Dagblaðið - 16.10.1975, Side 2

Dagblaðið - 16.10.1975, Side 2
2 Pagblaöiö. Fimmtudagur 16. október 1975. Verður ný Hringbraut sunn- an við Umferðarmiðstöðina? Nýtt skipulag við Land- spítalann hefur enn ekki veriö samþykkt en verður til umfjöllunar í skipulagsnefnd á næstunni. Þetta fengum við að vita hjá borgar- og skipulagsyfirvöldum Reykjavikur. Gerður var samningur á árunum 1967-68 milli rikissjóös og borgarsjóðs um flutning Hringbrautar og makaskipti á lóð. A að færa Hringbrautina sunnar og liggur hún þá i boga suður fyrir Umferöar- miðstööina. Mun þetta leysa viss umferðarvandamál, svo sem hringtorgið á mótum Snorrabrautar Miklubrautar og Hringbrautar og á horni Sóleyjargötu og Hringbrautar. Lengi hefur verið talað um aö Háskóli íslands kæmi til meö að byggja i samvinnu við Land- spitalann. Þarna er ekki aðeins um að ræða stækkun spitalans heldur mætti nefna þetta kennslu- og spitalastofnun. Fyrirhugað er að þarna veröi lækningar- og þjónustumiðstöö sem hefur með flestar sér- greinar að gera. Neðst, næst Hringbrautinni, yrðu kennslu- stofur Háskólans. Fyrirhugað er að fyrstu fram- kvæmdir verði vegna tann- læknadeildar og kennslu á veg- um iæknadeildar. Verður þetta 5hæða húsþar sem tannlækna- deildin f ær tvær hæðir en lækna- deildin þrjár. -EVI. Hér sjáum við langtima áætlanir um byggingu fyrir Landspitaiann og Háskóla isiands. Módeliö er að vlsu ekki alvegfullbyggt. Til dæmis vantar geðdeiidina sem er aö verða fokheld. Lengst tii vinstri sjáum viö Umferöarmiöstööina.Gamla Hringbrautin hverfur gjörsamlega. Ljósm. Bjarnleifur. „Byggingu annars hússins lauk i sumar og við vonumst til að geta lokið hinu núna i haust,” sagði Jón. „Þegar smiðinni verður lok- ið er ég kominn með 900 ferm undir gler.”. Kvaðst Jónnotaum 600 fm fyrir tómataræktina, sem væri megin- þátturinn i ræktuninni, en auk þess ræktar Jón agúrkur og blóm, auk rófna. Þær elur hann i moldarpottum inni þar til þær eru komnar vel á veg. Með þvi móti er hann kominn með góðar rófur upp úr miðjum ágúst. „Aðalmarkaðurinn fyrir græn- metið er á ísafirði og kemur Djúpbáturinn hingaö tvisvar i viku,” sagði Jón. „Samgöngur eru þvi vel viðunandi.” Nægur jarðhiti virðist vera á svæðinu, 26 sekúndulitrar af um 50 stiga heitu vatni, samkvæmt upplýsingum Jóns. Sagði Jón þessi þrjú heimili, sem eru á Laugarási vera hituð með vatni úr borholum af svæðinu og það væri Reykjanesskóli einnig. Hefðu menn þvi engu að kviða i þeim efnum, þótt norðarlega væru. HP Röng œtt- frœði Hafsteinn Einarsson, annar að- standenda tslenzkrar fyndni, sem sagt var frá i blaðinu i gær, var talinn afkomandi Gunnars frá Selalæk. Það reyndist misskiln- ingur og leiðréttist hér með. Gróðurhús á norðlægum breiddargráðum, Laugarás við Isafjarðar- djúp. GROÐURHUS A 66. BREIDDARGRÁÐU: TÓMATARÆKT VIÐ ÍSAFJARÐARDJÚP Ný veitingastofa, Esjuberg Jón garðyrkjubóndi Þórðarson á Laugarási við l'safjarðardjúp hefur ný lega aukið gróðurhúsakost sinn til muna. Við höfðum samband við Jón og f rædd- umst um ylhúsarækt norðlægum slóðum: Opnuð hefur verið ný og glæsileg veitingastofa á jarðhæð Hótel Esju i Reykjavik. Veit- ingastofan, sem hefur hlotið nafnið Esjuberg, er með kaffi- teriusniði og rúmar 248 gesti. Bætir hún úr brýnni þörf, þvi aö áður hefur aðeins verið rúm fyrir 58 manns i sæti i veitinga- sal hótelsins á 9. hæð hússins. Jafnhliða opnun Esjubergs verður tekið i notkun nýtt og fullkomið eldhús sem leysir af hólmi hálfgerða eldunaraðstöðu er fyrir var á hótelinu. Eldhúsið er þannig úr garði gert að öll tæki og borð má flytja úr stað. Þannig á að vera mjög auðvelt aö þrifa og er þetta nýmæli hér á landi. Afgreiðsla i kaffiteriunni ætti að geta gengið snurðulaust fyrir sig þvi gestir verða afgreiddir við langt afgreiðsluborð og er afgreitt frá báðum endum, eins og tiðkast viða erlendis. Umsjón með framkvæmdum þessum sem hófust i febrúar, höfðu Hafsteinn Vilhelmsson aðstoðarhótelstjóri á Esju og Steindór ólafsson sölustjóri. Yfirmatreiðslumaður að Esju- bergi verður Einar Arnason. —IIP— Séö yfir hluta hinnar nýju veitingastofu Flugleiða, Esjuberg, aö Hötel Esju f Reykjavlk.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.