Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 14.11.1975, Qupperneq 8

Dagblaðið - 14.11.1975, Qupperneq 8
8 Dagblaðið. Föstudagur 14. nóvember 1975. BIAÐIÐ frfálst, úháð datfblað Útgefandi: Dagblaðið hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason íþróttir: Hallur Simonarson Iiönnun: Jóhannes Reykdal Blaöamcnn: Anna Bjarnason, Asgeir Tómasson, Atli Steinarsson, Bragi Sigurðsson, Erna V. Ingólfsdóttir, Hallur Hallsson, Helgi Pétursson, Ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson. Handrit: Asgrimur Pálsson, Hildur Gunnlaugsdóttir, Inga Guðmannsdóttir, Maria ólafsdóttir. Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Björgvin Pálsson Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson Auglýsingastjóri: Asgeir Hannes Eiriksson Dreifingarstjóri: Már E.M. Halldórsson Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 40 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Ritstjórn Siðumúla 12, simi 83322, auglýsingar, áskriftir og af- greiösla Þverliolti 2, simi 27022. Tilfærslukerfin blífa Gamansamir menn segja, að nú sé verið að reikna, hvort betra sé að fara út- og suðurfærsluleiðina eða norður- og niðurfærsluleiðina. Slikir brandar- ar eru vel viðeigandi i þjóðfélagi, þar sem flest vandamál efnahagslifsins eru leyst til bráðabirgða með tilfærsl- um. Menn muna hvernig næstsiðasta rikisstjórn þurfti einu sinni siðla á ferli sinum að velja milli svonefndrar uppfærsluleiðar, niðurfærsluleiðar og millifærsluleiðar. Að baki þessara nafngifta liggur sú dapurlega staðreynd, að efnahagslifið er i stór- um dráttum orðið að bókfærslukerfi hjá hinu opin- bera. Hér rikir tiltölulega fullkomin jafnaðarstefna i efnahagslifinu. Rikið hefur tekið að sér að sjá um atvinnuvegina og flestir virðast ætlast til, að svo sé. Þetta leiðir til þess, að haldið er uppi framleiðslu i úreltum og dýrum atvinnuvegum, sem ekki eru til þess fallnir að standa undir góðum lifskjörum. I staðinn er hagvaxtar- og lifskjaragreinum haldið niðri. Ofnýting margvislegra tilfærslukerfa i hálfa öld hefur komið efnahagslifinu i slika bókhaldsflækju, að útilokað er orðið að meta raunverulegt gildi einstakra þátta atvinnulifsins. Ekki er unnt að bera saman afköst og fyrirhöfn hliðstæðra innlendra og erlendra atvinnugreina. Þvi siður er hægt að haga hinum ytri aðbúnaði atvinnulifsins á þann veg, að hagkvæmustu greinarnar eflist á kostnað þeirra, sem óhagkvæmastar eru. I þessu jafnaðarkerfi er stefnt að þvi, að út komi á núlli rekstur sem flestra þátta atvinnulifsins. í þvi skyni er beitt margvislegum tilfærslum, svo sem of háu gengi, sjóðakerfi, millifærslum, niðurgreiðsl- um, uppbótum og lánakjörum. Að svo miklu leyti sem þetta dugir ekki kemur rikissjóður sjálfur til skjalanna með þvi að auka skuld sina við Seðla- bankann og magna þannig verðbólguna. Engum virðist nú detta i hug önnur lausn á núver- andi efnahagsvanda en sú að fylgja einhverri hinna gamalkunnu bókhaldsaðferða. Að visu hefur ein leiðin, svonefnd uppfærsluleið, sem áður var einfaldlega kölluð gengislækkun, verið farin svo oft, að hana má ekki lengur nefna. Mest gamna menn sér við möguleika á niðurfærsluleið, sem lika ver^ ar eins og gengislækkun, en hefur verið svo sjalaan notuð, að hún er ekki eins óvinsæl um þessar mund- ir. Tilfærslukerfin hafa i hálfa öld dregið verulega úr hagvexti hér á landi og eiga mikinn þátt i þvi, að ís- lendingar verða að vinna óhóflega langan vinnudag til að komast i lifskjörum i samjöfnuð við nágrannaþjóðirnar. Þetta gildir meira að segja um starfsfólk i fiskveiðum og fiskvinnslu, sem löngum hefur haldið uppi þjóðarbúinu. Tilfærslukerfin hafa nefnilega um langan aldur stefnt starfskröftum og fjármagni i rangar áttir. Vegna alls þessa er ekki nema sanngjarnt að tala um val milli út- og suðurfærsluleiðar annars vegar og norður- og niðurfærsluleiðar hins vegar. öll þessi bókfærslukerfi hins opinbera eru rangfærsluleiðir, sem hindra þjóðarskútuna i að sigla á fullum dampi. Rafael Trujillo Molina, forseti Dóminíkanska lýðveldisins: MESTI ÞJOFUR VERALDAR? Á 30 árum dró hann sér helming allra eigna landsins Veröldin er yfirfull af þjófum, er sagt. Þjófar eru af ýmsu tagi. Þeir, sem verst verða úti úr hópi þjófa, eru smáþjófarnir. Þeir eiga yfir höfði sér refsingu og for- dóma þjóðfélagsins. Stórþjófarn- ir, sem stela milljónum og millj- örðum, ganga lausir yfirleitt. Einn af mestu þjófum okkar tima — ef til vill sá allra mesti — var Rafael Trujillo, einræðis- herra i Dóminikanska lýðveldinu. Þegar hann gekk á fund feðra sinna 1. júni 1961 var hann talinn vera 1520 billjóna virði. Það er á- gætis skotsilfur. En hann gerði ein meiriháttar mistök, sem kostuðu hann lifið. Hann fór að gera sér dælt við kommúnista. Langurog miskunnarlaus arm- ur bandarisku leyniþjónustunnar CIA náði til hans. í skottinu á yfirgefnum bil Endalok Trujillos urðu blóðug. Fyrstgerðist þaðað sitthvað þótti benda til þess að hann hefði lent i „einhverju”: blóðpollur, hers- höfðingjaskikkja hans, glerbrot og tómt magasin sjálfvirkrar skammbyssu. Daginn eftir fannst lik hans sundurskotið i farangurs- geymslunni á yfirgefnum bil. Hann hafði sjálfur endað lif sitt á sama hátt og hann hafði látið svo marga aðra enda sin á. Er Trujillo dó 1961 var hann þekktur og fyrirlitinn fyrir að vera einhver blóðugasti harð- stjóri veraldar. Sá hluti ferils hans er rækilega kortlagður. Minna hefur verið vitað með vissu um haganleg viðskipti hans sem þó eru ekki siður fróðleg lesning. Byrjaði sem hestaþjófur Rifjum upp nokkur atriði um fortið Trujillos: Rafael Trujillo fæddist 1891 i smábæ skammt frá höfuðborg- inni Santo Domingo. Faðir hans var póstþjónustumaður. Tiu ára gamall komst Trujillo i skóla. Fjórum árum siðar lauk skólagöngu hans og fjórum árum eftir það gerðist hann simritari. 1912 skipti hann um atvinnu og gerðist hestaþjófur og veðmang- ari. Tæpum fimm árum siðar réðst hann til bandarisks sykur- fyrirtækis sem ráðgjafi og eftir- litsmaður. Ekki liðu nema tvö ár þangað til hann hafnaði i fangelsi ásamt Petan bróður sinum. Þeir höfðu falsað vöruskýrslur og dregið sér fé. Hann var orðinn 27 ára gamall þegar hann slapp úr fangelsinu eftir að hafa afplánað sex mán- aða dóm. Þá grunaði engan að Rafael ætti eftir að verða forseti og einn auðugasti maður verald- arinnar. Njósnir fyrir Bandarikin Stóra tækifærið kom 1919 þegar Bandarikjaher gerði innrás i ey- rikið til að koma á jafnvægi inn- anlands, einskonar forsmekkur af innrásinni 1965. Trujillo réðst sem njósnari til bandariska setuliðsins. Fljótlega varð hann undirforingi i alræmd- um her sem settur var i að bæla niður mótmæli alþýðu landsins er oft brauzt út i skæruhernaði. Það tók Bandarikin þrjú ár að koma ástandinu i Dóminikanska lýðveldinu i þolanlegt ástand. Setuliðið fór úr landi og Trujillo reis til metorða i hernum. í laumi fór fram blóðug valdabarátta inn- an hersins og Trujillo varð yfir- maður heraflans 1927. Einn i framboði. Fljótt er fariðyfir sögu. Þrem- ur árum siðar var Trujillo kjörinn forseti iandsins. Hann var forseti i 31 ár, til æviloka. STÚDENTAR Ul f——— Fyrir mörgum árum gerði Kristján Albertsson það að tillögu sinni að teknar yrðu upp óvenju- legar refsingar yfir ósiðuðum ungum mönnum, sem réðust á gamlar konur og beittu þær of- beldi. Hann lagði til að þeir væru rassskelltir opinberl. á Lækjar- torgi eða lokaðir þar inni i búri, svo allir mættu skoða þessi afstyrmi. A bak við bjó hjá Kristjáni i stranglegu aldamóta- siðgæði hans, að' hann taldi að gæjar þessir stæðu ekki á hærra siðgæðis- og menningarstigi en forfeður okkar, aparnir i frum- skóginum. Þvi væri eðlilegt að loka þessi dýr inni i búri eins og hverjar aðrar skynlausar skepn- ur. Auðvitað tök enginn alvarlega þessar makalausu tillögur Kristjáns, þó hann hefði orðið fyrstur til að „uppgötva” Kiljan og þó hann setti þær ábyggilega fram i' fullri alvöru. Þær urðu um skeið gamanmál yfir kaffibollum á Hressó. Og auðvitað vorum við allir svo hámenntaðir og frjáls- lyndir, að þetta varð ekkert nema grfn. Við nútimamenn erum svo mannúðarfullir og hátt upp hafnir yfir likamlegar refsingar og gapastokka, sem geta sært viðkvæmar sálir, að auðvitað kom þetta ekki til greina. En nú get ég ekki að þvi gert, að það hvarflar að mér i raun og veru, hvort ekki sé kominn timi til að taka i praxis hugmyndir Kristjáns Albertssonar. Þær fréttir utan frá Noregi, að hópur íslenskra námsmanna i Björgvin hafi tekið sig til og reist islensku rikisstjórninni niðstöng ásamt með særingum og bölbænum, eru svo ógeðslegar og strákslegar, að það hvarflar að manni, hvort við ættum ekki að gera út safari- leiðangur til vesturstrandar Noregs, veiða þessi villidýr i net og gildrur, hvar sem þau eru á stjái I greniskógarrjóðrum upp um Flöjen, og flytja þau heim i búri. Ég vil nú ekki leggja til að farið verði að rassskella þau á Lækjartorgi, til þess er ég alltof viðkvæmur dýravinur, en hitt væri ei svo fjarri lagi að koma upp búri fyrir hópinn i Sædýra- safninu i Hafnarfirði við hliðina á simpönsunum, svo mætti merkja það „íslenskir stúdentar frá Björgvin. Aðvörun, þeir klóra og blta.” Siðan væri sjálfsagt að Sædýra- safnið fengi námsstyrki þessa „rúmpulýðs”, svo að það kæmist úr kröggum og gæti bætt við hliðina búrum með fleiri tegund- um af órangútönum og apakött- um. Niðstöngin við Björgvin er hámarkið i þeirri ógeðslegu heimtufrekju, stráksskap og dónahætti sem svokallaðir for- ustumenn stúdenta hafa sýnt i haust vegna takmörkunar og skerðingar námslána. Ég held það sé nú alveg ljóst að framkoma þessara ungu óupp- dregnu pilta hefur hneykslað þorra almennings og er hætt við að hún skaði málstað stúdenta i framtiðinni. Stúdentar skammast sin margir fyrir þetta og óvild alþýðustétta i þeirra garð hefur vaxið stórkostlega og sú spurning gerist áleitin viða, hvers vegna sé verið að moka milljarðafjár- magni i þessa einskisnýtu iðju- leysingja og ræfla sem hugsi ekki um nema eitt af tvennu, að slæpast eða komast sem allra billegast og fljótast með rikis- styrkjum upp á hálaunadyngjur skriffinnskunnar. Ég er nú ekki alveg sammála þeim hörðu orðum sem ég heyri viða um svokallaðan „stúdenta- skril”. En hitt gefur auga leið að pottur er brotinn. Það er ekki verst að þeir eru heimtufrekir, hitt er enn miklu verra að þar fer saman heimtufrekja og ábyrgðarleysi. Setja verður það frumskilyrði að sá, sem heimtar og fær, sýni að hann er þess verð- ur að fá. Alveg sama gildir hina svo- kölluðu þrýstihópa i þjóðfélaginu. Það versta við þá er að þeir eru ábyrgðarlausir og búa hvorki um né sópa gólfin I sinu sóðabæli. Þegar þeir hafa þröngvað sinu fram, er þeim skitsama, hvernig allt rekur á reiðanum i sóun, mis- munum og ranglæti. Um leið og stúdentar mynduðu hagsmunasamtök til að heimta, þá láðist þeim að samtökin skyldu líka vera ábyrg og tryggja að þeim gifurlegu fjármunum, sem veitt var til þeirra, væri heiðar- lega og réttlátlega úthlutað. Það er nú ljóstað svo hefur ekki verið. Engin innri gagnrýni eða aðhald virðist þekkjast i samtökunum. Ekkert var rumskað við i þessu, meðan Islendingar voru eyðslu- rikir og allir voru að swinga með milljónir. En nú þegar að kreppir og allir sjóðir eru tæmdir, er þetta eitt af mörgu, sem hlýtur að lenda undir smásjá og verður að færast i lag áður en peningaaustri er haldið áfram úr tómum rikis- sjóði. Tvennar óhæfur eru aðallega gagnrýndar. I fyrsta lagi að slæp- Föstudags- grein ingjar geti spilað upp á styrk og i öðru lagi að vel stæðir menn með góðar tekjur geti bætt við sig námslánum til að lifa swingandi ljúfu lifi. Sterkur orðrómur er um að báðar þessar fáránlegu öfgar viðgángist i sk jóli þess að lánaút- hlutun fer fram ómanneskjulega I gegnum tölvur án alls tillits til persónulegs hags. Þessu verður hvoru tveggja að kippa i lag og enginn er fremur til þess skyldur að axla þá ábyrgð en einmitt samtök námsmanna, sem ættu með heilu kerfi umboðsmanna að vera öllum hnútum kunnug. Ekki er rétt að taka mikið mark á heimtufrekju námsmannasam-

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.