Dagblaðið - 22.10.1975, Blaðsíða 14
14 '
Dagblaðiö. Miðvikudagur 22. október 1975.
Véltœkni fékk Grindavík:
REYNSLAN MILLJÓN KRÓNA VIRÐI
— taldi Fjarhitun h.f.
,,Það er búið að semja við
Véltækni hf. um að taka að sér
fyrsta áfanga Hitaveitu Suður-
nesja,” sagði Ingólfur Aðal-
steinsson hjá Hitaveitu Suður-
nesja, en þarna er um að ræða
um það bil helminginn af dreifi-
veitu Grindavíkur.
Tólf fyrirtæki buðu i verkið.
Lægstur var Ýtir með 42.925.950
kr., næst Véltækni hf. með
44.004.800 og þar næstir Svavar
og Ellert hf., með 44.205.300 en
efstur var Arnljótur Guðmunds-
son með 65.002.400.
Kostnaðaráætlun var
48.753.500 þannig að lægsta til-
boð er 88% af kostnaðaráætlun
en tilboðið sem var tekið 90.3%.
Ingólfur sagði að það væri
alltaf matsatriði hvort ætti að
taka lægsta tilboði eða ekki, þó
væri það venjulegast gert. Ráð-
gjafar hitaveitunnar sem eru
Fjarhitun hf. töldu rétt að taka
tilboði Véltækni hf. þar sem það
fyrirtæki hefði mikla reynslu i
hitaveitulögnum. Aftur hefði
Ýtir sf. ekki sömu reynslu i
verktækni. —EVI
Víkingar sem
biðja friðarbœna
„Þetta er friðartákn", segir Ásmundur Sveinsson, um hamarinn
sem Einar afhenti Sameinuðu þjóðunum
„Ég tók þetta sem hálfgert
symból fyrir það að vikingarnir
i gamla daga voru duglegir i ó-
friði Og i dag erum við afkom
endur þeirra friðarsinnar. Ann
ars voru þeir ekki þeir verstu,
vikingarnir gömlu, og áreiðan-
lega erum viði dag mestu friðar-
sinnar heims,” sagði Asmundur
Sveinsson myndhöggvari, þegar
Dagblaðið rabbaði við hann i
gærdag um fundarhamar sem
Einar Agústsson utanrikisráð-
herra afhenti Luxembúrgar-
manninum Gaston Thorn, for-
seta 30. allsherjarþingsins á
dögunum.
Hamarinn var gerður fyrir
um tiu árum, hélt Asmundur,
frummynd hans heitir „Bæn
vikingsins fyrir friði”, og hefur
hamar þessi verið skorinn i tré
af Jóni Benediktss. myndhöggv-
ara. Hamarinn er gjöf íslands
til Sameinuðu þjóðanna.
„Þetta er öryggis- og friðar-
tákn,” sagði Ásmundur, „ég er
nú bara montinn af þvi að það
skuli vera notað svona vel.”
Einar Agústsson færir Thorn,
forseta allsherjarþingsins góða
gjöf. Litla myndin, Ásmundur
og afsteypan af „friðarbænum
vikinganna”, Ásmundur kvað
verst að vita ekkert hvar frum-
myndin væri niðurkomin. Vildi
hann gjarnan að þeir sem vissu
af henni létu sig vita. (Ljósm.
Björgvin).
’VcuTcteV'
Þéttir gamla og nýja
steinsteypu.
SIGMA H/F
Núpabakka 19
Upplýsingar i
simum
3-47-70 og 7-40-91
DAGBLAÐIÐ er
smáauglýsingablaðið
BIPREIÐA
EIGERDUR!
Nú er rétti timinn til athugunar á
bílnum fyrir veturinn
Framkvaomum véla-, hjóla- og Ijósastillingar
ásamt tilhoyrandi viðgerðum.
Ný og fullkomin stillitnki.
VÉLASTILLING SF.
Stilli- og Auðbrekku 51
vélaverkstæði Kópavogi, sími 43140
\
KJrkjugarós
Þessi kirkjugarösljós
fást hjá okkur. Birgðir
takmarkaðar.
Raftækjaverzlun
Kópavogs
Álfhólsveg 9
HATTA OG HANNYRÐAVF.RZLUNIN
Jenný
& ZJl
Árgerð '76 /Saab
NÚ EIGA STUÐARAR
AÐ STANDA UNDIR NAFNI
SAAB 95 og 96
Litlar sem engar útlitsbreyt-
ingar verða á 76-árgerðinni af
Saab-bílunum. Þó setur ný gerö
af stuðurum svolitinn svip á 95
og 96 geröir bllanna. Stuöararn-
ir eru sams konar og á 75-módeli
Saab 99 og eiga að þola meira
högg.
Af öðrum breytingum má
nefna að felgurnar breikka um
hálfa tommu, úr 4” í 4,5”.
Einnig eru nú komnir rafmagns
þræðir I afturrúðuna auk heits
blásturs. Þá kemur nýtt stýri á
76-módelið og rými i aftursæti
á Saab 96 eykst um 5 senti-
metra. Nokkrar aðrar smá-
breytingar verða á bilunum, en
allt þetta veldur þvi að nú heitir
billinn Saab 96L.
Verðið á Saab 95 og 96 er
þessa stundina:
96 ca 1.510.000
95 ca 1.740.000
99 frá 1.990.000til 2.280.000 kr.
í þessu verði er allt innifalið
til þess að billinn sé tilbúinn á
götuna, nema aö sjálfsögðu
tryggingarnar.
Innflytjandi Saab, Sveinn
Björnsson og Co, lánar um
300.000 krónur riýjum bilum,
og þá til tiu mánaða.
—AT-