Dagblaðið - 14.11.1975, Blaðsíða 24
frjálst, óháð daghlað
Föstudagur 14. nóvember 1975.
„ÉG lifði EINS OG GREIFI"
— sagði 15 ára piltur sem stal á 5. hundrað þúsund kr.
til að njóta „hins Ijúfa lífs"
Fimmtán ára piltur i Keflavik
viðurkenndi i gær að hafa brot-
izt inn i sölubúð kaupfélagsins
við Faxabraut 28. október og
stolið þaðan peningakassa með
2—300 þúsund kr. i. Sami piltur
viðurkenndi i gær að hafa i
fylgd með öðrum 14 ára pilti
brotizt inn i Gagnfræðaskóla
Keflavikur i fyrrinótt og stolið
þaðan um 130 þús. kr. og unnið
þar gifurleg skemmdarverk.
John Hill rannsóknarlög-
reglumaður i Keflavik vann að
rannsókn þessa máls. Kvað
hann piltinn hafa verið undir
grun og var hann meðal þeirra
sem yfirheyrðir voru er kaupfé-
lagsþjófnaðurinn var i rann-
sókn. Þar var. hann einn á ferð
og harðneitaði öllu. 1 gær gaf
hann sig og viðurkenndi glæp-
inn.
1 kaupfélagskassanum voru
2—300 þús kr. Hluti af þvi var i
ávisunum og brenndi hann
þeim. Fénu hafði hann öllu eytt i
lystisemdir. „Lifði eins og
greifi”, eins og hann orðaði það
sjálfur. Á uppsprengdan pen-
ingakassann visaði pilturinn i
söluskúr við iþróttavöllinn.
i innbrotinu i skólann var
hann með 14 ára pilti, sem er i
skólanum og hafði hlerað að
peningafúlga væri þar geymd
vegna bókasölu. Sá 14 ára var
drukkinn við innbrotið. Þeir
leituðu fyrst i skólastjóraskrif-
stofunni, fundu ekkert, urðu
reiðir og hófu skemmdarverkin.
Þá eygðu þeir skjalaskápinn,
sem þeir brutu upp. Þar var
„fjársjóðuriiin”, alls 170 þús.
kr„ en þeir skildu ávisanir eftir
en höfðu á brott með sér rúm-
lega 130 þús. kr. i peningum.
f fórum piltanna fundust 137
þús. krónur og var þeim skilað
til skólans. Yngri pilturinn var
sendur á upptökuheimilið i
Kópavogi.
ASt
Krakkarnir í
Árbœ grípo
til sinna ráða
Gamalt hús á Selásbletti 2 i Ar-
bæjarhverfi hefur lengi verið
mörgum til ama, ekki sizt skóla-
fólki i Arbæjarskóla. Lögreglunni
hafa borizt margar kærur um
svall og óreglu þarna en þangaö
hafa leitað ýmsir ógæfumenn
þjóðfélagsins. Nú hefur ibúum
hússins verið komið fyrir annars
staðar en eigandi þess ekki efnt
loforð um lagfæringar eða niður-
rif.
Nú hafa krakkar i hverfinu tek-
ið til sinna ráða og eru byrjuð á
niðurrifi hússins. Óttast lögreglan
að þau geti farið sér að voða við
þetta niðurrif og hefur tvivegis
haft afskipti af þeim við iðju
þeirra. Þyrftu yfirvöld þarna að
gripa inn i og koma i veg fyrir aö
slys geti af hlotizt.
—ASt.
MEÐ ÁMINNINGUM" “ ;ií ^
„BYRJUM
„Við höfum alltaf byrjað með
áminningum,” sagði Pétur Sig-
urðsson, forstjóri Landhelgis-
gæzlunnar, laust fyrir hádegið.
„Við erum ekki komnir að
neinum ennþá en sjáum, hvað
setur.
Það var vitlaust veður f nótt
fyrir vestan, og togararnir voru
inni á fjörðunum. Þeir voru að
leggja út i morgun. Enginn
brezkur togari var undan
Suðurlandi, allt að Hvalbak.
Þar hafa verið einn og tveir
siðustu daga,” sagði Pétur.
„Fyrir norðan var spáð vonzku
veðri. Við gerum ráð fyrir, að
flestir brezku togararnir haldi
sig fyrir austan.
Enn ligur laust, hvað gert
verður,” sagði hann. Islenzkir
ráðherrar hafa lýst yfir, að
engin grið verði gefin Bretum,
þótt ráðherrann Hattersley sé
væntanlegur um helgina til við-
ræðna við Islendinga.
Allar undanþágur útlendinga
til veiða innan 200 milna runnu
út á miðnætti siðastliðnu.
Brezki sjávarútvegsráð-
herrann Edward Bishop sagði i
gær, að Bretar væru reiðubúnir
að fallast á 200 milna efnahags-
lögsögu, ef um það yrði samið á
alþjóðlegu hafréttarráð-
stefnunni, en ekki fyrr. Hann
mótmælti þvi, sem hann kallaði
„ryksuguveiðar” sumra rikja
og sagði, að þær striddu gegn
sjónarmiðum umhverfis-
verndar.
HH
Hér eru leifar bilsins sem
ekið var aftan á kyrrstæðan
dráttarvagn Vegagerðarinn-
ar austur á Djúpavogi 8.
nóvember sl. 1 þessu slysi
hlutu þri'r piltar mikil
meiðsli og einn þeirra liggur
enn meðvitundarlaus i gjör-
gæzludeild Borgarspitalans.
Er hann þar i öndunarvél
vegna heilaskemmda er
hann hlaut i slysinu. — ASt.—
Með breyttu fyrirkomulagi tannlœkninga
Gullœði" á íslandi
Menn eru farnir að kalla þetta
„gullæði”. Meö breyttu fyrir-
komulagi á tannviðgerðum
skólabarna er tannlækni i
sjálfsvald sett, hvaða ókeypis
aögerðir hann telur nauðsynleg-
ar. Þar á meðál gullfyllingar.
Otkoman eru miklu meiri að-
gerðir og hærri reikningar en
áður var.
Gisli Teitsson framkvæmda-
stjóri Heilsuverndarstöövarinn-
ar sagöi i viðtali viö Dagblaðið,
að öll skólabörn á aldrinum
6—15 ára ættu nú rétt á fuli-
komnum, algerlega ókeypis
tannlækningum, að frátöldum
tannréttingum, eftir samkomu-
lag við tannlæknafélagið frá 19.
april siðastliðnum. Þetta hefði
valdið miklum breytingum.
Börn 3—5 ára, unglingar 16
ára, fólk eldra en 67 ára og ör-
orkulifeyrisþegar eiga rétt á aö
fá helming kostnaöar við tann-
lækningar endurgreiddan,
nema gullfyllingar, krónu- og
brúargerðir. Þeir, sem fá þessa
þjónustu, framvisa reikningum
hjá sjúkrasamlagi. „Nú eru
læknar i vaxandi mæli að segja
upp hjá skólatannlækningum,”
sagði Gisli. Börnin eru látin
koma i stofu tannlæknisins. 1
skólatannlækningunum fær
læknirinn aðgang að stofu og
tækjum, en læknarnir vilja
greinilega heldur fá börnin i
stofuna til sin. Gisli kvaðst
hafa séð reikninga hjá sjúkra-
samlaginu og hefðu þeir verið
allt upp i 231 þúsund krónur fyr-
ir slikar aðgerðir. „Niðurstaðan
er, að reikningarnir hafa hækk-
að,” sagði Gisli. Hann benti á,
að fyrir ókeypis gullfyllingar
væru siðustu forvöð, þegar ung-
lingurinn væri 15 ára.
Þvi er lagt i slikar aðgerðir af
kappi, áður en unglingurinn
verður 16 ára, þvi að eftir það
eru gullfyllingar ekki lengur ó-
keypis. Þvi sýna nú æ fleiri ung-
lingar gullfyllingarnar sinar,
þegar þeir brosa og tannlækn-
arnir hafa fengið „mokbis-
ness.”
—HH
ÞINGMENN AFSALA
SÉR LAUNUM!
Nokkrir alþingismenn hafa
afsalað sér kaupi, það er að
segja þeim kennaralaunum,
sem þeir höfðu áður haldið sam-
kvæmt „kerfinu”.
Þingmennirnir Karvel
Pálmason, Jónas Árnason,
Helgi Seljan og Sigurlaug
Bjarnadóttir hafa náð samning-
um um að sá hluti kennara-
launa, sem kerl'ið ætlaði þeim,
verði felldur niður. Samkvæmt
þeim reglum, sem gilda um
laun þingmanna, geta þeir
haldið læpum þriðjungi launa,
er þeir hafa sem opinberir
starfsmenn, þegar um ræðir
þingmenn utan af landi. Jónas
Árnason sagði i viðtali við Dag-
blaðið að sig hefði fýst að af-
neita þessum launum fyrr. Sá
hængur hefði verið á, að við það
hefðu falliö niður margs kyns
réttindi, sem hann hefði haft,
svo sem lifeyrissjóðsréttindi.
„Maður heföi ekki átt i neitt hús
aö venda,” sagði Jónas, ,,ef
kennarastarfið hefði algerlega
veriö lagt niöur. Nú hefur verið
samið um, að við höldum rétt-
indum okkar sem kennarar en
launin falli niður.”
Jónas kvaðst hafa starfað um
tima kauplaust viö aukakennslu.
i Stýrimannaskólanum, þvi að
sér hefði fundizt óréttlátt að
þiggja laun samkvæmt kerfinu
fyrir ekki neitt.
Nú er eftir að sjá, hvort aðrir
þingmenn, sem eru jafnframt
opinberir starfsmenn, fylgja i
fótspor kennaranna. —Hll
Tónlistarf élagið
býður upp á nýjung:
Leika saman
á tvö píanó
Það mun vera harla óvenju-
legt hér á landi, aö pianóleik-
arar flytji tónlist sina saman á
tvö pianó. Svona samleikur
hefur að undanförnu rutt sér
mjög til rúms erlendis og nýt-
ur orðið mikillar hylli.
Á morgun, laugardag, munu
pianóleikararnir Halldór Har-
aldsson og Gisli Magnússon
leika nokkur verk, frumsamin
eða umsamin fyrir tvö pianó.
Hljómleikar þessir verða á
vegum Tónlistarfélagsins i
Reykjavik og verða haldnir i
Háskólabiói. Þeir hefjast
klukkan liálf þrjú.