Dagblaðið - 11.11.1975, Blaðsíða 5
Dagblaðið. Þriðjudagur 11. nóvember 1975.
{ Útvarp
Sjónvarp
Útvarp kl. 21.00 í kvöld:
Flugfreyju-
og þjónsstörf
kynnt í þœtti
fyrir unglingo
Kl. 21.00 i kvöld er þáttur fyr-
ír unglinga á dagskrá útvarps-
ins, sem Guðmundur Árni Stef-
ánsson sér um, ,,Frá ýmsum
hliðum”. Hefur hann Þorvald J.
Viktorsson sér til aðstoðar.
í kynningarþætti i útvárpinu
sagöi Guðmundur að efni þátt-
arins skiptist i 2 meginþætti.
Fyrst og fremst er þetta starfs-
kynningar- og skólakynningar-
þáttur, þar sem tekin verða fyr-
ir hin ýmsu störf á almenna
vinnumarkaðnum.
1 þættinum i kvöld verður tek-
ið fyrir starf flugfreyjunnar og
flugþjónsins ásamt veitinga-
þjónsstarfinu. Seinna i vetur
verður starf hinna ýmsu skóla
tekið fyrir og kynnt.
Hinn hluti þáttarins verður i
léttari tón og verða þá tekin fyr-
ir ýmís áhugamái unglinga, svo
sem tónlist og félagslif þeirra.
Farið verður i skólana og spjall-
að við ungiingana og kannað
hvað þeir hafa fyrir stafni.
Þá verða tekin fyrir ýmis
vandamál unglinganna, komið
inn á kynferðismál og vandamál
heima fyrir.
Við munum leggja á-
herzlu á, sagði Guð-
mundur Arni, að unglingarnir
sjálfir verði virkir i mótun
þessa þáttar og höfum lagt
mikla áherzlu á að þeir láti i sér
heyra og komi með tillögur um
efni sem tekiö yrði fyrir. Tölu-
vert góðar undirtektir voru frá
fyrsta þættinum og hafa borizt
um 100 bréf. 1 þeim komu fram
margar athyglisverðar tillögur
sem verða notaðar siðar i vetur.
A.Bj.
Útvarp á morgun kl. 14:30
Saga um heyrnarlaus
hjón eftir banda-
rískan verðlaunahafa
Á morgun kl. 14:30, er annar
lestur m iðdegissögunnar
„Fingramál” eftir Joan Green-
berg. Bryndis Viglundsdóttir les
þýðingu sina.
1 kynningarþætti útvarpsins á
laugardaginn sagði Bryndis
m.a. um söguna og höfund
hennar:
— Sagan fjallar um heyrnar-
laus hjón og segir frá lifsferli
þeirra allt frá þvi að þau eru
börn i heyrnleysingjaskóla þar
sem þau 'læra 'málið ekki nógu
vel, þannig að þegar þau eiga að
verða virkir þáttlakendur i lif-
inu i venjulegu samfélagi reka
þau sig illilega á.
Höfundurinn er bandarisk
kona sem er vel þekkt i heima-
landi sinu og hefur m.a. fengið
Puiitzerverðlaunin. Með þekkt-
ari bókum hennar er ,,Ég lofaði
þér aldrei rósagarði”.
Um sannleiksgildi þessarar
sögu er það að segja að höfund-
urinn, sem er dómtúlkur fyrir
heyrnleysingja fylgist mjög vel
með hvað gerist i málum þeirra
fyrir vestan, hefur sagt að þau
mál, sem getið er um i bókinni,
hafi öB átt sér stað i raunveru-
ieikanum. A.Bj.
Ástin og heimovistin
r
Astin og bjortsýnin
Ástin og kennarinn
Sjónvarpið í
kvöld kl. 21.40:
Svona er ástin
Það er gamanmyndasyrpan
,,Svona er ástin” sem við sjáum
i kvöld. Sumir hafa það nú
raunar á orði að svona sé ástin
bara i henni Ameriku, en ekki
hérnaútiá hjara veraldar. En
hvað um það, fyrsta myndin
heitir „Astin og heimavistin” og
fjallar um táninga sem búnir
eru i gagnfræðaskóla og eru nú
að fara i heimavistarskóla.
Krakkarnir vissu að visu að i
skólanum yrðu bæði piltar og
stúlkur, en það sem þeir vissu
ekki var að þar væri svo frjals-
legt að piltar og stúlkur yrðu
saman i herbergi. Það kom lika
á daginn að tölva hafði gerzt
sek um nafnabrengl, en eins og
gefur að skilja verður út úr
þessu alls konar misskilningur.
Næsta mynd heitir „Ástin og
bjartsýnin” og er um bjart-
'sýnan en jafnframt óheppinn
uppfinningamann. Hann kemst
á snoðir um að kvenmaður einn
ætlar að fremja sjálfsmorð og
rýkur af stað til þess að reyna
að telja honum hughvarf. Það
fer hins vegar svo að hann smit-
ast af sjálfsmorðshugleiðingun-
um sjálfur. Hvað verður úr
þessu hjá þeim sjáum við svo i
kvöld.
Q Utvarp
14.30 Vettvangur. Umsjón:
Sigmar B. Hauksson. 1
fimmta þætti er fjallað um
streitu.
15.00 Miðdegistónleikar. ts-
len/.k tónlist. a. lög eftir
Þórarin Jónsson, Skúla
Halldórsson, Markús
Kristjánsson, Jónas Tómas-
son, Karl O Runólfsson
og Knút R. Magnússon.
í
Sjónvarp
D
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Lifandi invndir. Þýskur
fræðslumyndaflokkur.
Lokaþáttur. Þýðandi Auður
Gestsdóttir. Þulur Ólafur
Guðmundsson.
20.50 Þingið og þjóðarhagur.
Umræðuþáttur i framhaldi
af þættinum „Þrýstihópar
og þjóðarhagur”, sem sýnd-
ur var 28. október siðastlið-
inn.-Meðal annars verður
rætt við alþingismennina
Gunnar Thoroddsen og Lúð-
vik Jósefsson. Umræðunum
stýrir Eiður Guðnason.
21.40 Svona er ástin. Banda-
risk gamanmyndasyrpa.
Þýðandi Jón O. Edwaid.
22.30 Utanúr heimi. Dagbók
arþættir frá Lissabon.Kvik-
mynd, gerð af danska sjón-
varpinu á þessu hausti um
gang mála i Portúgal. Þýð-
andi Dóra Diego.
23.20 l'agskrárlok
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatiminn. Finn-
borg Scheving fóstra sér um
timann.
17.00 Lagið mitt. Berglind
Bjarnadóttir sér um óska-
lagaþátt fyrir börn yngri en
tólf ára.
17.30 Framburðarkennsla i
sþænsku og þýzku.
17.50 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 FréUir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Verklegt nám og val-
greinar i grunnskóla.
Matthias Gestsson kennari
flytur erindi.
20.00 l.ög unga fólksins.
Ragnheiður Drifa Stein-
þórsdóttir kynnir.
21.00 Frá ýmsum hliðum.
Guðmundur Árni Stefáns-
son sér um þátt fyrir ung-
linga.
21.30 Sinfónia i C-dúr (K200)
el'tir Mozart. Mozarteum-
hljómsveitin leikur, Ger-
hard Wimberger stjórnar.
21.45 „Land og stund i lifandi
myndum".Gunnar Stefáns-
son les ljóð eftir Matthias
Jochumsson.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Kjarval" eftir Thor
Vilhjálmsson. Höfundur les
(12).'
22.40 liannonikulög. Andrew
Walter og Walter Erikson
leika.
23.00 A hljóðbergi.
„Ástin og kennarinn” heitir
svo þriðja myndin og sú siðasta.
Listamaður nokkur fræðir
ungan son sinn um staðreyndir
lifsins og telur að sér hafi farið
það vel úr hendi. Sonurinn fær
hins vegar heldur bágbornar
einkunnir hjá kennara sinum og
telur hann að strákurinn viti
heldur litið um málið. Lista-
maðurinn fer þá að hitta
kennarann i þeim tilgangi að
lesa aðeins yfir honum. En
kennarinn er þá ung og lagleg
stúlka. Þau virðast hafa ólikar
skoðanir i fyrstu en ýmislegt
breytist þegar þau fara að
ræðast við. -EVI
Um aldir hefur ÞRÍGRIP þróast
og er nú bezta lausnin á innréttinga- og lagervandamálum margra atvinnu-
greina.
Möguleikar á breytingum auka notagildi samstæðunnar að gera hana hag-
kvæma og þægilega.
Viðafgreiðum eftir máli og erum einnig ávallt reiðubúnir að veita upplýsing-
ar og leiðbeina yður um hvers konar hugmyndir og óskir sem f ram koma.
útsölustadur:
J.ÞORLÁKSSON & NORÐMANN
Bankastræti 11