Dagblaðið - 16.10.1975, Blaðsíða 13
12
Pagblaðið. Fimmtudagur 16. október 1975.
Pagbiaðið. Fimmtudagur 16. október 1975.
13
lC íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir j]
Góður j Yalsmenn slökktu
isZdsi Ijósin í Gróttu!
tsienzka unglingalandslið-
ið átti góðan dag i Luxem-
burg í gærkvöldi, sigraði 1-0.
' Oft á tiðum léku þeir skin-
andi vel — boltinn gekk sam-
herja á milli. Þó byrjuðu
Luxemborgarar vel, sóttu
nokkuð stift án þess að ógna
verulega. En ieikurinn jafn-
aðist — Islenzku piltarnir
fóru að sækja i sig veðrið. Á
33. mín. var Ilalldór Arason
úr Þrótti kominn I gott færi,
en var brugðið illilega innan
vitateigs og dæmd var vita-
spyrna. Albert Guðmunds-
son úr Val tók vitið, en brást.
Markvörður Luxemborgara
, varði.
Piltarnir létu þó ekki mót-
, lætið á sig fá — áttu hættu-
legar sóknir, sérstaklega
. voru Albert og Haildór Ara-
son ógnandi. Á 43. minútu
I skoraði Albert eina mark
leiksins eftir að hann og Pét-
ur Ormslev höfðu leikið
skemmtilega i gegn.
ísienzku piltarnir ætluðu
' ekki að láta þar við sitja, i
siðari hálfleik sóttu þeir stift
og Halldór Arason átti góðan
skalla i slá. Luxemborgar-
menn áttu einnig sin tækifæri
I — sérstaklega skall hurð
nærri hælum, þegar þeir áttu
hörkuskot i stöng.
í lokin sóttu Luxemborg-
I armenn stift en Víkings-ris-
inn Róbert Agnarsson var
i sterkur i vörninni og Jón
Þorbjörnsson úr Þrótti var
öruggur i markinu, varði
m.a. tvivegis mjög vel.
Góðursigur islendinga var
i höfn og hyllir nú i úrslita-
keppnina, sem fram fer í
Ungverjalandi næsta vor.
Síðari leikurinn fer fram 18.
april á Melavellinum og eiga
islenzku piltarnir góða
möguleika eftir fyrri leikn-
um að dæma.
—h.halls.
gegn
Walker
Mikið verður um dýrðir I
janúar á Nýja-Sjálandi.
Ástæðan er koma Tanzaniu-
mannsins fræga Filbert
Bayi, en hann á heimsmetið i
1500 metrunum. Hann mun
keppa við milumethafann,
John Walker, en eins og
menn muna setti hann ótrú-
legt met i milunni i Sviþjóð i
sumar — 3,49.4 min. og var
næstum búinn að hnekkja
heimsmeti Bayi i 1500 metr-
unum.
Ný-Sjálendingar biða
spenntir komu Tanzaníu-
mannsins.
h halls.
— Unnu stórsigur ó Seltjarnarnesliðinu í fyrsta leik
íslandsmótsins í gœrkvöldi, 24-16, og léku prýðilega
í síðari hólfleiknum
islandsmótið i hand-
knattleik hófst í gær. Þá
léku Valur og Grótta. Sem
við mátti búast gætti nokk-
urs taugaóstyrks í fyrri
hálfleik. Gerðu liðin sig
sek um ótímabær skot, en
er á leið komst meira jafn-
vægi á leik liðanna, einkum
leik Vals.
Fyrsta mark Islandsmótsins
skoraði Jón P. Jónsson, er hann
komst inn úr vinstra horninu.
Leikurinn hélzt i jafnvægi fyrstu
20 minúturnar en eftir það sigu
Valsmenn fram úr og staðan I
hálfleik var 11-6.
Hafi leikmenn Gróttu gert sér
einhverjar vonir um að minnka
muninn f siðari hálfleik, gerðu
Valsmenn þær strax að engu.
Tóku þeir af skarið og skoruðu
hvert markið á fætur öðru. Léku
Valsmenn mjög skemmtilegan og
hraðan handknattleik, sem hvað
eftir annað galopnaði tætingslega
vörn Seltjarnarnessliðsins. Þor-
björn Guðmundsson var drjúgur
þá. Skoraði á stuttum tima fjögur'
NEESKENS SKAUT
PÓLVERJA NIÐUR
— og Hollendingar eru ó ný efstir í
fimmta riðli Evrópukeppni landsliða
HoIIenzka silfurliðið frá HM
1972 sa meinaðist heldur betur eft-
ir ólguna siðustu daga, þegar að
stórleiknum kom við Pólverja I
fimmta riðli Evrópukeppni lands-
liða i Amsterdam i gærkvöldi.
Bronzliðið frá HM, það pólska,
var leikið sundur og saman
frammi fyrir 55.000 áhorfendum
— Holland vann 3—0 og er komið
á ný I efsta sæti i riðlinum. Nú
halda ttalir á lyklinum. Þeir eiga
eftir að leika bæði við Holland og
Pólland.
Johan Neeskens, Barcelona,
sem Einhoven-leikmennirnir
gagnrýndu sem mest eftir tap
Hollands f Póllandi 4—1, var aðal-
maður Hollands i gær — sjálfur
Johan Cruyff, fyrirliði hollenzka
liösins, féll i skuggann, svo og
aörir leikmenn liðsins fyrir
Neeskens — en i heild vann það
frábærlega saman og pressa þess
á Pólverjana bar árangur.
Strax I byrjun náðu Hollending-
ar tökum á leiknum — Jan
Tomaszewski, markvörðurinn
snjalli hjá Póllandi, varði
vel á fimmtu min. og rétt á eftir
átti Kerkoff hörkuskot i stöng.
Mark hlaut að koma — og á 19.
min. sendi Wim Suurbier knöttinn
inn á vitateig — Neeskens stökk
upp og skallaði knöttinn frábær-
lega I hægra horn marksins —
„fljúgandi skalli”. Tomaszewski
átti enga möguleika á að verja.
Eftir markið jafnaðist leikurinn
Pólverjar unnu stórsigur á
Grikkjum I landsleik undir 23,
sem fram fór I Póllandi i gær-
kvöldi. 1 hálfleik var staðan 1-1.
Ahorfendur voru átta þúsund.
talsvert — en Pólverjar' áttu þo
litla möguleika. Deyna greinilega
jafn taugaslappur og hann sagðist
vera fyrir viku siðan, þegar hann
vildi ekki leika með liöinu — en
samt settur i liðið. Hann var loks
tekinn Ut af á 70. min. A 60. min.
hafði hann þó tekið aukaspyrnu
vel — en varamarkvörður Hol-
lands,Daan Schrijvers, varði frá-
bærlega. Hann komst i liðið, þeg-
ar van Beveren yfirgaf æfinguna
á mánudag — sem frægt er.
Hollendingarkomusti 2—Oá 47.
min. Neeskenstók þá aukaspyrnu
og sendi frábærlega vel beint á
höfuð Geels, sem skallaði knött-
inn framhjá Tomaszewski i
markiö. Þremur min. siðar voru
Pólverjar heppnir að fá ekki á sig
mark — Henryk Wawrowski
spyrnti frá á marklinu eftir að
Geels hafði skallað knöttinn
framhjá Tomaszewski.
En á 59. min. var allur vafi af —
Neeskens lék glæsilega upp kant-
inn, gaf siðan vel á Frans Thys-
sen og þrumufleygur hans hafn-
aði neðst i markhorninu — algjör-
lega óverjandi. Hollenzka liðið
lék mjög vel i leiknum — þó svo
Neeskens bæri af. Baráttuvilji
var mikill og það svo, að Cruyff
var bókaður af hinum ungverska
dómara leiksins fyrir að sækja of
fast að Tomaszewski markverði.
Staðan i riölinum er nú þannig:
Holland 5 3 0 1 14-7 8
Pólland 5 3 11 9-5 7
ttalia 4 12 1 2-3 4
Finnland 6 0 1 5 3-12 1
Tveir leikir eru eftir. Pól-
land—Italla leika 25. október, en
Italia—Holland 22. nóvember.
glæsileg mörk, — furðulegt hvað
hann er litið notaður. A töflunni
mátti sjá tölur eins og 18-8 og
stefndi i stórsigur Valsmanna. A
lokaminútunum slöppuðu þeir að-
eins af og og lokatölur urðu 24-16.
Góður sigur Valsmanna i höfn.
Athygli vakti nýliði Vals-
manna, Gunnar Björnsson, áður
Stjörnunni. Hann skoraði tvö góð
mörk i fyrri hálfleik og er leik-
maður, sem sifellt þarf að hafa
gætur á. Þann stutta tima, sem
Þorbjörn var inn á, skoraði hann
fjögur mörk. Stefán Gunnarsson,
sem var klettur i vörn og Jón P.
Jónsson skoruðu 4 mörk hvor. Jón
Karlsson 3, Steindór Gunnarsson,
Guðjón Magnússon og Jóhann
Ingi Gunnarsson 2 hver. Gunn-
steinn Skúlason 1 mark.
Greinilegt er að leikmenn
Gróttu eru enn ekki komnir I
neina viðhlitandi þjálfun — liðið
virkar þungt — og boltinn er alls
ekki látinn ganga nógu hratt. Að
reynt sé að nýta breidd vallarins
er vart hægt að tala um. Ef
Grótta ætlar að verjast falli i 2.
deild verður liðið að taka sig
verulega á. Björn Pétursson, sem
er aðeins skugginn af sjálfum sér,
Árni Indriðason og Axel Friðriks-
son skoruðu 3 mörk hver. Hörður
Már Kristjánsson, áður Breiða-
bliki, og Halldór Kristjánsson 2
mörk hvor. Kristinn Asmunds-
son, Magnús Sigurðsson og Atli
Þór Héðinsson 1 mark hver.
Dómarar voru Björn Kristjáns-
son og Karl Jóhannsson.dæmdu
auðdæmdan leik ágætlega.
—h.halls.
Jón P. Jónsson brýzt fram hjá Birni Péturssyni og skorar fyrsta mark-
ið I íslandsmótinu I ár.
Víkingur byrjaði
vðrn titilsins vel
... ,... ........t ... .
— Vann stórsigur 6 Armanni 25-14 eftir að Armenningar
höfðu forustu framan af — en Víkingur skoraði 17
mörk gegn 5 í síðari hálfleik
„Ég skil ekkert í þessu.
Kann enga skýringu á
þessum ótrúlega mun á Ár-
mannsliöinu sem var í
þessum leik/" sagði Pétur
Bjarnason þjálfari Ár-
menninga eftir leik þeirra
við Víking í gærkvöldi. Ár-
menningar léku fyrri hálf-
leik mjög skynsamlega og
vel — nýttu vel þau færi
sem gáf ust og með Ragnar
Gunnarsson á bak við sig
var vörnin mjög góð. Það
var sem annað liðgengi inn
á f síðari hálfleik — leik-
menn gerðu sig seka um
byrjendaskyssur og Vík-
ingar beinlinis kafsigldu
þá.
Armenningar brugðu strax á
það ráð að taka Pál úr umferð og
vakti það nokkra athygli að hann
var allan timann i horninu —
þannig að i raun þétti hann vörn
Armenninga. Páll skoraði fyrsta
mark leiksins úr viti en Armenn-
ingar jafna fljótlega og komast i
5-2. Léku þeir mjög vel á þessu
timabili og létu Vikinga um að
gera mistökin. Þegar fimm min-
útur voru til hálfleiks var staðan
9-6 Armenningum i vil en Páli og
Stefáni tókst að minnka muninn i
eitt mark, 9-8.
Greinilegt var, að Karl Bene-
diktsson, þjálfari Vikinga, hafði
lesið heldur en ekki yfir sinum
Ótrúlegt heimsmet sett
í þrístökki — 17.89 m!
— Brazilíumaðurinn Oliveira stökk 17.89 m í þunna loftinu í Mexikó-borg í
gœr — Bœtti heimsmet Olympíumeistarans sovézka, Saneyev, um hvorki
meira né minna en 45 sentimetra
t þunna loftinu og hæðinni
miklu I Mexikó-borg i gær setti
Joao Oliveira, Braziliu.nýtt, frá-
bært heimsmet I þristökki —
stökk 17.89 metra og bætti heims-
met sovézkra meistarans Saneý-
ev um hvorki meira né minna en
45 sentimetra. Þetta skeði á Pan-
Ameriku-leikjunum og Oliveira
lagði áhorfendur á Olympiuleik-
vanginum alveg að fótum sér.
Saneyev, Olympiumeistarinn,
setti heimsmet sitt i Skuhumi 1972
— og bætti þá met, sem Pedro
Perez, Kúbu, setti á Ameríku-
leikjunum i Cali, Kolombiu, 1971.
Hann hefur verið bezti þri-
stökkvari heims um langt árabil
— þar til Braziliumaðurinn fer nú
langt fram úr honum. Þristökk
hefur löngum verið sú grein
frjálsra iþrótta, sem Braziliu-
menn hafa lagt mesta stund á —
allt frá þvi Da Silva setti heims-
met i Helsinki 1952 á Olympiu-
leikunum, stökk 16.12 metra — og
hann varði aftur Olympiutitil sinn
1956 I Melbourne eftir harða
keppni viö Vilhjálm Einarsson,
sem átti Olympiumetið i klukku-
stund — stökk 16.26 metra.
íslandsmet Vilhjálms er 16.70 m
sett 1960 — og ef hann heföi ein-
hverntima stokkið i Mexikó-borg
eða öðrum borgum „hátt uppi”
væri það vist vel yfir 17 metra.
Svo miklu munar, að stökkva i
þunnu lofti — mótstaðan miklu
minni. Heimsmet Oliveira á
Amerikuleikjunum nú er fyrsta
stórafrekiö, sem þar er unnið —
árangur hefur ekki verið neitt
sérstakur.
Bandarisku keppendum i frjáls
iþróttakeppninni gengur illa —
hafa aðeins hlotið fimm gullverð-
laun af 14, sem keppt hefur veriö
um. Eftir sömu greinar 1971 i Cali
hafði USA hlotið niu gull — og
fékk samtals 24 af 26 þá á leik-
unum. Kúbufólkið heldur enn sinu
striki á leikunum — hefur hlotið
fimm gullverðlaunum meira en
Bandarikin eða 11 samtals. Flest
hafa unnizt i lyftingum.
1 þristökkinu i gær voru aðrir
keppendur sem statistar gagn-
vart Braziliumanninum. Næstir
uröu Tommy Haynes og Adbul
Raham Caleb, báöir USA, — en
langt á eftir Oliveira. Árangurs
þeirra er ekki getið i fréttaskeyti
Reuters — og fréttastofan er
heldur stuttorð i frásögnum
sinum af leikjunum.
1 gær var keppt til úrslita i
fimm greinum frjálsra iþrótta.
John Powell, USA, sigraði i
kringlukasti. Annar varð Kúbu-
maður — Jay Silvester, USA,
þriðji. Arangurs ekki getið.
Katkey Weston, USA, sigraði i 800
metra hlaupi kvenna — en i 800
metra hlaupi karla urðu tveir
Kúbumenn fyrstir — Luis Medina
sigraði, en Leandro Civil varð
annar. Nær óþekktur Mexikani
3ji og Rayfield Beaton, Guyana,
fjórði. Mexikanar urðu i tveimur
fyrstu sætunum i 20 km göngu. í
langstökki kvenna sigraði
kúbönsk stúlka i fyrradag —
stökk 6,63 m. Watson, USA, varö
önnur, en Kathy McMillan, sem
sett hafði nýtt mótsmet i undan-
keppni varð aðeins 3ja. Þá má
geta þess, að eftir að Kúbumað-
urinn Leonard sigraði i 100 m
hlaupinu á 10,15 sek. hljóp hann
áfram t- beint ofan i gryfju og á
vegg við brautarendann Hlaut
nokkur meiðsli og er talið vafa-
samt, að hann geti keppt i 200 m
hlaupinu á leikunum.
mönnum i hálfleik. Vikingar
mættu mjög ákveðnir til leiks —
pressuðu Ármenninga i vörninni
og nú voru það Ármenningar sem
gerðu byrjendamistök. Þegar sið-
ari hálfleikur var hálfnaður var
staðan 16-10, já, Armenningar
höfðu aðeins gert eitt mark fyrstu
15 minúturnar — Vikingar, sem
höfðu verið undir, 6-9, voru nú
búnir að gera 10 mörk gegn 1, 16-
10. Eftirleikurinn var Vikingum
auðveldur, stöðugt jókst munur-
inn og stórsigur Vikinga var stað-
reynd 25—14.
Sá ótrúlegi munur sem var á
Ármannsliðinu i fyrri og siðari
hálfleik hlýtur að vera ihugunar-
efni fyrir það. Hvernig það má
vera, að lið sem hafði leikið mjög
skynsamlegan og oft ágætan
handbolta féll niður á algjört
byrjendaplan, kann ég ekki skýr-
ingu á. Ef til vill var það úthalds-
leysi eða bara að liðið brotnaði
gjörsamlega niður. Markahæstir
Armenninga voru Jón Astvalds-
son og Kristinn Ingólfsson með
þrjú mörk hvor. Vilberg Sig-
tryggsson og Pétur Ingólfsson 2
hvor og Jens Jensson, Gunnar
Traustason, Friðrik Jóhannsson
og Stefán Hafstein 1 mark hver.
Mikillar taugaspennu gætti hjá
Vikingum I fyrri hálfleik — enda
varði Ragnar bókstaflega alllt,
sem að marki kom. Svo virðist,
sem Vikingar megi búast við, að
Páll Björgvinsson verði tekinn úr
umferð i, að ekki sé meira sagt,
mörgum leikjum i vetur. Við
þessu verða Vikingar að finna
betra ráð en i fyrri hálfleik I gær-
kvöldi.
Þó Páll hafi verið tekinn úr um-
ferð meiri part leiksins skoraði
hann engu að siður 7 mörk, þar af
3 úr vitum. Það er engum vafa
undirorpið að Stefán Halldórsson
er sá fljótasti i islenzkum hand-
knattleik. Geysilega fljótur fram
og þannig skoraði hann flest sin
mörk úr hraðaupphlaupum 6 tals-
ins, þar af 1 viti. Viggó Sigurðsson
skoraði 4 mörk, Þorbergur Aðal-
steinsson 3, Skarphéðinn Óskars-
son 2 og Jón Sigurðsson, Erlendur
Hermannsson og Ólafur Jónsson 1
mark hver.
Dómarar i þessum leik voru
Hannes Sigurðsson og Óli Ólsen
og komu þeir oft mjög á óvart
með sérstæðum dómum sinum.
—h.halls
Svíarnir óttu
ekker svar!
— og Júgóslavía nœr örugg um sigur
í 3ja riðli Evrópukeppni landsliða
Sviar með alla sina atvinnu-
menn i knattspyrnunni áttu ekki
möguleika gegn frábæru júgó-
slavnesku liði í 3ja riðli Evrópu-
keppni landsliða i Zagreb i gær.
Slavarnir sigruðu með 3-0 og eru
nær öruggir með sigur i riðlinum.
Sviar misstu af öllum möguleik-
um vegna tapsins — og Noröur-
irland er nú eina landið, sem get-
ur náð Júgóslaviu að stigum — en
litlar likur á þvi. irarnir eiga eftir
leik sinn I Júgóslaviu — og Norö-
menn I Belfast.
Júgóslavar náðu strax tökum á
leiknum I gær ogá 18 min. skoraði
Branko Oblak, framvörðurinn
sterki, sem nú leikur I Þýzka-
landi, en var áður með Hadjuk
Split. Oblak fékk sendingu frá
Franjo Vladic og sendi knöttinn
yfir Ronnie Hellström i mark.
A fimmtugustu min. bættu
Slavar við öðru marki. Hægri
bakvörðurinn Ivan Buljan gaf vel
á miðherjann Ivicia Surjak, sem
skallaði knöttinn fyrir fætur
Vladic — og Vladic átti ekki I
erfiðleikum að skora af stuttu
færi.
Sjö minútum fyrir leikslok
skoraði hægri útherjinn Drago
Vabec 3ja markið i leiknum —
eftir skemmtilegan samleik við
Dragan Dzajic, en sá kunni kappi
leikur nú I Frakklandi — og stór-
sigurinn var I höfn. Júgóslav-
neska liðið lék snilldarknatt-
spymu — höfðu yfirburði allan
leikinn. Leikni þeirra var miklu
meiri en Svianna, sem lengstum
voru I vöm I leiknum. Raunveru-
lega eina tækifæriö, sem Sviar
fengu I leiknum var tiu minútum
fyrir leikslok, þegar Conny
Torstensson, sem leikur með
Bayern Munchen, lék á Olja
Petrovic, markvörð Júgóslava,
en varnarmaðurinn Josip Kata-
linski bjargaöi á marklinunni.
Katalinski leikur nú I Frakklandi.
Staöan I 3ja riðli er nú þannig:
Júgóslavia 5 4 0 1 11-4 8
Sviþjóð 6 3 0 3 8-9 6
N-írland 4 2 0 2 5-4 4
Noregur 5 1 0 4 5-12 2
N-lrland og Noregur leika 29.
október, en Júgóslavia — írland
19. nóvember.
Stœrsti Evrópusigur
Austurrikism enn eiga enn
möguleika I öðrum riðli Evrópu-
keppni landsliða eftir stórsigur
gegn Luxemborg I Vinarborg I
gær, 6-2. Ekki hafa fleiri mörk
verið skoruð i einum leik i
Evrópukeppninni — sex mörkin
hjá Austurrikismönnum er. það
mesta. Tveir leikir eru eftir I riöl-
inum. Annar milli Ungverjalands
og Luxemborg skiptir engu máli
— en úrslitaleikurinn veröur I
Wrexham I Noröur-Wales 19.
nóvember. Þá leika Wales og
Austurriki.
Staðan I 2. riðli Evrópukeppn-
innar er nú:
Wales 5 4 0 1 13-4 8
Austurriki 5 3 11 11-6 7
Ungverjal. 5 2 1 2 7-7 5
Luxemborg 5 0 0 5 6-20 0
Wales nægir þvi jafntefli i
Wrexham — en Austurriki verður
að sigra til að komast áfram i
Evrópukeppninni.
Terry Hlbbitt
Þeir neita
ósökunum!
öllum á óvart voru þeir Howard Kendall og
Terry Hibbitt settir út úr Birmingham-Iiðinu
á laugardaginn gegn Liverpool. Sterkur orð-
rómur komst. á kreik um, að þeir hafi setið
að sumbli og þess vegna hafi þeir verið settir
út. Báðir neita þeir harðlega — segja þetta
tómt kjaftæöi. Hibbitt, sem var nýlega keypt-
ur frá Newc. fyrirlOO þús. pund, hefur hót-
að að fara fram á sölu. „Ég er enginn fylli-
raftur. Ég er knattspyrnumaöur, sem tek
leik minn alvarlega,” sagði Hibbitt.
Á Iaugardaginn horfði hann á leik Sunder-
land og Orient á Roker Park. „Ég get allt
eins leikið með varaliði Newcastle eins og
Birmingham. Ég bý þó alltént i Newcastle og
þess vegna sé ég enga ástæðu til að vera í
Birmingham upp á þessi býtti,” sagði Hibbitt
og var hinn reiðasti.
—h.halls
Newcastle í
f jórðu umferð
Newcastle United tryggði sér rétt i fjórðu
umferð enska deildabikarsins i gærkvöldi,
þegar liðið sigraði Bristol Rovers úr 2. deild
með 2-1 á St. James Park i Newcastle.
Ekkert mark var skorað I fyrri hálfleik, en I
þeim siðari voru þrjú skoruð — Tommy
Craig skoraði fyrst fyrir Newcastle úr vita-
spyrnu og Natrass svo sigurmark leiksins. t
fjórðu umferðinni leikur Newcastle gegn
QPR og verður leikið á Loftus Road, leikfelli
QPR i Lundúnum.
Aðeins jafn-
tefli Tékka
Tékkar búa sig af kappi undir leik sinn við
Englendinga i Prag þann 29. október. t gær
léku þeir við Ungverja i Bratislava I Slóva-
kiu. Ekki tókst þeim að sigra og hinir 20 þús-
und áhorfendur fóru vonsviknir heim. Þrátt
fyrir mun þyngri sókn Tékkanna tókst þeim
ekki að skora i fyrri hálfleik, Ondrus misnot-
aði meira aö segja vitaspyrnu. Ungverjar
tóku óvænta forustu i siðari hálfleik, þegar
Varadi skallaöi framhjá Viktor I marki
Tékkanna. Tiu minutum siðar skoraði Ne-
hoda, lék á tvo varnarmenn og þrumuskot
hans hafnaöi óverjandi i marki Ungverja, 1-
1.
—h. halls.
RITSTJORN:
HALLUR
SiMONARSON