Nýtt dagblað - 19.02.1942, Síða 1
Ftmmtudagur 19. febráar 1942
19. tölublað.
Kosnír forsefar
AXþki$ís
líiuerslir her rslst iin í liulland
Japanír sækja fram í Burma. — Landstjórí Austur-India
Hollands fordœmír undanhaldsstefnuna
Fasistarnir hafa leitt hungur
yfir finnshu þjöðina
En 6 þingmenn sósíaldemókraia sem vílja fríð
eru ákærðír fyrír landráð
Sex af þingmönnum sósíal-
demókrataflokþsins finnsþa hafa
tíerið teþnir fastir og ákœrðir fyr-
ir landráð. Eru það þessir: Wiik,
Sundström, Rarsanen, Rydberg,
Meltte, Ampnja og Helo. Btða
þeir nú dóms í Abo. Það, sem
þeim er gefið að sök er þétta: Að
hafa tíerið meðmœltir samning-
um tíið Sotíétríkin haustið 1939
og að hafa tíerið í sambandi tíið
Alþjóðasamband kommúnista og
félagsskap, er ynni að tíináttu
tíið Sotíétríkin. — Þessir menn
eru leiðtogar þess hluta affinnsku
sóíaldemókrataflokknum, sem
tíarðtíeitt hefur tryggð tíið sósíal-
isma og lýðrœði.
Hungursneyð vex hvarvetna í
Finnlandi. A götunum hnígur
fólk niður úr hungri. Hungur-
dauði hefur ekki á síðustu öldum
verið þar jafn algengur og nú.
Herrar og bandamenn Mann-
erheims, Tanner og Ryti, þýzku
nazistarnir, ræna matnum frá
Finnum. Sameiginlega níðast nú
finnsku og þýzku hvítliðarnir á
finnsku þjóðinni, eins og þeir áð-
ur hafa gert á örlagastundum
hennar.
Hvað eftir annað kemur til
þess að finnska alþýðan grípur
til sjálfsvarnar gegn yfirgangi
fasistanna.
í Kuopio réðust finnskir verka-
menn í pappírsverksmiðju á 4
nazistahermenn, sem voru að
taka burtu nokkra hleifa brauðs,
og lúbörðu þá. í Oulo var kveikt
í smjörbirgðum, sem nazistayfir-
völdin höfðu látið taka til útflutn-
ings til Þýzkalands.
En það er ekki nóg með grip-
deildirnar.
Finnski liðþjálfinn Mayava
segir svo frá, er hann var tekinn
til fanga af Rússum : , .Hatrið
gegn nazistunum fer dagvaxandi
með finnsku þjóðinni. Þjóðverj-
arnir haga sér eins og ræningjar
og ósvífni þeirra er takmarkaaus.
Þeir ráðast á finnska varðmenn
og rífa af þeim hlífðarföt þeirra.
Og bak víð vígetöðvarnár náúclge
nazistarnir konum finnsku her-
mannanna”.
Reiðin út í nazistana og
finnsk böðlana, sem eru verkfæri
í hendi þeirra, grípur einnig um
sig í finnska hernum. ,,Ef stríð-
inu ekki lýkur strax, þá líða allir
karlmenn í Finnlandi undir lok“,
sagði finnskur fangi nýlega.
Andúðin gegn því að láta etja
sér út í þetta sjálfsmorð finnsku
þjóðarinnar fyrir böðlana Hitler
og Mannerheim, hefur færst svo
í aukana að heilar herdeildir hafa
neitað að hlýða fyrirskipunum.
Nýlega náði Rauði herinn fyr-
irskipunum 5. finnsku fótgöngu-
liðsherdeildarinnar (regiments)
og sást af þeim að fjölmargir liðs-
foringjar og hermenn höfðu verið
leiddir fyrir herrétt, þar af 9 liðs-
foringjar, 11 ,,korporalar“ og 61
hermaður, fyrir að hafa ekki hlýtt
fyrirskipunum um að gera árás.
,,Pravda“ reit nýlega eftirfar-
andi um Finnland:
..Stríðsyfirlýsing Stóra-Bret-
lands gegn Finnlandi og ófarir
Hitlers við Moskva, hafa valdið
skelfingu meðal valdhafa Finn-
lands. Drukknir liðsforingjar og
stormsveitarmenn nazista vaða 1
um borgir og þorp Finnlands og J
velja sér hjákonur meðal kvenna
Framh. á 4. síðu. I
Sjan$ Kajsjek
rædír víd stférn~
málalcídtoga
Indverja
Sjang Kajsjek er nú kominn til
Kalkútta og ræddi við Gandi í
l.ália fimmtu klukkustund í gær.
Indverski sjáifstæðisleiðtoginn,
Neliru kynnti þá og var viðstadd
ur fund þeirra. Sjang Kajsjek
befur einnig rætt við Jinnah leið-
toga sambands indverskra Múha
ineðstrúarmanna. Viðræður þcirra
hafa vakið mikla atiiygU um all-
an heim.
Kínverskur her hefur ráðizt inn í Thailand frá Norður-Burma
og náð á vald sitt borg einni, 480 km. norður af Bangkok, höfuð-
borg Thailands. Höfðu Japanir flutt öflugt lið til borgar þess-
arar og átti það að ráðast inn í Bunna, en Kínverjar biðu ekki
eftir því.
Frá þessu er skýrt í fregn frá New York, og þess getið, að
fyrir nolikru hafi kínverskar úrvalsliðssveitir verið sendar til
Burma til þátttöku í baráttunni gegn japanska innrásarhernum.
Barizt er ákaft á vígstöðvunum í Suður-Burma. Japanir til-
kynna, að hersveitir þeirra hafi komizt vestur yfir Belínfljótið,
80 km. austur af höfuðborginni Rangoon. í liernaðartilkynningu
Bandamana frá Rangoon segir, að japanskur her hafi verið flutt
ur yfir fljótið í smábátum í fyrrinótt, og hafi þegar tekizt bar-
dagar milli indverskra hersveita og Japana, og héldu bardagar á-
fram í ailan gærdag. Talið er að Japanir hafi um 30 þús. manna
lið á þessum vígstöðvum.
Landsstjóri Austur-Indía Hol-
lands, Jonkheer A. W. L. Tjarda
van Starkenborgh Stachouwer,
kom til Sydney í Ástralíu í gær.
Ummæli hans í blaðaviðtölum við
komuna hafa vakið mikla athygli.
„Bandamenn mega ekki alltaf
miða aðgerðir sínar við vörn,
heldur verða þeir að ljefja sóknar
aðgerðir jafnframt og sækja óvin
ina heim þar sem þeim kemur
verst” sagði landstjórinn meðal
annars. „Ef haldið verður áfram'
þessari aðferð að hörfa stöðugt
til nýrra, fyrirfram undirbúinna
varnarstöðva, getur það orðið til
þess að Bandamenn tapi styrjöld
inni”.
Landstjórinn kvaðst vongóður
um vörn Bandamanna á Java, svo
framarlega sem þeir fengju nauð-
synlega hjálp til að verða jafn-
sterkir Japönum í lofti. Það væri
lífsnauðsyn að stöðva Japani
norðar en í Ástralíu. Ef Austur-
Indíur Hollands færu í hendur
Japönum, væri sennilegast að þeir
snéru sér að beinu samstarfi við
Hitler með árásum á lönd Vest-
ur-Asíu og Sovétríkin, en geymdu
sAr Astralíu fyrst um sinn..
Flugvélar Bandamanna skutu
niður 11 japanskar flugvélar í
gær. Tuttugu og ein japönsk flug
vél gerði loftárás á Soerabaya á
Java, en það er nú þýðingar-
mesta. flotahöfn Bandamanna við
suðvestanvert Kyrrahaf. Fimm af
árásarf lugvélunum voru skotnar
niður. Hollenzkar og bandarískar
flugvélar skutu niður sex jap-
anskar flugvélar í árásum á stöðv
ar Japana á Suður-Súmatra. Hol-
lendingar verjast enn víða á
Borneó, að því er segir í tilkynn-
ingu frá Batavíu. Á Norður-Cele-
bes eru bardagar nær hættir, en
í suðurhluta landsins verjast Hol
lendingar enn.
Japanir senda stöðugt meira lið
til Filippseyja og á varnarliðið
við sívaxanda erfiðleika að stríða
en verst ofureflinu með hugprýði
og þrautseygju,
Á Alþingi í gær voru kosnir
forsetar þingsms. Gísli Sveins-
teon var kosimi forseti sameinaðs
þings með 16 atkvæðum. Har-
aldur Guðmundsson fékk 3 atkv.
og Magnús Jónsson 1. Auðir
seðlar 18.
Bjarni Ásgeirsson var kosinn
fyrsti varafors&ti með 16 atkv.
Jónas Jónsson fékk 1 atkv. Auð-
ir seðlar 21.
Finnur Jónsson var kosinn
annar varaforseti með 17 atkv.
Haraldur Guðmundsson fékk 1.
Auðir seðlar 18.
, Ritarar sameinaðs þings voru
kosnir Bjarni Bjafnason og Jó-
hann Jósefsson.
I kjörbréfanefnd voru kosnir:
Pétur Ottesen, Emil Jónsson,
Einar Árnason, Þorsteinn Þor-
steinsson og Bergur Jónsson.
Forseti efri deildar var kosinn
Einar Árnason með 10 atkv.
Magnús Jónsson fyrsti varafor-
seti með 10 atkv. og Sigurjón
ölafsson annar varaforseti með
8 atkvæðum.
Ritarar efri deildar voru kosn
ir Bjarni Snæbjörnsson og Páll
Hermannsson.
Forseti neðri deildar var kos-
inn Jörundur Brynjólfsson með
13 atkv. Auðir seðlar 4. Ryrsti
varaforseti Emil Jónsson með 16
atkvæðum. Pétur Ottesen ékk 1
atkv. Auðir seðlar 7. Jón Pálma-
son annar varaforseti með 9 at-
kvæðum. Auðir seðlar 15.
Ritarar neðri deildar voru kosn
ir Sveinbjörn Högnason og Ei-
ríkur Einarsson.
Hartlr Mw i teiiral
09 í liðuii
Ríddaralid úr rauða hernum brýzt gegnum víg«
línur Pjóðvcrja og truflar herflutninga þeirra
í niiðnæturtilkyimingu rauða hersins segir, að liann hafi
lialdið áfram sókninni í gær, og haíi óvinaherinn orðið fyrir
gífurlegu tjóni. Bardagarnir eru harðastir á Leningradvígstöðv-
uiium, en báðir aðilar segja lítið um einstök atriði hernaðarað-
gerðanna.
,,R,aúða stjarnan” segir að sovétherinn á Leningradvígstöðvun-
um hafi nú brotizt inn í sterkustu varharlínu Þjóðverja.
Á miðvígstöðvunum hefur riddaraíið úr rauða hernum kom-
izt gegnuin víglínur Þjóðverja á mörgum stöðum, og gert mikinn
usla í birgða- og herflutningum Þjóðverja. Þykir það athyglisvert
að vígstöðvarnar séu ekki samfelldari en svo, að riddarasveitirn-
ar finni staði til að sleppa í gegnum. Hefur komið fyrir að ráð-
izt hefur verið aftan að horsveitum Þjóðverja óvörum og þeim
sundrað.
Otvarpið í Moskva flutti í gær
ávarp til þjóðarinnar í Hvíta-
Rússlandi og lýsti því, hvernig
rauði herinn tekur nú bæ eftir
bæ, og skoraði á íbúana að grípa
til vopna og eyðileggja samgöngu
línur og birgðaflutninga óvinanna.
„Dagur frelsisins nálgast” segir
í ávarpinu „og það verður um
leið dagur hefndar og endur-
gjalds. Landsmenn! Við þurfum
á hjálp ykkar að halda. Rísið
sem einn maður gegn fasistun-
um”.
í O'kraínu standá yfir harðir
bardagar, og hefur rauði herinn
komið liði á land að baki þýzka
hernum á Asoyshafsströnd með
með því að ara fyfir á ís.
Sir Stafford Cripps hélt í gær
erind! á 'undi brezka þingmanna-
sambandsins um „Sovétríkin í
styrjöldinni og að styrjöldinni
lokinni’',
Aðalfundur
Þréffar
Aðalfundur Verkamannafélags-
ins Þróttur á Siglufirði var hald
inn í janúar.
Gunnar Jöhannessoi\ var endur
kosinn formaður í einu hljóði.
Jón Jóhannsson var kosinn vara
formaður, Þóroddur Guðmunds-
son gjaldkeri og Sigurður Magn-
ússon meðstjórnandi. Allir í einu
hljóði. Annar meðstjórnandi var
kosinn Gunnlaugur Hjálmarsson
með 90 atkvæðum móti Jónasi
Björnssyni, sem fékk 13 atkvæði.
Árgjöld félagsmanna voru hækk
uð úr 20 kr. upp í 25 kr.
Verkakvennafél. Brynja sam-
þykkti á aðalfundi sínum í jan-
úar að sækja um upptöku í Al-
þýðusambandið.
Formaður félagsins var kosin
Ríkey Eiríksdóttir með 98 at-
Framhald á 4. síðu