Dagblaðið - 11.11.1975, Page 6
6
Dagblaðið. Þriðjudagur 11. nóvember 1975.
Þessa skemmtilegu mynd af Henry Kissinger fengum við frá UPI.
Myndin var tekin á fundi utanrikismálanefndar Bandarikjaþings,
þar sem Kissinger fór fram á fjárveitingar til aðstoðar við israel og
Egyptaland. Takið eftir stúlkuandlitinu, sem speglast vinstra nteg-
in.
CIA verðlaunaði
með eiturfyfjum
Bandariska leyniþjónustan CIA
verðlaunaði eiturefnaneytendur
og sjúklinga með miklu magni af
sterkum eiturlyfjum fyrir að taka
þátt i tilraunum með slik efni.
Rannsóknarnefnd öldungadeildar
Bandarikjaþings var skýrt frá
þessu á föstudaginn.
Tveir eiturlyfjasjúklingar, sem
sögðust hafa verið fangelsaðir
fyrir eiturlyfjabrot, kváðust hafa
fengið mikið magn af morfíni og
annarri sterkri lyfjategund „i
borgunarskyni” eftir að tilraun-
unum var lokið.
Mennirnir tveir, Edward
Flowers og James Childs, sögðu i
yfirheyrslum hjá undirnefnd
dómsmálanefndar öldungadeild-
arinnar, að þeir hefðu verið látnir
skrifa undir „samþykkisyfirlýs-
ingu” þess efnis, að þeir friuðu
embættismenn af allri ábyrgð ef
eitthvað kæmi fyrir þá.
Mennirnir sögðu nefndinni, að
þeir hefðu gefið sig fram til til-
raunanna þar sem þeir hefðu vit-
að, að þeir myndu fá eiturlyf i
staðinn.
„Bardot var sköpuð,” skrifar
franska skáldkonan Francoise
Sagan, ,,og allur heimurinn
samþykkti.”
Svo segir i nýjasta hefti
bandariskra fréttaritsins News-
week Greinir þar frá nýút-
kominni bók með myndum af
BB og skrifar Sagan texta
myndanna. Aðdáun skáldkon-
unnar á Brigitte Bardot fer ekki
leynt i textanum. Myndirnar
sýna Bardot i öllum mögulegum
stellingum og búningum.
Sagan segir m.a., að Bardot
hafi ómeðvitað verið stofnandi
kvenréttindahreyfingar
nútimans. ,,Hún tók sér eðlileg
réttindi fegurðar sinnar, skrifar
Sagan, sem sjálf er
mannréttindakona mikil.
„Heiður va'rð enginn meiri eða
mikilvægari en að sigra — i
hvaða rúmi sem var — mann-
inn, sem hún vildi sigra.
itSfS
Allsherjarþingið
ítrekar stuðning
við sjálfstœði
Palestínumanna
Allsher jarþing Sameinuðu
þjóðanna hefur samþykkt álykt-
anir, þar sem staðfest er krafa
palestinsku þjóðarinnar til
sjálfstæðis og jafnframt að
Palestinumenn verði aðiljar að
friðarviðræðum Miðaustur-
landa.
Allsherjarþingið samþykkti
að fela Kurt Waldheim, fram-
kvæmdastjóra samtakanna, að
gera stjórnum Bandarikjanna
og Sovétrikjanna — sem sam-
eiginlega sitja i forsæti við frið-
arviðræðurnar i Genf — að gera
allar nauðsynlegar ráðstafanir
til að bjóða frelsisfylkingu
Palestinu (PLO) þátttöku i
starfi Genfarfundarins „sem og
i öllum öðrum friðarumleitun-
um”.
1 annarri ályktun samþykkti
þingið að setja á laggirnar 20-
manna nefnd fulltrúa, er kannar
og finnur leiðir til að tryggja
Palestinumönnum fullt frelsi og
sjálfstæði sem fullvalda þjóð.
Nefndarmenn verða skipaðir
af forseta Allsherjarþings SÞ,
Gaston Thorn, forsætisráðh.
Luxemburgar. Eiga þeir að
skila áliti til Waldheims fyrir 1.
júni á næsta ári.
Yitzhak Rabin, forsætisráð-
herra fsraels, sagði i Jerúsalem
i gærkvöldi, að samþykktirnar
hefðu engin siðferðileg áhrif eða
gildi.
Það var Sadat Egyptalands-
forseti, sem bar tillögurnar
fram er hann ávarpaði þing SÞ i
New York fyrr i þessum mán-
uði.
Fyrri ályktunin var samþykkt
með 101 atkvæði gegn átta.
Tuttugu og fimm sátu hjá. Bret-
land og Bandarikin greiddu at-
kvæði gegn báðum tillögunum.
Siðari tillagan var samþykkt
með 93 atkvæðum gegn 18. Tutt-
ugu og sjö sátu hjá, þar á meðal
Frakkland og Portúgal. Belgar,
Danir og Hollendingar voru
m.a. á móti.
Áfrýjunarréttur Aþenu hefur
látið niður falla ákærur um land-
ráð á hendur GeorgePapadopoulos,
fyrrum einræðisherra i Grikk-
landi. Jafnframt hefur verið fallið
frá landráðaákærum á hendur 14
ráðherrum hans fyrir að hafa
afnumið griska konungdæmið
með tilskipun og lýst yfir stofnun
lýðveldis 1. júni 1973.
Brezka blaðið Times skýrði frá
þessu i fyrri viku.
Papadopoulos, sem þegar hefur
veriðdæmdur til dauða (dómnum
siðan breytt i lifstiðarfangelsi) -
fyrir að skipuleggja byltinguna
1967, er nú fyrir rétti sakaður um
að hafa æst til fjöldamorða á
stúdentum, er efndu til uppþota
við tækniháskólann i Aþenu i
nóvember 1973.
Rétturinn, sem samanstendur
af öllum áfrýjunardómurum i
höfuðborginni, staðfesti þann
úrskurð saksóknara rikisins, að i
þessu tilliti væru sakborningarnir
saklausir.
1 dómsorðinu sagði: „Hinni
frjálskjörnu lýðræðisstjórn
Grikklands var steypt af stóli 21.
april 1967. Þar með var i raun
ekkert lýðræði i landinu, til-
hæfulaust var að kalla stjórnina
„konunglega” eða
„lýðveldisins”. Þvi skoðast það
ekki glæpur, að hafa komið á
einhverju skipulagi i stað þess,
sem i ráun var ekki til.”
Allmargir fyrrum ráðherrar
herforingjastjórnarinnar, sem
verið hafa i haldi og beðið réttar-
halda sinna, verða nú látnir
lausir. Aðrir hafa verið dæmdir
til dauða eða til langrar fangelsis- I
vistar. Tveir ráðherranna, sem |
Papadopoulos
sýknaður af
landráðaákœru
George Papadopoulos (t.v.) og Dimitrios Ioannides, fyrrum yfirmaður
leynilögreglunnar, við réttarhöldin i Aþenu.
undirrituðu tilskipunina á sinum Evrópu. Þeim verður nú frjálst
tima, flýðu siðar til Vestur- að snúa aftur.
Ford afþakkar
„come-back"
Nixons
Ford Bandarikjaforseti
sagði i sjónvarpsviðtali á
sunnudaginn, að hann teldi
ekki að Nixon, fyrrum forseti,
ætti i framtiðinni hlutverki að
gegna i rikisstjórn sinni. Hann
bætti þvi við, að hann teldi
ekki að viturlegt væri af Nixon
að snúa aftur til opinbers lifs.
Er forsetinn var spurður um
álit á þvi, hvort hann teldi við-
eigandi eða gagnlegt, að
Nixon sneri aftur til opinbers
lifs, svaraði hann:
„Ég álit ekki að það sé i
hans eigin þágu, og jafnvel
þótt hugsað væri lengra.”
Fagnað
úrskurði í
máli Quinlan
Vatikanið hefur látið i ljós
létti yfir úrskurði bandariska
dómarans Roberts Muirs um
að Karen Anne Quinlan fái
ekki að deyja fyrir tilstilli
lækna.
Vatikanið hefur allt frá
upphafi verið andvigt þvi, að
Karen fengi að deyja, eins og
foreldrar hennar hafa óskað
eftir.
Áhrifamikill guðfræðingur i
Páfagarði, faðir Gino
Concetti, skrifaði nýlega i blað
Vatikansins, L’Osservatore
Romano, að það væri „enginn
réttur ti! dauðans, það er að-
eins til réttur til að lifa.”
Rússar njósna
um flota-
œfingar NATO
Herafli átta NATO-rikja,
með mörg hundruð flugvéla,
hóf i gær mestu heræfingar
bandalagsins á sjó á þeásu ári.
Sovézk skip og flugvélar fylgj-
ast gaumgæfilega með æfing-
unum.
Norðurstjórn NATO sagði i
yfirlýsingu um heræfingarn-
ar, að rúmlega 17000 menn
tækju þátt i þeim. Æfingarnar
eru miðaðar við að verið sé að
leita að kafbátum út af vestur-
strönd Skotlands. Heiti áætl-
unarinnar er „Ocean Safari”.
Æfingarnar standa i 10 daga
og munu ná yfir svæði á Norð-
austur-Atlantshafi og Noregs-
hafi sömuleiðis.