Nýtt dagblað - 19.02.1942, Blaðsíða 4

Nýtt dagblað - 19.02.1942, Blaðsíða 4
Nœturlœknir: Halldór Stefáns son, Ránargötu 12. Sími 2234. Nœturvörður er í Reykjavíkur- og Iðunnar apóteki. Símon Ágústsson flytur fyrir- lestur í kvöld kl. 6,15 í I. kennslu stofu Háskólans. Efni: Andleg heilsuvernd. Ollum heimill að- gangur. 1 jyrramorgun var maður nokk ur dæmdur í 500 kr. sekt fyrir öl- brugg. Trúnaðarráð Dagsbrúnar held- ur fund í Baðstofu iðnaðarmanna kl. 8,30 í kvöld. ,,Gullna hliðið“ verður sýnt í 30. sinn í kvöld. Næsta sýning verður annað kvöld. Hermenn rœna fafnaöí A mánudagskvöldið var. um kl. 10, var kært til lögreglunnar, að tveir brezkir hermenn hefðu larið inn í hús inni á Laugavegi og haft þaðan á brott með sér tau. Þegar lögreglan kom á vett- vang voru mennirnir farnir, en þeim hafði verið veitt eftirför og náðust þeir og voru þá enn með mestan hluta þess, sem þeir höfðu tekið. Voru þeir handtekn- ir. Innbrot í fyrrinótt var brqtizt inn í skýlið við sundlaugairnar á þann hátt, að brotin var rúða og far- ið inn um glugga. Stoliö var'sælgæti um 80 kr. virði. Verzlunarjðfnsiðurinn f janúar Innflutningurinn í janúar s. 1. nam um 15,4 milljónum króna '. n útflutningurinn á sama uma u;n 13 milljónum króna og var því óhagstæður um 2,4 milljónir. I janúar í fyrra nam útflutn- ingurinn 18,5 milljónum króna, cn innflutningurinn aðeins 6 millj ónum. Adalfundur Þróítar Framhald af 1. síðu hvæðum. Kiríksína Ásmundsdótt h-, sem boðin var fram af Fram- úkn og íhaldi, fékk 21 atkv. Samþykkt var að hækka árgjöld i:i úr fimm krónum upp í 10 kr. ----— aa O 4 « SöSBsáiíÉfiS MILO HEILDSOLUB: ÁíífÍI JÓNSSON, RVÍK Hcíf og köld svíd allan daginn Kaffísalan Hafnarstrætí 16 Úrslít í kvöld 6. 7. 8. Þessa dagana hefur staðið yfir sundknattleiksmót Reykjavíkur. Eru 3 félög þátttakendur í móti þessu, þau: Ármann með tvo flokka, Ægir með tvo flokka og K. R. með einn flokk. Urslit leikja í mótinu hingað til eru þessi: 1. Ægir A. — Ægir B. 7:0. 2. Ármann A. — Árm. B. 7 :3. 3. Ármann B. — Ægir B. gefur. 4. Ármann A. — K. R. 7:1. 5. Ægir A. 7— K- R. 6:0. Ármann A. — Ægir B. gefur. K. R. — Ægir B. 5:0. Ægir A. — Ármann B. 7 :0. Eftir eru aðeins tveir leikir: Ármann B og K. R. og verður hann fyrr, og síðan aðalleikur þessa móts, sem er leikur A-liða Ármanns og Ægis. Má því búast við tveim mjög skemmtilegum leikjum, því óvíst er mjög um úr- slitin. Þessi fjögur lið munu því gera sitt til að -láta hvergi hlut sinn. Hjá Ármann og Ægi koma fram flestir helztu sundmenn bæjarins, og eru hér nöfn þeirra, eins og búast má við að liðin verði: Ármann: Ögm. Guðmunds- son, Magnús Kristjáns, Þorsteinn Hjálmarsson, Stefán Jónsson, Guðmundur Guðjónsson, Gísli Jónsson og Sigurjón Guðjónsson. Ægir : Magnús Oddsson, Þórð- ur Guðmundsson, Hafsteinn Helgason, Logi Einarsson, Jón D. Jónsson og Jónas Halldórs- son. Eins og menn sjá er ómögulegt að fullyrða hvor verður sigur- vegarinn. Eftir þeim leikjum, sem ég hef séð virðast Ármenn- ingar vera í góðri þjálfun, og Ægir enda líka, þó ég efi að þeir séu í eins góðri þjáfun. Að gamni mínu ætla ég að ,,tippa“ leikinn þannig, að Ármann vinni með 1—2 marka mun. Að þessu sinni er keppt um álíaflega fagran grip, sem er sundknattleiksmaður skorinn í tré, en hann er gefinn af Tryggva Öfeigssyni skipstjóra. í sambandi við leiki þessa verður keppt í 100 m. bringu- sundi. Keppa þeir þar Ingi Sveinsson (Æ), Magnús Kristj- ánsson (Á) og Eðvarð Færsedt (Æ). Þá verður keppt í 50 m. skrið- sundi fyrir drengi innan 16 ára. Ennfremur 50 m. bringusundi sömuleiðis fyrir drengi undir 16 ára. Sundmót þetta er eitt af þeim, sem helguð eru afmæli í. S. í. Er líklegt að fjölmennt verði í Sundhöllina í kvöld. Fínnsku fasísfatrnír Framhald af 1. síðu. finnsku hermannanna*) Herrarnir R^ti og Rangel eru mjög varkárir í opinberum yfir- lýsingum sínum. Þeir eru sérstak- lega þögulir um manntjón Finn- lands í stríðinu við Sovétríkin. Samt er það alkunn staðreynd, að einungis við Petrozavodsk biðu margar þúsundir finftskra hvítliða bana. Ennþá fleirum var eytt á ströndum Ladogavatns. Valdhafar Finnlands vita þetta, | en þeir þora ekki að segja fólk- inu þetta. Og á meðan klæðist Finnland í sorg“. *) Þess skal getið að þýzka stjórnin gaf fyrir nokkrum mán- uðum út fyrirskipun um það að þýzkir hermenn í herteknum löndum mættu taka sér ,,heiðurs- konur“ í þeim löndum. Skyldu börn þau, er þeir gætu við þeim, vera þýzkir borgarar og hafa hinar þýzku konur þessara her- manna engan rétt til að kvarta neitt yfir þessu. Verkamenn Getum tekið 100 verkamenn í góða vinnu'rétt við bæinn. Upplýsingar á lagernum. Höjgaaird & Schulfe A, S. Leíkféíag Reykgavíkur* „Gulloa hliðiðu Sýning í kpöld og annað kvöld k^. 8- Aðgöngumiðasalan er opín frá kl. 4 til 7 í dag. T« ■HPP" VA ) 97 MANNSKAÐAVEflRKI eftir PHYLLIS BOTTOHE í aðförinni. Það skiftir engu máli af hvaða ástæðum. Eg neit- aði. Og því er ég hér. Mér var eiiis mikið áhugamál og þeim, að losna við Hans — ég játa það — en ekki á þenna hátt. Ólatur hefur ekki beðið þig um að komast að því hjá Freyju, hvort nokkrir fleiri hafi verið við þetta riðnir, en það er af því að honum finnst, að yfirvöldin ættu að yfirheyra hana. Hann brýtur aldrei flokksagann, nema í þágu flokksins. Hann lítur á það að skjóta Hans, sem skyldustarí. Og hann afsakar sig með því, að það hafi jafnframt verið í þágu fjöl- skyldunnar. Eg get fallizt á afstöðu hans, en ekki tekið þátt í henni. Eg vil heldur ekki, að Freyja verði yfirheyrð af lögreglunni, ef ég get komið í veg fyrir það — ég þekki þær aðferðir, sem þar er beitt. Ut af þessu er það, sem missætti þarf að verða á milli okkar, eins og endranær. Þú ert miskunnsamur, sagði móðir hans hæðnislega, en rétti honum hendina um leið. Fyrirgefðu mér, sagði hún lágt, ég var utan við mig, að ég skyldi vera svona vond við þig. En ég hef verið hjá Freyju. Eg er hjá henni. En ég hef engan rétt til að ásaka þig fyrir það, sem þú hefur ekki gert og ekki getað komið í veg fyrir, að yrði gert. Eg er þér þakklát fyrir það, sem þú hefur reynt til þess að hjálpa okkúr. Mér er það ekki lítils virði, að einn sona minna hafi ekki viljað eiga hlutdeild í morði unnusta systur sinnar. Við skulum vita, hvort við getum ekki liðsinnt henni bæði saman. Það eru engar ýkjur, þegar ég segi þér, að Freyja muni fyrirfara sér, verði hún fyrir frekara áfalli. Emil tók ekki í framrétta hönd móður sinnar, en færði sig nær henni og settist aftur á rúmstokkinn. Fritz hefur dottið ráð í hug. Hann vill, að þú sendir Freyju að Mabergi, þegar í stað. Greifinn verður í Múnchen klukkan fimm í kvöld. Viltu hitta hann á Café Haag ? Hann veit að Fritz ber ábyrgð á dauða Hans — ásamt Ólafi. Það varð ekki komizt hjá því að segja honum það — en auðvitað er honum áhugamál, að því sé haldið leyndu. Fleiri vita þetta ekki. Ef Freyja fer fljótlega, beina leið að Mabergi, þá er ósennilegt, að nokk- urn gruni, að hún hafi verið með Hans. Við munum sjá um, að ekkert berist út frá okkur og þú munt gæta hins sama. Það gæti haft slæmar afleiðingar, ef það yrði uppskátt síðar, og þú sérð, að til þess þarf ekki að koma. Auk þess — nú jæja — Fritz langar alltaf til þess að kvænst henni. Móðir hans stóð upp. Hún sýndist ótrúlega há og ógnandi. Æ, æ, stundi hún að lokum. Á þetta að endurtaka sig ? Þetta, sem ég hélt, að væri úr sögunni að fullu og öllu. Á að misþyrma annari konu — helfrysta sál hennar og smána tilfinningar hennar. Eg hélt að þeir tímar væru liðnir, að konur ættu allt sitt undir miskunn karlmannanna, ég hélt að hætt væri að líta á þær einvörðungu sem verkfæri eða leikfang karlmannanna. Þú ert karlmaður, Emil, þú átt lík- ama þinn sjálfur. Þér er frjálst að beita afli þínu. Ö, hversu lítið þú veizt hvað það er að vera mannleg vera, ofurseld miskunn annarrar mannlegrar veru, að þurfa að lifa í nán- ustu samlífi, án nokurrar ástar. Sendu eftir sporhundum lög- reglunnar og láttu þá setja systur þína á píningabekk. Það er betra, að hún stytti sér aldur, heldur en hún þurfi að lifa í slíkum þrældómi. Eg vil hvorki selja hana né vita hana selda. Mamma, mamma, hrópaði Emil. Hann fölnaði við að sjá ofsann, sem lýsti sér í augum hennar, þegar hún horfði á hann. Hvers vegna talarðu svona til mín ? Hvers vegna star- irðu á hendurnar á mér eins og þú hatir þær ? Eg hef ekki drepið Hans — og guð veit að ég vil ekki selja Freyju eða auðmýkja hana. Hún þarf ekki að giftast Fritz, ef hún er því mótfallin. Hann er enginn óþokki og hann elskar hana heitt. Hún getút ekki harmað dauðan bóndadurg, sem hún þekkti aðeins um nokkurra mánaða skeið, alla sína æfi. Móðir hans leit nú rólegar á hann. Hin ofsafengna reiði, sem hafði náð tökum á henni, hjaðnaði. Hendur hennar fóru að titra og hún mælti raunalega: Þetta er mér að kenna. Eg verð að gleyma. Nei, néi. Þú átt enga sök á þessu. Eg vissi það vel, Emil. Þú erl góður drengur og vilt okkur vel. En tímarnir eru svo rangsnúnir. Menn gruna alla um að hafa illt í huga, jafnvel þá sem sízt skyldi. Það er ekki satt, að mér þyki ekki eins vænt um þig og hin systkinin og ég hef alltaf borið traust til þín. Vertu ekki að Ijúga í mig, sagði Emil ruddalega. Það er öllu öðru verra. Þau voru þögul og horfðust í augp góða stund. Augu móð- ur haas háru vott um iðrun, en heit þrá bar reiði Emjjs of- urliði, Síífi!!Ö<IftOO*öO<>OO0C>OOO<>OOOOOÖOOOÖOOC>OO^O >oooo

x

Nýtt dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt dagblað
https://timarit.is/publication/258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.