Nýtt dagblað - 30.04.1942, Síða 2
2
N*TT D3EGBLXS
Fimmtudagur, 30. april 1942
í. maí sk.emmtanir oerkalýhsjélaganna.
Kvöldskemmtun
í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu heldur i. maí-
nefnd fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna, kl. 9 e. h.
í kvöld, fimmtudag 30. apríl.
Skemmtísbrá:
1. 1. maí. Ræða: Jón Rafnsson.
2. Upplestur: Halldór Kiljan Laxness.
3. Einsöngur: Þorsteinn Hannesson.
4. DANS.
Aðgöngumiðar að skemmtuninni eru seldir í
skrifstofu iðju, skrifst. Sjómannafélags Reykja-
víkur og við innganginn.
Krakka vantar
til að bera út Nýtt dagblað. Upplýsing-
ar á afgreiðslunni, Austurstræti 1 2.
Sími 2184.
Æ. F. R.
Æ. F. R.
1. mai skemmtun
heldur Æskulýðsfylkingin í Reykjavík laugardaginn 2. maí á
Amtmannsstíg 4. Skemmtunin hefst kl. 9 e. h. með sameigin-
legri kaffidrykkju.
DAGSKRÁ:
1. Upplestur : Sverrir Kristjánsson sagnfræðingur.
2. Ræða: Einar Olgeirsson.
3. Upplestur.
4. DANS.
Aðgöngumiðar seldir I. maí í skrifstofu Sósíalistafl., Lækjar-
götu 6, milli kl. 6—7 e. h.
Sósíalistar! Tryggið ykkur aðgöngumiða í tíma. — Húsinu lok-
að klukkan Wft e. h. STJÖRNIN.
Tllkjmnlng
Öll verkamannavinna fellur niður 1. maí,
eins og venjulega, vegna hátíðahalda
verkalýðsfélaganna.
Stjórn verkamannafélagsins Dagsbrón
Eysteinn vildi „frysta"
kaup verkamanna í Breta-
vinnunni
I gær fóru fram umræður í E.
d. um lögin um gjaldeyrisverzlun
frá síðasta ári, sem heímila að
,,frysta“ inneignir í erlendum
bönkum. Jóhann Jósefsson lagði
til, að lögin yrðu numin úr gildi.
Skýrði hann frá, að aðeins 11
milljónir hefðu verið ,,frystar“,
og sama sem ekkert af því fé
kæmi á togaraeigendur, heldur
aðra fiskútflytjendur. Nú eru lög-
in ekki framkvæmd.
Eysteinn skýrði þá jrá því, að
kpmið hejði til tals í ríkjsstjórn-
inni, að ,,frysta“ nokknð aj kuupi
manna, sem vinna í setuliðsvinn-
uhni, og sömuleiðis nokkuð aj
andvirði jiskjar, sem seldur er
samkoœmt brezk-íslenzka jisk-
sölusamningnum.
Það skal tekið fram, að hvort-
tveggja er óheimilt samkv. lög-
unum, því þar ræðir aðeins um
innstæður í erlendum bönkum.
Þetta var aðeins ein af hinum
mörgu leiðum, sem ræddar hafa
verið í ríkisstjórninni til að lækka
kaup íslenzkra verkamanna og
fiskimanna.
ooooooooooooooooo
Ferðasætlun Strætisvagna
að Lögbergi 1942
I. maí til 20. maí:
Frá Reykjavík kl. 7.00, 8.30,
13.15, 18.15, 21.15.
Frá Lögbergi kl. 7.45, 9.15,
14.15, 19.15, 22.15.
21. maí til 10. sept.:
Frá Reykjavík kl. 7.00, 8.30,
13.15, 15.15, 17.15, 19.15,
21.15, 23.15.
Frá Lögbergi kl. 7.45, 9.15,
14.15, 16.15, 18.15, 20.15,
22.15, 24.00.
Á sunnudögum aukaferð kl. 10
frá Rvík, kl. 10.45 frá Lækjar-
botnum, ef þörf krefur.
II. sept. til 30. sept.: .
Frá Reykjavík kl. 7.00, 8.30,
13.15, 18.15, 21.15.
Frá Lögbergi kl. 7.45, 9.15,
14.15, 19.15, 22.15.
1. okt. til 15. okt.:
Frá Reykjavík kl. 13.15, 17.15.
Frá Lögbergi kl. 14.15, 18.15.
ATH. Á sunnudögum hefst
akstur kl. 8.30.
Strætisvagnar
Reykjavíkur h.f.
Ceymið ferðaáœtluriina.
>oooooooooooooooo<
1. S. 1.
Sundmeistaramóti íslands
S. R. R.
lýkur í kvöld kl. 8,30.
Keppt verður í 400 m. bringusundi, 400 m.
frj. aðf. 3 x 100 m. böðsundi o. fl.
Aðgöngumiðar seldir í Sundhöllinni.
Fryggið ykkur aðgöngumiða í tíma.
í kvöld skemmtir fólk sér bezt í Sundhöllinni!
Framsókn skipar
„tnakk~nefnd"
líka
Framsóknarflokkurinn hefur nú
skipað nefnd til að tala við gömlu
þjóðstjórnarflokkana um, hvort
möguleiki væri fyrir nýrri þjóð-
stjóm. 1 nefndinni eru : Jónas frá
Hriflu formaður, Jörundur Brynj-
ólfsson og Sveinbjörn Högnason.
Nefndir íhaldsins og Alþýðu-
flokksins hafa nú setið á rökstól-
um í hálfan mánuð, og ekkert
gengið. Stjórnarskrárnefndin ger-
ir ekkert, af því þessir flokkar —
og þá fyrst og fremst íhaldið —
geta ekki komið sér niður á í
hvorn fótinn stíga skal.
Og nú hefur Framsókn skipað
nefnd líka ! — Þingið dansar, en
Það kemst ekkert áfram !
Hvers vegna fara þeir yfir
til rauða hersins?
Finnskur hermaður, Remo Osk-
ari Molainen að nafni, gaf sig
á vald rauða hernum.
Til skýringar á því, hversvegna
hann gerði það, sagði hann eft-
irfarandi: „Öll fangelsin í sveit-
um okkar og bæjum eru troð-
full af mönnum, sem hafa strokið
frá vígstöðvunum. Tvö hundruð
strokumenn eru í bænum Oulun.
Eg strauk einnig.
Eg var tekinn og Iátinn vera
í tvo daga í fangelsi. Síðan var
ég sendur til vígstöðvanna á ný
og sagt að ég yrði að taka fang-
elsishegninguna út að stríðinu
loknu. Eg tók því þann kost að
fara og gefa mig rauða hernum
á vald”.
íslenzkur sjómaður
hverfur erlendis
Síðast ]>egar togarinn Venus var
í Englandi hvarf einn maður af
áhöín skipsins, Brynjólfur Guð-
mundsson að nafni, frá Gó'rðum
í Breiðuvík á Snæíellsnasi,
Fór hann í land en kom ekki
til skips aítur og hefur ekkert
til hans spurzt.
Gúmmístakkar
níðsterkir
fást í
VOPNA
Aðalstræti 16.
Aðalfundur Ferða-
félags Islands
Aðaljundur Ferðafélags íslands
var haldinn í jyrra koöld í Iðnó.
Er jélagiÓ í örum vexti, félaga-
talan jókst á árinu um 672, og eru
jélagar nú 3680.
Félagið á nú í sæluhússjóði nær
5 þúsund krónur og í félagssjóði
um 3 þúsund krónur, og má fjár-
hagur félagsins því teljast góður
með tilliti til þess, að kostnaður
við Árbókina var allt að helmingi
hærri en árið áður. Félagsgjaldið
var 5 kr. á s. 1. ári, en var nú
hækkað upp í 10 krónur.
Félagið fór í 30 ferðir á árinu,
og mátti segja, að þær gengju all-
ar ,,eftir áætlun". Þátttakendur
í þeim voru 918, en árið þar áður
(1940), 620 þátttakendur.
Félagið hyggst að gangast fyr-
ir ferðum í sumar, eins og að und-
anförnu, en engin áætlun hefur
enn verið samin, en það mun
verða gert á næstunni. Er erfitt
að fá bíla til ferðanna. Ráðgert er
að byggja sæluhús við Hagavatn
á þessu sumri, og hefur efnið þeg-
ar verið keypt.
1 aðalstjórn voru kosnir: Geir
Zoega forseti, Steinþór Sigurðs-
son varaforseti, Jón Eyþórsson
ritari og Kristján Skagfjörð gjald-
keri, og er hann jafnframt fram-
kvæmdastjóri félagsins.
Skídamóf
Reykýavfkur
Svigkeppnin í skíðamóti Reykja
víkur fór fram í Innstadal s. 1.
sunnudag. Úrslit nrðu Jæssi:
I A- og B-flokki karla varð
fyrstur Magnús Árnason (IR) á
68,8 sek., annar Georg Lúðvíksson
(KR) á 73,33 sek., þriðji Einar
Eyfells (ÍR) á 88,0 sek., fjórði
Stefán Stefánsson (Á) 88,5 sek.
I C-flokki sigraði Haraldur Ár-
mannsson (IR) og næstir honum
voru iR-ingarnir Ólafur B. Guð-
mundsson, Björn Þorbjarnarson
og Páll Jörundsson. Fimmti varð
Hörður Þorgilsson (Á) og sjötti
Gunnar Johnson (KR).
ooooooooooooooooo
Gerizt áskril-
endur að
Nýju dagblaði
><><><><><><><><x>o<><><><x><>
Nokkrar stulkur
Vantar að Kíeppi og Vífilsstöðum.
Uppl. hjá yfirhjúkrunarkonunum.
/