Dagblaðið - 11.11.1975, Side 4
Dagblaðið. Þriðjudagur 11. nóvember 1975.
Niósnqrinn í nœsta húsi
'Laugarásbió. Barnsránið (The
black windmill) + + + +
106 min. brezk 1974. Panavision
og Technicolour.
Leikstjóri: Don Siegel.
Tarrant heitir maður i brezku
leyniþjónustunni. Hann hefur
það starf á höndum að komast
fyrir vopnasendingar sem fara
eiga til Norður-lrlands. Syni
hans er rænt og krafizt fyrir
hann lausnargjalds sem brezka
stjórnin á að greiða. Það er
greinilegt að mannræningjarnir
hafa haldgóðar upplýsingar og
grunur beinist að Tarrant. A
meðan gera ræningjarnir ýmis-
legt til að gera Tarrant tor-
tryggilegan. Á endanum tekst
honum þó að rekja slóð ræningj-
anna og komast að þvi hver
stendur á bak við þá.
Don Siegel er enginn viðvan-
ingur i gerð spennandi mynda.
Ekki verður þessi mynd til þess
að hann lækki i áliti sem slikur.
Þetta er vel unnin kvikmynd og
vel þess virði að eytt sé á hana
tima og peningum. Ahorfendum
er haldið i spennu alla myndina
út i gegn en þrátt fyrir það kem-
ur endirinn nokkuð á óvart.
Þegar drengnum er rænt er
stutt skot af fótum sem standa
örlitið skakkir á gólfi. Nokkru
seinna sér maður yfirmann
Tarrants standa á mjög svipað-
an hátt heima hjá Julyan lá-
varði, yfirmanni sinum. Aha,
hugsar maður, stráknum
verður bjargað og hann þekkir
lappirnar og allt kemst upp.
Bara, hvenær skeður það? Það
er nú einmitt það. Sigel er eng-
inn klaufi.
Það er alltaf hressandi að sjá
Michael Caine i hlutverkum
eins og þessu. Fjölskyldu-
maðurinn i vanda og það er
starfið sem hefur komið honum
i klipuna. Allir á móti honum,
samstarfsmennirnir gruna
hann um græsku, konan ásakar
hann um hvernig komið sé og
sonurinn i lifsháska. 1 gegnum
allt þetta siglir Caine að þvi er
virðist áreynslulaust og af fá-
dæma öryggi, sem margir leik-
arar mættu þakka fyrir að hafa.
Það sem gerir Caine svona
skemmtilegan að minum dómi
Tarrant (Michael Caine) fær fregnir af hvarfi sonar sins.
ALLSHERJAR
ELTINGALEIKUR
er að hann virkar svo ósköp
venjulegur. Kvikmyndataka er
vel af hendi leyst og ákaflega
brezk og það sama gildir um
aðra tæknivinnu. Það er alltaf
greinilegt hvort tæknivinnan er
brezk eða annars staðar frá. Sú
brezka er svo miklu virðulegri
og rólegri og laus við allt fum.
Einnig er Bretinn alltaf meira
fyrir blátt áfram vinnu fremur
en einhverjar brellur eins og
hraðar klippingar til dæmis.
Tarrant gefur skýrslu.
Kvik
myndir
Háskólabió: S.P.Y.S. + +
100 min. brezk 1974, Techni-
colour. Leikstjóri: Irvin
Kershner.
Douglas Griffin og Eric
Brulard eru starfsmenn CIA I
Paris. Þeim er næstum kálað af
samherjum sinum i misgripum.
Svo virðist sem öll mistök, sem
gerð eru af leyniþjónustum
þeim sem starfandi eru i Paris,
séu CIA að kenna að einu eða
öðru leyti. Eftir að hafa klúðrað
verkefni, sem þeim er falið af
yfirmanni sinum, er reynt að
losna við þá. Þeir ákveða þá að
fara út i sjálfstæðan atvinnu-
rekstur og skreppa til London.
Þar ætla þeir að handsama
sendimann og ná i upplýsingar
frá honum sem þeir geti svo selt
hæstbjóðanda. Þeir hafa þó i
fyrstu ekkert upp úr þvi nema
hund mannsins. Að endingu
komast þeir þó að þvi að það
sem þeir eru að leita að er falið
á hundinum. Or þessu verður
svo einn allsherjar eltingaleikur
þar sem CIA og KGB eltast við
þá og hvor annan og Kinverjar
eltast við KGB. Að sjálfsögðu
tekst þeim að klóra sig út úr
þessu.
Donald Sutherland og Élliott
Gould fara hér á kostum og er
ekki laust við að maður hafi
lúmskt gaman af á köflum. Þvi
miður er myndinni svo illa leik-
stýrt að hvert tækifærið á eftir
öðru til að sprengja áhorfendur
af hlátri fer til spillis. Suther-
land og Gould bjarga þó þvi sem
bjargað verður en án þeirra
hefði hverjum manni með snefil
af kimnigáfu dauðleiðzt. Þeir
kaflar i myndinni, sem hægt er
að hafa gaman af, eru eingöngu
bornir uppi af þeim. Það er
einnig virðingarvert að mynd
sem greinilega er ætlað að ná
sömu áhrifum og MASH skuli
ekki vera bein stæling á þeirri
mynd. Það eru meira að segja
allt aðrar kringumstæður i
þessari mynd þrátt fyrir sams
konar titlahönnun. Það sem
skilur á milli þessara mynda er
það að i MASH var háðið og
ádeilan napurt og hnitmiðað en i
SPYS er það fremur máttlaust
og ruglingslegt. Maður fær ó-
sjálfrátt á tilfinninguna að það
sem kemur vel út i SPYS hafi
gert það af slysni og enginn hafi
vitað um það fyrr en búið var að
vinna myndina.
Tveir
v_
góðir saman.
Elliott Gould og Donald Sutherland.
✓
Aö leikslokum. Tarrant heldur heim á leið með soninn.
Aukið húsrými hjá Vörumarkaðnum
Matvörudeild Vörumarkaðs-
ins við Armúla hefur nú verið
stækkuð og er gölfflötur hennar
900 fermetrar. Er nú hægt að fá
bæði kjöt og mjólkurvöru i
Vörumarkaönum, en það hefur
ekki veriö þar til þessa.
A jarðhæð er verið að ganga
frá 500 fermetra verzlunar-
húsnæði, þar sem seld verða
húsgögn og heimilistæki. Eirinig
er verið að koma upp bættri
aðstööu fyrir starfsfólkið, m.a.
steypiböðum og mun það vera
nýlunda hér á landi.
Þá hefur bifreiðastæðum
verið fjölgað við verzlunina,
sem hefur aukið starfsemi sina
mjög mikið siðan hún var stofn-
sett árið 1967. Ljósm. Ragnar
Th. A.Bj.
át i ■■••'TTnTíti
Séð yfir hluta Vörumarkaðarins eftir stækkunina.