þess að veifa komm- únistagrýlunni og afskræma hug- myndir kommúnismans sem ódæði, og hjálpað þannig til með að smíða þau v’opnin, sem nú eru lögð að hálsi þeirra. Til þess eru vítin að varast þau. Sóknin aó Viborg?! Undanfarið hafa nokkrum sinnurn komið fréttir frá Þjóðverjtun uin sókn finnsku og þýzku hersveitanna á Kirjálavígstöðvunum, og frá því skýrt, að þær sæktu í áttina til Viborgar með miklum krafti, og síðast, þegar til þessara hersveita fréttíst, þá áttu þær aðeins 6 km. ófarna til Viborgar. Það hefur hvergi verið á þetta bent sem sérstaklega merkiíega framsókn af mikilli sókn að vera. Því að Viborg er aðeins örfáa km. frá landamærum Finnlands og Sovét ríkjanna. — Landamæralínan liggur rétt norðan við Viborgarflóann, en borgin stendur sunnanvert viðbotn hans. Hér er því greinilegt, að ekki getur verið um neina sókn að ræða, nema því aðeins, áð í byrjun striðs- ins hafi Rauði herinn sótt inn á Land Finna, en hvorugur hernaðar- aðilinn skýrði frá þeirri sókn. — Hér lítur því út fyrir að meira sé gert úr sigrum fasistaherjanna en efni standa til. ) Verzlunarjöfnudurinii R'amh. af 1. síðu. Nam útflutningurinn sam- kvæmt yfirliti þessu kr. 11.373.300,00 í júlímánuði, en innflutningurinn krónur 11.223.000,00. Heildarútflutn- ingur fyrstu 7 mánuði nam tæpum 111 milljónum króna og er það rúmlega helmingi meira en í fyrra og meira en fjórum sinnum rneira en í hitteðfyrra, árið sem stríðið brautzt út. Innflutningur til landsins fyrstu 7 mánuði árs- ins nam 59 (4 milljón króna. Á sama tíma í fyrra nam hann rúmum 35 milljónum króna. Er því verzlunarjöfnuð- ur landsmanna hagstæður um röskar 50 milljónir króna á | þessu tímabili. Af útflutningnum í júlímán uði er ísfiskurinn hæstur fyrir 6 (4 milljón og lýsi fyrir rúm- lega 3(4 milljón króna. Húsnasdísskráníngín Framh. af 1. síöu. En hitt veit blaðið með vissu, að mjög margir komu til skiáningar í gær. Skýrslusöfnun þessi sýnir þó að henni sé ekki lokið enn- þá, að húsnæðisvandræðin eru stórum geigvænlegri, en menn gátu jafnvel búist við. Mun óhætt að fullyrða, að talning fyrsta dagsins hafi leitt 1 Ijós. að á annað þúsund manna vantaði þak yfir höfuðið þeg- ar vetrar. Og hafi aðsóknin verið svipuð í gær og eigi eft- ir að verða það aftur í dag, þá fá bæjarbúar að horfast í augu við svo alvarlegar stað- reyndir, að aðrar veiTi hefur ekki borið að um iangt skeið. Og yfirvöld bæjarins fá þá að kynnast því, hvað það kost ar áð sofa á verðinum. Tíl imnnís Næturlæknir: Jóhannes Bjömsson, Sólvallagötu 2, sími 5989. Næturvörður er í Ingólfs og Laugavegsapótekum. Útvarpið í dag: 19.30 Hljómplötur: Samsöng'ur 20.30 Útvarpstríóið: Einleikur og tríó. 20.45 Upplestur: „Við hin gullnu þil“, sögukafli (Sig- urður Helgason rith.). 21.15 Hljómplötur: ' Lagaflokk- ur eftir Coleridge-Taylor. 21.40 Danslög. 21.50 Fréttir. 24.00 Dagskrárlok. Scndiherra Jap~ ana og Roosevcll raeda vopnasend íngar um Vladí~ vosfok Sendihen-a Japana í Wash- ington átti í gær þriggja klukkustunda viðræður við Roosevelt. Voru þai- til um- ræðu vöruflutningar trá Bandaríkjunum til Sovétríkj- anna um Vladivostok. Að fundinum loknum til- kynnti Roosevelt, að þeir mundu bráðlega koma saman til viðræðna á ný. Kínverjjar hefja sókn Frá Lundúnum kom frétt um það í gær, að Kínverjar hefðu hafið sókn á fjórum stöðum og gengi hún hvar- vetna vel. Sonur Rooevelfs í Reykfavík Einn af sonum Roosevelts Bandaríkjaforseta, Eliot Roose velt að nafni, dvelur um þess- ar mundir hér í bænum með Bandaríkjahernum. Er hann liðsforingi í flughemum. Mun hann dvelja hér aðems í fáeina daga. Vantar húsnæði 1, okfóber eda fyrr Gunnar Benedikfsson Grundarsfíg 4. — Símí 5510. Nýskipan Hitlers ogMussolinis

x

Nýtt dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt dagblað
https://timarit.is/publication/258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.