Dagblaðið - 11.05.1976, Side 7

Dagblaðið - 11.05.1976, Side 7
7 DAliBI.Atm). I'KIt).J l' 1)A(íl'l\ 11. MAl 1976. V-Þýzkaland: Miklar óeirðir vegna dauða Ulríke Meinhof: VAR HÚN MYKT? F.jölmennt varalið lögreglu- manna og öryggisvaröa hefur nú fengið skip'un um að vera við öllu búið þar sem það gætir opinberra byggfnga og annarra hugsanlegra staða sem stuðningsmenn Baader- Meinhof samtakanna gætu valið sem skotmörk í hefndar- sk.vni vegna dauða annars leið- toga samtakanna, Ulrike Mein- hof. Eins og kunnugt er fannst hún látin í fangaklefa sinum í Stammheim fangelsinu, þar sem hún hafði verið i haldi frá því að hún var handtekin fyrir fjórum árum. Systir Ulriku hefur nú fengið lík hennar afhent og mun láta sérfræðinga skoða það. Er hún sannfærð um að eitthvað gruggugt sé á seyði varðandi dauða systur hennar, vegna þess að Ulriku myndi ekki hafa komið tíl hugar að fremja s.jálfsmorð. Dómsmálaráðherra Baden- Wiirtembergfylkis hefur harð- lega neitað ásökunum lögfræð- ings Baader-Meinhof samtak- anna þess efnis, að stjórnvöld hafi skipulagt dauða hennar. Viðbrögð stuðningsmanna samtakanna hafa verið mjög hörð. í miklum mótmælum í aðalverzlunarhverfi Frankfurt- borgar kom til átaka milli lögreglu og stuðníngsmann- anna, sem voru rúmlega 1000 að tölu. Er lögreglan reyndi að dreifa mannfjöldánum, hentu nokkrir úr hópnum benzín- sprengjum að þeim. Tveir lögreglumanna brenndust hættulega og var þá gripið til vatnsbyssunnar, sem lögreglan í Þýzkalandi notar gjarna til þess að dreifa mannfjölda. Þá var sprengju varpað að þýzkri menntastofnun í Róm í gær. Engan sakaði, en tölu- verðar skemmdir urðu á húsinu. I-iafa samtök, sem kenna sig við Holger Meins, lýst sig ábyrg fyrir skemmdar- verkinu. Það eru sömu samtök og sprengdu upp sendiráð Þýzkalands í Stokkhólmi i f.vrra. Lögreglan um gervallt V-Þýzkaland hefur uppi mikinn viðbúnað, vegna þess að menn óttast, að nú kunni að draga til tiðinda á sviði hermdarverka. Stuðningsmenn Baader-Meinhof-samtakanna hafa þegar látió til sin heyra svo um munar og hér má sjá lögregluþjóna á verði í Hamborg. SIVALO LUCKY-SETT FRA KR. 180 ÞUS. Ítalía: FJÓRUM MILUÖRÐUM VARIÐ TIL UPPBYGG- INGARSTARFSINS — Tala látinna nú orðin 842 Ríkisstjórn Italíu hefur ákveðið að verja allt að fjórum milljörðum króna til uppbyggingar og hjálparstarfs á jarðskjálftasvæðinu í norðurhluta landsins. Akvörðun um þetta var tekin á fundi ráðherra, þar sem Aldo Moro var í forsæti. Kommúnistar hafa undanfarna daga gagnrýnt stjórnina harðlega fyrir slæleg vinnubrögð við skipu- lagningu hjálparstarfsins og krafizt hærri bóta til handa þeim, er. verst höfðu orðið úti og til kaupa á lyfjum og hjálpar- gögnum. Mario Toros atvinnumála- ráðherra sagði eftir fundinn að þessi greiðsla væri aðeins sú fyrsta, miklum fjárhæðum yrði varið til uppbyggingarstarfsins í framtíðinni. Tala látinna á Ítalíu er nú orðin 842. Sameinuðu þj óðirnar: Mótmœla Bandaríkin aðild Angóla? Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna mun koma saman á sérstakan fund í dag til að ræða inntökubeiðni Angóla í samtökin. Angóla fór fram á að mega gerast aðili að samtökunum í bréfi til Kurt Waldheims 28. apríl og talið er fullvíst að landinu verði veitt sú aðild, enda þótt ýmsar bollaleggingar hafi verið uppi um að Banda- ríkin, sem ekki hafa viðurkennt stjórn Angóla, kunni að bera fram einhver mótmæli. Sjóstangaveiðimót — Keflavík Veiðifélagið Sjóstöng Keflavík gengst fyrir sjóstangaveiðimóti frá Keflavík laugardaginn 22. maí nk. Þátttöku þarf að tilkynna í síðasta lagi 15. maí nk., þátttökugjald er 8000 kr. Nánari upplýsingar gefa: Margeir Margeirs- son, Keflavík, símar 1589 og 2814, Einar Jónsson, Reykjavík, símar 82893 og 15852, Þorbjörn Pálsson, Vestmannaeyjum sími 1532 og Karl Jórmundsson Akureyri sími 22933. SVEFNBEKKUR KR. 34 ÞÚS. EINSMANNS RÚM FRÁ KR. 49 ÞÚS. OG HJÓNARÚM FRÁ KR. 62 ÞÚS. MAHONIHJÓNARÚM MEÐ DÝNU KR. 98 ÞÚS. r Springdýnur HELLUHRAUNI20 HAFNARFIRÐI SÍMI53044 0PIÐKL. 9-7 LAUGARDAGA 10-7

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.