Nýtt dagblað - 02.04.1942, Síða 4

Nýtt dagblað - 02.04.1942, Síða 4
 Oprboi*glnn1 Nœturlœknir £ nótt Halldór Stefánsson, Ránargötu 12, sími 2234. Aðra nótt: Axel Blöndal, Eiríksgötu 31, sími 3951. Aðfara- nótt sunnudags: Björgvin Finns- son, Laufásvegi 11, sími 2415. Nœturvörður í Laugavegsapó- teki. Helgidagalœknar eru: Skír- dag: Kristbjörn Tryggvas., Skóla vörðustíg 33, sími 2581, — og föstudaginn langa: María Hall- grímsdóttir, Grundarstíg 17, sími 4384 og laugardaginn: Ol. Jó- hannsson, Gunnarsbraut 38, sími 5979. Búðum er lokað kl. 4 á laugar- daginn. Gullna hliðið verður sýnt í 50. sinn klukkan 4 á annan í páskum og verða aðgöngumiðar seldir á laugardag fyrir páska frá kl. 2. UtvarpicS í dag: 12.15—13.00 Hádegisútvarp. 14.00 Messa úr Hallgrímssókn (séra Sig- urbjörn Einarsson). 15.30—16.00 Miðdegisútvarp. 19.25 Hljómplötur: Ur „Mattheuspassion- en‘‘ eftir Bach. 19.40 Lesin dagskrá næstu viku. 19.50 Auglýsingar. 20.00 Frétir. 20.30 Erindi: Um daginn og veginn (séra Sveinn Víkingur). 20.50 Orgelleikur úr Dómkirkjunni (Páll ísólfsson) : a) Chaconne í í-moll eftir Pachedbel. b) Tilbrigði um sálmalagið „Margt er mannabölið", eftir Joh. Gottfried Walt- her. 21.15 Utvarpshljómsveitin: a) Forleikur að óratóríinu „Paulus" eftir Mendel- sohn. b) Lög úr óperunni „Guðspjalla- maðurinn" eftir Kienzl. 21.35 Hljómplötur: Ur sálumessu eftir Brahms. 21.50 Fréttir. Dagskrárlok. SannSeíkurínn.,, Framhald af 3. siðu. landi hafa þeir í þjónustu sinni íorustusveitir tveggja stjórnmála- ílokka, Framsóknarflokksins og fíjálfstæðisflokksins, þessar for- ustusveitir sækja nú fram af raeira kappi og ákafa en nokkru sinni fyrr, undir forustu Jónasar Jónssonar og Ólafs Thors, í bar- áttunni fyrir hinni andlegu pest sem heitir fasismi. Úleyfileg viðskiptl við setuliðið Maður að nafni Karl S. Þor- steinsson bakari hefur verið kærð ur fyrir óleyfileg verzlunarvið- skipti við setuliðið. Þegar hefur sannazt, að um veruleg viðskipti hefur verið að ræða. Hinn ákærði hefur meðal annars keypt 15 poka af hveiti á 35—36 kr. pok- ann og allmikið af sultutaui, sír- ópi og bjór. Rannsókn málsins er ekki lok- ið. — Ragnar Jónsson fulltrúi saka- dómara hefur málið með hönd- um. Asíustyrjöldin Framhald af 1. síðu. 200 km. vestar en vígstöðvarnar sem nú er barizt á. Japanir hófu áhlaup í stórum stíl á varnarstöðvar Bandaríkja- hersins á Filippseyjum, og tókst iótgönguliði þeirra að ná nokkr- um framvarðarstöðvum varnar- hersins eftir grimmilega byssu- stingjaorustu. Árásarliðið var stöðvað áður en kom að hinni eig- inlegu varnarlínu Bandaríkjahers- ins. Sprengjuflugvélar Bandamanna lialda áfram áköfum árásum á stöðvar Japana á Nýju Gíneu og Tímor. Áströlsk blöð telja, að á Nýju Gíneli hafi Japanir hlotið fyrstu alvarlegu áföllin í Kyrra- hafsstyrjöldinni. Austurvírjf- stödvarnar Framhald af 1. síðu. an bæ, og segir Moskvaútvarpið að barizt hafi verið um hverja götu og hvert hús í bænum. Stór- skotalið rauða hersins undirbjó lokaárásina með margra klukku- stunda látlausri stórskotahríð. Á Krím hefur rauði herinn gert vel heppnuð áhlaup á varnarstöðv ar Þjóðverja,, og notið til þeirra aðstoð Svartahafsflotans, OOOOOOOOOOOOOOOOÖ Gerizt áskrif- endur að Nýju dagblaði ><><><><><><><><><><><><><><><><>< Leíkfélag Reybjavíkur. „Gulln hliðiðu 50. sýning á annan í páskum kl. 4. Aðgöngumiðar seldir frá klukkan 2 til 5 á laugardag. Auglýsið í Nýju dagblaðí ni MianNH Framh. af 3. síðu. nokkurn líma og sé þeim að því þroskaauki og menntun. Hins- vegar telur fundurinn launakjör þau, sem frv. nr. 80 gerir ráð fyr- ir, algerlega óviðunandi, með til- liti til hins mikla námskostnaðar lækna og launa annara stétta þjóðfélagsins. Má í því sambandi minna á, að nýlega auglýsti ein af stofnunum ríkisins eftir sendi- sveinum, og skyldi grunnkaup þeirra vera kr. 300,00 á mánuði, þ. e. a. s. hið sama og áðurnefnt frumvarp gerir ráð fyrir. Til þess að ná tilgangi þeim, er í frumvarpinu felst, er um tvær leiðir að ræða. í fyrsta lagi, að bæta kjör héraðslæknanna svo, að þau séu sæmilega viðunandi, og í öðru lagi leið sú, er frum- varp nr. 92 bendir á, það er að skylda læknakandidata með vald boði til þess að gegna héruðum. Þessa aðferð telur fundurinn með öllu óviðunandi, enda óþarfa. Læknum er einum allra há- skólaborgara skylt að vinna heilt ár að afloknu bóknámi, áður en þeir öðlast vinnuréttindi. Auk þess er nám þeirra lengra, dýrara og erfiðara en allra annarra stétta. Vilji þeir síðan hljóta sér- þekkingu tekur það langan tíma, og verður ekki gert nema erlend- is, með ærnum kostnaði, sem stendur ekki í neinu hlutfalli við það, er þeir geta borið úr býtum á eftir. Læknar einir verða alltaf að gegna kalli, hvernig sem á stendur fyrir þeim, hafi þeir ferli- vist. Það er því furðu hart, að leggja á þessa stétt þegnskyldu- vinnu umfram aðra þegna þjóð- félagsins, þegar svo tilgangurinn virðist einungis sá, að spara rík- inu nokkurra króna útgjöld, er ekki hægt að láta slíku ómót- mælt. Fundurinn álítur hinsvegar, að sú leið sé greiðfær og sjálfsögð, til lausnar þessu máli, að gera 8vo vel við héraðslækna og vænt- anlegra aðstoðarlækna, að em- bætti þeirra verði ekkert neyðar- brauð, sem menn einungis taki fremur en að fara á hreppinn. Störf héraðslækna eru einatt vandasöm, ætíð erfið og ábyrgð- armikil, og oft ábyrgðarmeiri en stéttarbræðra þeirra í bæjunum, því þeir hafa oft ónóg hjálpar- tæki og engan að ráðgast við í erfiðum tilfellum. Fólkinu er því nauðsynlegt að fá sem bezl mennta lækna til þessara starfa. Eins og launakjörum héraðs- lækna er nú háttað leggur enginn maður á sig erfiði og kostnað til þess að keppa að lélegu héraði. Duglegur maður mundi á þessum tíma heldur leggja fyrir sig brask og græða fé. Ráðið til þess að fá góða lækna" út í byggðir landsins verður því, að gera svo vel við héraðslækn- ana, að starf þeirra verði eftir- sóknarvert. Reykjavík 28. marz 1942 Virðingarfyllst, (Undirskriftír). 126 KANNSKAÐAVEfiRifi eftir PHYLLIS BQTTOME Hundarnir í garðinum vöknuðu, stóðu letilega á fætur, dilluðu skottunum og fylgdu henni vingjarnlegir út að garðs- hliðinu, þar sneru þeir við, röltu til baka og tóku á sig náðir á nýjan leik. Enn var ekki farið að grána af degi og var ekki laust við, að óhug setti að Freyju á leiðinni niður hlíðina. Inni á milli trjánna var svarta myrkur. Tilvera Freyju var öll með öðrum hætti en hún átti að venjast. Föðurland hennar hafði snúizt öndvert gegn henni. Hún bar barn undir belti. Hún var landlótta útlagi, sem læddist laumulega'á brottu eins og þjófur. Nú ætlaði hún að leita sér griðastaðar hjá lítt kunnugum fjallabúum. Þetta var næsta ólíkt því, sem hún hafði stundum hugsað um í æsku sinni, bæði með tilhlökkun og kvíða, að eignast barn. Freyja varð einskis vör á leið sinrii niður hlíðina. Járn- brautarstöðin var auð og tóm, að undanskildum mjólkurílát- um, sem þar voru í langri röð. Skömmu síðar var þögnin rofin af lest, sem nálgaðist. Hún nam staðar, ískrandi og másandi og innbyrti Freyju og mjólkurbrúsana. Freyja var eini farþeginn með lestinni. Þegar staðnæmzt var hjá St. Jóhanns þorpinu, voru allir þar í fasta svefni, en örlítið var þó farið að birta. Fuglarnir voru farnir að láta til sín heyra. Freyju lá við að óska þess, að veðrið væri ekki eins gott og raun var á. Hvert fótspor minnti hana á aðra ferð þessa sömu leið í svona veðri. Morgunsólin var farin að gylla tind- ana á Wettersteinsfjallinu. Sjónin og heyrnin skiptust á um að kvelja hana og angan jarðarinnar lét ekki sitt eftir liggja. Henni fannst Hans ganga á undan sér upp troðninginn. Hún staðnæmdist við og við og hlustaði, hvort vingjarnlega röddin hans ryfi ekki kyrrðina. Hún þorði ekki að líta upp og skima í kringum sig, þegar hún heyrði skrjáfa í laufinu fyrir ofan, undan íkorna, sem þar var á ferð. Henni lá við að bugast, þegar hún minntist þess, að vegna þessa litla kvikindis hafði hún glaðzt með Hans, í morgunsárinu, á þessum sömu slóðum. Hún varð fegin, þegar hún kom út úr skóginum, fjallið hafði þó skipt um ham. Sóleyjarnar og krókusarnir sáust ekki lengur, snjórinn var horfinn úr giljunum. Lækirnir voru minni og hljóðlátari. Upp á Wetterstein var löng ganga og erfið, en hvergi svo hættulegt, að athygli Freyju gæti beinzt einvörðungu að ferðalaginu, en mjög reyndi á líkamlegt þrek hennar. Hún varð svo þreytt, þegar hún kom upp á brúnina, að við sjálft lá, að hún gæfist upp, en þá sá hún slóðina heim að bænum og brátt blasti hann við henni í grænu verpi og vinalegu. Klukkan var ellefu um morguninn og erfiðustu störfum dagsins lokið, þegar hún kom að bænum. Frú Breitner var ein í eldhúsinu við matreiðslu. Anna og Michael, Franz og Karl voru á engjum. Freyja stóð feimnisleg í dyrunum og vissi ekki hvernig sér mundi verða tekið. Þegar frú Breitner heyrði fótatakið, sneri hún sér frá elda- vélinni og leit til dyra. Þær horfðust lengi í augu, án þess að mæla orð frá vör- um. Síðan gekk gamla konan til Freyju og faðmaði hana blíðlega. Na, na, mælti hún lágt. Guð hefur þá ekki gleymt því, að ég átti son, sem hét Hans. Freyja hafði lengi verið að hugsa um, hvort sér mundi veitast auðvelt eða erfitt að segja frú Breitner leyndarmál sitt. Henni hafði ekki dottið í hug, að ekkert mundi dyljast, reyndu og árvöku auga sveitakbnunnar. Hún sá óðara það, sem hvöss og tortryggin augu greifafrúarinnar höfðu ekki séð. Frú Breitner spurði Freyju nokkurra beinna, raunhæfra spurninga og kinkaði ánægjulega kolli við svörum hennar. Komdu út í sólskinið og settu þig niður, á meðan ég sæki þér eitthvað að drekka. Þú hefðir ekki átt að leggja á þig þessa löngu og erfiðu göngu. Fóstrið hefði getað haft illt af því. Ung stúlka, sem gengur með fyrsta barn sitt, verður að fara vel með sig. Líkami hennar er ekki eins sterkur og

x

Nýtt dagblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt dagblað
https://timarit.is/publication/258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.