Nýtt dagblað - 12.04.1942, Síða 4

Nýtt dagblað - 12.04.1942, Síða 4
0 Helgidagslœknir: Ulfar Þórðarson, Sól- vallagötu 18, sími 4411. N œturlœknir: Kristján Hannesson Mímisvegi 6, sími 3836. Nœturlœknir á mánudag: Theodór Skúlason, Vesturvallagötu 6, sími 2621. Utvarpið í dag: 10.00 MorguntónWikar (plötur) : Operan ,,Don Pasquale“ cftir Donizetti, 1. þáttur. 12.15—13.00 HádegÍ8Útvarp. 14.00 Messa í kapellu háskólans (séra Sigurður Einarsson dósent). 15.00—16.30 Miðdegistónleikar (plötur) • Öperan ,,Don PaSquale“, eftir Donizetti, 2. og 3. þáttur. 18.30 Barnatími (séra Jakob Jónsson). 19.25 Hljómplötur: Lagaflokkur eftir Kodaly.* 19.50 Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.20 Einleikur á fiðlu (Lórarinn Guð- mundsson) : Sveinbjörn Sveinbjörns son: a) Romanza. b) Vögguvísa. c) Moment musical. d. Humoreske. 20.35 Upplestur: Ur Alþingisrímunum (Vilhj. Þ. Gíslason). 20.50 Takið undir! (Þjóðkórinn. — Páll Isólfsson). 21.40 Danslag kvöldsins og önnur dans- lög. 21.50 Fréttir. 22.00 Danslög. 23.00 Dagskrárlok. UtvqrpiÓ á morgun: 12.15—13.00 Hádogisútvarp. 15.30—16.00 Miðdegisútvarp. 18.30 lslenzkukennsla, l. flokkur. 19.00 Þýzkukennsla, 2. flokkur. 19.25 Þingfréttir. 19.50 Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.30 Um daginn og veginn (Sigurður Einarsson dósent). 20.50 Hljómplötur: Létt lög. 21.00 Upplestur: Ný kvaeði eftir Guðm. Friðjónsson (Páll Steingrímsson rit- stjóri). 21.20 OtvarpshJjómsveiti*: Itölsk alþýðu- lög. Einsöngur (Pétur Jónsson ó- perusöngvari) : a) Árni Thorsteins- son: Vorgyðjan kemur. b) Svein- bj. Sveinbjörnsson: Sprettur. c) Schubert: Álfakóngurinn. d) Wagn er: Vorsöngur úr óperunni ,,Val- kyrjan“. 21.5§ Fréttir. Í)agskrárlok. Guðsþjónusta verður haldin í Háskóla- kapellunni í dag kl. 2 e. h. Sigurður Ein- arsson dóscnt flytjar guðsþjónustuna. — Ncskirkjukórinn syngur. Guðsþjónustunni verður útvarpað. SigurÓur Einarsson dósent talar um daginn og veginn í útvarpið á morg- Skákþíngíd: Eggert Gilfer varð sKáKmeistari Islands HannJihlaut 7 vinninga Síðasta umferðin á Skákþingi íslendinga var tefld í gærkvöld, og fóru leikar þannig: í meistaraflokki: Eggert Gilfer og Óli Valdimarsson jafntefli. Jó- þann Snorrason og Sturla Péturs son jafntefli. Pétur Guðmundsson og Jóhann L. Jóhannesson jafn- tefli. Margeir Steingrímsson vann Guðmund Bergsson og Kristján Sylveríusson vann Sigurð Gissur- arson. Orslit í meistaraflokki urðu því þau, að Eggert Gilfer vann nú skákmeistaratign Islands í 9 sinn. Hlaut hann 7 vinninga. Öli Valdimarssonfékk 6V2, Jó- hann Snorrason 6, Kristján Sylve ríusson 6, Sturla Pétursson öVá. Margeir Steingrímsson 4, Jóhann L. Jóhannesson 3’/a, Pétur Guð- mundsson 3, Sigurour Gissurar- son 2 og Guðmundur Bergsson 1V2. Verðlaunurn verður úthlutað í Félagsheimili verzlimarmanna kl. 2 i dag. Málverbasýníng Jóns Þorleifsson- ar í Blátúnum í dag er síðasta tækifæri til að sjá málverkasýningu Jóns Þor- leifssonar í Blátúnum. Þegar hafa yfir 600 manns sót.t sýninguna, og seld hafa verið milli 201 og 30 málverk. Það er mjög hófleg skemmti- ganga að ganga vestur að Blá- túnum, leiðin liggur eftir Kapla- skjólsveginum, skamman spöl vestur fyrir verkamannabústaðina Þeir verða ugglaust margir, sem heimsækja Jón í Blátúnum í dag. Brezki herinn tilkynnir Heræfingar fara fram þriðju- daginn 14. og miðvikudaginn 15. þessa mánaðar á svæðinu: Mið- dalsheiði norður að Grímmanns- felli. — Við æfingar þessar verða notaðar ýmsar tegundir af skot- vopnum. Veginum frá Geithálsi til Þingvalla verður íokað á með- an á æfingunum stendur. Fullkomnasta lýðraeðí veraldarsögunnar Framhald af 3. síðu. mann sinn heim, og kjósa ann- an í hans stað hvenær, sem þeir ætla, að hann starfi ekki í sam- ræmi við skoðanir þeirra. bannig er hið stjórnmálalega lýðræði fullkomnara í Sovétríkj- unum en nokkru öðru ríki. En auk þess er þar ríkjandi full komið atvinnulýðræði. — Hver vinnandi maður heíur rétt til þess að hafa áhrif á rekstur þess fyrir- tækis, sem hann vinnur við; hver vinnandi maður er meðeigandi í því atvinnufyrirtæki, sem hann vinnur við, og allir, sem við það vinna, hafa jafnan rétt og jafnar skyldur gagnvart fyrirtækinu. — Þetta er lýðræði, sem hvergi þekk ist í heiminum, nema í Sovét- ríkjunum. Væri nú ekki sanngjarnt, að ætlast til þess af heiðvirðum ís- lenzkum blöðum, þó afturhalds- blöð séu, að þau færu að segja sannleikann um þetta efni. Það má sennilega segja þeim það til málsbóta, að þau hafi flutt þrugl ið um einræðið í Sovétríkjunum að einhverju leyti í góðri trú. Rit- stjórar þeirra hafa sem sagt látið blekkjast af lygaáróðri um ,,ein- ræði“ í Sovétríkjunum. Þetta ber auðvitað ekki vott um mikla sjálf stæða athugunargáfu, né um sér- lega einlæga sannleiksleit. En liðið er liðið. Og þeir herrar, sem hafa látið blekkjast, og látið hafa sig til að koma blekkingunum á- leiðis, geta bætt fyrir það með því að bera nú sannleikanum vitni og skýra frá þeirri stað- reynd, sem allur heimurinn veit nú, að lýðræði Sovétríkjanna er fullkomnasta lýðræði sem þekkzt hefur á þessari jörð, og að það hefur leitt til meiri framfara en áður eru dæmi til að orðið hafi á jafnskömmum tíma. Eftir að þessi grein var rituð, hefur komið út blað af Tíman- um sem sýnir, að ritstjóri hans er ekki á því, að hætta að ljúga um Sovétríkin. Sú grein verður síðar tekin til meðferðar hér í blaðinu. Málverkasýning Jóns Þorlcifssonar í Ðlátúni er opin í síðasta sinn í dag. Sýn- ingin hefur verið mjög vel sótt, og yfir.20 málverk selzt á henni. BarnavinajélagiÓ Sumargjöf heldur að- alfund sinn í Kaupþingssalnum í dag kl. 3 e. h. un kl. 20.30. Barnast. Díana nr. 54. Filagor ! Fundur í dag á venjul. sta& »g tíma. Komiö stundvíslegn. ‘ Geezlumcnn. Barnast. Svaua, nr. 23. Muniö, félitg- ar, að koma á fund í dag. Þau, sem geta, hafi citthvað með sér til skemmtunar. Gœzlumenn. Sósialistafélag Reykjatííf^ur. Fundur á morgun sunnudag 12. apríl kl. 4 e. h. í Baðstofu iðnaðar- manna. FUNDAREFNI: 1) Kristinn Andrésson les úr mjög athyglisverðri bók um Sovétrfkin. 2) I. maí, Framsm. Jón Rafnsson. 3) Alþingiskosningar. Framsm.: Ársæll Sigurðsson. 130 MANNSKAÐAVEÐRK) efUr PHYLLIS BOTTOME um þótti vænt um fjölskyldu sína og gekk þess ekki dulinn, að meðal hennar mundi hann ekki mæta samúð. Emil, sem þó var stormsveitarmaður, og átti sömu hugsjónir og hann, hafði þverneitað ^ð eiga nokkra hlutdeild í því, að gera Hans aðför og skjóta hann. Við getum ekki gert þetta, sagði Emil, fáið þið einhverja aðra til þess. Við megum ekki veita Freyju slíkt áfall, Honum hafði alls ekki skilizt, að einmitt vegna þess, hve Ólafi þótti vænt um Freyju, var hann að forða henni frá þeirri hættu, sem henni var búin, ekki sízt þegar hann um leið vann að heill föðurlandsins. Ólafur fann sart til einveru á meðan þeir gengu fram og aftur á grasblettin- um í glaða tunglsljósi. Kastalinn varpaði frá sér dimmum skugga. Sinn varðmaðurinn gætti hvors enda blettsins, en lengra niðri sást þorpið, þar sem allt var orðið hljótt. Honum var lítil huggun í því cið hafa Fritz við hlið sér, niðurdreginn og þögulann. Þeir höfðu alltaf verið góðir vinir, en sannir félagar voru þeir ekki. Þeir höfðu gengið á sömu skóla, fengizt við sömu viðfangs- efni og umgengizt sama fólk, en samrýndir voru þeir aldrei. Fangelsisvistin hafði mjög ólík áhrif á þá. Einkennilegt er að vera undir sífelldu eftirliti, vita ætíð hvíla á sér augu manna, sem, ef til vill, eru ekki fjandsamlegir, en reiðubún- ir til mótspyrnu, ef nokkuð ber út af, þótt ekki væri nema tilraun til að ganga ofurlítið lengra, en heimilt er. Þeirra var vandlega gætt, bæði á nóttu og degi, þó að þeim væri veitt ýms fríðindi — vindlingár, dagblöð, bækur og góður matur frá veitingahúsi. Þeir höfðu góð rúm að hvílast í, að afloknum skyldustörf- um sínum, en engan, nema hvorn annan til að spjalla við. Ólafur lét sér þetta stranga, reglubundna líf vel líka. Hann leit á fangelsisvistina, sem hlutverk, sem yrði að leysa vel af hendi eins og hvert annað starf, sem hann hefði tekizt á hendur af frjálsum vilja. Aftur á móti hafði hann áhyggjur út af því, hve Fritz tók sér fangelsunina nærri. Fritz var daufgerður, en þó glaðlyndur að eðlisfari. Hann gat ekki sætt sig við að vera undir eftirliti og strangari aga, en hann átti að venjast. Frelsi þeirra beggja var jafnmikið skert, en Ólafur tók því sem sjálfsögðum hlut og reyndi að gera sér sem mest úr því litla frjálsræði, sem þeir engu að njóta, en Fritz leit á allan réttindamissi sem móðgun við sig og kærði sig kollóttann um öll fríðindi. Hann hataði vinnuna, smán- aði verði, og naut hvorki svefns né matar. Þá var sálarástandi þeirra ekki síður ólíkt farið, Fritz vissi raunar, að hann hefði breytt rétt í því að drepa Hans. Verk- ið hafði verið unnið bæði fljótt og vel, svo að hann þurfti ekki að ásaka sig í þeim efnum, en þó kvaldist hann af iðr- un nótt sem dag. Ólafur fann ekki til nokkúis samvizkubits vegna þess verknaðar. Hans hafði verið hættulegur ríkinu. Hann hafði verið að reyna að flýja undan réttlátri refsingu; hans beið ekkert annað en dauði. Hví skyldu þeir því bera hugarangur út af því, að hafa stytt honum aldur ? Ólafi þótti það einkennileg tilviljun, og ekki með öllu óskemmti- leg, að fyrsti maður, sem brúnstakkurinn Fritz varð að bana, skyldi vera Þjóðverji — ekki þýzkur Gyðingur, heldur ósvikin grein hins norræna stofns, Ijóshærður og bláeygur — og tal- aði sömu tungu og átti sama fööðurland og þeir, en því verri var glaspur hans. Þessi maður hafði verið kommúnisti, og auk þess hafði hann — bóndamaðurinn — gerzt svo djarf- ur, að leita ásta við stúlku úr annarri stétt en hann var sjálfur. Fritz óskapaðizt af engu tilefni. Hvað hafði hann að bera samanborið við þær sálarkvalir, sem Ólafur lejð? Hann iðraði þess ekki, að hafa gefið fyrirskipanir, sem leiddu til þess, að óvalinn glæpamaður þyldi réttlátan dóm. Að því gæti rekið, að hann gæfi heilli sveit ungra og hraustra Þjóð- verja skipun um að ráðast fram og deyja fyrir trú sína. — Hann væri manna fúsastur til þess að láta lífið með þeim- Þó yrði hann enn fegnari, ef hann gæti dáíð fýrir þá — en samvizkan lét hapn engan frið hafa fyrir það að gabba

x

Nýtt dagblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt dagblað
https://timarit.is/publication/258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.